Morgunblaðið - 04.12.1988, Side 18

Morgunblaðið - 04.12.1988, Side 18
/ 18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. DESEMBER 1988 Fullveldisdagnr — Hve margir enn? FULLVELDISDAGURINN. Aftnælishátíð. Sjötíu ár síðan famenn þjóð fagnaði sigri. Það var harður vetur. Heimsstrið og þrengingar í landsverslun og útflutningi. í tæpa öld hafði frelsisheljur i fátæku landi dreymt stóra drauma. Þær héldu fámenna héraðsfúndi og sóttu Þingvelli heim. Sendu bænarskrár og yfirlýsingar til konungs. Sátu á Alþingi annað hvert ár í fáeinar vikur. í litla sal Lærða skól- ans voru líflegar umræður. Foringinn frá Kaupmannahöfn flutti andblæ nýs tíma. Bændahöfðingjar og sýslumenn voru margir fúllir efa. Gat fámenn þjóð við nyrsta haf gert sér vonir um fúllveldi og fijálsan rétt? Höfðu ekki aldir einokunar og nýlendudrottnunar gert útaf við þrótt íslendinga? 0 Ar eftir ár, áratug eftir áratug birtu þeir greinar, gáfu út blöð og tímarit, héldu fundi og rituðu bænarskrár. Talað orð, penninn og prentvélin — sú eina sem lengi var í landinu — voru þeirra vopn. Gaml- ar lögbækur voru grundvöllur bar- áttunnar. Hugsjónin var sá kraftur sem blés eldi í glæðurnar þegar þær virtust nánast kulnaðar. Fullveldisdagurinn. Fyrsti des- ember. NÚ er kraftaverkið orðið hversdagslegt. Önn dagsins orðin svo mikil að fáir gefa sér tíma til að minnast og fagna. Hátíðahöldin nánast engin. Ys og þys á götum og í verslunum. Fullveldi og sjálf- stæði bara orð í litlum tengslum við verkefni dagsins. Samt sýnir sagan að þau eru á engan hátt sjálf- gefin. Baráttan hefur verið hörð. Lengi vel voru íslendingar minnsta ríki veraldar. Fátækir bændur og sjómenn í harðbýlu Iandi. Öld eftir öld aðeins um sjötíu þúsund manns. Iitil þorp. Af- skekktar byggðir í dölum. Aðeins- fáein skip á ári hveiju frá erlendum höfnum. Harðæri og drepsóttir. Samt þraukaði þjóðin. Viljinn var sterkur. Krafturinn mikill. Enn erum við vissulega smáir á mælikvarða heims- þjóða. En sjötíu ár hafa orðið tími mikilla umskipta. Við erum nú í fremstu röð velferð- arríkja veraldar. Heilsugæsla og menntakerfi eru til fyrirmyndar. Aðeins fáeinar þjóðir stand- ast þar samanburð við okkar Igör. Fjöl- miðlun flytur okkur daglegar fréttir á við það besta sem gerist hjá stórþjóð- um. Bflar og sjón- varpstæki, símar og ísskápar, ferðalög og uppþvottavélar, — íjöldinn á hvem mann með því mesta í heimi. Láfsþægindin eru orðin daglegt brauð hjá flestum. Fátækt fyrri alda sem betur fer efniviður sagnfræð- inga. Fyrirhöfn og erfíðleikar fyrri ára- tuga eru fallin í gleymskunnar dá. Þannig gleymist amstrið sem betur fer hjá flestum. Engu að síður er hollt að minnast að oft hafa óveð- ursský skapað dimmu á miðjum degi. Kreppan mikla fyrir fimmtíu árum var Islendingum eins og öðr- um þjóðum ærið erfiði. Atvinnuleys- ið var harður húsbóndi. Matur af skomum skammti á þúsundum heimila. Markaðir lokuðust og verð á útflutningi féll ár frá ári. Fyrirtæki strönduðu og byggðarlögin voru sum að missa alla von. En dagur rís ætíð í kjölfar nætur. Og glaðir í huga gengu menn til nýrra verka. Síðan kom heimsstríð á ný. Okkur er tamt að kenna það við gróðatíma. Menn gleyma þá oft óviss- unni og hörmungun- um, þjáningum þeirra sem biðu milli vonar og ótta meðan hildarleikurinn mikli var háður á völlum HVGSAD VPPHÁTT í dag skrifar Ólafur Ragnar Grímsson formadur Alþýdu- bandalagsins. meginlandsins og úthöfum. Að stríði loknu var lýðveldið unga á hættubraut. Erlendir togarar fóm helgreipum um fískimiðin. Útfærsla landhelginnar varð brýn nauðsyn. Bretar létu herskip gæta fornra réttinda. Mörkuðum var lokað. Út- flutningsbann skapaði nýjar þreng- ingar. Evrópa var í rúst. Heimurinn í sárum. Samt hófu íslendingar á ný merki sóknar og baráttu. Sigur vannst og nýr dagur rann bjartur í kjölfar nætur. Enn á ný eru tímar erflðir. í góðæri síðustu ára var eytt og só- að. Stjórnvöld skorti dug og kjark til að horfast í augu við nauðsynleg verk. I stað þess að safna forða var lausnin fólgin í aukningu erlendra skulda og gífurlegum halla í rekstri ríkissjóðs. Verslunarhallir risu vítt og breitt um höfuðborgina, ný glæsihótel buðust ferðamönnum, flugstöðin líktist músteri guðs, Seðlabankinn byggði sjálfum sér klettaborg. Allt þetta og annað eins fyrir erlend lán eða gervifé. Mistök- in eru hrikaleg. Óstjómin dýrkeypt. Og nú er komið að skuldadögum. Verðfall erlendis og afli fer minnk- andi. Fjárfestingin hefur reist fyrir- Verðfall vegna aukins framboðs: Áhyggjur Breta vegna íslenskra „undirboða“ VERÐFALL varð á óunnum fiski í Bretlandi í liðinni viku vegna aukins framboðs en samráðsnefnd um útflutning á óunnum fiski ákvað að takmarka ekki söluna í þessari viku. Togaraeigendur og fiskkaupítienn í bænum Lowestoft á austur- strönd Englands hafa áhyggjur af íslensku „undirboði" á óunnum físki í Bretlandi, sérstaklega þofski og kola, að sögn breska tímaritsins Fish ■ Trader. Það segir að mikið framboð af físki frá íslandi í Grimsby og Hull að undanfömu hafí valdið verð- lækkun á breskum físki. „Ég held að engum hafí dottið í Bátar frá Höfii í söluferðum Höfn, Hornafirði. HVANNEY SF seldi 34 tonn af fiski í HuII fyrir skömmií. Meðalverð var um 70 kr/kg. Þórhallur Daníelsson SF var á sama tima í Englandi en innanbæjar verkalýðsvandræði í Grimsby ollu því að ekki fékkst landað úr honum þegar til stóð. Söluferðir hafa verið tíðar í haust og sennilega mun meira um siglingar en í annan tíma. Fiskiðja * kaupfélagsins hefur ekkert fryst | undanfarið nema síld, svo það er ‘ ef til viil ekki um margt annað að • ræða en að sigla. Erlingur og Garð- ey eru svo til nýkomin úr siglingu, > Vísir selur í byijun desember og Freyr seldi í Englandi í vikunni. - JGG hug að það yrði selt svona mikið magn í Bretlandi í vikunni," sagði Vilhjálmur Vilhjálmsson, fulltrúi hjá LÍÚ. „Það var verið að tala um treg- veiði og kvótaleysi. Ég rek þetta of- framboð fyrst og fremst til stöðu fískvinnslunnar. Ef rekstrargrund- völlur hennar yrði lagfærður myndi framboðið minnka. Það virðist ekki vera neinn vilji fyrir því að vinna fisk héma núna,“ sagði Vilhjálmur. Reglum um leyfi til sölu á óunnum físki breytt Landssamband íslenskra útvegs- manna hefur breytt reglum um sölu á óunnum fiski úr fiskiskipum í Bretlandi og Vestur-Þýskalandi. Umsóknarfrestur um leyfí til sölu í Vestur-Þýskalandi fyrstu fimm mánuði næsta árs og í Bretlandi í janúar og febrúar næstkomandi rann út á fímmtudaginn, að sögn Kristjáns Ragnarssonar. Kristján sagði að regluma: hefðu verið þannig að LÍÚ hefði á fímmtu- dögum veitt leyfi til sölu 5 vikum siðar. Þeir fengu leyfí sem fyrstir komu á skrifstofur LÍÚ til að sækja um þau og því mynduðust biðraðir á skrifstofunum. Hann sagði að þetta hefði verið óþolandi fyrir- komulag. Hann sagði að óvissan á Bret- landsmarkaði væri ekki eins mikil og á vestur-þýska markaðinum og því hefðu menn einungis þurft að sækja um leyfí til sölu í Bretlandi fyrstu tvo mánuði næsta árs. Hann sagðist vonast til hægt yrði að hliðra til þannig að framboðið yrði nokkuð jafnt. Það gengi hins vegar ekki að hafa óheftan útflutning á óunnum físki í gámum. Morgunblaðið/Diðrik Jóhannsson Hamrahlíðarkórinn og Kór Menntaskólans í Hamrahlíð sungu í Logalandi undir stjórn Þorgerðar Ingólfsdóttur. Tónlistarfélag Borgarfjarðar: Þorgerður stjórnaði söng tveggja kóra Hvannatúni í Andakíl. ANNAÐ verkeftii Tónlistarfélags BorgarQarðar á þessum vetri var söngur Hamrahlíðarkórsins og Kórs Menntaskólans við Hamrahlíð undir stjórn Þorgerðar Ingólfedóttur Undirtektir áheyrenda í Loga- landi voru frábærar þegar Þorgerður Ingólfsdóttir stjórnaði af sinni alkunnu snilld söng kó- ranna sunnudaginn 20. nóvember. Kóramir sungu ýmist sameigin- lega, sér, blandaðir að hluta eða sem tveir kórar á tveimur stöðum í húsinu í senn. Á efnisskránni voru ijölbreytileg verk, þjóðdansar, lofsöngur, kór- þáttur úr Magniflcat eftir Bach, fomir gyðingasöngvar, verk eftir Pál ísólfsson og nútímaverk eftir Þorkel og Atla Heimi. Verkið Ek Wiwar flutti Hamrahlíðarkórinn nú opinberlega í annað sinn. Það var mat manna að þetta hafí verið frábær söngskemmtun og einstakur tónlistarviðburður í Borgarfírði. Hafi Tónlistarfélagið þökk fyrir framtakið og sérstakar þakkir til allra kórfélaga og Þor- gerður Ingólfsdóttir fyrir komuna og verið velkomin aftur í Borgar- flörð. - D.J.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.