Morgunblaðið - 04.12.1988, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. DESEMBER 1988
19
tækjum hurðarás um öxl. Kaup-
máttur þverr og verslanir tæmast.
I skyndingu á septemberdögum
gafst „ríkisstjómin sterka“ upp við
að leysa úr erfiðleikunum. Þjóðin
var á krossgötum. Stefna fyrri ára
hafði beðið skipbrot.
Hvað hugsa svo menn sem á
skömmum tíma taka ákvörðun um
að ganga í erfið verk? Á hveijum
degi kalla brýn verkefni á hugann
allan. Þó gefst tóm til að líta upp
og horfa á birtu nýs dags út við
sjóndeildarhringinn. Sagan kennir
veldi sínu. Þær hafa týnt sjálfstæð-
inu með óráðsíu og skuldasöfnun.
Þær hafa fært erlendum lána-
drottnum og framandi ríkjum öll tök
á sínum málum. Uppgjöfin hefur
orðið þeirra sögulega hlutskipti.
Það mega ekki verða örlög hins
unga íslenska fullveldis.
Næsta ár verður prófsteinn á
okkar vilja. Verður sóunin og eyðsl-
an það bál sem brennir undirstöður
sjálfstæðisins? Er viðskilnaður
síðustu ára svo hrikalegur að menn
fórni höndum og gefíst upp? Eða
„Auðvitað eru hér mikil auðævi. Við
eigum fagurt land, dýrmæt fiskimid,
einstæðar orkulindir í failvötnum
og iðrum jarðar. Þjóðin er menntuð,
víðsýn og viljasterk. Erfiðleikar
næstu missera eru í raun mun minni
en oft áður í sögu hins unga full-
veldis. Áður fyrr tóku menn saman
höndum og gengu I verkin. Þeir
höfðu vilja, áræði og þor. Höfum við
það nú?“
HÁÞRÝSTIDÆLA
Vandað, sérlega handhægt
vestur-þýskt tæki fyrir atvinnumenn.
HEFUR:
• þrískiptan stút
• handfang með snúanlegri
slöngu
• 10 metra háþrýstislöngu
Vinnuvistfræðileg hönnun,
góð ending, tímasparnaður.
SKEIFUNNI3E, SÍMAR 82415 & 82117
okkur að hægt sé að feta braut út
úr erfiðleikunum. Þjóðin hefur
vissulega séð hann svartari. Áður
fyrr leystu menn úr erfíðari þraut-
um. Góðærin skapa hins vegar þá
hættu að menn glati kraftinum til
að taka storminn í fangið. En fólk-
ið í landinu kallar á nauðsynleg
verk og vonin um betri tíð færir
hveijum degi nýjan þrótt.
Auðvitað eru hér mikil auðævi.
Við eigum fagurt land, dýrmæt
fiskimið, einstæðar orkulindir í fall-
vötnum og iðrum jarðar. Þjóðin er
menntuð, Víðsýn og viljasterk.
Erfiðleikar næstu missera eru í
raun mun minni en oft áður í sögu
hins unga fullveldis. Áður fyrr tóku
menn saman höndum og gengu í
verkin. Þeir höfðu vilja, áræði og
þor. Höfum við það nú?
Ýmsar þjóðir hafa þó glatað full-
Síldarsöltun:
tekst að snúa þróuninni við.
Til lítils var barist á síðustu öld
ef niðurstaðan við lok þessarar
verður hið fræga gjaldþrot þjóðar-
innar sem mjög var á dagskrá fyrir
fáeinum dögum.
Á fullveldisdegi efna stúdentar
við Háskóla íslands svo til umræðu
um vofu þessa þjóðargjaldþrots.
Engin æska hefur hlotið annan eins
arf og sú sem nú gengur daglega
um dyr Háskóla íslands. Hún hefur
fengið mikið í sinn hlut og vill
meira. Kannski kann hún fótum
sínum betur forráð en þeir sem á
undanfömum árum hafa stýrt mál-
um. Kannski verður afneitunin
henni tamari en kröfuharkan.
Kannski skynjar hún betur hvað
sjálfstæðið er dýrkeypt. Kannski
verður hún kynslóðin sem segir
hingað og ekki lengra.
Fjórir fengu síld
í Norðflarðarhöfii
REIKNAÐ var með að búið yrði
að salta í um 228.000
síldartunnur á föstudagskvöld en
saltað hafði verið í 226.700
tunnur í fyrrakvöld. Þar af var
búið að salta í um 15.500 tunnur
á innanlandsmarkað og um 9.500
tunnur af flökum. Pjórir bátar
veiddu síld í NorðQarðarhöfn á
föstudag, að sögn Kristjáns
Jóhannessonar birgða- og
söltunarstjóra
Síldarútvegsnefndar.
0
Aföstudag var búið að salta í
37.792 tunnur á Eskifírði,
36.472 á Höfn í Homafirði, 25.674
á Seyðisfirði, 24.685 í Grindavík
og 21.052 á Reyðarfirði. Þá var
búið að salta í 23.023 tunnur í Fiski-
mjölsverksmiðju Homafjarðar,
14.949 í Pólarsíld á Fáskrúðsfírði,
14.732 í Strandarsíld á Seyðisfirði,
13.303 í Skinney á Höfn í Homa-
fírði og 11.681 í Friðþjófí á Eski-
fírði.
Morgunblaðið/Helena
Merki talin í síldarsöltun á Fáskrúðsfírði. Stúikurnar fá merki fyrir
hveija tunnu sem þær salta í.
ICENWOOD
Aukabúnaður m.a.:
Grænmetiskvörn — Hakkavél
Grænmetisrifjárn — Ávaxtapressa
Verð kr. 17.680
16.800.- staðgr.
IhIHEKLAHF
I Laugavegi 170 -172 Simi 695500