Morgunblaðið - 04.12.1988, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 04.12.1988, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ VEROLD/HLAÐVARPINN SUNNUDAGUR 4. DESEMBER 1988 Stefnumót við framliðna Fyrsti nóveraber á dagatali Frakka heitir „Toussaints", allra heil- agra messa, og 2. nóvember, sem einu sinni hét „La féte des morts“, hátíð dauðra, hefiir núna fengið nafhgiftina „Dfunts“ eða hinir framliðnu, (kannski vegna þess að orðið dauði þykir ekki viðeigandi á almanaki almennings í dag.) Þessar tvær tölur renna saman í eitt í hugum flestra Frakka og talað er almennt um La Toussaints. Þaueru að koma... Já, þau eru að koma. Fyrsti sunnudagur í aðventu var á sunnu- daginn var og skreytingar komnar í búðarglugga, jólasveinn sem kinkar kolli eins og íslendingur sem er að koma heim frá útlönd- um, svo snúið sé við líkingunni hans Péturs Gunnarssonar í útvarp- inu um daginn. Og þeir sem hafa tíma til að vera heima hjá sér eru búnir að búa til aðventukransana, sem ég held að sé sænskur siður eins og Lúsían og glöggið. Skólamir gefa frí í viku í kring- um þessa daga og þar eð þetta er fyrsta fríið eftir sumarfríið langa fara þeir Parísarbúar sem geta leyft sér þann munað burtu úr mengaðri borginni niður að sjó eða út í sveit. Samkvæmt fréttunum er þetta sú helgi sem flest dauðaslys verða á þjóðvegum landsins. Þess vegna ákvað sjónvarpsstöð nr. 2 að efna til viku upplýsingaherferðar undir merki hvíta fánans (sem ökumenn voru vinsamlega beðnir um að festa á farartækin) til þess að auka að- gæslu í umferðinni og vinna gegn þessum geigvænlega slysafjölda. Frakkar eru jú gjamir á að setjast undir stýri eftir að hafa drukkið hálfan eða jafnvel heilan lítra af rauðvíni við matarborðið. En hvað er svo sem merkilegt við þessa daga? Jú, þá lifna kirkju- garðar landsins við og verða fjöl- sóttustu staðimir ásamt þjóðvegun- um og breytast á örskömmum tíma í fegurstu blómagarða. Allir sem eiga horfinn ástvin eða flölskyldu- meðlim í þessum grafreitum þyrp- ast þangað með blóm í fangi á stefnumót við hinn framliðna. En þó enginn bíði manns er heimsókn- in samt þess virði þvi margir „búa“ í slíkum bústöðum að furðu sætir. Þeir gætu þess vegna tekið þar á móti §ölda gesta úr öðrum heimi því slík eru stórhýsin eða réttara sagt grafhýsin. I skoðanakönnun sem var gerð hér kom í ljós að 3A aðspurðra sögð- ust tala til hinna framliðnu einu sinni á ári. Ég ákvað að reyna líka og fór í Pére Lachaise kirkjugarðinn sem er sá þekktasti hér í borg og heilsaði þar upp á nokkrar slokkn- aðar stjömur sem ég kannaðist við, Géricault, David, Seurat, Bizet, In- gres, Proust, Colette og fleiri, en ég fékk engin svör. Kannski vom þau upptekin vegna mikils gesta- gangs þessa dagana. Gráleitur köttur stökk allt í einu fram fyrir fætuma á mér og byrj- aði að krafsa í jörðina, skaust síðan Hór hvílir Géricault. upp á næstu gröf og skimaði í allar áttir eftir fuglum. Það var svo sem nóg líf þama þó grátvíðirinn sem þeir þijóskast við að gróðursetja deyi nú unnvörpum. Grátstyttumar góndu á mig og eirgrænu engla- bömin flissuðu og ulluðu framan í mig ... Hvað er Eros að gera þama á umráðasvæði Thanatosar? varð mér þá áð orði. Ég tók líka eftir því að ýmislegt er gert til þess að þeim sem eftir lifa fínnist hinir framliðnu vera þama holdi klæddir ennþá, eins og t.d. grafskriftin „Hér hvílir" vottar um. Ljósmynd- imar, bijóstmyndimar og lágmynd- imar á sumum gröfunum minna okkur á nálægð hins látna og marmarinn og granítið setja okkur í tengsl við eilífðina. Þannig verður líklega sársaukinn — hið óþolandi hugarangur vegna ástvinamissis — efniskenndari og bærilegri fyrir okkur hin. Það er dálítið merkilegt að bera saman aðdraganda jólanna nú og fyrir örfáum árum þegar ég var yngri en ég er. Ég man þá tíð að það þótti ganga guðlasti næst að nefna jól fyrir desemberbyijun. Opinber tilkynning um að jólin væru í nánd kom á hveiju ári í útvarpsfréttinni um að nú væri jólasveinninn kominn í glugga Rammagerðarinnar. Svo varð að líða dijúgur tími uns öðrum leyfð- ist að nefna jól. Núna heyrði ég fyrstu jólaauglýsingamar fyrst í október og má vera að þær hafí byijað fyrr. Skammdegið boðar komu hát- íðarinnar. Einhvem veginn fínnur maður þetta á sér þegar líður að mótum nóvembers og desembers. Jafnvel þótt stúlkumar mínar í öðmm bekk b hafí fært mér ný- útspmngna stjúpmóður í hlýind- unum um daginn fann ég þennan sama dag jólin nálgast. Það hefur ef til vill verið vegna þess að Hallgrímur og fólkið hans í Kjarnaskógi byijaði að selja greni niðri í göngugötu, sem Láms á bókasafninu kallar ævinlega Bót- ina, á föstudaginn fyrir aðventu- byijun. Hallgrímur sagði mér að þetta væri forskot, sem stafaði af því að nú þyrftu allir að búa til kransa. Hann væri því aðeins að selja greinar en færi svo að selja tré viku af desember eða svo. „Ég held að engin þjóð sé eins vandlát á jólatré og Islend- ingar,“ sagði hann. „Þau verða að vera þráðbein og þétt og jafn- falleg allan hringinn." Það hefði því ekki þýtt að bjóða okkur það sem Danir kölluðu„ljótasta jólatré í heirni" og settu upp í miðborg Hafnar. Þeir fengu að vísu' fjöl- Ný villa Reagans er ekki af verri endanum HÚSSflHSflK okkar á milli. .. ■ AUSTURRÍSKT fyrirtæki varð að afturkalla kvennærföt, sem það hugðist selja i Egyptal- andi, eftir að egypskir lærifeður kvörtuðu undan þeim. Þau voru skreytt versum úr Kóraninum. Egypska utanríkisráðuneytið blandaði sér í málið og aust- urríska verslunarráðið krafðist þess að fyrirtækið afturkallaði nærfötin og bæðist afsökunar. ■ FIMMTÁN ára stúlka, Erin Chase, hefúr verið valin til að tala rullu Charlies Brown í nýj- asta sjónvarpsflokknum um Smá- fólkið. Hingað til hafa ellefú strákar farið með hlutverkið. Jafúrétti kynjanna ræður þó ekki valinu heldur hrein forsjálni. Stúlkur ættu að tolla lengur í starfinu af því að þær fara ekki í mútur. ■ SVISSNESKIR veiðimenn vara sig liklega á að elta hund- ana sína alveg blint héðan í frá. í haust leiddi veiðihundur eig- anda sinn yfir landamæri Sviss og inn í Ítalíu. Þar var kappinn grípinn og mátti dúsa í fangelsi eina nótt. Hann var sakaður um að koma ólöglega inn f landið og vera vopnaður. ■ KONU nokkurri, sem sat á salerninu i lest á leið frá Sviss til Vestur-Þýskalands, brá held- ur f brún þegar maður datt ofan úr loftinu. Hann var frá Srí Lanka og hafði faiið sig í rými á milli loftplötu og þaks Iestar- innar. Loftplatan hélt í sjö klukkustundir en brotnaði á óþægilegum tíma fyrír konuna. ■ AÐ undantörnu hefúr veríð nokkuð um að fiskveiðiskipum á Suðumesjum hafa farið i yfir- halningu. Ein af þeim breyting- um sem gerar hafa verið á flest- um þessara skipa er að þau hafa verið lengd að aftan og settur á þau skutur líkt og á skuttogur- um. Sjómennimir vom fljótir að finna nafn á þessu nýja fyrir- bærí og nú tala þeir um að þessi eða hinn báturinn sé kominn með „rassgat“. Frá Sveinbimi I. ~ LPS HHSBfS LI L Ir Samkvæmt dagatalinu er komið haust í Suður-Kalifomíu. Gróð- ur og veðurfar ber þess þó lítil merki. Háir pálmar standa eins og risavaxnar grænar fífur upp úr lág- reistum húsaþyrpingum og krakkar á stuttbuxum hamast í fótbolta og öðrum íþióttum í iðjagrænum skemmtigörðum. Enn þó má merkja að hafgolan hér við ströndina er svalari en endranær. Hér um slóðir vakti það athygli varðandi nýafstaðnar forsetakosn- ingar að Dukakis hafði víða vinn- inginn í Norður-Kalifomíu og eins í Los Angeles-borg sjálfri, en Bush hafði þó sigur í þessu stóra og fjöl- menna ríki. Er álitið að það hafí ekki síst verið vegna mikils stuðn- ings f Óskalandi iðnrekenda hér fyrir sunnan, Orange county. Þar búa meira af jakkafataklæddum aukakflóum en annars staðar í heiminum og þar er hið uppruna- lega Disneyland. En nú em kosningarnar afstaðn- ar og fiölmiðlamir bytjaðir að hneppa öðrum hnöppum. Þó er sífellt verið að spá í og gaumgæfa allar gerðir Bush til að reyna að sjá hvort hann er eitthvað annað og meira en „dæet-Reagan“, eða létt-Reagan, eins og einhver komst að orði um daginn. Eins og í öðmm ríkjum var kosið um ýmislegt fleira en bara forset- ann. Þar á meðal tóku kjósendur afstöðu til einna fimm eða sex til- lagna um tryggingamál. Meðal þeirra var tillaga númer 103, sem m.a. kveður á um það að trygging- ariðgjöld skuli þegar lækkuð um tuttugu prósent. Þessi tillaga var studd af neytendasamtökum sem blöskrar sú staðreynd að meðalfíöl- skylda hér eyðir meira fé í trygging- ar en nokkuð annað, ef frá er talið fæði og húsnæði. Að meðaltali fara fímmtán af hveijum hundrað dölum ráðstöfunartekna fólks í trygging- ar, enda lagaskylda að tryggja hús og bíla og nánast lífsnauðsyn að kaupa heilsutryggingar, þar eð al- mannatryggingar em af skomum skammti. Tryggingafélögin bmgðust auð- vitað ókvæða við og hófu miklka herferð gegn þessari tillögu í sjón- varpi og öðmm fjölmiðlum og létu sig ekki muna um að eyða í því augnamiði 70 miHjónum dollara, eða sem svarar u.þ.b. þremur mill- jörðum íslenskra króna. En viti menn. Það dugði ekki til. Tillagan var sam- þykkt naumlega. En tryggingafélög- in vom með annað tromp á hendi. Þau kærðu málið á þeim forsendum að tillagan fæli í sér eignaupp- töku sem bryti í bága við stjómarskrána og þar til úr því fæst skorið verður að fresta framkvæmdinni. Það er margt sem vekur furðu manns í þessu sambandi. Það er til dæmis skrýtið að ríkisþing Kali- fomíu í Sacramento skuli ekki hafa getað tekið á þessum málum sjálft. Margir telja reyndar að ástæðumar þess séu einfaldlega þær, að marg- ir þingmennimir séu hreinlega fjár- hagslega háðir tryggingafélögun- um (þetta er auðvitað bara fallegra orðalag, en að segja að þeim hafi verið mútað). Hvað sem því líður þá hefur Ríkisþingið altént vísað þessu erfiða máli til dóms kjósenda, í nokkurs konar þjóðaratkvæða- greiðslu og maður hefði haldið að sá dómur hlyti að vera endanlegur, en svo er sem sagt ekki. Nú fer málið fyrir dómstóla. Þetta ferli vekur óneitanlega nokkuð áleitnar spumingar um áhrif almennings annars vegar, en auðmagns hins vegar, í lýðræðissamfélagi. Nú er að bíða og sjá hvað setur. Á dögunum tóku Reagan-hjónin þátt f skóflustungu:athöfn vegna byggingar bókasafns í nafni forset- ans hér í Simi-dalnum. Þau munu svo flytja hingað alkomin í lok jan- úar næstkomandi, þegar Bush tek- ur við forsetaembættinu. Þau hafa fest kaup á ansi myndarlegu húsi í Bel Air-hæðunum, að verðmæti u.þ.b. 100 milljónir íslenskra króna. Fyrir eiga þau, sem kunnugt er, búgarð hér fyrir norð- an, skammt frá Santa Barbara. Af öðrum málum sem hafa verið ofar- lega á baugi hér að undanfömu má nefna kappleik tveggja há- skólaliða í banda- rískum fótbolta. Var allmikið í húfí, því keppt var til úrslita um sigur í Kyrrahafs- deild háskólaliða og þátttöku í svokölluð- um Rose-bowl- úrslitaleik, sem fram fer á hvert, milli tveggja efstu vesturr- íkjaliðanna, annan dag í nýári. Það sem gerði svo útslagið um mikil- vægi leiksins var sú staðreynd að þar áttust vð hinir fomu fjendur hér í Los Angeles, UCLA (Univer- sity of Califomia, Los Angeles) og USC (University of Southern Cali- fornia). Þegar lið þessara tveggja stóru og virtu háskóla mætast er alltaf eins og gervöll tilvera þeirra sé í húfi, rétt eins og þegar Lund- únaliðin í Englandi em að keppa innbyrðis, eða þegar Valur og KR takast á í Reykjavík. USC-liðið var sterkara á pappím- um fyrir leikinn, en varð fyrir því áfalli að lykilmaður þess lagðist í rúmið með mislinga þegar aðeins þrír dagar vom til stefnu. Allt var í óvissu fram á síðustu stundu. Hann lék þó með á laugardaginn og leiddi sína menn til sigurs. Loka- tölumar urðu 31:22. En keppnin milli UCLA og USC heldur þó áfram, því hún nær langt út fyrir allar íþróttir. Milli þessara skóla ríkir líka mjög hörð, en óformleg samkeppni í öllum greinum vísinda, fræða og lista og þeirri keppni lýk- ur seint. Þó vart sé komið merkjanlegt hausthljóð í vindinn, hér við hvítar sandstrendur Kyrrahafsins, er árstíminn ótvírætt gefínn til kynna af öðram „thanksgiving“-hjátíðin er nú eftir þijá daga og jólagjafa- auglýsingar em þegar famar að sjást í sjónvarpi og blöðum. Á „thanksgiving" er þess minnst í Bandaríkjunum hvemig innfæddir réttu pílagrímunum svokölluðu hjálparhönd þegar mikið lá við, vet- urinn eftir komu hinna síðarnefndu til landsins á skipinu Mayflower frá Englandi árið 1620 og eins fyrstu uppskemnnar á kornökram þeirra. Þá eta menn kalkúna og minnast alls þess sem þeir geta verið þakk- látir fyrir. Eitt af því sem þeir geta verið þakklátir fyrir er að dagurinn skuli ekki haldinn hátíðlegur fyrr á árinu, því samkvæmt bandarískri hefð hefst jólavertíðin af fullum krafti strax að lokinni þessari hátíð, og til marks um það hve guðs- þakkarvert það er að hátíðin er í lok nóvember, en ekki til dæmis í ágúst, nægir að segja að hið íslenska jólaauglýsingaflóð af bók- um og hvers kyns varningi er hreinn bamaleikur hjá því sem fólk má þola af hálfu kaupahéðna í þessu víðfeðma landi fyrir hátíðimar. Tll Bel Air fyrir 100 milljónir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.