Morgunblaðið - 04.12.1988, Síða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 4. DESEMBER 1988
t
iNGIBJARTUR MAGNÚSSON
lést 9. nóvember sl. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey.
Fyrir hönd aðstandenda,
Reynir Ingibjartsson.
t
Eiginmaður minn, faðir og tengdafaöir,
VILHJÁLMUR ÞÓRÐARSON
bifreiðastjóri,
Ofanleiti 27,
lést í Landspítalanum 1. desember. Jarðarförin auglýst síðar.
Helga Finnbogadóttir,
börn og tengdabörn.
t
Útför systur okkar,
ÞÓRÖNNU LOFTSDÓTTUR,
fer fram frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 6. desember kl. 15.00.
Anna Loftsdóttir,
Jórunn S. Loftsdóttir.
Minning:
Margrét Jónsdóttir
Fædd 30. maí 1927
Dáin 24. nóvember 1988
Margrét Jónsdóttir var jarðsung-
in í gær. Lokið er baráttu við erfið-
an sjúkdóm. Við Urður, dóttir henn-
ar, kynntumst á fyrsta námsári í
menntaskóla, fyrir fimm árum. Vin-
ir Urðar úr MH voru tíðir gestir á
heimili þeirra mæðgna og settust
oft niður með Margréti þótt Urður
væri ekki heima.
Júlísól gægðist milli tijánna inn
um glugga í stofuna til okkar. Þar
sátum við tvær saman og töluðum
um pólitík meðan teygðist úr
síðdeginu. Dijúga stund veltum við
vöngum yfir mögulegum og ómögu-
legum stjómarmynstrum, þetta
voru fæðingardagar nýrrar ríkis-
stjómar. Við ræddum líka mál sem
lifa ríkisstjómir og margir takast
daglega á við. Til að mynda hvað
gera mætti fyrir gamla fólkið og
bömin. Hvort okkur hætti til að líta
svo á að þessir hópar flæktust fyr-
ir, þægilegast væri að geyma þá á
stofnunum því að vinnandi fólk
hefði lítinn tíma til að sinna þeim.
Við bollalögðum um hvemig hægt
væri að gera stofnanimar mann-
eskjulegri, létum okkur jafnvel
dreyma um að stefna saman elstu
borgurunum og þeim yngstu.
Það var gott að tala við Mar-
gréti. Flókin mál og þvæld virtust
alveg skýr og ljóslega þess verð að
fást við. Hún hafði áhuga á þjóð-
málum og vafalaust voru skoðanir
hennar fastmótaðar. Þó leitaði hún
eftir nýjum viðhorfum, hafði gaman
af að dusta rykið ærlega af málun-
um og athuga á þeim ólíkar hliðar.
Hún hafði lag á að fá aðra til að
taka afstöðu, ræddi málefni líðandi
stundar blátt áfram og af rósemd
við menntaskólastelpur sem allt
þóttust vita.
Margrét var hæglát kona sem
ekki hafði stór orð um hlutina. Hún
talaði lítið um sjálfa sig og ef henni
mislíkaði eitthvað í fari annarra
hafði hún sem fæst orð um það.
Viðhorf hennar til manna og mál-
efna virtust mér jákvæð. Þó kvaðst
hún eiga bágt með að þola umkvart-
Útför t HALLDÓRS ÞORSTEINSSONAR
frá Grýtubakka
fer fram frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 7. desember klukkan
13.30. Vandamenn.
t
Útför elskulegs eiginmanns mins,
JAKOBS EINARS JAKOBSSONAR,
Sléttahrauni 26,
Hafnarfiröi,
fer fram þriöjudaginn 6. desember kl. 13.30 frá Víðistaðakirkju.
Fyrir hönd barna og annarra aðstandenda,
Kristfn Sigurjónsdóttir.
t
Útför frænku minnar,
MARGRÉTAR EINARSDÓTTUR,
Birkimel 6b,
sem lést á Sóivangi, Hafnarfirði 24. nóvember verður gerð þriðju-
daginn 6. desember i Fossvogskirkju kl. 13.30.
Blóm og kransar afbeönir en þeir sem vildu minnast hennar eru
beönir að láta líknarstofnanir njóta þess.
Fyrir hönd ættingja og vina,
Margrét Þorvaldsdóttir.
t
Útför
UNU KRISTJÁNSDÓTTUR THORODDSEN,
sem lést þann 25. nóvember sl., verður gerð frá Dómkirkjunni
þriðjudaginn 6. desember nk. kl. 11.30.
Ólína Kristinsdóttir, Magnús Árnason,
Guðlaugur Kristinsson, Ragnheiður Jónsdóttir,
Unnur Kristinsdóttir, Sigmar Björnsson,
Skúli Thoroddsen,
og barnabörn.
t
Eiginmaður minn, faöir okkar, tengdafaöir og afi,
HEIÐREKUR GUÐMUNDSSON
skáld,
Eyrarvegi 23,
Akureyrl,
sem andaöist 29. nóvember, verður jarðsunginn frá Akureyrar-
kirkju þriðjudaginn 6. desember kl. 13.30.
Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaöir, en þeir sem vilja
minnast hins látna, eru beðnir að láta Fjórðungssjúkrahúsið á
Akureyri eða líknarfélög njóta þess.
Kristfn Kristjánsdóttir,
Ragnheiður Heiðreksdóttir, Kristján Þ. Stephensen,
Guðmundur Heiðreksson, Magga Alda Magnúsdóttir,
Hólmgrímur Heiðreksson, Sigurborg Ragnarsdóttir
og barnabörn.
Ingólfiir Egils-
son — Minning
Fæddur 4. desember 1923
Dáinn 2. janúar 1988
Dáinn, horfinn, harmafregn,
HvílQct orð mig dynur yfír. ■
En ég veit að látinn lifir.
Það er huggun harmi gegn.
(Jónas Hallgrímsson)
í dag, 4. desember, hefði faðir
okkar, Ingólfur Egilsson, orðið 65
ára. í tilefni þess langaði okkur til
þess að minnast hans og þakka
honum fyrir yndisleg ár, sem hann
gaf okkur.
Pabbi var fæddur 4. desember
árið 1923 í Hafnarfirði, sonur hjón-
anna Þórunnar Einarsdóttur og
Egils Guðmundssonar; hann var
yngstur af níu systkinum.
Árið 1940 fór pabbi að læra hár-
skeraiðn og má segja að hann hafi
unnið við það starf til dauðadags.
Hann lærði hjá Sigurbimi Magn-
ússyni í Hafnarfirði og var stofan
við Strandgötuna.
13. september árið 1947 giftist
pabbi mömmu okkar, Svövu Júlíus-
dóttur, dóttir hjónanna Hrefnu
Halldórsdóttur og Júlíusar Sigur-
jónssonar frá Hafnarfirði.
Pabbi og mamma eignuðust okk-
ur sex systkinin, þau byggðu sér
hús í Garðabænum og skírðu húsið
Hella.
Pabbi setti upp stofu í Keflavík,
og vann hann þar í mörg ár. Fyrir
17 ámm setti hann upp stofu í
t
Þökkum hjartanlega öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlý-
hug við andlát og útför ástkærrar móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
ODDNÝJAR HALLDÓRSDÓTTUR,
Lokastfg 16.
Halldór Steingrímsson, Guörún Jensdóttir,
Gunnar H. Steingrímsson, Halldóra Óladóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð við fráfall og jaröarför föður
okkar, tengdaföður og afa,
JÓHANNS JÚLÍUSSONAR,
Lynghaga11.
Hildur Jóhannsdóttir, Sveinbjörn Guömundsson,
Garðar Jóhannsson,
Júlíus Björn Jóhannsson
og barnabörn.
Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför
föður okkar, tengdaföður, afa og langafa,
FINNBOGA HALLSSONAR
trósmiös,
Hrafnistu, Hafnarfiröi.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Hrafnistu og hjúkrunarfólks á St.
Jósefsspítala.
Garðar Finnbogason,
Einar Finnbogason,
Ingveldur Finnbogadóttir,
Auður H. Finnbogadóttir,
Sigurður Finnbogason,
Hulda Finnbogadóttir,
barnabörn
Sesselja Þorsteinsdóttir,
Pálmi V. Samúelsson,
Birgir R. Gunnarsson,
Guöríður Einarsdóttir,
Davfö B. Sigurðsson,
og barnabarnabörn.
anir. Sjálf kvartaði hún ekki og
lengi vel vissu líklega fæstir í kring-
um hana hve veik hún var. Hún
sneri sér ekki til annarra, fólk leit-
aði til hennar um styrk. Hvaðan sá
styrkur kom veit ég ekki, en vona
að Urður öðlist hann.
Minningin um Margréti, móður
hennar, lifir .með okkur.
Þórunn Þórsdóttir
Goðatúni í Garðabæ og var það
mjög þægilegt að vera svona stutt
frá heimilinu.
Pabbi var mjög léttur og
skemmtilegur maður, alltaf í góðu
skapi, hafði mjög mikla unun af
því sem hann var að gera hveiju
sinni, hvort sem hann var að snyrta
kúnnana sína eða að huga að rósun-
um sínum í gróðurhúsinu heima,
en það var hans tómstundaiðja, og
hugsaði hann svo vel um þær að
það var hrein unun að sjá; hann
hafði líka mjög gaman að mála og
teikna. Pabbi hafði alltaf tíma fyrir
okkur og það sem hann hefur gert
fyrir okkur er ómetanlegt.
Mamma og pabbi voru einstak-
lega samhent hjón og erum við
þakklát fyrir að hafa alist upp við
slíkt ástríki.
Elsku pabba þökkum við fyrir
allt. Guð blessi hans veg og allra
sem hann unni.
Þórunn, Hrefna, Sigga,
Sigrún, Grétar, Júlli.
Birting afmælis-
og minningargreina
Morgunblaðið tekur af-
mælis- og minningargreinar
til birtingar endurgjaldslaust.
Tekið er við greinum á rit-
stjórn blaðsins á 2. hæð i Aðal-
stræti 6, Reykjavík og á skrif-
stofu blaðsins í Hafnarstræti
85, Akureyri.
Athygli skal á því vakin, að
greinar verða að berast með
góðum fyrirvara. Þannig verður
grein, sem birtast á í miðviku-
dagsblaði að berast síðdegis á
mánudegi og hliðstætt er með
greinar aðra daga.'