Morgunblaðið - 04.12.1988, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 4. DESEMBER 1988
31
Minning:
Gunnjóna S. Jens-
dóttir (Nunna)
Hinsta kveðja til ömmu
Að kvöldi hins 17. nóvember
síðastliðins lést á Hrafnistu í
Reykjavík amma okkar, Gunnjóna
Sigrún Jensdóttir, Nunna.
Amma fæddist á Flateyri við
Önundarfjörð 12. febrúar 1899. Var
hún fjórða elst af 11 systkinum, sem
öll eru burtu gengin með henni.
Foreldrar hennar voru Jens A. Guð-
mundsson, búfræðingur og síðar
kaupmaður á Þingeyri og Margrét
Magnúsdóttir, ljósmóðir. Amma
giftist afa okkar, Guðmundi Einars-
syni, 17. júní 1920 og hófu þau
búskap sinn á Þingeyri, þar sem
þau sáu um þjónustu Pósts og síma,
jafnframt sem þau önnuðust af-
greiðslu erlendra skipa.
Þeim varð tveggja barna auðið.
Anna, sem er búsett í Bandaríkjun-
um, og Jens, starfandi flugumferð-
arstjóri í Reykjavík.
Árið 1936 fluttust þau alfarin
búferlum til Reykjavíkur.
Fyrir okkur, barnabörnin hennar,
var hún amma litla fínlega góða
konan, sem fygldi okkur fyrstu spor
ævinnar. Þótt við systkinin eigum
sameiginlegar minningar um
ömmu, ná þær mislangt aftur í
tímann og tengjast mismunandi
skeiðum í ævi hennar. Hið elsta
okkar man hana nánast í blóma
lífsins, sem eiginkonu og húsmóður
á stóru heimili, fyrst á Túngötu 2
og síðar í Lönguhlíð 13 í Reykjavík.
Þar bjuggum við sem ein stór fjöl-
skylda, þar til Guðmundur afi lést
árið 1958. Þá skildu leiðir og amma
flutti á Bárugötu 11 í Reykjavík,
þar sem hún bjó í lítilli íbúð á efri
hæð. Sjómannablaðið Víkingur
hafði þá aðstöðu í þessu húsi, en
bróðir ömmu, Guðmundur Jensson
heitinn, veitti því forstöðu í þá daga.
Bárugata 11 var í hugum okkar
systkinanna spennandi undraheim-
ur og eigum við margar minningar
tengdar ömmu í þessu húsi og finnst
okkur, enn þann dag í dag, að
Bárugata 11 og amma tengist
óijúfandi böndum. Áttum við systk-
inin margar spennandi og skemmti-
legar heimsóknir til ömmu í þetta
hús, með sínum löngu og þröngu
göngum, skotum og krókum, sem
mátti nýta til ýmissa leikja. Þrátt
fyrir gamansemi barnæskunnar ber
þó hæst í minningunni, að í ömmu
áttum við trúnaðarvin, sem alltaf
var aflögufær um góð ráð og hugg-
un, þegar á þurfti að halda. Hún
var glaðlynd kona, full af umburð-
arlyndi og hafði einstakt lag á að
beina sjðnum okkar á hinar björtu
hliðar lífsins. Hjá henni breyttist
sorg, hryggð og grátur í bjartsýni
og hlátur.
Ömmu var einstaklega annt um
allt sitt samferðafólk og var óþreyt-
andi að segja okkur frá foreldrum
sínum, systkinum og öðru nánu
vanda- og vinafólki á þann hátt,
Blómastofa
FnÖfinns
Suðuriandsbraut 10
108 Reykjavík. Sími 31099
Opíð öll kvöld
ti! Kl. 22,- einnig um helgar.
Skreytingar við öll tiiefni.
Gjafavörur.
að frásagnirnar urðu ávallt
skemmtilegar. Aldrei talaði amma
illa um nokkurn mann, enda átti
hún enga óvini. Á heimili foreldra
okkar byrjaði engin stórhátíð, fyrr
en amma var komin, og kom öllum
í hátíðarskap með sínu milda brosi.
Á þessum árum vann amma á
Café Höll í Austurstræti og átti
margar ferðir um oft glerhált og
dimmt Fischersund.
Amma fluttist á Hrafnistu í
Reykjavík árið 1977, langt á átt-
ræðisaldri og átti þá eftir að gleðja
okkur og banabarnabömin sín í
mörg ár enn. Þá var sjón hennar
mjög farin að daprast og háði það
henni mikið síðustu árin, en reisn
sinni og tíguleikahélt hún alla tíð.
Fyrir okkur, barnabörnin hennar,
er með ömmu gengin stór mann-
eskja, sem skildi eftir sig spor í
þeim, er hana þekktu. í hjörtum
okkar hefur hún skapað sér ævar-
andi sess. Megi algóður guð veita
henni verðskuldaðan frið um eilífan
aldur.
Með versi Matt. Joch. viljum við
þakka ömmu fyrir samvemna. -
Ég hefi þekkt marga háa sál
ég hefi lært bækur og tungumál
og setið við lista lindir.
En enginn kenndi mér eins og þú
hið eilífa og stóra, kraft og trú
né gaf mér svo guðlegar myndir.
(Matt. Joch.)
Jenni, Gunnjóna og Gummi
Með þessum ljóðlínum Guðmund-
ar E. Geirdal, vildi ég mega þakka
Nunnu tengdamóður minni sam-
fylgdina.
Nú drúpa í skuggum þau sjónarsvið,
er svipur þinn lýsti yfir.
En minningar blika að baki þér,
þó brattann ei lengur klifír.
til heljar-garða þó gengin sért,
þinn göfugi orðstír lifir.
Marta
Erfidrykkjur í hlýju
og vinalegu l? ^
umhverfi.
Salir fyrir 20-250 manna hópa í
Veitingahöllinni og Domus Medica.
|| ■■■ ■■■■■■ ■■ # m £ ^
S: 685018-33272.
Framleiðuin allar stærðir og gerðir af legsteinum.
Veitum fúslega upplýsingar og ráðgjöf
um
9£ S.HELGASON HF
81STEIHSMIOJA
■■ SKEMMUVEGI 48-SÍMI 76677
Ljosker
álelði
S.HELGASON HF
STEINSMIÐJA
SKEMMUVEGI 48-SlMI 76677
Skór m/stóltó
Stærðir: 3ó-4ó
Verð frá kr. 5.400,-
Skór m/stáltá
Stærðir: 36-41
Verð kr. 5.660,-
Barnamokkasínur
Litir: Blátt, brúnt, grænt
Stærðir: 24-34
Verð kr. 2.3 l 0,-
Lakkskór
Litir: Rautt, hvítt, svart
Stærðir: 22-27
Verð kr. 1.690,-
Loðfóðraólr barnakuldaskór
Litir: Grænt, lilla
Stærðir: 22-34
Verðkr. 1.580,-
Mjög vönduð
kúrekastígvél
Stærðir: 36-46
Litir: Brúnt og svart
Verðkr. 7.850,-
Póstsendum
Mjög mikið úrval af dömu-
og herraskóm, m.a. skór m/kúlutá.
Skóbúdin MÍLANÓ
Laugavegi 20, 101 Reykjavík, sími 10655.