Morgunblaðið - 06.01.1989, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 06.01.1989, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTÚDAGUR 6. JANÚAR 1989 Nýjar tölur Þjóðhagsstofiiunar: Samdráttur og við- skiptahalli meiri en áður var talið Verðbólgan verður 10% í ár en ekki 6% Þjóðhagsstofnun telur að landsframleiðsla dragist saman um 4,5% á árunum 1988 og '89, en ekki um 3%, eins og talið var í þjóðhagsáætlun í nóvember. Viðskiptahallinn á næsta ári er talinn verða 14 milljarðar króna, en ekki 11,5 milljarðar. Þjóð- hagsstofnun gerir nú ráð fyrir heldur meiri verðbólgu á þessu ári en hún gerði í þjóðhagsáætl- un vegna 5% gengisfellingar krónunnar. Hækkun fram- færsluvísitölu er nú áætluð 9-10% frá upphafi til loka árs í stað 6% áður og hækkun á með- alverði erlends gjaldeyris er nú talin verða 12% á milli ára, en ekki 7%. Þetta kemur fram í vinnuskjali frá Þjóðhagsstofnun til fjárveit- inganefndar, en nú er unnið í stofn- uninni að gerð endurskoðaðrar þjóðhagsspár, sem væntanlega verður birt síðar í þessum mánuði. Samkvæmt þessum tölum var sam- dráttur í landsframleiðslu árið 1988 2,5% en ekki 1,5%; í fjárfest- ingu 4% en ekki 3%; í útflutningi 6% en ekki 1%; og í innflutningi var 3% samdráttur en ekki 2% aukning, eins og spáð var í nóvem- ber síðastliðnum. Stofnunin spáir einnig meiri samdrætti á þessu ári en hún gerði í þjóðhagsáætlun. Nú er því spáð að aflaverðmæti dragist saman um 7% í stað 4,5%, vegna skerðingar þorskafla um 15.000 tonn, og að þetta hafi þau áhrif að lands- framleiðsla dragist saman um 2% en ekki 1,5%. Gengisfellingin kemur afkomu botnfískvinnslu í svipað horf og hún var í byijun september, að mati Þjóðhagsstofnunar. Botnfisk- veiðar eru hins vegar reknar með verulegum halla um þessar mundir. Töluverðir óvissuþættir eru inni í þessum tölum, til dæmis eru líkur á hækkandi verði á sjávarafurðum, en töluverð hætta talin á áfram- haldandi falli dollarsins. Þá er bent á að lok verðstöðvunar í febrúarlok og nýir kjarasamningar geti raskað forsendum spárinnar verulega. Morgunblaðið/RAX Frá fundi borgarstjóra og slökkviliðsstjóra í gær. Á myndinni sjást þeir Jón G. Tómasson borgarrit- ari, Davíð Oddsson borgarstjóri, Hrólfur Jónsson varaslökkviliðsstjóri og Rúnar Bjarnason slökkviliðs- stjóri. Bruninn að Réttarhálsi 2: Tjón borgarinnar á bil- inu 60 til 100 milljónir - segir Davíð Oddsson borgarstjóri TJÓN Reykjavíkurborgar vegna brunans að Réttarhálsi 2 í fyrra- dag er að líkindum 60 til 100 milljónir króna, að mati Davíðs Oddssonar borgarstjóra. Davíð sagðist telja, að slökkviliðið hefði Ríkissjóður: Hallinn 6,6 milljarðar í nóvember NÝJAR tölur frá Þjóðhagsstofn- un sýna halla ríkissjóðs vera 6.571 milljón króna i lok nóvem- ber 1988. Þessi halli nemur 11,6% af tekj- um ríkissjóðs og um 2,6% af lands- framleiðslu. Fjárlög fyrir árið 1988 gerðu ráð fyrir 26 milljóna króna tekjuafgangi, en endaalegar tölur um afkomu ríkissjóðs á árinu ættu að liggja fyrir fljótlega. gert sitt besta í viðureigninni við eldinn og það væri ábyrgðarhluti að reyna, að óathuguðu máli, að koma ábyrgðinni á tjóninu á það. Morgunblaðinu reyndist ekki unnt að ná sambandi við Rúnar Bjarnason slökkviliðsstjóra vegna þessa máls í gær. „Það kemur alltaf upp þegar bruni á sér stað, að þá mæta sjálf- skipaðir sérfræðingar og vilja hafa vit fyrir slökkviliðinu," sagði Dayíð Oddsson borgarstjóri í samtali við Morgunblaðið. „Það er vitað að það geta orðið brunar sem slökkviliðið ræður ekki við og þess vegna hefur verið lögð mest áhersla á að á slíkum stöðum séu aðstæður þannig að þær hefti útbreiðslu elds, s.s. með brunaveggjum og úðakerfum. Ég held að slökkviliðið hafi gert það sem í þess valdi stóð við þenn- an bruna og harma fréttaflutning Stöðvar 2 þar sem einhver ósýnileg- ur sjálfskipaður sérfræðingur reyndi að gera slökkviliðsmennina og búnað þeirra sem tortryggileg- asta.“ Borgarstjóri sagði engan vafa á því að Slökkvilið Reykjavíkur væri best búna slökkvilið landsins sem ynni að almennum slökkvistörfum. Það hefði heldur aldrei staðið á borginni að búa það þeim bestu tækjum sem völ væri á hveiju sinni. „Auðvitað má segja að ef allt liðið hefði getað komið á augabragði hefði getað farið betur en til þess er auðvitað engin von þar sem ein- ungis fjórðungur liðsins er á vakt í einu.“ • Hann sagði, að það væri ábyrgð- arhluti þegar reynt væri að koma að óathuguðu máli ábyrgðinni af tjóni sem þessu yfir á slökkviliðið. Það hefði gert sitt ýtrasta til að bjarga því sem bjargað varð þó aldr- ei væri hægt að fullyrða að hver einasta ákvörðun sem tekin hefði verið í hita augnabliksins hefði ver- ið rétt. Davíð sagði að byggingin hefði verið tryggð hústryggingu eins og önnur hús í borginni; tuttugu og fímm milljónir væru í áhættu borg- arinnar, 150 milljónir greiddust af endurtryggingum en tjón umfram það myndi lenda á hústryggingum og borgarsjóði. Þar sem tjónið væri upp á tvö til þijúhundruð milljónir væri ljóst tjón borgarinnar vegna brunans gæti verið á bilinu 60 til 100 milljónir króna. Heildariðgjöld hústrygginga í borginni væru innan við eitt hundrað milljónir og þessi bruni myndi því verða borginni kostnaðarsamur. Davíð Oddsson átti síðdegis í gær fund um brunann að Réttarhálsi 2, með þeim Rúnari Bjamasyni slökkviliðsstjóra og Hrólfí Jónssyni varaslökkviliðsstjóra. Eftir fundinn sagði Davíð, að farið hefði verið yfír málið og væru orsakir brunans nú taldar kunnar. Sagði hann að niðurstöðumar yrðu kynntar borg- arráði í dag. Ekki reyndist unnt að ná í Rúnar Bjamason vegna máls- Steingrímur Hermannsson, forsætisráðherra: Plastpokamir ekki seldir í vínbúðum Tap Sambandsftysti- húsa meira en hjá SH Frekari lækkun vaxta brýnasta verkefhið nú STEINGRÍMUR Hermannsson, forsætisráðherra, segir að frekari lækkun vaxta sé brýnasta en jafiiframt erfiðasta verkefiiið í fyrir- huguðum efnahagsaðgerðum ríkisstjórarinnar. Hann sagði að leng- ing lánstima og lækkun vaxta skiluðu meiri árangri en bein gengis- felling, en útilokaði ekki frekari gengislækkun samhliða þeim að- gerðum og hagræðingu í sjávarútvegi. Steingrímur sagði að af- koma frystihúsa á vegum Sambandsins væri verri en hinna sem eru innan Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna og helsta skýringin væri sú að fyrrnefndu húsin seldu meira á Bandaríkjamarkað. Athugun endurskoðenda á þijátíu frystihúsum leiddi í ljós að þau skiluðu að jafnaði um 7-8% hagnaði fyrir fjármagnskostnað og afskriftir. Afkoman var þó mjög mismunandi, allt frá 22% hagnaði í um 8% tap. Heildarvelta húsanna 30 er 11 milljarðar, skammtíma- skuldir um 7,5 milljarðar og langtímaskuldir um 8,5 milljarðar. Steingrímur sagði að gengis- felling ein og sér dygði lítið þegar skuldastaðan væri jafn slæm. Hann sagði að tölur sem Þjóð- hagsstofnun hefur reiknað út sýndu hve vaxtalækkun og lenging lánstíma skiptu miklu máli. Þar kemur meðal annars fram að 15% gengisfelling ein og sér myndi koma fjárþörf sjávarútvegsins nið- ur í rúmlega 6% á þessu ári, en myndi eyða henni með öllu ef raun- vextir væru færðir niður í 4% og afborgunartími langtímalána yrði tvöfaldaður. Steingrímur sagðist geta tekið undir það með sumum atvinnurek- endum að það væri ekkert óeðlilegt þó að vextir yrðu neikvæðir í skamman tíma á meðan verið væri að vinna sig út úr vandanum. Vext- ir af sparifé gætu ekki verið nei- kvæðir þegar til lengri tíma væri litið, en engin þjóð í heiminum héldi uppi 4-5% raunvöxtum á sparifé. Steingrímur sagðist vonast til að frumvarp um hagræðingarátak í sjávarútvegi, þar sem meðal ann- ars er gert ráð fyrir mikilli fækkun fiskiskipa, lægi fyrir þegar Alþingi kemur saman 31. janúar. PLASTPOKAR eru ekki seldir i vínbúðum ÁTVR. „Við erum andvígir því að fólk fari með töskur og poka inn í sjáJfgreiðslu- verslanirnar og verðum því að leggja til einhveijar umbúðir utan um það sem fólkið kaupir,“ sagði Höskuldur Jónsson forstjóri þeg- ar hann var spurður um ástæðu þess. Höskuldur sagði að Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins væri nú að bjóða út framleiðslu á umbúðum og væntanlega yrðu auglýsingar á plastpokunum. Fólk hefur tekið þvi misvel að þurfa að greiða fyrir plastpoka í matvöruverslunum. Fyrst reynir þó á þessa nýju stefnu kaupmanna í dag þegar margir gera stórinn- kaup fyrir helgina. Guðmundur Viðar Friðriksson verslunarstjóri hjá Hagkaup í Skeifunni sagði í gær að flestir viðskiptavinir versl- unarinnar hefðu hingað tel tekið þessu vel. Þeir óánægðu kæmu með töskur eða poka með sér og svo væru plastpokamir mun betur nýttir en áður. Þá eru þess dæmi, að viðskiptavinir biðji um pappa- kassa fyrir vörumar en Guðmund- ur sagði að ekki væri aðstaða til þess í verslununum að láta alla hafa kassa. Viðurkenndi misþyrm- ingn á þremur kindum MAÐUR á miðjum aldri hefiir viðurkennt innbrot í fjárhús við Lónsbrú á Þorláksmessu og að hafa misþyrmt þremur kindum í húsinu. Rannsóknarlögreglan á Akur- eyri hefur haft mál þetta til með- ferðar og leiddi rannsókn hennar til handtöku viðkomandi í gær. Hann játaði á sig verknaðinn eftir yfírheyrslur. Sami maður játaði í gær á sig svipaðan verknað frá því fyrir rúmu ári. Rannsóknarlögreglan á Akur- eyri staðfesti í gær að maður hefði játað á sig verknaðinn, en varðist allra frekari frétta af málinu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.