Morgunblaðið - 06.01.1989, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 06.01.1989, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. JANÚAR' 1989 17 vatnsorka í hlutfalli við það. Því gætu veðurfarsbreytingar orðið til góðs og líka til hins verra. Við verðum að fara vel með allan gróður og margir eru að kvarta um það að landið sé að fjúka á haf út. Margir vilja kenna sauðfénu um þetta, en maður líttu þér nær. Halldór hefur farið víða Halldór hefur ferðast mikið og einkum á seinni árum. Hann hefur heimsótt öll Norðurlönd og mörg lönd í Evrópu. Hann segir að Græn- land sé ægifagurt land en afar harð- býlt og engir vegir séu þar utan þéttbýlis og því séu samgöngur í þessu stóra landi afar dýrar. Hall- dór segir að það sé allt annað að koma til framandi landa en að lesa um þau. Þá sé hægt að fínna áhrif- in frá fólkinu. Gyðingar mega til dæmis vel við una með sitt hlut- skipti, þeir eigi sitt land en þeir verði líka að una öðrum að eiga sinn samastað. Palestínuníenn og ísraelsmenn eigi að geta búið í sátt og samlyndi sem góðir nágrannar. Halldór hefur farið þó nokkuð um Asíulönd og meðal annars kom- ið til Hong Kong og Kína. í Kína heimsótti hann kínverskan bónda og sagði Halldór að ekki væri hægt að bera saman lífskjör okkar og þeirra, svo langt bil væri þar á milli, en þeir eru margir og geta mikið. Nýlega er Halldór kominn frá Kalifomíu og lengdi sumarið um einar þijár vikur. Þar eins og alls staðar annarsstaðar skoðaði Hall- dór báðar hliðar mannlífsins. Hann sá bæði velmegun og fátækt. Næst hefur Halldór áhuga á því að heimsækja Rússland og sjá hluta af hinu víðfema ríki. Nú er samtali okkar að ljúka og á meðan á því stóð þá þurfti Hali- dór að svara fímm sinnum í símann og mér er sagt að það sé ekki óai- gegnt að hann þurfí að svara í símann 20 til 30 sinnum á kvöldi. Hann getur því sjaldan horft á sjón- varpið eða hlustað á útvarp. Ef til vill er það Halldóri nauð- synlegt að hverfa frá dagsins önn- um og þeir sem þekkja hann telja að aðrir þyrftu að vinna allan sóiar- hringinn til þess að afkasta því sem hann gerir. Höfundur er fréttaritari Morgun- blaðsins í Reykhófasveit. kona og baráttuglöð og óhrædd að takast á við hið óþekkta. Hún trúði því að hver maður hefði sinn vitjunartíma og guð einn réði þar um. Hún hafði sagt okkur að ósk hennar væri sú að deyja án þess að þurfa að líða þjáningar í ell- inni. Ekki vildi amma vera upp á aðra komin heldur vera sjálfstæð meðan hún lifði. Hún trúði því einnig að dauðinn væri upphaf nýs lífs og maðurinn hyrfí til frekari starfa á æðri sviðum. Nú þegar ég kveð elsku ömmu mína hinsta sinni, þá bið ég algóð- an guð að vemda hana og blessa, að hann umvefji hana birtu sinni og yl. Áfram mun hún lifa í hugum þeirra og sál, sem þekktu hana. Að fullu verður hún ekki frá okkur tekin. Fari elskuleg amma mín heil til framandi yndis stranda. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinarskilnaður viðkvæm stund. Vinimir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Sveinfríður Jóhannesdóttir Guðmundur Eiríksson kosinn stjórnarformaður Islensku óperunnar AÐALFUNDUR Islensku óper- unnar var haldinn í húsi óper- unnar 12. desember sl. Garðar Cortes, formaður stjórnar óper- unnar, flutti skýrslu um starfs- semina á liðnu ári. Operan sýndi þrjú verk á árinu: Don Giovanni eftir Mozart, Litla sótarann eftir Britten og Ævintýri Hoffmanns eftir Offenbach í sam- vinnu við Þjóðleikhúsið. Guðmund- ur Eiríksson, formaður stjómar styrktarfelags óperunnar, gerði grein fyrir starfi styrktarfélagsins á árinu. Félagið hélt marga tónleika og myndbandasýningar í óperunni, keypti stóran Steinway-flygil í hús- ið í samvinnu við Tónlistarfélagið, gaf út Óperublaðið og myndband með sýningu óperunnar á Don Giov- anni með Kristni Sigmyndssyni í titilhlutverkinu. Myndbandið er til sölu í óperunni og í mörgum hljóm- plötuverslunum í Reykjavík. Styrkt- arfélögum óperunnar Qölgaði veru- lega á árinu. Þeir eru nú um 850. Nokkur fyrirtæki hafa veitt óper- unni rausnarlegan fjárstuðning. Nokkrar breytingar urðu á stjóm óperunnar og styrktarfélagsins. Garðar Cortes, sem hafði verið formaður stjómar ópemnnar frá. upphafí, baðst undan endurkjöri í formannssæti. í stjórn íslensku óperunnar vom kjörin: Guðmundur Eiríksson, þjóðháttafræðingur (formaður), Garðar Cortes, ópem- söngvari, sem jafnframt gegnir starfí ópemstjóra, Lára M. Ragn- arsdóttir, framkvæmdastjóri, Olöf Kolbrún Harðardóttir, ópemsöngv- ari og Þorsteinn Gylfason, dósent. Ólafur Davíðsson og Þorsteinn Júl- íusson báðust undan endurkjöri. í varastjóm ópemnnar vom kjör- in Ásrún Davíðsdóttir, tónlistar- kennari, Elísabet Erlingsdóttir, ein- söngvari og Siguregir Jónsson, lög- fræðingur. Gunnar Guttormsson baðst undan endurkjöri í varastjóm. Að loknu stjómarkjöri færði for- maður stjómar fráfarandi stjómar- formanni, Garðari Cortes, sérstakar þakkir fyrir ómetanlegt starf sem stjómarformaður ópemnnar frá öndverðu. í stjóm Styrktarfélags íslensku ópemnnar vom kjömir Þorvaldur Gylfason, prófessor (formaður), Ámi Tómas Ragnarsson, yfírlækn- ir. Sigurður R. Helgason baðst und- an endurkjöri. í varastjóm styrktar- félagsins vom kjörnir Ingimundur Sigfússon, forstjóri, Jóhannes Jón- asson, lögreglumaður og Jón Þórar- insson, tónskáld. Stjómimar tvær skipta þannig með sér verkum, að stjóm ópemnnar annast rekstur fyrirtækisins, en stjóm styrktarfé- lagsins er ætlað að renna stoðum undir rekstur ópemnnar til fram- búðar. Islenska óperan hefur ýmis verk- efni á pijónunum. Þeirra á meðal má nefna tvær stuttar ópemr, Cav- alleria Rusticana eftir Mascagni og I Pagliacci eftir Leoncavallo í sam- vinnu við norsku ópemna í Osló. Þessar ópemr mörkuðu upphaf raunsæisstefnu í ítölskum ópem- bókmenntum og hafa notið mikillar hylli um allan heim frá því þær vom sýndar fyrst, skömmu fyrir síðustu aldamót. Þær hafa báðar verið sýndar áður á íslandi. (Fréttatilkynning) ÚTSALAN HEFSTÍDA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.