Morgunblaðið - 06.01.1989, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 06.01.1989, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. JANÚAR 1989 19 Réttarháls 2 brennur 15:07 Slökkviliðiö kemur á vettvang. 15:15 Þrír reykkafarar fara inn aö til slökkvistarfa. 15:20 Rofin göt á þakiö til slökkvistarfa. 15:45 Eldurinn saakir á og annaö gat er rofiö á þakiö. 15:50 Buröarbitar í þaki hússins taka aö gefa sig. 16:10 Enn er rofiö gat á þak hússins. 16:20 Húsiö alelda. 16:40 Eldirinn hefur borist í aöliggjandi hús á tveim stööum. © 17:10 Baeöi húsin alelda. MorgunbíaMt GÓl Fyrirtæki byijuð að flytja í bráðabirgðahúsnæði EITT þeirra fyrirtækja sem varð fyrir tjóni í brunanum á Réttarhálsi 2 hefur haSð starf- semi á ný. pað er Rekstrar- tækni sem opnar í dag búð á Lynghálsi 3. Kristján Einarsson einn eigenda fyrirtækisins segir að hann reikni með að starfsem- in verði svo komin aftur í fullan gang á mánudag. Er Morgunblaðið leit við á Rétt- arhálsi 2 síðdegis í gær voru þrjú fyrirtækjanna þar að flytja vörur sínar í bráðabirgðahúsnæði. Það voru auk Rekstrartækni, J. Þor- láksson og Norðmann og Blóma- miðstöðin. Kristján Einarsson segir að þeir hafi sloppið betur en flestir aðrir í húsinu þar sem lager þeirra slapp mikið til óskemmdur. Hann verður fluttur í geymslu í húsnæði Útsölu- markaðarins á Draghálsi þar sem J. Þorláksson og Norðmann hefur einnig fengið inni með sinn lager. „Þótt mikið af lager okkar hafi sloppið urðu skemmdir á hluta hans. Segja má að á næstunni getum við boðið upp á nokkrar „léttreyktar“ pappírsvörur á vægu verði,“ segir Kristján. Hjörtur Örn Hjartarsson fram- kvæmdastjóri J. Þorláksson og Norðmann segir að þeir muni á næstunni flytja vörur sínar í hús- næði Útsölumarkaðarins. Hann segir að framtíðin sé að öðru leyti óviss. Forráðamenn fyrirtækisins munu ræða framhaldið að flutn- ingunum loknum en hann átti ekki von á að verslunin á Réttarhálsi kæmist í gagnið í náinni framtíð. Sveinn Indriðason fram- kvæmdastjóri Blómamiðstöðvar- innar segir að þeir séu að flytja starfsemi sína í húsnæði Sölufé- lags garðyrkjumanna í Skógarhlíð til bráðabirgða. Þar muni þeir verða næstu einn til tvo máanuði með rekstur sinn. Hvað svo tekur við er óljóst en allavega flytja þeir ekki aftur á Réttarháls í bráðina. Allir þessir viðmælendur blaðs- ins létu þess getið að tryggingar þeirra vegna tjónsins væru í lagi. - Kristján Einarsson á lager Rekstrarvara Hjörtur Hjartarsson í búð J. Þorláksson og Norðmann. Var allt í einu í miðju eldhafi -segir Smári Steingrímsson er fyrstur varð eldsins var „ÉG var að vinna við að raf- sjóða kerru í sólningunni. Ég var með rafsuðuhjálm á höfð- inu. Allt í einu fann ég mikinn hita og er ég leit upp sá ég að ég stóði allt í einu í miðju eld- hafi,“ segir Smári Steingríms- son einn starfsmanna Gúmmí- vinnustofúnnar en hann varð fyrstur eldsins var og raunar má segja að hann hafi staðið í miðjum eldsupptökunum. „Þetta gerðist allt svo snöggt að erfitt er að átta sig á því. Mér fannst sem ég stæði allur í ljósum logum og fyrsta hugsunin var að koma sér í burtu. Eg æddi fyrst í öfuga átt en snéri svo við og tókst að komast úr herberginu. Ég náði í slökkvitæki en eldurinn varð strax svo mikill að ekki varð við neitt ráðið.“ Aðspurður um hvort hann telji að kviknaði hafi í út frá rafsuðu- tækinu segir Smári að það sé eng- in leið fyrir hann að gera sér grein fyrir því og hann geti ekkert full- yrt um eldsupptökin. Eldurinn hafi strax orðið svo mikill að eina hugsunin var að komast í burtu. Hann telur að rafsuðuhjálmurinn hafi bjargað andliti hans frá bruna. Einu meiðslin sem hann hlaut voru . smávægileg brunasár á höndum. Sveinn Indriðason í húsnæði Blómamiðstöðvarinnar ★ ★ ★ ★ ★ STORUTSALAI liVOSIWI Útsalan byrjar í dag. Opið laugardag frá kl. 10-16. v PevanEuaiN Hafnarstræti. ★ k

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.