Morgunblaðið - 06.01.1989, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 06.01.1989, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. JANÚAR 1989 fclk í fréttum Morgunblaðið/Einar Falur „Jól við Lækinn“. Vatnslitamynd. MYNDLIST Málar á milli útsendinga Halldór Arni Sveinsson Halldór Ámi Sveinsson er einn af okkar ungu myndlistar- mönnum. Hann hélt sína fyrstu einkasýningu í Hafnarborg í nóv- embermánuði síðastliðnum og hlaut mjög góðar viðtökur. Hann málar landslags-, módel- og kyrralífs- myndir og segja spaugsamir kolleg- ar að miðað við það sem aðrir ung- ir listamenn eru að fást við í dag sé hann „150 ára tímaskekkja". Þá hefur hann verið talinn til hafnfir- skra hraunmálara og er þá ekki farið of djúpt í skiigreiningarhug- takið. „Ég byijaði ungur að mála. Við vorum nokkrir strákar sem höfðum einhveija listræna tilburði, vorum hálfgerðir dekurstrákar í teikningu í Oldutúnsskóla og hjá Bjama Jóns- syni í Flensborg. Síðan málaði ég nánast ekkert í Qöldamörg ár — þar til að ég fór í Myndlista- og handíðaskóla íslands. Ég ætlaði upphaflega í málaradeild en fannst hún lítið spennandi á þeim tíma. Listamenn virðast alltaf hella sér út í ráðandi stefnur, þegar „con- ceptið“ var þurftu allir að vera þar og þegar ég kom í skólann var það „nýja málverkið" sem allir vom á kafi í. Annars er ég ekki fullur efa- semda um stefnur Og isma og reyni að fylgjast með öllu sem er að ger- ast í myndlist. Ég ákvað að fara í auglýsingateiknun og sé ekki eftir því. Ég vinn í raun og vem við hrein- an natúralisma og mest útivið. Mig langar að ferðast um landið og mála það sem ég sé, þegar veður- skilyrðin em þokkaleg. Ég vinn jöfnum höndum með olíuliti, vatns- liti, þurrkrít og olíukrít." Halldór fæst ekki aðeins við myndlist. Hann rekur sjálfur út- varpsstöð í Hafnarfirði (Fm 91,7) en hana setti hann á stofn fyrir rúmu ári. Þama er um að ræða þjónustu við bæjarfélagið í frétta-, menningar- og félagslegu tilliti og er útvarpað eina klukkustund á dag. Á hveiju kvöldi hefur hann lánað grunnskólum Hafnarfjarðar svo og Flensborgarskóla aðstöðu fyrir eigin dagskrá, endurgjalds- laust. Halldór er þegar farinn að und- irbúa þemasýningu sem hann mun halda í Reykjavík í vor. SPÁNN Salvador Dali Hinn heimsfrægi spænski listmálari, Salvador Dali, sem nú er 84 ára að aldri, var nýlega fluttur í skyndi á sjúkrahús. Hann hafði ekki nærst um nokkum tíma og þjáðist meðal annars af öndunartmfl- unum. Dali er þjóðarhetja á Spáni og meðal þeirra sem fyrst komu til hans á sjúkrabeðið var Juan Carlos, Spánarkonungur. Hann hresst- ist fljótt, gamli sérvitringurinn, og tveimur dögum eftir eftir heimsókn konungs var hann útskrifaður. Dolly Paj*ton Enginn lestrarhestur egar aðrir hafa lesið vænan skammt af bókum yfir hátí- ðamar er Dolly Parton að byija á einhverri bókinni og lýkur henni eflaust aldrei. Hún hefur nefni- lega gefíð út þá yfirlýsingu að hún haldi það aldrei út að lesa bækur til enda. Þegar hún er komin í miðja sögu skellir hún aftur bókinni og byijar á þeirri næstu. „En af því að ég er kona,“ segir leikkonan „þá er ég forvitin og er ekki í rónni 'fyrr en ég fæ að vita hvemig bókin endar.“ Til þess að svala forvitninni hefur Dolly það fyrir sið að hringja í einhveija þekkta persónu sem hún veit að lesið hefur bókina, nú eða þá rithöfundinn sjálfan og spyija um söguna. Hún vill nefiiilega vera viðræðuhæf þegar það á við! Sophía Loren ÁHÆTTA Sophia Loren endurtekur hlutverk Leikkonan Sophia Loren sem nú er orðin 54ja ára að aldri hefur nýlega tekið tilboði um að leika í kvikmynd sem ber nafnið „Tvær konur". Hún mun vera í hlutverki móðurinnar í kvikmyndinni sem fjallar um líf móður og hálfvaxta dóttur og á að gerast í síðari heimsstyijöld- inni. Það sem er athyglisvert er að Sophia lék sama hlutverk fyrir 27 árum og fékk Óskars- verðlaun fyrir frábæra frammi- stöðu. Leikstjóri var hinn þekkti Vittorio de Sica. Vinir Sophiu hafa ráðlagt henni frá því að reyna við þetta hlutverk á ný og tala um að hennar stærstu mistök liggi þar. En Sophia er óbangin og eru upptökur þegar hafnar. í þessari nýju útgáfu leikur Sidney Penny táninginn. Frá jólavöku erlendra stúdenta. ÍSLENSKUNÁM Jólavaka fyrir erlenda stúdenta Hér á landi em fjölmargir út- lendingar sem stunda nám í íslensku við Háskóla íslands. Dvelja þeir hér um hátíðir jafnt sem aðra daga. Um jólin var haldin jólavaka fyrir þá en sá siður hefur verið síðastliðin ár. Er það Ásta Ragnars- dóttir námsráðgjafi sem skipulagt hefur þessa skemmtun. Jólavakan hófst á þvi að farið var í Þjóðminjasafnið og útlending- um sagt frá hérlendum jólahefðum og jólasveinum. Síðan var öllum boðið upp á kaffi og kökur í Skólabæ og sagði þá hver og einn stúdent frá jólahaldi í sínu landi. Jafnan koma þeir hvaðanæva úr heiminum. Að lokum söng Valgeir Guðjónsson nokkur jólalög og grýlukvæði. Það þarf ekki að spyrja, skemmtunin féll í góðan jarðveg hjá stúdentunum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.