Morgunblaðið - 06.01.1989, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 06.01.1989, Blaðsíða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FÖSTÖtíAGUR 6: JANÖAR 1989 ínémR FOLK ■ GUÐNI Bergsson, sem leikur með Tottenham hefur fengið mjög góða dóma í norskum fjölmiðlum fyrir leik sinn með liðinu að undan- fömu. Erik Torts- Sigurjón vet, landsliðsmark- Einarsson vörður Norðmanna s.kn{a,r sem einnig er hjá ra oregi Tottenham, hefur gjörsamlega fallið í skuggan fyrri Guðna Bergssyni. ■ NORSKA landsliðið í hand- knattleik kemur til íslands og spil- ar tvo landsleiki 2. og 3. febrúar. Leikirnir verða loka undirbúningur norska liðsins fyrir B-HM í Frakkl- andi. Norska liðið hefur leikið vel í síðustu leikjum sínum og verður án efa til alls líklegt í Frakklandi í febrúar. Fyrsti leikur Norðmanna í B-keppninni verður gegn Vestur- Þjóðverjum 15. febrúar. ■ NORSKA knattspyrnusam- bandið afþakkaði eftir langan fund í g*r, gylliboð olíufélagsins Shell til sambandsins sem svo mjög hefur verið umdeilt í Noregi að unadanf- ömu. Deilumar stóðu einna helst ~um það að Shell hefur mikil umsvif í Suður-Afríku og töldu andstæð- ingar samkomulagsins það ekki sæma norskri íþróttahreyfingu að sækja styrki inn í raðir aðila sem stunda viðskipti þar. Hins vegar töldu þeir sem hliðhollir voru sam- komulaginu, að hér væri um að ræða einstakt tækifæri til eflingar á norskri knattspymu. Samkvæmt samkomulagsdgrögunum skyldi samstarfíð standa í þrú ár, og m.a. ættu allir íþróttavellir fyrstu deild- arfélagnna að bera stór auglýsinga- skilti frá olíufélaginu og félögunum bannað að auglýsa önnur olíuféiög. Knattspymusambandið og 1. deild- arfélögin skyldu svo á ýmsan annan hátt auglýsa þetta tiltekna olíufé- lag. Upphæð samningsins var talið nema um 385 milljónum íslenskra króna. Svo langt gekk umræðan um þennan samning, að ákveðnir leikmenn í 1. deild sögðust ekki leika í deildinni yrði af samkomu- lagi þessu. ■ INGRID Kristiansen, hlaupa- konan snjalla frá Noregi, segist stefna að því að bæta heimsmet sitt í 10.000 metra hlaupi og mara- þonhlaupi á þessu ári. „Markmiðið hjá mér í ár er að hlaupa maraþon á undir tveimur klukkustundum og tuttugu mínútum," sagði Ingrid sem nú er 32 ára. Hún segist einn- ig stefna að því að hlaupa 10.000 metrana á undir 30 mínútum. Besti tími Kristiansen í maraþonhlaupi er 2:21.6 klukkustundir og heims- met hennar í 10.000 metrunum, sem hún setti í London 1985, er 30:13.74 mínútur. IÞROTTAHUS Morgunblaðið/Bjarni íþróttahúsið á Seltjarnarnesl er hið glæsilegasta. Keppnisvöllur er 20x40 metrar. Húsið mun taka 700 til 800 áhorfendur í sæti og eru áhorfendasæti báðu megin við keppnisvöllinn. í húsinu er fímleikagryfla - sú fyrsta sem tek- in verður í notkun hér á landi. Stærri myndin, sem tekin var úr lofti, sýnir vel íþróttamannvirkin sem risið hafa á Seltjarnamesi. Við hlið sundlaugarinnar er gamla íþróttahúsið en það nýja er sambyggt því gamla til vinstri. Minni myndin er tekin inni í nýja íþróttahúsinu sem vígt verður á sunnudaginn. Nýtt glæsilegt íþrótta hús á Seltjamamesi Húsið sem tekur um 800 áhorfendur í sæti, verður vígt á sunnudaginn „NÝJA íþróttahúsið er mikil íyftistöng fyrir allt íþróttalíf hór og það á eftir að veita æsku bæjarins margar gleðistundur í framtíðinni,11 sagði Gunnar Lúðvíksson, formaður íþrótta- félags Gróttu á Seltjarnarnesi, en nýtt glæsilegt íþróttahús verður tekið í notkun á Selt- jarnarnesi á sunnudaginn, að- eins ári eftir að undirritaðir voru samningar um byggingu hússins. að verður hátíðarstemmning á Seltjamamesi kl. 13.30, en þá afhenta forráðamenn Hagvirkja, sem sáu um byggingu hússins, bæjarvöldum á Seltjamamesi lykla af húsinu. Eftir það verður gestum boðið upp á stutta íþróttasýningu. Yngstu knattspymu- og fimleika- menn Gróttu sýna. Lúðrasveit Tón- listaskólans mun leika fyrir og eftir athöfnina. Vígsluleikur hússins fer fram kl. 20 um kvöldið, en þá leikur Grótta og ÍBV í 1. deildarkeppninni í hand- knattleik. Aður er leikurinn hefst verður boðið upp á forleiki, þar sem yngstu leikmenn Gróttu leika frá kl. 18. 700-800 áhorfendur f sæti íþróttahúsið er hið glæsilegasta. Keppnisvöllur er 20x40 metrar. Húsið mun taka 700 til 800 áhorf- endur í sæti og eru áhorfendasæti báðu megin við keppnisvöllinn. í húsinu er fimleikagryfja - sú fyrsta sem tekin verður í notkun hér á landi. Gryfjan verður tekin í notkun eftir tvær vikur. Möguleikar em á að setja planka yfír gryfjuna, þann- ig að 6x25 m flötur fæst til við- bótar fyrir áhorfendur á kappleikj- um. Geysileg lyftistöng Gunnar sagði að með komu nýja íþróttahússins verði gjörbylting í sambandi við íþróttaiðkun á Selt- jarnarnesi. „Við höfum nú tvö íþróttahús. Nýja húsið er samtengt því gamla. Tveggja metra hæðar- munur eru á gólfum húsanna. Fim- leikagryíjan er byggð upp í nýja húsinu, þannig að atrennubraut fyrir gryfjuna er frá gamla hús- inu,“ sagði Gunnar Lúðvíksson. GETRAUNIR 1 X 2 Tvöfaldur pottur Isíðustu leikviku, sem var mánu- daginn 2. janúar, tókst engum tippara að hafa 12 leiki rétta og flyst þvi lr vinningur 'sem var 631.340 kr yfír á 1. vinningspott á laugardaginn. Sextán tipparar voru með 11 rétta og fékk hver um sig 16.907 krónur. BIS sigraði í hópleiknum með 54 stig. Lokaspretturinn var geysi- harður því bæði GRM hópurinn og Sléttbakur voru með 10 leiki rétta í vikunni og hefðu einungis þurft að bæta sig um einn til að ná BIS að stigum. Ellert B. Schram, formaður KSÍ, var með fimm leiki rétta i getrauna- leik Morgunblaðsins og féll úr keppni í fyrstu tilraun, en Ragnar Örn Pétursson, formaður ÍBK, var jneð sex leiki refta og heldur því áfram fjórðu vikuna í röð. Leikir 7. janúar w í Bamsley — Chelsea 1 " 111 2 Birmingham — Wimbledon 2 m 2 Bradford — Tottenham 2 ^ ® i 2 Brighton — Leeds 2 1 Derby — Southampton 1 'V 1 Manchester United — Q.P.R. 1 Jjátb i— 1 Millwall — Luton 1 2 Newcastle — Watford 1 Æ Wljjf 4 1 Portsmouth — Swindon 1 Ew Jm 1 Stoke — Crystal Palace 1 Mtti Æk » \ RAGIMAR ÖRN 2 W.B.A. — Everton 1 HALLDOR Ragnar Öm Pétursson var að sjálfsögðu ánægður með útk. jmuna í síðustu leikviku og sagðist ætla að slá met Ásgeir Elíassonar, sem var með í getrauna- leiknum fjórum sinnum í röð. „Mér líst þokkalega á seðilinn að þessu sinni," sagði Ragnar Örn. „Ég skora á Halldór Einarsson [HENSON] enda ekki ráðist á garðinn þar sem hann er grennstur." Halldór Einarsson, framkvæmdastjóri HENSON, var staddur í flugstöðinni í Keflavík á leið til Bandaríkjanna er við náðum í hann í gær. Hann tók vel í það að reyna að slá Ragnar Öm út. „Mitt uppá- haldslið í Englandi er York City sem leikur í 4. deild. Ég hef haldið tryggð við liðið lengi. Eins hef ég taug- ar til Celtic í Skotlandi og Leeds,“ sagði Halldór. ÍÞfémR FOLK MATLI Hilmarsson, landsliðs- maður í handknattleik, er laus við gifs og hækjur. Atli, sem fótbrotn- aði í leik með Granollers á Spáni, er byijaður að skokka og vonast hann til að verða orðinn góður í byijun mars, en þá hefst lokaslag- urinn í spænsku 1. deildarkeppn- inni. I ARNÓR Guðjohnsen, lands- liðsmaður í knattspymu, sem hefúr verið frá keppni í átta vikur, sagði í gær að hann væri búinn að ná sér að fullu og mæti galvaskur á fyrstu æfíngu Anderlecht eftir jólafrí, *sem verður í Briissel í dag. Keppni f Belgíu hefst aftur 21. janúar með leikjum í bikarkeppninni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.