Morgunblaðið - 06.01.1989, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 06.01.1989, Blaðsíða 47
MORGUNBLABIÐ IPROTTiR PÖSTUDAGtlR 6. JANÚAR 1989 47 KNATTSPYRNA / ENGLAND KÖRFUKNATTLEIKUR / LANDSLIÐ Skemmtileg tilþrif en fáir áhorfendur á leik landsliðsins gegn Hapoel ÍSRAELSKU bikarmeistararnir, Hapoel Elyon, sigruðu íslenska landsliðið í körfuknattleik í Laugardalshöll í gœrkvöldi, 98:80. Leikurinn var mjög skemmtilegur og vel leikinn og gestirnir óhrœddir við að troða og sýna aðrar kúnstir. Hinsveg- ar var undarlegt að sjá aðeins um 200 áhorfendur á þessum leik, enda gefst ekki svo oft tækifœri til að sjá eitt af bestu félagsliðum Evrópu. Islendingar bytjuðu mjög vel og voru yfir lengst af í fyrri hálf- leik. Israelsmenn tóku þó við sér og voru yfir í leikhlei, 32:44. Síðari hálfleikurinn var svipaður; íslending- um tókst að minnka muninn í sjö stig en góður endasprettur gestanna tryggði þeim öruggan sig- ur. Það er reyndar álitamál hvort þetta lið sé ísraelskt eða bandaríkst, því §órir bestu leikmenn liðsins eru bandarískir. íslenska liðið lék mjög vel, þrátt fyrir að vera án Guðmundar Braga- sonar sem er veikur. Magnús Guð- finnson átti mjög góðan leik og bar enga virðingu fyrir ísraelsmönnun- um. Jón Kr. Gíslason lék vel gegn hávöxnum vamarmönnum Hapoel og Valur Ingimundarson átti einnig góðan leik. Stig íslands: Valur Ingimundarson 2Q, Jón Kr. Gíslason 16, Magnús Guð- finnsson 16, Matthías Matthfasson 14, Jóhannes Kristbjömsson 7, Guðjón Skúlason 5 og ívar Ásgrímsson 2. Logi B. Eiósson skrífar Upplausn hiá Sheffield MIKIL óánægja er nú meðal flestra leikmanna Sheffield Wednesday. Talið er að sex af sterkustu leikmönnum liðsins vilji losna frá félaginu og miklar deilur hafa verið síðustu daga. Peter Eustace tók við fram- kvæmdastjórastöðunni í haust er Howard Wilkinson fór til Leeds. Síðan hefur gengið á ýmsu og upp- úr sauð um helgina. Þá lögðu fjórir leikmenn fram ósk um að verða settir á sölulista. Gary Megson verður að öllum líkindum seldur til Manchester City fyrir 250.000 pund en Alan Har- per, sem kom frá Everton var neit- að um sölu. Þá segist Nigel Wort- hington vilja losna frá félaginu. Mel Sterland, sem verið hefur fyrirliðið liðsins, segir að ef hann fái ekki fyrirliðastöðuna að nýju, hafi hann ekki áhuga á að vera lengur hjá félaginu. Það var svo ekki til að bæta úr skák að Sigurður Jónsson var dæmdur í þriggja leikja bann fyrir brottrekstur í leik Sheffield gegn Coventry. „Það eru mikil meiðsli og veik- indi hjá liðinu núna og þessi læti eru ekki til að bæta ástandið," sagði Sigurður í samtali við Morgunblað- ið. „Við vorum Qórir á æfingu á þriðjudaginn og eigum í mestu vandræðum með að skrapa í lið. Ætli við þurfum ekki að nota hús- vörðinn í næsta leik, “ bætti Sigurð- ur við og hló. Sheffield Wednesday er nú í fjórða neðsta sæti í deildinni með 21 stig úr 19 leikjum. Slaktí Eyjum Víkingar voru ávallt skrefinu á undan Eyjamönnum í leik lið- anna í Vestmannaeyjum í gær- kvöldi. Leikurinn var einn sá slak- ^^■■■H asti sem fram hefur Sigfús G. farið í Eyjum í vetur Guömundsson og ekki fyrir augað, skrifar mikið um pústra og minna um spil. Víkingar leiddu með tveimur til frjór- um mörkum lengst af og sigurinn nokkuð öruggur. Það voru aðeins markverðimir, Sigmar Þröstur og Sigurður, sem stóðu fyrir sínu. Athyli hefur vakið hvað leikmenn ÍBV nýta illa víta- köst sín. í þessum leik misnotuðu þeir fímm vítaköst og hafa misnot- að yfir 40 vítaköst það sem af er. Það verður að teljast kraftaverk ef liðinu tekst að sleppa við fall úr þessu. HK á toppinn Troðið í tómri höll! HK er nú komið í efsta sæti í 2. deildinni í handknatt- leik, eftir sigur á Aftureldingu í gær, 29:21. i^Bi Þá sigruðu Frá Þórsarar MagnúsiMá Njarðvíkinga, áAkureyri 25:24. Það var Kristinn Hreins- son sem tryggði Þórsumm sigur þegar fimm sekúndur vom til leiksloka. Páll Gíslason gerði flest mörk Þórsara eða 6 en Arinbjöm Þór- hallsson var atkvæðamestur Njarðvíkinga með 10 mörk úr 12 skotum. Þá var einn leikur í 1. deiid kvenna á Akureyri. Fram sigr- aði Þór 22:14. Guðríður Guðjónsdóttir var markahæst Framstúlkna með 8 mörk en Inga Huld Pálsdóttir gerði 6 mörk fyrir Þór. Morgunblaðiö/Bjami Magnús GuAfinnsson átti mjög góðan leik í gær. Hér stekkur hann hæst og ýtir boltanum ofan í körfuna. Jón Kr. Gíslason og Birgir Mikalesson fylgj- ast með. ÍBV—Víkingur 18 : 20 íþróttahúsið í Vestmannaeyjum, ís- landsmótið - 1. deild, fimmtudaginn 5. janúar 1988. Gangur leiksins: 2:0, 2:4, 5:3, 6:4, 6:5, 8:8, 8:9, 9:11,11:11, 11:15, 13:15, 13:16, 14:17, 16:17, 16:20, 18:20. ÍBV: Sigurður Gunnarsson 8, Sigbjöm Óskarsson 4/1, Sigurður Friðriksson 2/1, Hörður Pálsson 2, Björgvin Þór Rúnarsson 1, Þorsteinn Viktorsson 1, Óskar F. Brynjarsson, Elliði Aðal- steinsson, Jóhann Pétursson, Tómas I. Tómasson. Varin skot: Sigmar Þröstur Óskarsson 11, Ingólfur Amarson. Víkingur: Bjarki Sigurðsson 4, Ámi Friðleifsson 4/1, Siggeir Magnússon 3, Sigurður Ragnarsson 3, Karl Þráins- son 3/1j Guðmundur Guðmundsson 2, Einar Johannesson 1, Jóhann Samúels- son, Eiríkur Benónýsson og Brynjar Stefánsson. Varin skot: Sigurður Jensson 14/4, Heiðar Gunnarsson. Utan vallar: ÍBV í 10 mín. og Víking- ur 12 mínútur. Áhorfendur: 400. Dómarar: Ámi Sverrisson og Egill . Öm Markússon - komust ágœtlega frá leiknum. í kvöld Einn leikur fer fram i 1. deild- arkeppninni í blaki í kvöld. HK og HSK leika í íþróttahús- inu Digranesi kl. 20. m Sigmar Þröstur Óskarsson, ÍBV. Sigurður Jensson, Víkingi. KNATTSPYRNA / ENGLAND Verð hér næstu fjögurárin - segir Guðni Bergsson sem fékk varanlegt atvinnuleyfi í gær GUÐNI Bergsson, sem leikur með Tottenham, fékk varan- legt atvinnuleyfi í Englandi í gær. „Það er því Ijóst að ég verð hér næstu fjögur árin. Skrifað verður formlega undir samninginn í næstu viku,“ sagði Guðni Bergsson í sam- tali við Morgunblaðið í gær- kvöldi. að er ánægjulegt að atvinnu- leyfið er í höfn og ákveðin óvissa er úr sögunni,“ sagði Guðni. Tottenham leikur gegn Brad- HANDBOLTI ford á útivelli í ensku bikarkeppn- inni á morgun, laugardag, og verður leikurinn sýndur í beinni útsendingu í íslenska sjónvarpinu. Guðni sagðist vera nokkuð von- góður um að verða í byijunarlið- inu. „Það er þó ljóst að Paul Gas- coigne kemur nú inn í liðið að nýju eftir meiðsli og það verður einhver að víkja fyrir honum. Vonandi verður það ekki ég.“ Guðni hefur leikið sem hægri sóknarbakvörður og verið í peysu númer 8. „Sjöan, mitt gamla núm- er, er frátekið eins og er því Paul Walsh hefur verið með það.“ HANDBOLTI ÍÞRÚmR FOLK- I JIM Smith, hinn kaupglaði framkvæmdastjóri Newcastle, hef- ur mikinn áhuga á tveimur dönsk- um leikmönnum sen leika með Ár- hus í 1. deildinni í Frá Bob Danmörku. Það eru Hennessy Frank Pingell og iEngiandi Björn Kristensen. Þeir munu báðir fara til Newcastle og æfa með lið- inu næstu vikur. M WEST Ham er nú í neðsta sæti 1. deildar og hefur gengið mjög illa að undanfömu, aðeins gert 16 mörk í 20 leikjum. John Lyali, framkvæmdastjóri liðsins, bauð Dundee United 750.000 pund fyrir framheijann Keith Wright. Þessu boði hafnaði Dundee United strax. Wright. átti að koma í stað Tony Cottee sem West Ham seldi til Everton í sumar. ■ NEIL Ruddock, sem Millwall keypti frá Tottenham í sumar fyr- ir 300.000 pund, vill nú fara frá félaginu. Hann hefur lítið leikið með Millwall, þrátt fyrir að vera einn dýrasti leikmaður félagsins. Þá hef- ur markaskorarinn Teddy Sher- ingham neitað að skrifa undir nýj- an samning við liðið. Margir telja* að Millwall sá að leysast upp, líkt og Wimbledon gerði eftir að liðið varð bikarmeistari. Leikmenn hafa fengið smjörþefinn af frægð og frama, án þess að hafa neitt upp úr því og vilja nú reyna fyrir sér hjá stóm liðunum. ■ JUSTIN Fashanu, bróðir John hjá Wimbledon, er kominn aftur til Englands eftir nokkurra ára dvöl í Bandaríkjunum. Hann hætti í ensku deildinni vegna meiðsla éh er kominn aftur og lék'- æfingaleik með varaliði Manchest- er City gegn nágrönnunum, Un- ited. Fashanu skoraði í þessum fyrsta leik sínum, strax á fyrstu mínútunni. ■ LITLA Bikarkeppnin í knatt- spymu innanhúss fer fram á Akra- nesi um helgina. Á laugardaginn er leikið í kvennaflokki og hefst keppni kl. 14. Þar leika UBK, Stjarnan, FH, Selfoss, Aftureld- ing og ÍA. Keppni í karlaflokki hefst kl. 12 á sunnudaginn. Þar er liðunum skipt í tvo riðla. í A-riðli leika í A, FH, Stjarnan og Selfoss. í B-riðli leika Víðir, UBK, Haukar og B-lið ÍA. ÍBK sendir ekki lið til keppni á mótinu. ÍSLANDSMÓTIÐ 1. DEILD STJARNAN - KR............... 28:23 KA- FH ......................31:33 FRAM- VALUR..................18:23 ÍBV- VlKINGUR................18:20 Fj.leikja u j r Mörk Stlg VALUR 10 10 0 0 266: 197 20 KR 10 8 0 2 256: 229 16 STJARNAN 10 7 0 3 229: 207 14 FH 10 6 0 4 266: 249 12 VIKINGUR 10 4 1 5 252: 266 9 KA 10 4 0 6 233: 235 8 GRÓTTA 9 3 1 5 187: 202 7 FRAM 10 1 3 6 210: 246 5 iBV 10 1 2 7 202: 234 4 UBK 9 1 1 7 192: 228 3 NBA-úrslit Phoenix—Boston Celtics.106:104 Indiana—Atlanta Hawks..116:113 New York—New Jersey....105: 96 Washington—Charlotte...109: 86 Milwaukee—LA Clippere...110:102 Golden State—Miami Heat.109:100 LA Lakers—Portland.....133:120 k | GOLF Pútlmót hjá GR Golfklúbbur Reykjavikur gengst fyrir púttmóti í golf- skálanum i Grafarholti á laugardag- inn. Keppni hefst kl. 10 og lýkur væntanlega um kl. 13.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.