Morgunblaðið - 06.01.1989, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. JANÚAR 1989
Jón Sigurðsson bankamálaráðherra:
Ráðningn Vals frestað
gegni hann öðrum störfiim
„ÞAÐ VERÐUR fundur í bankaráði Landsbankans á morgun og
þar verða bankaráðsmenn að gera það upp, hvort maðurinn er í
vinnu hjá Landsbankanum, eða öðrum,“ sagði Jón Siguðrsson
bankamálaráðherra í samtali við Morgunblaðið í gær. „í þessu
máli er ekkert ha og humm og kannski. Annað hvort er Valur
Arnþórsson bankastjóri eða hann er það ekki,“ sagði ráðherra.
Bankamálaráðherra sagðist líta
þannig á að bankaráðið myndi á
fundi sínum í dag taka ákvörðun
um að ráðningu Vals Amþórssonar
yrði frestað, ef Valur héldi fast við
þá ákvörðun að sinna öðrum störf-
um. „Ég tek það fram að ég ræð
ekki störfum bankaráðs,“ sagði
Jón, „en bankaráðið kallar þá yfir
sig aðfinnslur eða meira, ef það
ekki sinnir sinni skyldu. Það ræður
bankastjórann og ber ábyrgð á því
að hann fullnægi hæfikröfum lag-
4anna.“
Bankaráðsmenn sem rætt var
við í gær vildu sem minnst tjá sig
um mál Vals fyrr en eftir fundinn
sem verður klukkan 13.30 í dag.
Bentu þeir á að bankaráðið hafi-
ákveðið á sínum tíma að ráða Val
frá 1. janúar að því tilskyldu að
að hann uppfyllti ákvæði banka-
laga. Jón Þorgilsson segir að Valur
hafí fengið rúman tíma til að losa
sig úr öðrum störfum og hann
hefði átt að mæta til starfa í bank-
anum um áramót. Nú virtist hins
vegar ekki ótvírætt að hann hafí
lokið öðrum störfum og sagðist
ekki reikna með vandræðum í
bankanum þó hann mætti nokkr-
um vikum seinna. Lúðvík Jósefsson
sagði að Valur hefði fengið sinn
undirbúningstíma og það væri
fyrst núna sem menn vissu að
hann kæmi ekki til starfa um ára-
mót.
Aðrir í bankaráði Landsbankans
eru Pétur Sigurðsson formaður,
Kristinn Finnbogason varaformað-
ur og Eyjólfur K. Sigurjónsson.
Kristinn og Eyjólfur eru erlendis
en varamenn þeirra eru Ragn-
heiður Sveinbjömsdóttir og Georg
H. Tryggvason.
í 13. grein bankalaga eru um-
rædd ákvæði um bann við störfum
bankastjóra utan bankans. Fyrsta
málsgreinin . er svohljóðandi:
„Bankastjórum, aðstoðarbanka-
stjórum og útibússtjórum er óheim-
ilt að sitja í stjóm stofnana og
atvinnufyrirtækja utan bankans
eða taka þátt í atvinnurekstri að
öðru leyti nema slíkt sé boðið í
lögum eða um sé að ræða stofnun
eða atvinnufyrirtæki sem bankinn
á aðild að.“
Valur Amþórsson sagði í gær
að hann hefði gert samkomulag
um að taka ekki til starfa í bankan-
um fyrr en síðar í mánuðinum
þegar hann væri búinn að skila
af sér fyrra starfi en þó ekki seinna
en 1. febrúar. Fyrr tæki hann ekki
til starfa sem bankastjóri og væri
því ekki að bijóta af sér með því
að ljúka við að skila af sér kaup-
félagsstjórastarfínu.
Valur hefur sagt starfí sínu sem
kaupfélagsstjóri hjá Kaupfélagi
Eyfírðinga á Akureyri lausu og
eftirmaður hans er Magnús Gauti
Gautason. Hann situr einnig í
fjölda stjóma og ráða á vegum
samvinnuhreyfingarinnar. Hann er
meðal annars formaður stjómar
Sambands íslenskra samvinnufé-
laga, Olíufélagsins hf. og Sam-
vinnutrygginga. Ólafur Sverrisson
er varaformaður SÍS, Kristján
Loftsson er varaformaður Olíufé-
lagsins en ekki er varaformaður í
stjóm Samvinnutrygginga. Sem
stjómarformaður SÍS veitir hann
forystu nefnd sem vinnur að endur-
skoðun skipulags Sambandsins.
Hann á sæti í stjómum íjölda ann-
arra fyrirtækja, aðallega á Akur-
eyri, m.a. Kafífíbrennslu Akureyrar
hfí, Plasteinangrun hfí, ístess hf.,
Þórshamri hf. og Dagsprenti og
Útgáfufélagi Dags, í mörgum til-
vikum sem stjórnarformaður.
VEÐUR
/ DAG kl. 12.00*
4 /
4 r * r
4 r * r 4
4 í Heimild: Veðurstola íslands
% f % (Byggt á veðurspá kl. 16.15 i gær)
VEÐURHORFUR í DAG, 6. JANÚAR
YFIRLIT í GÆR: Milli Jan Mayen og Norður-Noregs er 974 mb
lægð á leið austur og yfir Norður-Grænlandi er 1022 mb hæð. Um
700 km suð-vestur af landinu er 986 mb lægð sem grynnist og
hreyfist suö-austur. Við Nýfundnaland er 939 mb lægð á hreyfingu
norð-norð-austur. í nótt verður talsvert frost um allt land en fer
að hlýna í fyrramáliö, fyrst vestanlands.
SPÁ: Á morgun verður austan- og suð-austan átt á landinu, víðast
kaldi eða stinningskaldi. Snjókoma, slydda og að lokum rigning í
flestum landshlutum. Hlýnandi veður.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA
HORFUR Á LAUGARDAG: Suð-vestanátt um sunnan- og vestan-
vert landið og slydda. Suð-austan hægari og úrkomulítið fram eft-
ir degi á Norðausturlandi. Hiti um eða rétt yfir frostmarki.
HORFUR Á SUNNUDAG: Vestanátt, slydduó! og hiti nálægt frost-
marki um sunnanvert landið en gengur í norðanótt með éljagangi
og kólnandi veðri fyrir norðan.
TAKN:
Heiðskírt
Léttskýjað
Hálfskýjað
Skýjað
Alskýjað
X Norðan, 4 vindstig:
* Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
r r r
r r r r Rigning
r r r
* r *
r * r * Slydda
r * r
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
■j Q° Hitastig:
10 gráður á Celsíus
y Skúrir
V Él
— Þoka
= Þokumóða
’ , ’ Súld
OO Mistur
—|- Skafrenningur
p? Þrumuveður
VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma hltl veður Akurayri +6 snjóél Reykjavfk +6 skýjafi
Bergen 3 léttskýjað
Helslnki 3 Þokumóða
Kaupmannah. 5 skýjað
Narssarssuaq +19 skýjað
Nuuk +11 heiðskfrt
Osló 1 Þoka f gr.
Stokkhólmur 4 skýjað
Þórshöfn 4 skýjað
Algarve 16 skýjað
Amsterdam 7 skýjað
Barcelona 10 skýjað
Berlln 6 þokumóða
Chicago +3 léttskýjað
Feneyjar +3 hrfmþoka
Frankfurt 5 skúr
Glasgow . 6 rigning
Hamborg S þokumóða
Las Palmas s vantar
London 6 alskýjað
Los Angeles 10 þokumóða
Lúxemborg 3 skýjað
Madrld 5 mlstur
Malaga 13 mistur
Mallorca 1S þokumóða
Montreal +24 léttskýjað
New York +11 heiðskfrt
Orlando 7 heiðskfrt
Parfs 6 skýjað
Róm 8 þokumóða
San Dlego 11 skýjað
Vfn +4 þokumóða
Washington +6 aiskýjað
Wlnnipeg +19 hrímþoka
Siglufjörður;
Varðskipið Ægir
aðstoðar tvo togara
Siglufirði.
VARÐSKIPIÐ Ægir kom tveimur skipum til aðstoðar á leið sinni á
miðin upp úr áramótum. Ægir dró bæði Drangey og Nökkva til
hafíiar vegna vélarbilunar.
Er varðskipið Ægir hafði nýlega
farið frá Reykjavík npp úr áramót-
um a leiðinni til eftirlits á miðunum,
kom kall frá togaranum Drangey,
sem nýlega var búið að selja til
Sauðárkróks. Togarinn var með bil-
aða dælu og þurfti aðstoðar við.
Ægir fór strax á vettvang og fylgdi
togaranum inn til ísafjarðar.
Varðskipið var varla komið inn
á Prestabugt er annað kall kom.
Það var frá rækjutogaranum
Nokkva frá Blönduósi. Hann var
með bilaða vél. Varðskipið lagði
strax af stað frá ísafirði áleiðis að
Kolbeinsey, en þar rak togarann
Nökkva stjórnlausan með brotinn
stimpil í aðalvél. Varðskipið dró
síðan Nökkva inn til Siglugjarðar
og kom þangað að áliðnum degi.
Þetta sýnir það og sannar hve
nauðsynlegt er að hafa varðskipin
á miðunum með sínum reyndu og
góðu skipherrum og áhöfnum þeirra
okkur til reiðu. Skipherra í þessari
ferð var Friðgeir Olgeirsson og
fyrsti vélstjóri Eggert Ólafsson.
Fréttaritari
Þorgeir Jónsson
í Gufiinesi látinn
Þorgeir Jónsson bóndi í Gufii-
nesi iést á Sólvangi í Hafiiarfirði
í gær, 5. janúar. Hann var 85 ára
gamall. Þorgeir var kunnur fyrir
fræknleik og íþróttir á fyrri
hluta aldarinnar og landskunnur
fyrir hestamennsku og hrossa-
rækt á meðan hann bjó i Gufii-
nesi.
Þorgeir Jónsson fæddist þann 7.
desember árið 1903 í Varmadal á
Kjalamesi. Hann var sonur hjón-
anna Jóns Þorlákssonar og Salvarar
Þorkelsdóttur. Þorgeir ólst upp í
Varmadal. Hann missti föður sinn
árið 1916 og var heimilið í umsjá
móður hans eftir það.
Þorgeir var fjölhæfur íþrótta-
maður og setti íslandsmet í nokkr-
um greinum fijálsra íþrótta. Hann
var einnig kunnur glímukappi og
varð meðal annars glímukóngur
íslands og handhafi Grettisbeltis.
Þorgeir hóf búskap árið 1935 á
Sunnuhvoli í Reykjavík þar sem nú
er Miklatún. Þaðan fluttist hann í
Viðey og var þar í eitt ár. Hann
settist síðan að í Gufunesi árið 1937
og þjó þar til æviloka. í Gufunesi
hóf Þorgeir hrossarækt og er Gufu-
neskyn kennt við það starf hans.
Hann hafði mikil afskipti af málefn-
um hestamanna og gerðist braut-
ryðjandi í hestamennsku og hestaí-
þróttum. Þorgeir efndi meðal ann-
Þorgeir Jónsson.
ars til kappreiða á eigin skeiðvelli
í Gufunesi.
Eiginkona Þorgeirs var Guðný
Guðlaugsdóttir og giftu þau sig 5.
janúar 1929. Guðný lést árið 1952.
Þeim varð sjö barna auðið sem lifa
öll. Þorgeir eignaðist einn son eftir
að hann varð ekkill.