Morgunblaðið - 06.01.1989, Síða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. JANÚAR 1989
RÖSE:
Reynt að
reka smiðs-
höggið á er-
indisbréfið
Zllrich, frá önnu Bjarnadóttur, fréttarit-
ara Morgunblaðsins.
FULLTRÚAR Atlantshafsbanda-
lagsríkjanna 16 og Varsjár-
bandalagsríkjanna 7, sem funda
í Vínarborg samhliða Ráðstefii-
unni um öryggi og samvinnu í
Evrópu, RÖSE, vonast til að reka
smiðshöggið á erindisbréf um
fyrirhugaðar viðræður ríkjanna
um jafnvægi og niðurskurð hefð-
bundins vígbúnaðar frá Atlants-
hafi til ÚralQalla innan nokkurra
daga. Ágreiningur milli Sovét-
manna og Tyrkja um svæðið í
austurhluta Tyrklands, sem við-
ræðumar eiga að ná til, er leyst-
ur en deilur era hafiiar á milli
Grikkja og Tyrkja um skilgrein-
ingu svæðisins.
Hjálmar W. Hannesson, sendi-
herra, situr fundina fyrir íslands
hönd. Hann sagði að vonast væri
til að erindisbréfið yrði tilbúið um
helgina og fulltrúarnir gætu sam-
þykkt það snemma í næstu viku.
Stefnt er að því að samningavið-
ræður ríkjanna 23ja hefjist í Vínar-
borg fljótlega eftir að Vínarfundi
RÖSE lýkur.
Helstu. hindruninni í vegi fyrir
samþykkt lokasiqals Vínarráðstefn-
unnar, sem nú hefur staðið í yfir
tvö ár, var rutt úr vegi í vikunni
þegar Bandaríkjamenn samþykktu
að mannréttindaráðstefna yrði
haldin í Moskvu haustið 1991. Ut-
anríkisráðherrar aðildarríkja Hels-
inki-sáttmálans munu funda t Vín
um miðjan mánuðinn og stefnt er
að því að lokaskjalið verði tilbúið
þá, Vestræn ríki eru ánægð með
mannréttindaákvæði sem eru f
drögum að skjalinu og vonast til
að öll aðildarríkin samþykki þau en
óttast er að Rúmenía streitist við.
Hannes sagði í gærkvöldi að það
kæmi í ljós á næstu dögum hvort
tekst að ljúka Vínarráðstefnunni
nú eða hvort hún muni dragast enn
á langinn. „Ef henni verður ekki
lokið í þessum mánuði má búast
við að .hún dragist fram á vor,“
sagði hann.
Réttur dags-
ins steiktur
peningakassi
Haverfordwest. Reuter.
GLEYMNUM matreiðslu-
manni í Haverfordwest í
Wales varð það á um áramót-
in að fela peningakassann
sinn í eldavélarofiii yfir nótt.
Daginn eftir setti hann
straum á ofiiinn og eldaði
sína dýrustu steik um ævina.
Albert Grabham, en svo hét
kokkurinn, faldi peningana á
þessum stað, af því að hann
var svo þreyttur eftir gamlárs-
kvöldshrotuna ( New House
Hotel, þar sem hann vinnur.
Morguninn eftir barst fnykur
af stiknandi seðlum um hótelið,
eftir að búið var að hita ofninn
upp fyrir hádegismatinn.
Peningakassinn, sem var úr
plasti, bráðnaði niður og
seðlamir brunnu til ösku. Mynt-
in sat eftir á kafi í plastdeiginu
„Ég hef orðið að sitja undir
alls konar glósum frá viðskipta-
vinunum," segir Grabham.
„Þeir biðja til dæmis um „heita
peninga" og „hrökkbrauð".
Deilurnar milli Bandaríkjanna og Líbýu
Tvær líbýskar MiG orrustuþotur skotnar niöur
1. Tvær bandarískar F-14
orrustuþotur eru á venjulegu eftirlits-
flugi (15.000 feta hæð um 112 km
undan ströndum Líbýu.
Tvær Kbýskar MiG-23-þotur fara á loft
og nálgast.bandarísku þoturnar.
2. Bandarísku
þoturnar lækka flugiö niöur
(4.000 feta hæö og reyna
fimm sinnum aö foröast
Kbýsku þoturnar.
MiG-þoturnar nálgast enn
og reyna aö komast (sjón-
mál viö F-14 þoturnar.
3. Þegar MiG-þoturnar eru
22,4 km frá F-14-þotunum
granda Bandaríkjamenn fyrri
þotunni. Slöari þotan er skotin
niður á innan viö 9.6 km færi.
4. Bandarísku flugmennirnir
sjá tvær fallhltfar og líbvsk
stefnir síðan á
björqunarþyrla
svæðið.
KRTN
Bretar segjast hafa sannanir
fyrir eftiavopnaverksmiðju
Líbýskur stjórnarandstöðuleiðtogi fullyrðir að svo sé
London. Reuter.
BRETAR tóku á miðvikudag undir með banda-
rískum stjóravöldum sem segja að Líbýumenn
hafi reist efiiavopnaverksmiðju í grennd við
höfúðborgina Trípólí. Breska stjórnin sagðist
hafa upplýsingar undir höndum sem sönnuðu
tilvist verksmiðjunnar. Líbýskur stjórnarand-
stöðuleiðtogi búsettur í London sagði
á miðvikudag að Líbýustjórn hefði
byggt efiiavopnaverksmiðju neðanjarð-
ar.
Breska ríkisstjómin lýsti því yfir á mið-
vikudag að bandarísku orrustuvélamar
hefðu skotið þær líbýsku niður í sjálfsvöm.
„Við höfum haft samband við fulltrúa
fjölmargra landa til að tilkynna þeim að
við höfum undir höndum upplýsingar um
efnavopnaáætlun Líbýumanna," sagði
talsmaður utanríkisráðuneytisins. „Sam-
kvæmt upplýsingum okkar er verksmiðjan
mikið bákn og það leikur enginn vafi á
því að í henni er hægt að framleiða efna-
vopn,“ bætti hann við.
Bandarísk stjómvöld hafa haldið því
fram að verksmiðjan í Rabta, um 80 km
suðvestur af Trípólí, sé hönnuð til að fram-
leiða taugagas og þau hafa sagt að ekki
sé loku fyrir það skotið að árás verði gerð
á verksmiðjuna. Bandarísk stjómvöld
höfnuðu boði Líbýumanna um að banda-
rískir aðilar skoðuðu verksmiðjuna.
Muammar Gaddafí Líbýuleiðtogi hefur
vísað þessum ásökunum á bug og segir að
í umræddri verksmiðju verði framleidd lyf.
Abu Abdullah, leiðtogi Alþýðufylkingar
fyrir frelsun Líbýu sem búsettur er í Lon-
don, sagði að ekki væri hægt að koma
auga á verksmiðjuna þar sem hún væri
byggð inn í fjall. „Verksmiðjan er að mestu
leyti neðanjarðar...! sjö eða átta km fjar-
lægð er verið að reisa lítið sjúkrahús.
Gaddafi er að tala um sjúkrahúsið, sem
ráðgert er að opna í marsmánuði," sagði
Abdullah. Hann sagði ennfremur að upp-
lýsingar sínar bentu til þess að Gaddafi
hefði í hyggju að sýna Bandaríkjamönnum
sjúkrahúsið í Wadi al-Hira.
Barst flugmönn-
unum skipun um
að heQa árás?
London. Daily Telegraph.
ÓLÍKLEGT er talið að flugmenn
bandarísku F-14 herþotnanna hafi
sjálfir tekið ákvörðun um að skjóta
niður líbýsku orrustuþoturnar á mið-
vikudag. Sérfræðingar í flughernaði
telja að í kjölfar þess að líbýsku flug-
mennirnir settu flugskeyti í skotstöðu
hafi bandarísku flugmönnunum borist
skipun frá flugmóðurskipinu eða
tveimur eftirlitsvélum um að grfpa til
vopna.
Talið er að F-14 orrustuvélamar hafi
verið á eftirlitsflugi um 50-80 mílur frá
flugmóðurskipinu John F. Kennedy. Sam-
kvæmt því fylgdu orrustuvélunum tvær
eftirlitsflugyélar, EA-6B Prowler og E-2C
Hawkeys. í vélunum eru rafeindatæki er
nema meðal annars ratsjárgeisla nálægra
flugvéla. Þessi tæki geta til dæmis mælt
það ef ratsjá hættir að leita að hlut og
tekur til við að miða hann út.
Sérfræðingar segja að eftirlitsvélamar
hafi verið í tölvusambandi við F-14 vélam-
ar og ESM-fjarskiptakerfí um borð í flug-
móðurskipinu. Þess vegna er talið líklegt
að stjómendur um borð í flugmóðurskipinu
og eftirlitsvélunum hafí tekið ákvörðun
um árásina ( ljósi þess að rafeindaboð
gæfu til kynna, að líbýsku flugmennimir
hefðu búist til árásar.
Herstyrkur Bandaríkjamanna viö Miöjaröarhaf
SPÁNN
■ Hermenn: Flugher 4,800;
Hoti 3,600; Undgönguliö 200;
Undher 25
■ Orrustuþotur: 72
ÍTALÍA
■ Hermenn: Flugher 5,700;
Floti 4,800; Undher 4,800;
Undgönguliö 300
■ Orrustuþotur: Engar meö
fastar bækistöövar
GRIKKLAND
■ Hermenn: Flugher
2,200; Roti 530; Undher
460; Undgönguliö 17
■ Orrustuþotur: Engar
meö fastar bækistöövar
FLOTASTYRKUR
■ Hermenn: 10,000, auk
2,000 landgönguliöa, sem
einnig starfa i landi
■ Orrustuþotur: 80
■ Hersklp: Rugmóöur-
skipiö John F. Kennedy, 2
beitiskip, 2 tundurspillar, 5
freigátur
og nokkur fylgiskip.
Alls eru 23 bandarisk
herskip á
Miöjaröarhafi, flest þeirra eru
meö Kennedy-flotadeildinni
LÍBÝA
TYRKLAND
■ Hermenn: Flugher
3,600; Ftoti 100; Undher
1,275; Undgðnguliö 17
■ Orrustuþotur: Engar
meö fastar bækistöövar
'Fyrírhugað er aö Theodore
Roosevelt-flotadeildin, meö
15.000 hermenn og 85 orrustu-
þotur, taki viö af Kennedy-
flotadelldinni
HEIMILDIR: Chicago Trtoune. Centar for Delense Intormalion, banderíske vamarmálaráöuneytifi og tréttaskeyti
KRTN
Andstæðingur Reagans í Líbýu
Hóreru tíundaöir helstu atburöir í
samskiptum Reagans
Bandaríkjaforseta og Gaddafis
Lfbýuleiðfoga.
19. égúst 1981:
Bandarískar þotur
skjóta tvær
líbýskar orrustu-
þotur yfir Syrtuflóa.
11. égúst, 1983:
Reagan
fordæmir hemaö
Líbýumanna (Tsjad
og hémaöarupp-
byggingu þeirra.
7. |an., 1986:
Reagan
fyrirskipar efna-
refsiaögeröir
gegn Lfbýu
og kallar
Bandarlkjamenn i
Libýu heim.
|l 21. des., 1988:
Reagan segir aö bandamenn
Bandarikjamanna hafi
rætt aögeröir vegna
llbýskrar efnavopna- verksmiöju.
Bandariska utanrfkis-
réöuneytið segir aö
Líbýumenn frétmleiöi
efnavopn.
4. lan., 1989:
Tveim Kbýskum
þotum grandaö.
Reagan
ver aögeröir Bandaríkja-
manna yfir Syrtuflóa og
segir að flóinn, sem
Lfbíumenn segjaá
slnu yfirróöasvæöi, sé
alþjóölegt svæöi.
HEIMtLO: AP
24. jan., 1985:
Reagan segir aö
Mtö-Amerlkurikjum
stafi ógn
af stuöningi
Líbýumanna viö
stjórn Nicaragua.
5. aprfl, 1986:
Hryöjuverkamenn
sprengja skemmtistaö
í Berlín; 2 týna IIR og
230 slasast.
9. aprfl, 1986: Reagan kallar
Gaddafi “brjólæöing Miö-
Austurianda.- 14. april, 1986:
Bandarískar þotur varpa sprengjum
á Libýu; 37 týna tlfl, 93 særasL
2okt, 1986:
Washington Post segir
frá þv( aö Bandarfkja-
stjóm hafi reynt aö
koma inn ótta hjá
Gaddati um yflrvofandl
árás Bandarikja-
manna.
KRTN