Morgunblaðið - 06.01.1989, Síða 36
36
Stjörmi-
speki
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson
Árið framundan
hjá Krabba
f dag ætla ég að fjalla um
árið framundan hjá Krabban-
um (21. júní — 22. júlí). Ein-
ungis er miðað við Sólarmerk-
ið eða það sem varðar grunn-
eðli og lífsorku.
Viöburöaríkt ár
Það er óhætt að segja að
næsta ár verði viðburðaríkt
hjá Krabbanum, því margar
sterkar afstöður verða á Só-
lina frá Júpíter, Satúrnusi,
Úranusi og Neptúnusi.
Vinnutímabil
Afstaða Satúmusar á Sól
þeirra sem eru fæddir frá 21.
júní til 8. júlí getur táknað
margt, en algengast er að
henni fylgi aukið raunsæi,
jarðbundnari viðhorf, þörf fyr-
ir sjálfsaga og áþreifanlegan
árangur. Satúmus kallar yfir-
leitt á vinnu og því má kaila
þetta vinnutímabil. Satúmus
hægir á lífsorkunni og leiðir
gjaman til sjálfsskoðunar og
raunsæs endurmats. Ef fyrra
lífsmunstur hefur einkennst
af óraunsæi og loftköstulum
getur tímabil Satúmusar verið
óþægilegt, einkennst af höml-
um, árekstmm og samdrætti,
en getur jafnframt ieitt til
þess að viðkomandi vaknar
upp.
Byltingar
Úranus verður á Sól þeirra
sem em fæddir frá 22.-27.
júní. Sú orka kallar á þörf
fyrir nýjungar og uppbrot á
gömlu formi. Þegar Úranus
er sterkur vaknar þörf fyrir
aukið sjálfstæði, spennu og
breytingar. Það gamla góða
verður ekki lengur fullnægj-
andi, né heldur vani og hefð-
bundið lífsmunstur.
Uppstokkun
Þar sem Satúmus og Úranus
verða báðir á Sól hjá þeim
Kröbbum sem fæddir em frá
22.-27. júní ætti árið að ein-
kennast af raunsæi, vinnu og
breytingum. Þeir Krabbar sem
fæddir em síðar i merkinu
koma til með að fá þessa orku
inn í líf sitt á næstu ámm.
Úranus er 7 ár í merki og
Satúmus 2Ú2 ár. Það táknar
að nú er að byrja 7 ára vreyt-
ingartímabil hjá Kröbbum,
breytingar sem munu taka 1
til 2 ár hjá hverjum einstakl-
ing.
Neptúnus
Þriðja plánetan sem berður
sterk í lífí Krabbans er Nept-
únus. Orka hennar verður
áberandi hjá þeim sem em
fæddir frá 2. til 4. júlí.
Nœmleiki
Neptúnusi fylgir yfirleitt auk-
inn næmleiki og opnun gagn-
vart lífínu og tilvemnni.
fmyndunaraflið verður sterk-
ara en áður og áhugi á listum
og andlegum málum eykst.
Það verður þó að segjast að
ekki em allir opnir fyrir göf-
ugri hliðum Neptúnusar. í
sumum tilvikum kallar hann á
sókn í áfengi eða draumlyndi
sem birtist í þörf fyrir það að
horfa mikið á sjónvarp og lifa
í óraunverulegum heimi. Þar
sem Satúmus verður einnig
sterkur má búast við að um
einhveija togstreitu verði að
ræða, eða baráttu miili
drauma og jarðbundins raun-
sæis. Hið jákvæða er að orka
Neptúnusar gefur viðkomandi
Kröbbum tækifæri til að auka
andlegan þroska sinn og
lífsskilning.
Þensla
í ágúst 1989 fer Júpiter síðan
inn í Krabbamerkið. Veturinn
1989-1990 og árið 1990
verður því tími þenslu og nýrra
sjóndeildarhringa. Þegar á
heildina er litið þurfa Krabbar
því ekki að búast við rólegri
tíð á næstunni. Þeir verða í
miðju atburðanna og þurfa að
fara varlega, því margt togast
á en jafnframt geta þeir afrek-
að margt á komandi tíma.
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. JANÚAR 1989
GARPUR
DDCMHA OTADD
DKtlMUA olAKK
HÚN ER pá BKHt EIN AF pBSSUM
fCONUHl S£M HALDA AÐ AF ÞW AÐ
ÉG £R LAGLEGUF 5É ^
ÉG LÍKA S7£>
ntz:
ÞÓ ERT E/NA \EF ÞÓ GBTVR
kONANSEM ÉG )
Teeysv, ^lurðuJ^^-
pi'NUAty ,
.HVEfUUM ÞA
/ KJZ/Z
m
%
S
rssr
&
—r \ f bz— :—l*—as 1 lÁOI/ /V
Í7 UUbKA
WHV WOULPI VwHV[70E5 IT ^
CALL MV5ELF / TAKE 50 L0N6
"L0UI5THE FORTHEBELL
FOUKTEENTH"? V T0 KIN6 ? J
í dag heiti ég Pollý ...
Mér er sama þótt þú hétir
„Loðvík Qórtándi" ...
Nöfn eru áhugaverð, sagði
Shakespeare . . .
Ég veit hvað Shakespeare
sagði...
Af hveiju skyldi ég kalla
mig „Loðvík Qórtánda"?
Af hveiju er svona Iengi
að kvikna á perunni?
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Settu þig í spor vesturs og
veldu útspil eftir þessar sagnir:
Vestur
♦ ÁD92
▼ 1083
♦ D42
♦ 1083
Norður
♦
¥
♦
♦
II
Suður
♦ ■
¥
♦
♦
Austur
♦
¥
♦
♦
Vestur Norður Austur Suður
— 1 tígull Pass 1 hjarta
Pass 2 grönd Pass 3 hjörtu
Pass 4 hjörtu Pass Pass
Pass
NS spila Standard með
15—17 punkta grandi, svo stökk
norðurs í tvö grönd skýrir frá
18—19 punktum ogjafnri skipt-
ingu. Eftir slíka byijun er hag-
kvæmast að nota þijú lauf svar-
handar sem gervisögn, sem
spannar meðal annars allar veik-
ar hendur. NS fylgja þeim stíl,
og því eru þijú hjörtu suðurs
krafa í geim.
Það lítur út fyrir að tígul-
drottningin sé illa staðsett fyrir
vömina og því þurfi að spila
ágenga vöm. Þar eð spaðakóng-
urinn er að öllum líkindum í
blindum gæti þetta verið rétti
tíminn fyrir snotra blekkingu:
Vestur
♦ ÁD92
¥1083
♦ D42
♦ 1083
Norður
♦ K73
¥ D74
♦ ÁKG7
♦ ÁD5
llllli
Austur
♦ G85
¥ G
♦ 9865
♦ G9642
Suður
♦ 1064
¥ ÁK9652
♦ 103
♦ K7
Spilið liggur upp í 12 slagi,
nema hugsanlega með spaða-
drottningunni út! Sagnhafi er
vís með að dúkka hana, og gefa
austri næsta slag á gosann.
Vestur fær þriðja slag varnar-
innar á spaðaás og lokahnykkur-
inn er síðan að spila 13. spaðan-
um og láta austur trompa með
gosanum. Þannig upphefst tía
vesturs og verður fjórði slagur
vamarinnar!
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
Á Ólympíumótinu í Saloniki um
daginn kom þessi staða upp í skák
alþjóðlegu meistaranna Dmitri
Donchev, Búlgaríu, sem hafði
hvítt og átti leik, og Lars Bo
Hansen, Danmörku. Síðasti leikur
svarts var 35. — Rg5-e6.
36. Hxf7! - Kxf7 37. Hfl+ —
Ke8 38. Bxe6 — c3 39. Bxd7+
- Kxd7 40. Hf7+ - Ke6 41.
Hxg7 - c2 42. He7+ - Kd5 43.
Be3 og svartur gafst upp.