Morgunblaðið - 08.02.1989, Síða 7

Morgunblaðið - 08.02.1989, Síða 7
*'»**»■ * MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. FEBRÚAR 1989 7 Fíkniefíiamál: Maður í varðhaldi Gæsluvarðhaldsúrskurður yfir manni um þrítugt, sem grunaður er um fiknie&amis- ferli og verið hefúr í gæslu frá því á föstudag, rennur út í dag. Maðurinn hefur áður komið við sögu fíkniefnalögreglu að sögn Arnars Jenssonar lögreglufulltrúa. Hann varðist allra nánari frétta af málinu. Þorvaldur Elísson Fannst látinn Maðurinn, sem björgunar- sveitir á Suðurlandi leituðu milli Stokkseyrar og Þorlákshafnar á mánudagskvöld, fannst látinn nálægt Þorlákshöfn á þriðju- dagsmorgun. Hann hét Þorvaldur Elísson, til heimilis að Sólvöllum 1, Stokks- eyri, fæddur 29. júní 1948. Þor- valdur lætur eftir sig eiginkonu, tvö böm og tvö stjúpböm. Hann var starfsmaður Stokkseyrar- hrepps. Leiðrétting í GREIN sem birtist sl. laugar- dag (4.2.) í Lesbók Morgun- blaðsins og Qallaði um nýja mósaíkmynd eftir Benedikt Gunnarsson listmálara í kór Háteigskirkju hafa slæðst inn f texta þrjár prentvillur sem þarfhast leiðréttingar. í álitsgerð dómnefndar á að standa m.a.: „Verkið sýnir vel þann grund- völl sem lifandi kirkja byggir á, þ.e. hinn eilífa Guð sem sendir f syni sínum ljósið til jarðarinn- ar...“ (f stað orðanna „kristin kirkja" skal standa “lifandi kirkja“ og bókstafurinn „í“ fyrir framan orð- in ^syni sínum“.) í seinni hluta ávarps BG þar sem fjallað er um krossinn og ljó- sið á að standa m.a.: „Lóðrétti flötur krossins leiðir marglitt ljósið niður í blágráan hálfhring sem er hugsaður sem tákn jarðar og þjónar um leið sem baksvið altaris." (feitletrað orð var brenglað). Með þökk fyrir birtinguna. Benedikt Gunnarsson Morgunblaðið/Sverrir Krakkamir á Grænuborg æfðu í gær „gjörning“ fyrir öskudaginn. • • Oskudagurinn: Skemmtun og skíðamót með ýmsum þrautum lagðar í Kóngsgili. Þetta er einstaklings- keppni með tímatöku. Mótið er fyrir krakka frá Reykjavík, Kópa- vogi, Garðabæ, Hafnafirði, Selt- jamamesi, Keflavík, Njarðvík, Grindavík, Miðneshreppi, Gerðar- hreppi, Bessastaðahreppi, Vog- og Selvogshreppi. í mótslok verð- ur svo kötturinn sleginn úr tunn- unni. Ef útlit er fyrir slæmt veður I dag verða sendar tilkynningar um hugsanlega frestun mótsins í morgunútvarpi kl. 9. fþrótta- og tómstundaráð Reykjavíkur stendur fyrir skemmtun á Lækjartorgi í dag öskudag og f samvinnu við Blá- Qallanefhd gengst ráðið fyrir skíðamóti fyrir grunnskólanem- endur í BláQöllum. Krökkum úr skólum og félagsmiðstöðvum býðst að koma fram á Lækjart- orgi með eigin skemmtiatriði. Þá verður Tóti trúður á staðnum og kl. 14 verður kötturinn sleg- inn úr tunnunni. Fýrir skíðamót grunnskóla- nemendanna verða svigbrautir Hann er hljóðlátur, afkastamikill, fjölhæfur, alsamhæfður og með öllum þeim möguleikum sem góður laser- prentari þarf að hafa. • Innra minni 512 Kb. og stækkanlegt í einu lagi um 1,2 eða 4 Mb. • Prentar 8 blaðsíðurá mfnútu A-4. • Sex innbyggðar leturgerðir. • Aukaleturgerðir er hægt að fá á sórstökum leturhylkjum sem stungið er í prentarann. Einnig er hægt að senda leturgerðir frá tölvunni. - Þetta gefur mikinn sveigjanleika þegar margir notendur eru um sama prentarann. • Pappírsbakkar. 200 síðna mötunarbakki og 100 síðna móttökubakki. • Mögulegt er að prenta á báðar hliðar með handmötun í síðari umferð. Skilar útprentun á hvolfi sem gefur rétta uppröðun. — Handmötun fyrir umslög. • Samskiptatengi. Raðtengi (Serial) og hliðartengi (Parallel). • Mál: Breidd: 45.4 cm. Dýpt: 48.2 cm. (án bakka), 81.5 cm. (með bakka) Hæð: 22.8 cm. Þyngd: 22.4 kg. • Fylgihlutir: Hliötengi og kapall fyiir IBM PC/AT og WANG PC. • Verðið kemur þér á óvart. • Sýningareintak í verslun Heimilistækja, Sætúni 8. HEIMILISTÆKIHF. TÖLVUDEILD, SÆTÚNI8 - SÍMI: 91 -6915 00

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.