Morgunblaðið - 08.02.1989, Page 20

Morgunblaðið - 08.02.1989, Page 20
20 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. FEBRÚAR 1989 Ítalía: Svefiilyflum dælt úr Birni Borg' Milanó. Reuter. BJÖRN Borg, fyrrum tennisstjarna, var í gær fluttur á sjúkrahús eftir að hafa tekið of stóran skammt af svefiilyflum. Dælt var úr maga hans og fór hann af sjúkrahúsinu samdægurs. Borg fór ásamt ítalskri unnustu sinni, söngkonunni Loredana Barte, Holland: Hafa gagn- kynhneigðir stærri heila? Amsterdam. Reuter. RANNSÓKN á hugsanlegum orsökum samkynhneigðar af liffiæðilegum völdum olli miklu Qaðrafoki á meðal hol- lenskra visindamanna og stjóramálamanna síðastliðinn mánudag. Dick Swaab, heila- skurðsérCræðingur við sjúkrahúsið i háskólanum í Amsterdam, komst að þeirri niðurstöðu eftir að hafa kruf- ið lík 15 karlmanna sem lét- ust úr eyðni, að heilar sam- kynhneigðra einstaklinga hefðu annað byggingarlag en heilar gagnkynhneigðra. Flokkur vinstri manna, PPR, sendi vísindamálaráðherra landsins, Wim Deetman, bréf þar sem látnar eru í ljós áhyggj- ur um að uppgötvanir Swaabs hafi áhrif á almenningsálitið. „Myndin sem Qölmiðlar draga upp er sú að gagnkynhneigð geti talist heilbrigðisvandamál. Við teljum það afar varhuga- verða þróun," sagði talsmaður PPR, Hans Siepel. í niðurstöðum rannsókna Swaabs segir að hluti heila- dyngjubotns, sá hluti heilans sem stjómar hormónafram- leiðslu líkamans, sé stærri í sam- kynhneigðum einstaklingum en í gagnkynhneigðum. „Þetta leiðir í ljós að samband er á milli kynferðis og lögunar heilans. En ég held því ekki fram að ég hafi komist að niðurstöðu um orsakir gagnkynhneigðar," sagði Swaab. á leigubíl frá sjúkrahúsinu. „Mér líður vel, þessu er lokið," sagði hann brosandi við fréttamenn við heimili hjónaleysanna í Mílanó. Talsmenn lögreglu og læknar sögðu að Borg hefði tekið of stóran skammt af Roipnol, sem er svefnlyf og róandi lyf, skylt valíumi. Þeir vildu ekki staðfesta fréttir í ítölsk- um fjölmiðlum um að tennisstjaman fyrrverandi hefði reynt að fremja sjálfsmorð. Skýrt var frá þvi nýlega að Borg og unnusta hans hefðu orðið fyrir miklu áfalli í janúar þegar kaþólska kirkjan hafnaði beiðni þeirra um giftingu í kirkju í Mílanó á þeirri forsendu að þau em bæði fráskilin. Mæðurgegn herþjónustu Reuter Suður-afrísk kona með son sinn í fanginu ávarp- ar blaðamannafúnd í Höfðaborg þar sem lagt var að suður-afrísku ríkissijórainni að hún byði hvítum mönnum aðra valkosti en herinn til að gegna þegnskyldu sinni. 800 mæður settu þessa kröfú á oddinn á fúndum viðs vegar um landið. Hvitir menn eiga sex ára fangelsi yfir höfði sér ef þeir neita að gegna herþjónustu. George Bush Bandaríkjaforseti: Óábyrg kröfugerð getur útílokað mikilhæfa menn » Kynnti jaftiframt ráðstafanir til að bjarga bandarískum sparisjóðum Washington. Reuter. GEORGE Bush Bandaríkjaforseti hefúr varað við því, að svo miklar og óábyrgar kröfúr séu gerðar til þeirra, sem gegna opinberum embættum, að það útiloki annars mikilhæfa menn. Er tilefnið sú gagnrýni, sem beint hefúr verið gegn sumum þeirra manna, sem Bush hefúr valið í ráðherraembætti. Þá hefúr Bush einnig skýrt frá áætlun um aðstoð við bandaríska sparisjóði, sem margir eru illa staddir. John Tower, sem Bush hefur hug á að verði vamarmálaráðherra, hef- ur sætt mikilli gagnrýni og einkan- lega fyrir einkalífið. Er hann sagður drekka of mikið og daðra meira við aðrar konur en sína eigin og þá er að því fundið, að hann hafi þegið mikið fé fyrir að ráðleggja fyrir- tækjum, sem skipt hafa við herinn. í síðustu viku ákvað hermálanefnd- in að fresta atkvæðagreiðslu um skipun Towers og FBI, bandaríska alríkislögreglan, hefur hafíð nýja rannsókn á högum hans. „Ég vil að ráðherrar ríkisstjóm- arinnar séu vandir að virðingu sinni," sagði Bush á fréttamanna- fundinum, „en svo yfírgengilegar mega kröfumar ekki vera, að mikil- hæfír menn fómi höndum þegar Brottflutningiir sovéskra hermanna fi*á Afganistan: , Styrkja hrakfarirnar stöðu Sovétmanna? Washington. Reuter. HRAKFARIR í hernaði veikja yfirleitt stöðu rikja en bandarískir sérfræðingar f ntanrfkismálnm telja þó líldegt að staða Sovét- manna styrkist f kjölfar brottflutnings sovéskra hersveita frá Afganistan. Þeir spá þvf að brottflutningurinn muni ekki hafa jafti slæmar afleiðingar fyrir Sovétmenn og brottflutningur bandarískra hermanna frá Víetnam hafði fyrir Bandaríkjamenn. Þeir telja að ímynd Sovétmanna meðal Vesturlandabúa verði já- kvæðari og áhrif sovéskra stjóravalda f arabaheiminum aukist. „Skömm Sovétmanna er ekki jafti mikil og sú sem Bandaríkja- menn máttu þola þegar þeir köll- uðu heim hermenn sfna í Víet- nam,“ sagði Selig Harrison, sér- fræðingur í málefnum Afganist- ans, sem hélt því fram að friðar- samkomulagið sem undirritað var í apríl gerði Sovétmönnum kleift að jrfírgefa landið með nokkurri reisn. Víetnamstríðið olli mikium deilum í Bandaríkjunum og stór hluti þingmanna var ávallt andvígur því. Það var ekki fyrr en Ronald Reagan var kjörinn Bandaríkjaforseti árið 1980 að Bandaríkjamenn endurheimtu stolt sitt og reisn. Brottflutningur sovéskra hermanna frá Afganist- an á sér hins vegar stað eftir að Míkhafl Gorbatsjov Sovétleiðtogi hefur komið Bandaríkjamönnum í opna skjöldu með afvopnunartil- lögum sínum og frumkvæði í frið- arumræðunni. Robert Neumann, fyrrum sendiherra Bandarílqanna í Afganistan, taldi ekki líklegt að brottflutningur sovésku hermann- anna myndi valda deilum í Sov- étrflq'unum heldur yrði honum al- mennt fagnað um allan heim. Sérfræðingur í málefnum Mið- Austurlanda hjá bandaríska ut- anríkisráðuneytinu, sem ekki vildi láta nafns síns getið, sagði áð sovésk stjómvöld gætu nú beitt sér fyrir bættum samskiptum við arabaríki, sem hafa mótmælt harðlega hemaðaríhlutun Sovét- manna í Afganístan. Hann sagði einnig að brottflutningurinn gæti orðið til þess að Sovétmenn gegndu stærra hlutverki í friða- rumleitunum fyrir botni Miðjarð- arhafs. George Bush minnst er á opinbert embætti." Bush hefur einnig tekið upp hanskann fyrir tvo aðra vini sína, C. Boyden Gray, lögfræðilegan ráðunaut sinn, og blökkumanninn Louis Sullivan, sem Bush vill, að verði heilbrigðisráðherra. Telja sumir hættu á hagsmunaárekstrum þar sem þeir em annars vegar. Gray hefur af þessum sökum sagt af sér sem stjómarformaður í fjarskiptafyrirtæki í eigu fjölskyld- unnar og komið verðbréfum sínum í vörslu óháðs sjóðs en Sullivan hefur enn ekki brugðist við gagn- rýninni. Hann fór fram á leyfi til að þiggja áfram laun hjá Moreho- use College School of Medicine í Atlanta þótt hann yrði ráðherra en það telja margir ótækt og segja, að hann yrði þá um leið of hallur undir skólann. A fundinum í gær kynnti Bush einnig þær ráðstafanir, sem hann vill grípa til vegna slæmrar stöðu margra sparisjóða í landinu. Em þær í íjórum liðum og svohljóðandi: • Nýrri ijármálastofnun verður falið að gefa út ríkisskuldabréf fyr- ir 50 milljarða dollara, sem síðan verða notaðir til aðstoðar við spari- sjóðina. • Sparisjóðir, sem í raun em gjaldþrota, um 350 talsins, verða settir undir sameiginlega stjóm bankaeftirlitsins og bankaábyrgð- arsjóðsins. • Lögum verður breytt þannig, að bankaeftirlitið fái eitt vald til að tryggja og setja sparisjóðunum starfsreglur. • Dómsmálaráðuneytinu verður veitt 50 milljón dollara aukafjárveit- ing til „að leita að og hegna“ þeim, sem kunna að hafa gerst sekir um refsivert athæfí við stjóm á spari- sjóðum og lánastofnunum. Þessar tillögur verða að fara fyr- ir þingið þar sem demókratar em í meirihluta en Bush telur sjálfur, að þær muni nægja til að tryggja sparifjáreigendur gegn skakkaföll- um. Ymsir sérfræðingar hallast þó að því, að vancji sparisjóðanna sé nær því að vera 100 milljarðar doll- ara. Viðvaranir settar á áfengis- umbúðir í Bandaríkjunum I Bandaríkjunum verða fram- vegis öll Uát sem áfengi er selt í að bera viðvaranir um að heilsu- tjón geti hlotist af neyslu áfeng- is. í fréttatilkynningu frá Áfengi- svamarráði segir að Bandaríkja- þing hafi samþykkt skömmu fyrir forsetakosningamar í nóvember að allar flöskur, dósir og aðrar umbúð- ir um áfengi skuli framvegis merkja eftirfarandi viðvömnarorðum frá bandarískum stjómvöldum: „Landlæknir vekur athygli á að vanfærar konur ættu ekki að neyta áfengis vegna hættu á fóstursködd- un. Neysla áfengra drykkja dregur úr hæfni til að stjóma ökutækjum og hvers konar vélum og getur valdið ýmiskonar heilsutjóni."

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.