Morgunblaðið - 08.02.1989, Side 36
36
fólk f
fréttum
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. FEBRÚAR 1989
STÓRSÝNING FYRIR HÁLFAN MILUARÐ
Ungur Islendingur aðstoðar
Jerome Robbins á Broadway
Magnús Ragnarsson
Ungur íslenskur
leikari, Magnús
Ragnarsson, vinnur
um þessar mundir
sem aðstoðarmaður
dansahöfundarins Je-
rome Robbins við
uppsetningu áj söng-
leik sem kenndur er
við dansahöfundinn 1
einu af aðalleikhúsum
Broadwáy í New
York, Imperial-leik-
húsinu. Þar er verið
að setja upp söngleik
með atriðum úr átta
kunnum leikhúsverk-
um þar sem Jerome
Robbins kom við sögu
á árunum 1944-64.
Yfír 60 dansarar taka
þátt í sýningunni og
30 manna hljómsveit
en alls vinna um 160
Tnanns við uppsetn-
inguna. Magnús er
annar af tveimur að-
alaðstoðarmönnum
Robbins.
Magnús sagði að hann hefði
unnið að þessari sýningu með
Robbins síðastliðna 16 mánuði.
Forsýningar eru hafnar en form-
leg frumsýning verður 26. þessa
mánaðar. Magnús kvað kostnað
við sýninguna vera kominn upp
í 8,5 milljónir dollara eða um 425
milljónir íslenskra króna. Jerome
Robbins hætti að vinna á Broad-
way 1964 og tók þá að sér stjórn
New York City-balletsins, en
segja má að hann hafí uppgötvað
Helga Tómasson á sínum tíma.
Atriði í Broadway-sýningunni
eru meðal annars úr söngleilg'un-
um West Side Story, Fiðlaranum
á þakinu, On the Town og The
King and I.
Magnús sagðist hafa byijað á
því haustið 1987 að leita uppi
dansara sem dönsuðu á sínum
tíma í þeim sýningum þar sem
Jerome Robbins kom við sögu,
sumir fyrir allt að 40 árum. Leit-
að var ráða hjá gömlu dönsurun-
um var safnað saman, því að
dansamir voru ekki til skráðir.
Við svo búið voru spor og hreyf-
ingar riQ'aðir upp og síðan tók
fímm mánuði að fínna nýja dans-
ara. Síðustu 23 vikumar hefur
verið æft í beit.
Þetta er í fyrsta skipti sem
Magnús Ragnarsson tekur þátt
í uppsetningu á Broadway, en
hann hefur áður unnið við eina
leiksýningu í New York. Magn-
ús, sem er 25 ára, lauk leiklist-
amámi í New York árið 1984.
Hann er sonur Ragnars Júlíus-
sonar, skólastjóra Álftamýrar-
skóla, og Jónu Guðmundsdóttur,
gjaldkera hjá Ríkisútvarpinu.
BLÚS
B. B. KING
á tónleikaferðalagi
Bandaríski blússöngvarinn og gítarsnillingurinn B.B.
King lagði nýverið upp í tónleikaferðalag og hyggst
gleðja aðdáendur þessarar tónlistarstefnu víða um heim
á næstunni. B.B. King er 63 ára gamall og hefur leik-
ið blústónlist í atvinnuskyni í 40 ár. Myndin var tekin
á dögunum í Auckland á Nýja-Sjálandi er B.B. King
tróð þar upp ásamt hljómsveit sinni og sýndi og sann-
aði að hvorki hann né Gibson-gítarinn hafa nokkru
gleymt þótt aldurinn hafi færst yfír báða.
Kynningarfundir
Maharishi Mahesh Yogi
Rannsóknir sýna að Innhverf íhugun leiðir til líkam-
legrarog andlegrarvellíðunar. Hamingjusamur og
friðsamur einstaklingur er forsenda heimsfriðar.
Kynning á áhrifum innhverfrar íhugunar:
ÍTM-kennslumiðstöðinni, Skeifunni 17(Ford húsinu)
miðvikudaginn 8. feb. og fimmtudaginn 9. feb. kl.
20.30.
Nánari upplýsingar í símum 91 -38537 og 98-34178.
ÍTM-kennslumiðstöðinni, Garðastraeti 17 (3. hæð),
fimmtudaginn 9. feb. kl. 20.30.
Nánari upplýsingar í sfma 16662.
íslenska íhugunarfélagið
Stjórnunarfélag íslands
-:5====; Ánanaustum 15 Simr 62 10 66 ss==
FYRIRTÆKJAHEIMSÓKN
Ríkisútvarpið býÖur félögum Stjórnunarfélags-
ins í heimsókn í nýtt húsnœÖi í Efstaleiti 1,
föstudaginn 10. februar nk. kl. 16. 30.
Dagskrá:
Kl. 16.30 Gestir boÖnir velkomnir.
Kl. 16.35 Hönnun og bygging útvarpshúss, fram-
kvamdum lýst.
Kl. 16.50 Húsnaöiö skoÖaÖ.
Kl. 17.20 Ríkisútvarp í samkeppni:
a) Fréttaþjónusta
b) Auglýsingar
Kl. 17.50 Skipulag og rekstur Ríkisútvarpsins.
Kl. 18.10-19.00 Veitingar.
Skráning þátttakenda fer fram i
í síma 91-621066.
Kjötkveðjuhátíð
Kjötkveðjuhátíðin, sem fram
fer á ári hverju í Rio de Ja-
neiro í Brasilíu, hófst á laugardag
en raunar höfðu margir orðið til
þess að taka forskot á sæluna í
síðustu viku er seiðandi samba-
taktur tók að berast um götur
borgarinnar. Svo sem alkunna er
tíðkast það að láta hvers kyns
höft lönd og leið þá fjóra daga sem
hátíðin stendur og hefur sú hefð
skapast að erkibiskup Rio de Ja-
neiro birti sérstaka yfirlýsingu við
upphaf hátíðarinnar þar sem fólk
er varað við afleiðingum lauslætis
og syndsamlegs lífemis. „Svo virð-
ist sem alvarlega sé vegið að sið-
ferðisþreki þjóðarinnar. Hið illa á
sér djúpar rætur og þótt tortím-
andi áhrif þess dvíni á næstu
mánuðum hverfa þau aldrei að
fullu," sagði erkibiskupinn í út-
varpsávarpi til borgarbúa. Hins
vegar virtust þessi vamaðarorð
hans, herferð stjómvalda gegn
útbreiðslu alnæmis, rigning og
óvenjumikill kuldi, lftil áhrif hafa
á gleðina. Hápunktur hátíðarinnar
var á sunnudagskvöld en myndin
var tekin í byijun síðustu viku er
fólk tók að undirbúa hátíðahöldin
og reyna hina ýmsu búninga sem
menn skrýðast gjaman af þessu
tilefni þótt stúlkumar á myndinni
séu greinlega þeirrar skoðunar að
fataleppamir flækist aðeins fyrir
er samba-dansinn er stiginn í al-
gleymi og tryllingi.
í Brasilíu