Morgunblaðið - 08.02.1989, Síða 42
J42
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 8. FEBRÚAR 1989
KÖRFUKNATTLEIKUR / NBA-DEILDIN
Miðverðir með
hæstu launin
Patrick Ewing með um 160 milljónirá ári
NÝLEGA var gefinn út listi yfir
/ tekjuhæstu leikmenn í NBA-
deildinni í fyrra. Þessi listi mið-
ast við árslaun. Eins og sjá má
eru miðverðir með hæstu laun-
in og virðist sem borgað sé
fyrir stærð.
Patrick Ewing, sem leikur með
New York Knicks, er launa-
hæsti leikmaður NBA-deildarinnar
með 3,25 milljónir dollara í árslaun.
Það eru um 160 milljónir íslenskra
króna. „Magic" Johnson er næstur
með 3,142 milljónir og félagi hans
hjá Lakers, Kareem Abdul-Jabbar
er þriðji með þijár milljónir í árs-
laun.
Besti leikmaður deildarinnar í
fyrra, Michael Jordan, verður hins-
vegar að sætta sig við „aðeins"
2,15 milljónir dollara á ári.
Þess má geta að 1991 verður
sett met í NBA-deildinni. Larry
Bird hefur þegar samið fyrir árið
og mun þá fá 4,2 milljónir dollara
í árslaun.
Hér fylgir listi yfir launahæstu
leikmenn í hverri stöðu en meðal-
laun fimm efstu leikmanna í hverri
stöðu er rúmlega ein og hálf milljón
dollara. Þess má geta að laun í
NBA-deildinni hafa hækkað um
*S5% síðan 1987.
Framheijar
Larry Bird, Celtics..........1,800,000
Alex English, Nuggets........1,650,000
Charles Barkley, 76ers.......1,536,000
Dominique Wilkins, Hawks.....1,500,000
Terry Cummings, Bucks........1,450.000
Buck Williams, Nets............1,365,000
James Worthy, Lakers............1,300,000
Kevin McHale, Celtics...........1,300,000
Tom Chambers, Suns..............1,300,000
Adrian Dantley, Pistons.........1,250,000
OtisThorpe, Rockets.............1,125,000
Bemard King, Bullets............1,100,000
Kiki Vandeweghe, Trail Blazers ...1,054,000
Larry Nance, Cavaliers..........1,050,000
Wayman Tisdale, Pacers..........1,000,000
Charles Oakley, Knicks..........1,000,000
Charles Smith, Clippers.........1,000,000
Herb Williams, Pacers............ 983,333
Kelly Tripucka, Homets........... 980,000
Armon Gilliam, Suns.............. 900,000
MiAvorAir
Patrick Ewing, Knicks..........3,250,000
Kareem Abdul-Jabbar, Lakers....3,000,000
Robert Parrish, Celtics.........2,038,333
Ralph Sampson, Warriors.........1,960,000
Akeem Olajuwon, Rockets.........1,677,666
Jack Sikma, Bucks..........'...1,600,000
Moses Malone, Hawks.............1,500,000
Joe Barry Carroll, Nets.........1,391,600
Kevin Duckworth, Trail Blazers ...1,265,000
Bill Cartwright, Bulls..........1,225,000
Bakvarðlr
Magic Johnson, Lakers..........3,142,860
MarkPríce, Cavaliers............1,200,000
Maurice Cheeks, 76ers..........1,000,000
Isiah Thomas, Pistons..........1,000,000
Norm Nixon, Clippers............. 985,000
Dennis Johnson, Celtics......... 832,500
Paul Pressey, Bucks............. 800,000
Alvin Robertson, Spurs.......... 725,000
Kenny Smith, Spurs.............. 600,000
Lafayetter Lever, Nuggets....... 575,000
Michael Jordan, Bulls..........2,150,000
DaleEllis, Supersonics.........1,100,000
Sidney Moncrief, Bucks.........1,100,000
Byron Scott, Lakers............1,000,000
Derek Smith, Kings.............. 925,000
Mitch Richmond, Warriors........ 800,000
Reggie Williams, Clippers....... 800,000
Jeff Malone, Bullets......... 750,000,000
Dennis Hopson, Nets............. 717,516
Darrell Griffith, Jazz.......... 685,000
^ Árshátíð Hauka
verður haldin í Skútunni föstudaginn 10. febrúar nk.
og hefst kl. 20.00
Miðasala í Haukahúsinu.
Fjölmennum - GóÖa skemmtun
.ekkl
heppH'__________________________
Sala getraunaseðla lokar kl. 14:45 á
laugardögum
6. LEIKVIKA - 11. FEBRUAR 1989
Leikur 1 Coventry - Newcastle
t-e?kw 2 Millwali
- Arsenal
Leikur 3 Norwich- Derby
Leikur 4
Nott.For
- Q.P.R.
Leikur 5 Sheff.Wed. - Man.Utd.
Leikur 6 Southampton - Everton
Leikur 7 Tottenham - Charlton
Leikur 8 Wimbledon - Aston Villa
Leikur 9 C.Palace
Blackburn
Leikur 10 Man.City - Ipswich
Leikur 11 Oxford
- Portsmouth
Leikur 12 Watford
- Leeds
Símsvari hjá getraunum eftir kl. 17:15 á
laugardögum er 91-84590 og -84464.
Þrefaldur pottur
Gangi 1. vinningur út ad þessu sinni, veröur
SPRENGIVIKA f 7. leikviku.
Patrick Ewlng hjá New York Knicks er með um 160 milljónir íslenskra króna
í árslaun.
HANDBOLTI / SPÁNN
Daninn Kim Jakob-
sen markahæstur
Kristján Arason í 16.-17. sæti
DANINN Kim Jakobsen, sem
leikur með Uniexpress Madrid,
er markahæstur í spænsku 1.
deildinni í handknattleik, eftir
riðlakeppnina. Hann hefur
skorað 109 mörk.
Urslitakeppnin á Spáni hefst 5.
mars næstkomandi. Þá mæt-
ast fjögur efstu liðin úr hvorum riðli
í sérstakrí keppni um meistaratitil-
inn, þar sem allir
leika við alla.
Á listanum yfir
markahæstu menn
eftir riðlakeppnina
eru Júgóslavinn Puzovic hjá Caja
Madrid og Finninn Jan Rönnebörg
hjá Tres de Majo jafnir í öðru sæti
með 99 mörk hvor. Tveir Júgósla-
var eru í 4.-5. sæti: Cvetkovic hjá
Bidasoa í Irun og Dzonlagic hjá
Arrate, með 87 mörk. Spánverjinn
Alemany hjá Valencia hefur gert
82 mörk. Kristján Arason, sem leik-
ur með Teka, er í 16.-17. sæti á
listanum með 62 mörk.
Kristján 19. bastur?
Stigahæstur í einkunnagjöf
blaðsins El As, (Ásnum) er Spán-
veijinn Franch hjá Granollers með
31 ás, en hann er homamaður.
Annar er Galiesto hjá Lagisa með
30 ása og síðan kemur línumaður-
inn Vukovic hjá Atletico Madrid
með 29.
I 19. sæti eru jafnir Kristján
Arason, Júgóslavinn Vujovic hjá
Barcelona og Melo hjá Teka með
25 ása hver.
Llð rlðlakeppnlnnar
Blaðið stillti upp liði riðlakeppn-
innar, eftir einkunnagjöf sinni og
skipa það eftirtaldir menn: í mark-
inu eru landsliðsmaðurinn Sunica
hjá Bidasoa Irun, Franch er homa-
maður vinstra megin, Alemany
vinstra megin fyrir utan, miðjumað-
urinn er frá Teka: Villaldea, línu-
maðurinn er Galesto frá Lagisa,
örvhent skytta Júgóslavinn Puzovic
og hægri homamaður Mayoral frá
Lagisa.
Úrslitakeppnln
Búið að draga í úrslitakeppnina
sem byijar 5. mars. í fyrstu umferð
leika Kristján Arason og félagar í
Teka gegn Atletico Madrid á úti-
velli og Granollers, sem Atli Hilm-
arsson leikur með, mætir Bidasoa
á heimavelli. Síðan á Teka heima-
leik í næstu umferð gegn Granoll-
ers 12. mars. Teka á svo aftur hei-
maleik gegn Barcelona 19. mars
og Grannollers þá heimaleik gégn
Valencia.
FráAtla
Hilmarssyni
á Spáni
KORFUBOLTI / 1. DEILD KVENNA
Lok á körfúnni?
Alaugardag léku ÍBK og
Haukar í 1. deild kvenna í
körfuknattleik, en leik þessum var
upphaflega frestað í nóvember.
^■■■1 Sjálfsagt hafa
Sigurður Haukastúlkur óskað
Hjörieifsson þess að leiknum
skrifar hefði verið frestað
til frambúðar því
þeim virtist vera fyrirmunað að
skora stig í fyrri hálfleik. Sama
má segja um IBK, þar sem fyrsta
karfan var skomð á sjöttu mínútu
leiksins.
Voru heimamenn grunaðir um
að hafa sett lok á körfu Hauka!
Haukar skoruðu aðeins 7 stig í fyrri
hálfleik á móti 21 stigi IBK og
þegar upp var staðið sigruðu
Keflavíkurstúlkumar 47:21.
í seinni hálfleik lagaðist hittni
liðanna örlítið. Þetta lága stigaskor
skapaðist ekki af góðum vamarleik,
eða því að liðin sköpuðu sér ekki
góð skotfæri. Það var bara eins og
boltinn vildi alls ekki ofan í körfuna.
Stig ÍBK: Anna María 10, Björg9, Marta
8, Bylgja 6, Margrét 4, Kristln 4, Eva 4,
Svandts 1 og Elfnborg 1.
Stig Hauka: Guðbjörg 7, Hafdls 6, Sólveig
3, Sigrún 3, og Herdis 2.
ínémR
FOLK
■ JOEL Corminbouef, mark-
vörður Neuchatel Xamax og sviss-
neska landsliðsins, mun ekki leika
knattspymu næstu mánuðina.
Corminbuef meiddist í hnéi í vin-
áttuleik og þarf að fara í uppskurð.
Hann missir því af leikjum lands-
liðsins gegn Portúgal og Tékkó-
slóvakíu í undankeppni heims-
meistarakeppninnar.
■ ALAN Mclnally, markahæsti
leikmaður ensku 1. deildarinnar,
mun leik sinn fyrsta leik með
skoska landsliðinu í dag. Mclnally
hefur gert 21 mark fyrir Aston
Villa í vetur og mun að öllum líkind-
um byija inn á í leik liðsins gegn
Kýpur í dag. Skotar þurfa að sigra
í leiknum með miklum mun til að
komast í efsta sætið í riðlinum.
Mclnally mun líklega kom í stað
Brian McClalr sem er meiddur.
■ PSV Eindhoven frá Hollandi
mætir Mechelen frá Belgíu í dag
í síðari leik liðanna í Meistara-
keppni UEFA. Róðurinn verður án
efa þungur fyrir hollensku meistar-
ana því þeir töpuðu fyrri leiknum,
0:3. Það er' ekki til að bæta úr skák
að fjórir af lykilmönnum liðsins eru
meiddir. Markvörðurinn Hans van
Breukelen er meiddur og Wim
Kieft, Ian Nielsen og Jozef Cho-
vanec munu heldur ekki leika með
liðinu. Óvíst er hvort Erwin Koe-
man geti leikið með Mechelen en
bróðir hans, Ronald, leikur sem
kunnugt er með PSV.
■ JÓHANN ÓIi Guðmundsson
var endurkjörinn formaður Víkings
á aðalfundi félagsins í síðustu viku
eins og greint var frá í blaðinu á
laugardag. Fréttin skolaðist eitt-
hvað til í vinnslu og því er rétt að
endurtaka hveijir eru með honum
í stjórn: Jón Kr. Valdimarsson,
Þórður Bergmann, Ágúst I. Jóns-
son, Eysteinn Helgason, Þor-
steinn Pálsson og Stefán Egg-
ertsson. í varastjóm eru Björn
Tryggvason og Olafur Friðriks-
son.
NOREGUR
Kvenna-
lands-
liðiðfær
þrjátíu
milljónir
Norska olíufélagið Norsk
Hydro hefur gert samning
við norska kvennaiandsliðið í
knattspymu og mun greiða þvi
■MBM sem nemur um
Frá 30 milljónum
Sigurjóni íslenskra króna á
Einarssyni næstu þremur
i oregi árum. Þetta er
stærsti stuðningssamningur,
sem norskt kvennalandslið hefúr
náð við aðila úr viðskiptalífinu,
en sem kunnugt er hefur norska
kvennalandsliðið í knattspymu
náð góðum árangri á alþjóða-
vettvangi undanfarin ár.
BADMINTON
Leiðrétting
Oskar Guðmundsson, margfald-
ur íslandsmeistari í badminton
á áram áður, var ranglega sagður
heita Ólafur á forsíðu íþróttablaðs
Morgunbiaðsins í gær. Hann var
síðan réttnefndur í nánari umfjöllun
um mótið inni í blaðinu. Beðist er
velvirðingar á mistökunum.