Morgunblaðið - 19.03.1989, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. MARZ 1989
C 5
brestur. Skemmdarverkamálunum
er oft lítið fylgt eftir. Tjónþoli fær
sinn skaða oftast bættan hjá trygg-
ingafélögunum og það er honum
nóg og hann leggur ekki fram
kæru. í mörgum tilvikum telja
tryggingafélögin vonlítið að gera
endurkröfu. T.d. bera foreldrar ekki
lagalega ábyrgð á því tjóni sem
stálpuð börn þeirra valda. Rétt er
þó að geta þess að margir foreldrar
telja sig bera siðferðilega skyldu til
að bæta fyrir þann skaða sem börn
þeirra valda.
í Borgardómi. Reykjavíkur eru
einkamál vegna skemmdarverka
ekki flokkuð sérstaklega heldur
með öðrum skaðabótamálum. í
Sakadómi Reykjavíkur fengust þær
upplýsingar að á síðasta ári hefði
fimm málum vegna spellvirkja á
bifreiðum og rúðubrota lokið með
dómsátt, sektir til hins opinbera
voru á bilinu 4-10 þús. en skaða-
bætur til tjónþola á bilinu 10 þús.
til 36 þús. Tveir dómar féllu vegna
skemmdarverka eingöngu, sektir
voru 3 þús. og 8 þús. í öðru málinu
voru dæmdar 10 þús. í skaðabætur.
Varúð eðatrygging
Ómar Smári Ármannsson aðstoð-
aiyfirlögregluþjónn taldi fulla
ástæðu til að benda kaupmönnum
á að gera viðeigandi vamarráðstaf-
anir. Það væri furðulegt að end-
umýja glerið í sama glugganum
hvað eftir annað en gera litlar sem
engar fyrirbyggjandi ráðstafanir.
Hjá nokkmm tryggingafélögum
fengust þær upplýsingar að það
kæmi fyrir að eignatryggingum
væri sagt upp vegna þess áhættan
væri of mikil og varúðarráðstafanir
ekki viðhlítandi og ábendingum um
lagfæringar ekki sinnt. Talsmenn
tryggingafélag'anna sögðust reyna
að gefa viðskiptamönnum sínum
góð ráð um fyrirbyggjandi ráðstaf-
anir. Á hinn bóginn virðist ekki
vera nein fastmótuð stefna um að
lækka iðgjöld vegna aukinna varúð-
arráðstafana; slíkt er ákveðið í
hveiju tilfelli fyrir sig. Ef viðskipta-
maður, t.d. verslunareigandi, gerir
ráðstafanir gegn skemmdarverkum
getur hann farið fram á iðgjalda-
lækkun.
Ekki tókst að fá tölulegar upplýs-
ingar um útborgaðar bætur vegna
skemmdarverka sökum þess að þær
em flokkaðar með skemmdum
vegna innbrota og þjófnaðar. Tjón
vegna skemmdarverka mun þó vera
umtalsvert og kemur fram í hækk-
uðum eignatryggingum. En kostn-
aðurinn við að veijast skemmdar-
verkum er líka töluverður. Þjónusta
gæslufyrirtæka kostar sitt og ör-
yggisgler er heldur ekki ókeypis.
Það má ætla að slíkur kostnaður
komi fram í gjaldskrám fyrirtækja
og vömverði.
Byrgðir gluggar
Hvert er viðhorf verslunareig-
enda til skemmdarverka? Taka þeir
þeim eins og hveiju öðm hundsbiti?
Skemmdarverk og brotnár rúður
hafa t.d. verið vandamál í verslun-
armiðstöðinni Fellagörðum við
Eddufell. Um síðustu áramót vom
margar rúður brotnar í verslunum.
Sigríður Blöndal útibússtjóri í Iðn-
aðarbankanum taldi að skemmdar-
verkin kæmu í tömum. Áramótin
væm verst og svo væri nokkur órói
á haustin þegar skólar byijuðu og
á vorin þegar þeim lyki. Þess má
geta að sumar verslanir byrgðu
gluggana með krossviðarplötum um
síðustu áramót. Einn verslunareig-
andi lét í ljós þá skoðun að ætlaði
einhver sér á annað borð að
skemma þá væm varnir haldlitlar.
Ein verslunin í miðstöðinni hefur
fjárfest í jámgluggatjöldum. Versl-
unareigandinn-þar sagði að eitthvað
hefði orðið að gera eftir að 13 rúð-
ur hefðu verið brotnar á einu ári.
Hann taldi að þessi fjárfesting hefði
borgað sig. Aðspurður sagði hann
að tryggingafélagið hefði ekki veitt
afslátt á iðgjöldum vegna þessarar
fjárfestingar; þeir hefðu viljað bíða
og sjá hver reynslan yrði. Aðrir
verslunareigendur hafa hugleitt að
fá sér viðlíka járngluggatjöld en
ekki varð af því sökum þess að
áformað var að gera endurbætur
og byggja yfir verslunarmiðstöðina.
CHEROKEE LARED01989
TIL AFGREIÐSLU STRAX
Bílar þessir eru hlaðnir aukahlutum og með lúxus innréttingu
4ra dyra
4,0L6cyl. 177 hp.vél
Sjálfskiptur
Vökvastýri
Veltistýri
Rafdr. rúður
Rafdr. læsingar
Fjarst. útispeglar
Hiti íafturrúðu
Þurrka á afturrúðu
Off-Road Toppgrind
225x15 Wranglerdekk Þokuljós
Álfelgur Dráttarbeisli
Gasdemparar
EGILL VILHJALMSSON HF.
Smiðjuvegi 4, Kópavogi. Símar 77200 — 77202
í Kaupmannahöfn
FÆST
í BLAÐASÖLUNNI
ÁJÁRNBRAUTA-
STÖÐINNI,
KASTRUPFLUGVELLI
OG Á RÁÐHÚSTORGI
Til móts við draum
Frá fimmtudegi 16. mars til
fimmtudagsins 23. mars verður
verslunin Pelsinn með tilboð á
eftirtöldum vörum, sem erfítt er
að hafna:
★ Pelsar
★ Hattaroghúfur
★ Kvenkápur úr leðri í öllum stærðum
★ Kvenfatnaður úr leðri, kápur, buxur,
pils, dragtirogkjólar
★ Minkapelsar og aðrir pelsar á
sértilboði í litlum númerum
★ Angórupeysur
★ Ullardragtir
30% útborgun
og afgangurinn á 10 mánuðum
vaxtalaust
______4
PELSINNI
Idrkjuhvoli, sími 20160.
—-------——*-i-g.....I—————----smI