Morgunblaðið - 19.03.1989, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. MARZ 1989
C 7
Morgunblaðið/Þorkell
til að þetta gæti gengið yrðum við
að vinna saman og það gerðum við
í tvö ár. Síðan fór hann að vinna
með fólki sem mér líkaði ekki þann-
ig að ég fékk hann til að kaupa
mig út. Arið eftir seldi hann staðina
og hagnaðist um 30 milljónir dansk-
ar. Það var hins vegar of stór biti
fyrir þann sem þá keypti og nú er
hann kominn á hausinn, og bankinn
rekur staðina í dag.
Á þessu geturðu séð hvað þessi
bransi er viðkvæmur og óútreiknan-
legur. Ég hefði alveg eins getað
keypt hinn út á sínum tíma, fyrir
sömu upphæð og hann keypti mig
út, og ég hefði alveg eins getað
grætt þessar 30 milljónir, þótt auð-
vitað hefði ekki verið hægt að sjá
það fyrir þegar ég seldi. En ég var
þá orðinn svo þreyttur á þessum
rekstri, að ég var ákveðinn í að
hætta. Annars hef ég verið viðloð-
andi gömlu staðina mína að undan-
förnu, var þama í mánuð að hjálpa
þeim og náði veltunni upp um helm-
ing. Þeir hjá bankanum hafa verið
að slá á þá strengi að ég fari inn
í reksturinn aftur, en ég hef ekki
áhuga á því, að minnsta kosti ekki
í þessa tegund veitingareksturs.
Hins vegar vantar nú góðan nætur-
klúbb í Kaupmannahöfn og ég hef
sótt um leyfi fyrir einum slíkum.“
Undanfarin ár hefur Þorsteinn
fengist við kaup og sölu á skemmti-
stöðum. í mörgum tilfellum er um
að ræða þrotabú, sem hann hefur
keypt af bönkum, gert upp, komið
í rekstur og síðan selt. Hann segir
að þessi viðskipti eigi ágætlega við
sig, en samt er eitthvað sem freist-
ar varðandi rekstur næturklúbbs.
„Það er mjög erfitt að fá nætur-
leyfi í Kaupmannahöfn því þar eru
aðeins leyfðir 60 næturklúbbar á
hveijum tíma. En ég vona að þetta
gangi eftir því þetta er spennandi
verkefni. Þessi næturklúbbur sem
ég hef í huga á að rúma um 1.200
gesti og innréttingar verða allar í
stílnum frá 1930. Auk þess hef ég
lagt inn umsókn fyrir nýjum kok-
teilbar í miðborginni.
Frá því ég rak diskótekin hafa
orðið miklar breytingar á skemmt-
analífínu og diskótek eru orðin úr-
elt. Nú er aftur kominn tími lifandi
tónlistar og menn eru famir að
sækja í þetta gamla. Fólk er orðið
þreytt á tölvutónlistinni og þess
vegna verður maður að bjóða upp
á lifandi tónlist, og hæfi-
leg blanda af slíkri tónlist
og diskótónlist er líklega
rétta uppskriftin eins og
tímamir em nú.“
Að endurnýja í sér
íslendinginn
Frá því Bonaparte var
upp á sitt besta hefur
Þorsteinn verið í sam-
bandi við ýmsa þekkta
tónlistarmenn og hafa
sumir þeirra komið hing-
að til lands á hans vegum.
Má þar nefna blústónlist-
armanninn John Mayall,
sem hingað kom fyrir
skömmu:
„Mér finnst gott að
koma hingað heim annað
slagið til að endumýja í
mér íslendinginn. En það
geri ég ekki öðmvísi en
að standa í einhverjum
stórræðum, eins og til
dæmis því að halda hér
hljómleika. Þú finnur
ekki púlsinn á þjóðfélag-
inu hér með því að koma
bara í frí. Maður verður
að standa í einhveiju
strögli og það er meðal
annars ástæðan fyrir því
að ég kom núna með
Mayall, — til að stinga
fingrinum í íslenska
jörð.“
— Hefur aldrei hvarfl-
að að þér að flytja heim
og blanda þér í veitinga-
húsareksturinn hér á
landi?
H„Ekki eins og þjóðfé-
lagið og efnahagsástand-
ið er núna. Hins vegar
er veitingahúsamenning-
in hér á mjög háu stigi,
bæði hvað varðar mat og
þjónustu. Þú finnur ekki
í Kaupmannahöfn svona
staði eins og hér heima.
í Danmörku færðu ekki
fólk til að klæða sig upp
helgi eftir helgi til að fara
á fína veitingastaði. ís-
lendingar fara mjög mik-
ið út að skemmta sér
miðað við Dani og hér í
Reykjavík em 90 til 100
þúsund manns sem borga
sig inn á skemmtistaði í
hveijum mánuði, sem er
áreiðanlega heimsmet
miðað við höfðatölu. Hins
vegar er ekki ólíklegt að
þetta eigi eitthvað eftir
að breytast með bjórbúll-
unum og að það eigi eftir
að koma niður á stóm
stöðunum, og þá kannski
helst þannig að fólk kem-
ur seinna á þá. Það er
líka orðið það dýrt að
fara á stóm staðina að
fólk fer að hugsa meira
um hvað það fær fyrir
peningana. Samkeppnin
á því enn eftir að harðna á þeim
vettvangi því sá tími er liðinn að
hægt sé að fá fólk út bara til að
drekka. En dansstaðir munu þó allt-
af halda velli á íslandi því þetta
skemmtanaform er orðið svo rót-
gróið hér.“
Á krossgötum
„Hins vegar verð ég að segja
eins og er að efnahagsástandið hjá
Dönum er jafnvel verra en hér,
þannig að það er síst skárra að
standa í þessu þar eins og mál
standa. Ég hef oft verið kominn á
fremsta hlunn með að flytja mig
suður til Spánar og mér hefur stað-
ið það til boða á hveiju ári. Það
má því vel vera að maður taki sig
upp einn góðan veðurdag og flytji
suður á bóginn. Ég er þar hvort
eð er alltaf með annan fótinn og á
þar ágæta kunningja. Þar á meðal
em bræður sem reka eitt stærsta
byggingarfyrirtæki á Suður-Spáni,
en þeir em hálfir íslendingar og
hálfir Persar. Tveir bræðranna búa
á Spáni, Ole og Parve Sigurðssynir,
og sá þriðji, Vilo Sigurðsson, var
borgarstjóri í Kaupmannahöfn á
sínum tima.“
DDr RAFHLÖÐUVERKFÆRIN
W W fr. ABB STOTZ-KONTAKTGmbH
LEYSA VANDANN
• Gott jafnvægi
• Stillanlegt átak
• Tveir hraðar
• Báðar snúningsáttir
• Fylgihlutir
• GOTT VERÐ
Vatnagarðar 10
Hr. S: 685855/685854
STOLGOÐ
FERMINGARGJÖF!
- ótrúlega fjölbreyttir stillimöguleikar
- hægt að velja um mjúk eða hörð hjól
-alullaráklæði í mörgum litum
-5áraábyrgð
STEINAR HF
STÁLHÚSGAGNAGERÐ
SMIÐJUVEGI2 • KÓPAVOGI • SÍMI46600
--------------------------:------------------------------------------------------------------
—
;Hlil