Morgunblaðið - 19.03.1989, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 19.03.1989, Blaðsíða 14
 $4Pft(?þJNff LAÐIÐ gUNNUDAGUR Ift. j MARZ 1989 H [ > Svör úr spumingaskrám þjóóháttadelldar um daglegt líf íslendinga liggja nú fyrir og Morgunblaóió birtir í fjórum greinum sýnishom úr svörunum. IV. grein Andlát og útfararsiðir Kristín Marja Baldursdóttir tók saman/myndir Ragnar Axelsson Bleikur hestur í draumi boðaði feigð, og ef krummi settist á bæjar- burstina og klukkna- hljómur heyrðist í fjarska, þá var líka einhver feigur. Nokkuð fór eftir landshlutum hvað fólk taldi vera ótvíræð feigðar- merki, en eldra fólk var trúað og tók yfirleitt dauðanum sem eðlileg- um og sjálfsögðum atburði. Otti fólks við kviksetningu var almennur meðan læknar voru fáir, og gerði fólk ýmsar ráðstafanir gegn slíku, utan þess að láta lík standa lengi uppi. Erfisdrykkjur voru með öðrum hætti en nú tíðkast og voru á flest- um stöðum ekkert frábrugðnar öðr- um veislum, þar sem vel var veitt bæði í mat og drykk. Hér var spurt um eftirfarandi: 1. Feigðarboða. 2. Ráðstafanir gegn kviksetn- ingu. 3. Um tímann sem leið frá and- láti að jarðarför. 4. Erfísdrykkjur. Vestfirðir 1. Að dreyma að sitja á bleikum hesti boðaði feigð. Menn voru feig- ir ef hrafn flaug í kross yfir bæ, ef þeir heyrðu klukknahljóm eða fundu moldarlykt. Stjömuhrap boð- aði dauða einhvers og ef svipir manna sáust að þeim lifandi þá voru þeir feigir. Það var feigðar- boði ef góðir fiskimenn drógu ekki fisk en aðrir fiskuðu vel, og ekki mátti prjóna né sauma upp á sjó- mann á helgum degi. 2. Logandi eldspýta eða heitt jám var borið að iljum manns til að vita hvort líkið sýndi nokkur við- brögð. 3. Eftir kistulagningu var líkið látið standa uppi í tvær vikur minnst, í stofuhúsi eða framhýsi undir lofti, og stundum í úti- skemmu. Ljós var látið loga hjá líkinu þar til búið var að kistu- leggja og Passíusálmamir lagðir á brjóst hins látna. 4. Öllum var gefið kaffi og með því, sem til jarðarfararinnar komu. Vom húsakynni prestsetursins fengin til erfisdrykkjunnar. Norðurland 1. Ef gætinn og rólyndur maður brygði venju sinni og yrði allt í einu fasmikill og glannafenginn vom líkur á því að hann væri feigur. Ilit var fyrir sjómenn að dreyma blíðu- atlot kvenna, og að dreyma sól, tungl og stjömur var ætíð talið boða mannslát. Feigðarboði var ef rotturyfírgáfu skip, ef kmmmi sett- ist á bæjarburstina og ef einhver heyrði klukknahljóm. En hljómur fyrir hægra eyra boðaði lát karl- manns, en fyrir vinstra eyra konu- lát. Ef svipur manns sást á tveimur stöðum samtímis var hinn sami feigur, en þó vom þess dæmi að menn hafi lifað lengi eftir það. 2. Dæmi vom þess að menn tækju loforð af aðstandendum um að skera á púlsinn að þeim látnum. 3. Frá andláti til þess dags er jarðað var liðu 12 til 20 dagar. Lík AÐ AUSTAN: Ótti vió kviksetningru „Árið 1923 var ég hjá merkum hjónum á góðu heimili. Þá heyrði ég dóttur þeirra á unglingsaldri segja við móður sína: „Ég man svo vel frá bemsku minni hvað ég var hrædd við að vera kviksett, — ég var að streitast á móti að sofna á kvöldin af ótta við að vakna næst í stjarfa.“ Þá svaraði hin ágæta móðir: „Mikið er að hugsa sér hvað maður veit lítið um sálarlíf barna sinna.“ Stúlkan hafði vandlega leynt þessu hugstríði sínu. Þetta er eitt af mörgum dæmum þess hve varlega þyrfti að tala við börn um ýmsar hrollvekjur, gagn- stætt nýtískunni þegar þær em einhver vænlegasta gróðalind samviskulausra fjárplógsfanta.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.