Morgunblaðið - 19.03.1989, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 19.03.1989, Blaðsíða 36
36 C MORGUNBLAÐIÐ VELVAKAIMDI SUNNUDAGUR 19. MARZ 1989 Ast er. ... að vera páska- kanínan hans. TM Reg. U.S. Pat Off.— all rights reserved • 1989 Los Angetes Times Syndicate Með morgunkaffinu Þú mátt setjast til fóta fröken fíx ... HÖGNI HREKKVÍSI A FÖRNUM VEGI Verðhækk- anir og frjáls innflutningur Verðstöðvuninni, sem tók gildi í haust, var aflétt um síðustu mánaðamót, eins og flestir laun- þegar hafa líklega orðið varir við. Hækkanir á vörum og þjón- ustu hafa því verið tíðar að und- anfomu, en launin hafa að mestu staðið í stað. Okkur lék því for- vitni á að vita hvemig vegfarend- um litist á þessar hækkanir. Hjónin Ragnheiður Sigurðar- dóttir og Manfreð Jóhannes- son voru á gangi í Aðalstræti þegar við rákumst á þau og spurðum um hækkanirnar. „Okkur fínnst það nú ekki orðið sniðugt þegar kaupið stendur í stað á meðan allt annað hækkar," sagði Manfreð. „Auðvitað hefur það áhrif og maður verður að spara.“ En hvað er það þá helst sem er sparað? „Maður kaupir nú lítið af fatn- aði,“ sagði Ragnheiður. „Hann er alltof dýr. En matvörunni sleppir maður ekki, nema þá helst kartöfl- unum. Ég er að spá í að hætta að kaupa kartöflurnar, þær eru orðnar svo dýrar.“ Ragnheiður var nú samt ekki á því að leyfa ætti innflutning á þeim. „Það á alls ekki að leyfa hann. Við eigum að nota þetta íslenska.“ Ómögnleg ríkissfjórn Næstur á vegi okkar varð gam- all Austfirðingur, sem harðneitaði að segja til nafns, en leyfði þó ljós- myndaranum að smella mynd af sér. Hann sagði matvöruhækkan- irnar nú ekki koma mikið við sig þó ellilífeyririnn væri lágur, þar sem hann væri ekki mikill matmaður. „Aftur á móti er allt að fara fjand- ans til með þessari vinstristjóm og lítið sem virðist hægt að gera,“ sagði hann. Innflutning ef það er ódýrara Ómar Blöndal Siggeirsson af- greiðslumaður stóð úti í dyrum í versluninni Herragarðinum. Hann sagði að auðvitað léttu hækkanirnar pyngjuna hjá fólki. Hvort þær hefðu Víkverji skrifar Víkveiji brá sér fyrir skemmstu á palla þingsins. Til umræðu var tillaga um „að fela menntamála- ráðherra að láta undirbúa og halda íslenzkunámskeið fyrir almenning í sjónvarpi". Framsögumaður vitnaði til um- sagnar frá Islenzkri málnefnd. Þar segir m.a.: „Auk þess gæti sjónvarpið raun- ar gert mikið gagn með litlum til- kostnaði þó það efndi ekki til beinna námskeiða því sjónvarpið mætti t.d. bregða upp einni mynd á hveiju kvöldi, 15-20 sekúndur í senn á bezta sendingartíma, þar sem veitt yrði fræðsla um eitt málfarslegt atriði í einu, t.d. beygingu eins orðs sem oft er rangbeygt eða rétta meðferð á orðtaki sem oft er farið rangt með o.sv.fv. Af nógu er að taka“. Þetta er þörf ábending. Raunar er hægt að eyða hvimleiðum mál- og ritvillum með þessum hætti, svo sterkur miðill sem sjónvarpið er. Sjónvarpið er hinsvegar stórlega vannýtt að þessu leyti. Sennilega er meðgöngutími nýrra hugmynda skemmri á Stöð 2 en Ríkissjónvarpinu. Og framtaks- hvöt ögn meiri. Víkveiji mælir því allt eins með hugmyndinni á þeim vettvangi. Þá myndi Ríkissjónvarp- ið máske taka við sér. XXX ingmenn segja gjarnan sögur af framkvæmdavaldinu sem I .ntsieicfcla.il iiriA- svefnþorni samþykktra þingsálykt- ana. Tvö dæmi skutu upp kolli í umræðunni um íslenzkukennslu í sjónvarpi. Á þinginu 1977-1978, fyrir rúm- um áratug, var samþykkt ályktun um kennslu og fræðslu í öllum greinum móðurmálsins í sjónvarpi og útvarpi. „Tillagan var aldrei framkvæmd," sagði einn þingmað- urinn, „og minnir það okkur nú enn einu sinni á þá staðreynd að fram- kvæmdavaldið liggur á því lúalagi að hunza vilja Alþingis sem fram kemur í hinum ýmsu tillögum sem viðsamþykkjum hér á hveiju ári“. í þinglok 1984 var samþykkt ályktun um kennslu í framburði íslenzkrar tungu og málvöndun, bæði í grunnskólanámi og ríkisijöl- miðlum. „Ég kann engar frægðar- sögur að segja af framkvæmd máls- ins,“ sagði þessi sami þingmaður. Víkveiji hefur sízt á móti því að þingmenn saumi eilítið að fram- kvæmdavaldinu, ekki sízt vegna hins hvimleiða stofnanamáls. Hann getur þó ekki stillt sig um að spyija: A fjárveitingavaldið, Alþingi, ekki dulitla sök á því að hinar og þessar þingsályktanir hafa aldrei komið til framkvæmda? xxx Víkveiji getur tekið undir það með einum þingmanninum í þessari umræðu að foreldrar lesa ekki fyrir börn né tala við þau í sama mæli og fyrr var gert. Lestur góðra bóka fyrir böm eflir mál- kennd og bætir málfar þeirra. Aðstæður á líðandi stund skammta foreldrum, ömmum, öfum og öðrum aðstandendum mjög tak- markaðan tíma til samvista við böm og unglinga. Án efa á orðfæð og röng meðferð á orðasamböndum rætur að rekja til þessa. Bamatím- ar í útvarpi og sjónvarpi bæta úr skák, ef þeir sem þar koma fram hafa viðlíka málfar og Pétur Péturs- son þulur eða Auður Eiríksdóttir varaþingmaður að norðan. Mál- skussar, sem stundum koma við sögu, ausa hinsvegar olíu á eld ambögunnar. xxx Víkveiji vill að lokum gera orð eins þingmannsins að sínum: „Ég held að stutt vakning og hvatning varðandi meðferð íslenzks máls, helzt daglega, á vettvangi sjónvarpsins væri jafnvel áhrifa- meira heldur en sérhólfað námskeið þó það geti einnig verið ágæt leið ef hægt er að efna til þess og koma því inn í dagskrá á tíma sem líklegt er að margir hlýði á og verði aðnjót- andi . . .“. Ríkissjónvarpið, sem nýtur lög- tryggðra áskriftargjalda, hefur ríkari skyldur í þessu efni en Stöð 2. Rétt er það. En Víkveiji hefur máske meiri trú á framtakssemi strákanna á Stöð 2. Og báðar mættu sjónvarpsstöðvamar betur gera að þessu leyti.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.