Morgunblaðið - 23.03.1989, Qupperneq 1
128 SIÐUR B/C/D
69. tbl. 77. árg.
FIMMTUDAGUR 23. MARZ 1989
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Viðræður PLO og
Bandaríkjamanna
Rættum
leiðir til
að draga
úr spennu
Túnis. Reuter.
FULLTRÚAR stjórnar George
Bush, Bandaríkjaforseta, áttu
í gær fund með fulltrúum
Frelsissamtaka Palestínu-
manna (PLO) í Karþagó í Tún-
is í gær, hinn fyrsta frá því
Bush tók við embætti. Lögðu
Bandaríkjamenn fram tillögur
um leiðir til að draga úr spennu
á hemumdum svæðum ísraela,
en fúlltrúar viðræðuaðila vildu
ekki greina frá í hveiju þær
hefðu verið fólgnar.
Á fundinum óskuðu fulltrúar
PLO eftir því að Bandaríkjastjóm
viðurkenndi samtökin, lýsti stuðn-
ingi við stofnun sjálfstæðs ríkis
Palestínumanna og tæki undir
hugmyndina um alþjóðlega ráð-
stefnu er semdi um frið í Miðaust-
urlöndum.
Robert Pelletreau, sendiherra,
sem fór fyrir bandarísku viðræðu-
nefndinni, ítrekaði þá afstöðu
Bandaríkjastjómar að beinar við-
ræður ísraela og Palestínumanna
væm bezta leiðin til að stuðla að
friði.
Morgunblaðið/Ámi Sœberg
Ráðstefiia Sameinuðu þjóðanna:
Abed Rabbo, einn af helztu leið-
togum Frelsissamtaka Palestínu,
fór fyrir viðræðunefnd PLO á
fundinum í Karþagó. Hann sagði
að samtökin myndu ekki víkja frá
kröfunni um alþjóðlega friðarráð-
stefnu en að gagnkvæmar viðræð-,
ur PLO og ísraela gætu orðið hluti
af undirbúningi hennar.
Búist er við að nýr fundur full-
trúa PLO og Bandaríkjastjómar
fari fram á næstu vikum.
Samkomulag um við-
skipti með eiturúrgang
Basel. Reuter. JBLb
FULLTRÚAR frá 116 ríkjum,
er undanfarið hálft annað ár
hafa setið ráðstefnu á vegum
Sameinuðu þjóðanna um út-
Magnús Guðmundssyni á blaðamannafundi í Danmörku:
Viðbrögð Greenpeace hafa
auðveldað sölu myndarinnar
DANSKA ríkissjónvarpsstöðin TV2 hélt blaðamannafúnd f Óðinsvé-
um í gær þar sem rætt var um mynd Magnúsar Guðmundssonar
Lífsbjörg f norðurhöfum og var höfundur myndarinnar viðstadd-
ur. „Ef ég hefði séð fyrir öll lætin sem urðu vegna myndarinnar
þá hefði ég þjarmað enn betur að grænfriðungum og látið þá
standa fyrir máli sfnu varðandi falsanimar," sagði Magnús meðal
annars og bætti við að Greenpeace hefði auglýst myndina meir
en hann hefði nokkum tfma haft ráð á. Magnús sagði einnig að
grænfriðungar hefðu reynt að stöðva hann f gerð myndarinnar
áður en henni var lokið.
Magnús sagði að Greenpeace
hefði gert sér mun auðveldara að
selja myndina en ella. Aðspurður
sagðist hann ekki gera ráð fyrir
að tii málsóknar kæmi af hálfu
samtakanna; ráðamenn Greenpe-
ace gætu ekki verið svo vitlausir
að efna til málshöfðunar sem væri
fyrirfram töpuð.
Dönsku blöðin sögðu í gær frá
blaðamannafundi grænfriðunga
sem haldinn var í fyrradag áður
en Lífsbjörg í norðurhöfum var
sýnd í TV2. Er haft eftir Martin
Leebum, einum af forsvarsmönn-
um grænfriðunga, að samtökin
íhugi yfir páskana hversu marga
eigi að Iögsækja vegna myndarinn-
ar. Leebum segir myndina fulla
af lygum og ærumeiðingum um
Greenpeace. Politiken segir að
Reebum hafi verið spurður hvers
vegna Greenpeace brygðist svo
hart við myndinni og þá hafi hann
svarað: „Maður getur látið sér fátt
um finnast eða tekið afstöðu og
það höfum við gert. Við megum
ekki við ásökunum af þessu tagi
og dómstóll verður að hreinsa sam-
tökin af þeim.“
Sjá ennfremur yfirlýsingu
grænfriðunga vegna
Lífsbjargar í norðurhöfum á
bls. 24-25.
flutning á eiturefiiaúrgangi,
náðu í gær einróma samkomu-
lagi um reglur varðandi slík
viðskipti. Bannað verður að
flytja út úrgang sem valdið get-
ur krabbameini, fósturskaða og
fleiri meinum til landa sem ekki
eru fær um að koma honum
tryggilega fyrir. 34 ríki undir-
rituðu samninginn strax en aðr-
ir fúlltrúar munu fyrst bera
hann undir stjórnvöld í löndum
sínum.
Milljónir tonna af eiturefnaúr-
gangi eru sendar frá vestrænum
ríkjum til þróunarríkja eða Aust-
antjaldslanda á hveiju ári. Helsta
markmið viðræðnanna, -sem fóru
fram í Sviss, var að stöðva eiturút-
flutning frá vestrænum iðnríkjum
til þriðjaheimsríkja, „rusl-heims-
valdastefnuna," eins og sum
Afríkuríki hafa nefnt þetta fram-
ferði. Afríkuríkin ákváðu í samein-
ingu að bíða með að undirrita
samninginn þar til fjallað hefði
verið um hann á vettvangi sam-
taka Afríkuríkja (OAU).
Mostafa Tolba, aðstoðarfram-
kvæmdastjóri SÞ, sagðist mjög
ánægður með árangur viðræðn-
anna þar sem hann hefði fyrir
fram talið afar erfítt að samræma
sjónarmiðin. Ýmis ákvæði voru
hert aðfaranótt miðvikudags og
náðist um það fullt samkomulag.
„Samningurinn stöðvar ekki við-
skipti með eiturefnaúrgang. En
hann gefur skýrt til kynna að þjóð-
ir heims eru staðráðnar í að út-
rýma þeirri hættu sem umhverfí
okkar og heilsu fólks stafar af
eiturefnunum," sagði Tolba.
Fulltrúar ýmissa umhverfis-
vemdarsinna eru ekki jafn ánægð-
ir og Tolba. Segja þeir að margar
smugur séu á samningnum og
hann hafí verið samþykktur í
snatri með göllunum aðeins til að
staðið yrði við tímaáætlun. „Ein-
hvem tíma verður bam í þriðja
heiminum veikt og þá munum við
útskýra fyrir því að við höfum
ekki gefíð okkur tíma til að gaum-
gæfa allar hliðar málsins,“ sagði
Allen Hershkowitz, bandarískur
umhverfísvemdarsinni. Umhverf-
ismálaráðherra Kenýu taldi hins
vegar að samningurinn væri við-
unandi; nú hefðu menn. eitthvað
til að byggja á. Fulltrúi frá Seneg-
al tók í sama streng.