Morgunblaðið - 23.03.1989, Blaðsíða 60
SAGA CLASS
f heimi hraða og athafna
FLUGLEIDIR
Fróðleikur og
skemmtun
fyrir háa sem lága!
FIMMTUDAGUR 23. MARZ 1989
VERÐ I LAUSASOLU 80 KR.
Grænlenski
loðnukvótinn:
Islensk fyr-
irtæki at-
huga tilboð
ÞRJÚ íslensk útgerðarfyrirtæki
ætla í sameiningu að bjóða í
loðnukvóta þann sem Grænlend-
ingar fengu i sinn hlut með sam-
komulagi því sem gert var nýver-
ið milli Islendinga, Grænlend-
inga og Norðmanna um nýtingu
og skiptingu Ioðnuaflans í haflnu
milli Islands, Grænlands og Jan
Mayen.
Samkvæmt samkomulagi þessu,
sem enn á eftir að hljóta samþykki
löggjafarþinga landanna, fengu
Grænlendingar og Norðmenn 11%
aflans í sinn hlut hvor þjóð en ís-
lendingar 78%. Útgerðarfyrirtækin
eru Einar Guðfínnsson hf. í Bolung-
arvík, Haraldur Böðvarsson & Co
hf. á Akranesi og Miðnes hf. í Sand-
gerði, og hafa forsvarsmenn þeirra
þegar átt viðræður um málið við
grænlensku landsstjórnina jafn-
-—framt því sem Halldóri Ásgrímssyni
sjávarútvegsráðherra hefur verið
gerð grein fyrir þessum áformum.
Gert er ráð fyrir að hér geti ver-
ið um alls milli 70 og 80 þúsund
tonn af loðnu að ræða sem Græn-
lendingar fá til ráðstöfunar á ári
en fyrirsjáanlegt er að þeir munu
ekki nýta sér hana sjálfir vegna
þess að þeir hafa hvorki yfír að
ráða loðnuveiðiskipum né fiski-
mjölsverksmiðjum. Það er Einar
Guðfinnsson hf. sem hefur átt frum-
kvæðið að viðræðunum við Græn-
lendinga um þetta mál enda liggur
fískimjölsverksmiðja þess fyrirtæk-
is næst miðum Grænlendinga mest-
an hluta veiðitímans.
. \
Sjá nánar Viðskiptablað B8.
Morgunblaðið/Einar Falur Ingólfsson
Keflvíkingar Islandsmeistarar ífyrsta sinn
Keflvíkingar tryggðu sér íslandsmeistaratitilinn í körfuknattleik er þeir sigruðu KR-inga i þriðja úrslitleik liðanna í Keflavik í
gærkvöldi, 89:72. Þetta var fyrsti íslandsmeistaratitill Keflvikinga í karlaflokki síðan liðið hóf keppni í úrvalsdeildinni. Á myndinni
hampa Jón Kr. Gíslason, þjálfari, og Axel Nikulásson bikarnum en Falur Harðarson, Magnús Guðfinnsson, Albert Óskarsson og
Einar Einarsson fylgjast með.
Aðildarfélög BHMR sem boðað hafa verkfall:
Dagvinnulaun á bilinu
62-81 þúsund krónur
Morgunblaðið kemur næst út
miðvikudaginn 29. marz.
Meðaldagvinnulaun i desem-
bermánuði síðastliðnum hjá þeim
ellefli félögum háskólamanna,
sem boðað hafa verkfall frá og
með 6. apríl, voru á bilinu frá
um 62 þúsund krónur á mánuði
og upp í rúm 81 þúsund. Heildar-
laun að meðaltali voru hins vegar
frá því um 80 þúsund og upp í
rúm 120 þúsund krónur á mán-
uði eftir félögum. Þessar upplýs-
ingar fengust hjá Indriða H.
Morgunblaðið/Þorkell
*
A hundasleða í Viðey
Grænland er ekki eina eyjan þar sem hundar draga sleða.
Bjarni Sigurbjörnsson, ráðsmaður í Viðey, hefiur sjálfiir útbúið
aktygi á hundinn sinn, Prins, og lætur hann draga snjóþotu.
„Hann hefur sannarlega kraftinn í það; þessir hundar eru sérstak-
lega aldir til að vinna,“ sagði Bjarni. Prins gengst sjálfur allur
upp við þetta óvenjulega hlutverk og dregur til dæmis vörurnar
heim í hús fyrir Guðrúnu Lilju, konu Bjarna, þegar hún kemur
úr verzlunarferðum. Þegar Morgunblaðsmenn bar að garði í
Viðey í gær þeyttist Prins um hlaðið með þá bræður Kristófer
Og Atla Jenssyni, frændur Bjarna ráðsmanns, og skemmtu allir
sér konunglega.
Þorlákssyni, formanni Samn-
inganefiidar rikisins, en hann
byggir þær á fréttabréfi Kjara-
nefndar opinberra starfsmanna.
Indriði sagðist ekki hafa fengið
nákvæma tækni- eða tölulega
útfærslu á kröfugerð þessara
félaga, en væri miðað við al-
menna kröfii um samsvarandi
laun og á almennum vinnumark-
aði og þá launatöflu sem lögð
hefði verið fram í því sambandi,
þá jafngilti það margra tuga
prósenta kauphækkun.
Meðaldagvinnulaun í desember
hjá Félagi bókasafnsfræðinga voru
69 þúsund og heildarlaunin tæp 80
þúsund. Hjá Félagi íslenskra fræða
voru meðaldagvinnulaunin 70.600
og heildarlaunin síðustu þrjá mán-
uði ársins 99, 89 og 77 þúsund.
Meðaldagvinnulaun hjá Félagi há-
skólamenntaðra hjúkrunarfræðinga
í desember voru 62.400 og heildar-
launin 95 þúsund. Dagvinnulaun
hjá Félagi íslenskra náttúrufræð-
inga voru 78.200 krónur og heildar-
launin á bilinu 108-120 þúsund
síðustu mánuði ársins. Hjá sjúkra-
þjálfurum voru meðallaunin 70.800
og heildarlaunin 85-99 þúsund
krónur.
Meðaldagvinnulaun kennara í
Hinu íslenska kennarafélaga, sem
kenna í framhaldsskólum, voru í
desember 69.800 krónur. Heildar-
launin voru í september 100 þús-
und, október 105 þúsund, nóvember
104 þúsund og desember 140 þús-
und krónur. Félagar í HÍK, sem
kenna í grunnskólunum, voru með
tæpar 65 þúsund krónur í dagvinnu-
laun í desember. Heildarlaunin voru
í september 84 þúsund, október 92
þúsund, nóvember 93 þúsund og
desember 95 þúsund. Meðaldag-
vinnulaun allra félaga í HÍK voru
68.500 í desember og heildarlaunin
um 100 þúsund og upp í 128 þús-
und í desember.
Matvæla- og næringarfræðingar
voru með 70.400 að meðaltali í
dagvinnulaun í desember, en heild-
arlaun á bilinu 96-100 þúsund.
Sálfræðingar voru með 81.400
krónur í dagvinnulaun í desember
og 100-105 þúsund í heildarlaun
að meðaltali síðustu mánuði ársins.
Félagsráðgjafar voru með 71.500
krónur í meðaldagvinnulaun og
82-88 þúsund í heildarlaun. Lög-
fræðingar voru með 76.250 krónur
að meðaltali í dagvinnulaun í des-
ember og 123-126 þúsund í heildar-
laun síðustu mánuði ársins og iðju-
þjálfar með tæp 72 þúsund í dag-
vinnulaun í desember og 79-86
þúsund í heildarlaun síðustu mán-
uði ársins.
Getraunir og Lottó:
Hátt í 20
millj. í veði
í ÞESSARI leikviku er potturinn
hjá íslenskum getraunum Qór-
faldur og Lottópotturinn þre-
faldur.
í getraunapottinn eru komnar 5
milljónir en miðað við fyrri reynslu
má búast við að hann verði um 8
til 9 milljónir á laugardag. í Lottó-
pottinn voru komnar 5,8 milljónir
en búast má við að hann verði um
10 milljónir á laugardag.
*
Obreytt veður um páska
SAMKVÆMT upplýsingum frá Vegaeftirlitinu og Veðurstofimni um
veður og færð um páskana verður þungfært víða á landinu og búist
er við að veður haldist að mestu óbreytt, norðaustan átt með éljum
og skafrenningi fyrir norðan land en þokkalega bjart fyrir sunnan
land.
aðeins mokuð austur til Húsavíkur
í dag. Ófært hefur verið til Dalvík-
ur og Ólafsfjarðar og verður svo
áfram í dag.
Brösuglega hefur gengið að
halda vegum opnum á Vesturlandi
og Vestfjörðum. í gærdag tókst að
opna vegi um láglendi á Snæfells-
nesi en þar var versnandi veður og
sennilega mjög þungfært á þessum
vegum í dag. A norðanverðum Vest-
fjörðum eru allir vegir ófærir. Hins-
vegar var leiðin til Hólmavíkur
mokuð í gærdag.
Þokkaleg færð er um Suðvestur-
land og í gærdag var leiðin frá Vík
í Mýrdal austur á firði mokuð.
Helstu vegir á Austfjörðum eru
færir.
Leiðin milli Reykjavfkur og Akur-
eyrar var mokuð í gærmorgun en
undir kvöldið fór veður og færð á
henni versnandi og búist var við
að hún myndi lokast aftur. f dag
verður þessari leið haldið opinni.
Frá Akureyri og austur um er
mjög þungfært. Leiðin þar verður