Morgunblaðið - 23.03.1989, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. MARZ 1989
Morgunblaðið/Ágúst Blöndal
Duflið sem Gullfaxi fékk í snurvoðina.
Neskaupstaður:
Hlustunardufl í snurvoðina
Neskaupstað.
AFLI smábáta hefur verið ágæt-
ur nú undanfarið, þegar gefið
hefur á sjó, en þó nokkuð mis-
jafii.
Best hefur verið hjá þeim sem
róið hafa með línu. Ýmsir kynjahlut-
ir koma stundum í veiðarfæri bát-
anna, t.d. fékk Gullfaxi NK 6 ein-
hverskonar hlerunardufl í snurvoð-
ina á Sandvíkinni nú á dögunum,
ekki eru nein auðkenni sjáanleg á
duflinu og því ekki gott fyrir leik-
menn að geta sér til um hverrar
þjóðar það er.
- Ágúst
Póstmiðstöðin í Reykjavík:
Breyting á afgreiðslu
erlendra bókasendinga
EINSTAKLINGAR sem hafa pantað bækur sjálfir frá útlöndum
hafa hingað til þurft að sækja þær í tollafgreiðslu Póstmiðstöðv-
arinnar við Armúla. Þar hafa þeir orðið að fylla út aðflutnings-
skýrslur, sem á stundum hefur tekið sólarhring að afgreiða.
Þetta fyrirkomulag hefúr nú verið afhumið. Samkvæmt frétta-
tilkynningu frá blaðafiilltrúa Póst- og símamálastofnunar á
nýja tilhögunin að spara íbúum Reykjavíkur ferð í Armúlann
og skriffinnsku nema um sérstakar undatekningar sé að ræða.
í fréttatilkynningunni segir: „Al-
mennar bókasendingar frá út-
löndum sem ekki eru til endur-
sölu og eru innan við 33 SDR
að verðmæti, um 2300 kr., fara
nú beint til afgreiðslu á póstúti-
búin í Reykjavík og til pósthúsa
utan Reykjavíkur þar sem ekki
eru sjálfstæðar tollafgreiðslur.
Sé verðmæti sendinganna metið
hærra fær viðtakandi póstað-
flutningsskýrslu sem um leið er
innborgunarseðill á póstgíró-
reikning og greiðir samkvæmt
honum við móttöku.
Þessi nýja tilhögun sparar íbú-
um Reykjavíkur ferð í tollaf-
greiðslu Póstmiðstöðvarinnar í
Reykjavík þar sem afhending
sendinganna fór fram áður,
nema um sérstakar undantekn-
ingar sé að ræða.“
Jóhann Hjálmarsson, blaða-
fulltrúi Póst- og símamálastofn-
unar, sagði í samtali við Morgun-
blaðið, að hinar nýju reglur, sem
tekið hefðu gildi, hækkuðu gjald-
fijálsan innflutning á bókum úi
500 kr. í 33 SDR sem nú jafn-
gildir 2300 kr. Ef bók væri dýr-
ari en þetta fengi viðtakandi
hennar sendan gíróseðil, þar sem
honum hefðu verið færð til gjalda
þau opinberu gjöld sem á bókina
féllu, hann færi með þennan
gíróseðil í hverfíspósthús sitt og
sækti þangað bókina gegn
greiðslu gíróseðilsins. Það væri
sem sé úr sögunni, að viðtakandi
þyrfti að fylla út aðflutnings-
skýrslur. „Með hinni nýju til-
högun erum við að draga úr skri-
fræði, sem af innheimtu hinna
opinberu gjalda gefur leitt,"
sagði Jóhann Hjálmarsson.
VEÐUR
VEÐURHORFUR í DAG, 23. MARS
YFIRLIT í GÆR: Gert ráð fyrir stormí á norðurdjúpi og suðvestur-
djúpi. Skammt austur af Langanesi er heldur vaxandi 970 mb lægð,
sem breytist lítið. Við suöurströndina er minnkandi lægðardrag en
yfir Grænlandi er 1017 mb. lægð. Heldur kólnar í veðri.
SPÁ: Norðaustanátt, víða kaldi eða stinningskaldi. Éljagangur og
skafrenningur um allt norðanvert landiö, en bjart veður sunnantil.
Frostlaust suðaustanlands, en 0—5 stiga frost annars staðar.
I/EÐURHORFUR NÆSTU DAGA
HORFUR Á FÖSTUDAG OG LAUGARDAG: Norðanátt og talsvert
frost um allt land. Þurrt og víðast léttskýjaö um sunnanvert landið
en él fyrir norðan.
TÁKN:
Heiðskírt
Léttskýjað
■é:> Hálfskýjað
A
m Skýjað
,JHA,skýiað
Norðan, 4 vindstig:
Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
■j Q' Hitastig:
10 gráður á Celsíus
ý Skúrir
V É'
= Þoka
= Þokumóða
» , ’ Súld
OO Mistur
—J- Skafrenningur
[7 Þrumuveður
VEÐUR VÍÐA UMHE/M
kl. 12:00 í gœr að ísl. tfma
hlti veAur
Akureyri 0 snjókoma
Reykjavík +1 snjókoma
Bargen 3 slydduó!
Helslnki vantar
Kaupmennah. 8 rigning
Narssarsauaq +23 hálfskýjað
Nuuk +15 skýjað
Osló 8 léttskýjað
Stokkhólmur 7 hálfskýjað
Þórthöfn 3 snjóél
Algarvo 21 helðskfrt
Amaterdam 12 skýjað
Barcelona 18 heiðskfrt
Berlfn 9 rlgnlng
Chicago +6 hsiðskfrt
Feneyjar 16 hélfskýjað
Frankfurt 12 rlgning
Glasgow 4 haglél
Hamborg 7 súld
Las Palmas 20 léttskýjað
London 13 skýjað
Los Angeles 13 heiðskfrt
Lúxemborg 9 skýjað
Madríd 15 helðskfrt
Malaga 22 heiðskírt
Mallorca 19 léttskýjað
Montreal +13 skýjað
New York «f1 láttskýjað
Orlando 18 skýjað
París 13 skýjað
Róm 19 léttskýjað
Vfn 12 skýjað
Washlngton 1 léttskýjað
Wlnnlpeg +11 skýjað
Lending Arnarflugsþotu 27. janúar:
Enn ekki haft tíma
til að leggja mál-
ið fyrir ráðherra
- segir Kristinn Sigtryggsson
„ÉG Á VON á þvi, að við tökum málið upp við samgönguráðherra,
en hér hefur enginn haft tíma til að hugsa þetta mál upp á síðkas-
tið,“ sagði Kristinn Sigtryggsson forstjóri Arnarflugs. Hann var
spurður hvað liði ætlun Arnarflugsmanna að taka upp við ráðherra
málsmeðferð við rannsókn á lendingu þotu frá félaginu á Keflavíkur-
flugvelli þann 27. janúar siðastliðinn.
„Það sem þurfti að fjalla um við
ráðherra var hvernig þetta mál bar
að. Við erum út af fyrir sig sáttir
við þátt loftferðaeftirlitsins í mál-
inu, þeirra rannsókn var fagleg og
ekkert við hana að athuga. Það er
þáttur flugráðs sem við erum ekki
sáttir við. Þetta er mál sem ljóslega
var tekið upp í áróðursskyni á þeim
vettvangi. Auðvitað er alltaf verið
að kanna mál hjá loftferðaeftirlitinu
og það er eðlilegt. Við teljum þetta
mál hins vegar hafa verið tekið upp
á röngum vettvangi og með ólíkind-
um hve fljótt það var komið í fjöl-
miðla," sagði Kristinn. Hann segir
það ekki þjóna markmiðum öryggis
farþega og annarra að gera slíkar
rannsóknir að fjölmiðlamálum áður
en niðurstöður eru fengnar.
Skúli Jón Sigurðarson deildar-
stjóri rannsóknardeildar loftferða-
eftirlitsins segist fagna því ef Arn-
arflug telur rétt það sem kemur
fram í skýrslu um atburðinn, enda
væri illt að liggja undir ámæli um
annarleg vinnubrögð við slíkar
rannsóknir. „Ef það er niðurstaðan,
þá er ég ánægður. Rannsókn okkar
. er hlutlæg umíjöllun og framsetn-
ing staðreynda," sagði Skúli Jón.
Könnun Umferðarráðs:
Bílbeltanotkun minnkar
Bílbeltanotkun ökumanna og
farþega í framsæti bifreiða hef-
ur minnkað töluvert frá því fyrir
einu ári síðan, samkvæmt athug-
un sem lögregla hefúr gert víða
um land á ljósa- og bílbeltanotk-
un.
2725 bflar voru athugaðir. Á
2516, eða 92%, voru ökuljós tendr-
uð. 2006 ökumenn, 74%, voru með
bflbelti spent. 75% fraþega í fram-
sæti voru með bflbelti.
Verulegur munur var á bflbelta-
notkun eftir landshlutum en ljósa-
notkun virðist fremur jöfn sam-
kvæmt könnuninni. Fæstir notuðu
bílbelti á ísafírði, 62% ökumanna
og 42% farþega í framsætum. í
Reykjavík notuðu 78% ökumanna
og 84% farþega bílbelti. 86% öku-
manna á Sauðárkróki notaði bílbelti
en 85% þeirra ökumanna sem vega-
lögregla stöðvaði á þjóðvegum. Á
þjóðvegum notuðu 93% framsætis-
farþega bflbelti.
í könnun sem gerð var fyrir réttu
ári kom í Ijos að meira en 90%
ökumanna og framsætisfarþega
notuðu bílbelti. Það ár fækaði alvar-
lega slösuðum í umferðinni um 20%.
Opna New York mótið;
Jafiitefli
hjá Margeir
og Smyrslov
MARGEIR Pétursson gerði jafii-
tefli við Smyralov í 3. umferð
opna New York mótsins. Upp kom
Griinfeld vörn með skiptum litum
og fór Margeir i endataflið peði
undir. Hann tókst svo að halda
jöfiiu.
íslendingarnir á mótinu áttu mis-
jafnan dag í 3. umferð. Helgi Ólafs-
son_ vann Henao frá Kólombíu, Jón
L. Ámason tapaði fyrir Pólveijanum
Wojtlewicz. Sá mun titillaus en hefur
samt 2640 ELO-stig sem þykir at-
hj'glisvert.
Hannes Hlífar gerði jafntefli við
stórmeistarann Dolmatov og Karl
Þorsteins tapaði fyrir Zapata frá
Kólombíu.