Morgunblaðið - 23.03.1989, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTIUDAGUR 23. MARZ 1989
7
Knstmhald-
ið til Cannes
AÐSTANDENDUR kvikmyndarinnar Kristnihald undir jökli, sem
gerð er eftir skáldsögu Halldórs Laxness, eru nú að undirbúa jarð-
veginn fyrir að koma myndinni í keppni á kvikmyndahátíðinni í
Cannes í maí, að sögn Guðnýjar Halldórsdóttur, leikstjóra myndarinn-
ar og eins eiganda kvikmyndafélagsins Umba, sem gerði myndina.
„Myndin verður að minnsta kosti
sýnd í Cannes, en við erum að reyna
að koma henni í einhvers konar
keppni þar,“ sagði Guðný. „Það
þarf að sækja um til Kvikmynda-
sjóðs og fullnægja fleiri formsatrið-
um, til dæmis þarf að þýða handrit-
Alþjóðlegnr
leiðangnr á
Vatnajökul
Alþjóðlegur hópur jöklafara
og ævintýramanna leggur upp á
Vatnajökul 29. mars næst kom-
andi. Leiðangurinn skipa þó
einkum Bretar og verndari hans
er lávarðurinn og Ijósmyndarinn
Patrick Lichfeild. Ætlunin er að
ganga yfir jökulinn frá vestri til
austurs, en það mun í fyrsta
skipti sem breskur leiðangur fer
jrfir Vatnajökul með þeim hætti.
Undirbúningur að þessum leið-
angri hefur staðið lengi yfir og
undirbúningur leiðangursmanna í
heilt ár eftir því sem fram kemur
í upplýsingum frá leiðangursmönn-
um. Leiðangurinn verður allur kvik-
myndaður og þáttur síðan gerður
til sýninga í sjónvarpi. Leiðangurs-
menn reikna með erfiðri ferð, allt
að 40 stiga frosti og gífurlegum
vindhraða þegar verst lætur.
ið á frönsku og setja franskan texta
á myndina. Bókin hefur þegar verið
þýdd á frönsku og naut mikilla vin-
sælda í Frakklandi fyrir tveimur
árum.“
Um 11.000 manns hafa nú séð
Kristnihaldið hér heima. Myndin er
sýnd í Stjörnubíói í Reykjavík, hefur
verið sýnd á Akureyri og Akranesi
og verður sýnd í Borgamesi og á
Dalvík um páskana. Guðný sagði
að um 42.000 áhorfendur þyrfti til
að myndin bæri sig, en hún byggist
ekki við að sú tala næðist. Hún
sagði að myndin gengi þó jafnt og
sígandi og síðastliðnar þrjár vikur
hefði verið jöfn og þétt aðsókn á
hana.
í fyrradag var iokið við að setja
enskan texta á myndina. „Eftir
páskana munum við senda kynn-
ingareintök út um allar jarðir,"
sagði Guðný. „Það hefur mjög mik-
ið verið spurt um myndina, og það
hefur greinilega víða frétzt af
henni.“ Guðný sagði að einkum
kæmu fyrirspumir frá löndum, þar
sem verk Halldórs Laxness væm
vel þekkt, svo sem Norðurlöndunum
og Þýzkalandi. Einnig hefði dreif-
ingarfyrirtæki í Los Angeles í
Bandaríkjunum, sem hefði sérhæft
sig í dreifingu á norrænum mynd-
um, sýnt áhuga.
Kristnihaldið verður eina framlag
Islendinga til samnorrænnar kvik-
myndahátíðar, sem haldin verður í
Færeyjum í næsta mánuði.
Vestmannaeyjar séðar úr lofti. Snjór hefúr nú legið yfir Eyjum í óvenjulangan tíma.
Y estmannaeyjar:
Snjór yfir öllu í langan tíma
— auð jörð í 14 daga frá áramótum
Vestmannaeyjum.
SNJÓR hefúr legið yfir landi í
Vestmannaeyjum í óvenju lang-
an tíma í vetur. Venjulega
staldrar snjórinn stutt við í
Eyjum hveiju sinni og tekur
alveg upp eftir nokkra daga
þó svo að það snjói ef til vill
fijótlega aftur. Slikt hefúr þó
ekki verið uppi á teningnum i
vetur.
Snjór hefur legið á jörð í Eyjum
í óvenju langan tíma f vetur, að
sögn Oskars Sigurðssonar, veður-
athugunarmanns á Stórhöfða.
Fyrstu 80 daga ársins var alautt
í 14 daga, 26 daga hefur verið
flekkótt og 40 dagar hafa verið
alhvítir. Einhver snjór hefur því
legið á landi í Vestmannaeyjum í
66 daga af 80. Til samanburðar
má líta á fyrstu 80 daga ársins
1987. Það ár var að vísu fremur
snjólétt en munurinn er mikill.
Árið 1987 var alautt í 56 daga,
15 daga var flekkótt og alhvítt í
9 daga. Það lá því einhver snjór
yfir í 24 daga af 80, árið 1987 á
móti 66 dögum í ár.
Óskar sagði að þrátt fyrir það
að snjór hefði legið lengi yfír þá
væri veturinn búinn að vera snjó-
léttur. Sjaldan hafí komið mikill
snjór. Þetta hafí bara verið jöfn
og þunn breiða sem legið hefur á
jörð. _ Grimur
TÓNLIST UM PÁSKANA
MADONNA
LIKE A PRAYER
Já, ný plata frá Madonnu hefur litið dagsins Ijós.
í stuttu máli sagt er hún alveg frábær og þó það
hljómi ótrúlega: Besta plata hennar frá upphafi!
Er eftir einhverju að bíða? Nældu þér í eintak
sem allra fyrst - þú átt það örugglega skilið.
í STÖÐ 2 UM HELGINA
Á föstudaginn langa kl. 12.30 verður sýndur frábær þáttur með þungarokkurunum í
Guns’n Roses og á páskadag skaltu ekki missa af þættinum með Roy Orbison.
PÓSTKRÖFUSÍMAR
11620 OG 28316
S T E I N A R
OnelnA,
/aSta&Mítf !»««#»
MILUON
U.M ; 'mO'” ir.UrM
«a«BEB.i'3aagfc
rrjswaiskbseúm
TíeAí!-! íinc Creaccs
ROYORBISON
GUNS'N ROSES
APPETITE FOR
DESTRUCTION
GUNS'N ROSES
LIES
ROY ORBISON
ALL TIME
GREATEST HITS
ROY ORBISON
MYSTERY GIRL