Morgunblaðið - 23.03.1989, Page 14
14
’ MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. MARZ 1989
LONDON
CITY BALLETT
Góðirgestir væntanlegir
í Þjóðleikhúsið
London City-Ballett flokkurinn er væntanlegur í heim-
sókn til íslands nú eftir páskana og sýnir tvisvar, föstu-
daginn 31. mars og laugardaginn 1. apríl, í Þjóðleik-
húsinu. Á efnisskránni eru valin atriði úr
Hnotubrjót Tsjajkovskíjs, Transfigured Night við tónlist
eftir Arnold Schönberg, danshöfundur Frank Staff, og
Celebrations við tónlist eftir Giuseppe Verdi, dans-
höfundur Michael Beare.
London City Ballett hef-.
ur vakið mikla athygli
á undanförnum árum,
bæði heima fyrir og
erlendis; aðeins tíu ár
eru síðan ballettflokkurinn var
stofnaður en á þeim tíma hefur
hann vaxið ótrúlega að umfangi,
hver sýningin á fætur annarri vak-
ið aðdáun og notið margs konar
viðurkenninga þar til nú er svo
komið að flokkurinn telst tvímæla-
laust í hópi bestu og þekktustu
ballettflokka Evrópu án þess þó
að hafa nokkum tíma notið opin-
bers stuðnings heimafyrir. Ekki
er það þó hróssins vert í sjálfu sér
því listráðið breska styrkir flesta
ballettflokka rausnarlega en Lon-
don City Ballett hefur til skamms
tíma fundið litla náð fyrir augum
ráðsins. Þetta hefur skapað
flokknum ákveðna sérstöðu og
hafa margir undrað sig á vel-
gengni flokksins bæði listrænt og
fjárhagslega einmitt vegna þessa.
Stjómandi London City Ballett
er Harold King og hann segir sjálf-
ur að við stofnun flokksins, hefði
enginn trúað — síst af öllu hann
sjálfur — að ballettflokkur hans
yrði einn af þekktustu ballett-
flokkum landsins sem sífellt nyti
meira og meira hylli áhorfenda,
stöðugt jákvæðra umsagna og eft-
irspum eftir sýningum víða um
heim væri slík að ógjörningur
væri að verða við öllum óskum um
sýningar. Upphaflegt markmið
með stofnun ballettflokksins var
að veita ungum, hæfileikaríkum
en atvinnulausum dönsumm tæki-
færi til að sinna list sinni þann
stutta tíma sem ferill þeirra á svið-
inu stendur. King bætir því við
að öflugustu stuðningsmenn bal-
lettflokksins í upphafi hafi verið
foreldrar dansaranna sem studdu
með ráðum og dáð þetta tækifæri
sem þama veittist metnaðargjöm-
um bömum þeirra. Edward Thorpe
ballettgagnrýnandi sem fylgst hef-
ur náið með vexti og framforum
LCB segir einmitt að flokkurinn
hafí vaxið frá því að vera spenn-
andi og virðingarvert framtak —
en lítið meira — upp í það að verða
fullgiidur listdansflokkur þar sem
hver ný sýning sé listviðburður
sem sé allrar athygli verður og
standist samanburð við hvað sem
er. í dag eru þijátíu dansarar í
flokknum ásamt nauðsynlegu liði
starfsmanna svo ekki er um lítinn
árangur að ræða á aðeins tíu
árum.
Jane Selig.
London City Ballett á sér engan
ákveðinn heimavöll heldur byggist
starfið á stöðugum ferðalögum
innan Bretlands og utan. í upp-
hafi var markmiðið að sýna ballett
innanlands í borgum og bæjum
sem alla jafna njóta ekki sýninga
hinna þekktari ballettflokka en
eftir því sem hróður LCB hefur
vaxið hefur eftirspum aukist og
sýningar flokksins færst nær
miðju ballettheimsins í London og
víðar. Til marks um það er síðasta
starfsár flokksins þar sem dijúgur
hluti þess var sýningatímabil við
Sadlers Wells-leikhúsið í London
— heimkynni samnefnds ballett-
flokks sem staðið hefur í fremstu
röð í áratugi. Þó leggja stjómend-
ur LCB áherslu á að missa ekki
tengslin við uppmna sinn og er
hluta hvers starfsárs varið í sýn-
ingarferðir um Bretland eins og
áður.
London City Ballett hefur ætíð
leitað á önnur mið en þau hefð-
bundnu í leit að ijárhagslegum
stuðningi. Hafa stórfyrirtæki
bresk á borð við BP, Barclays
Bank, IBM og Citibank stutt við
bakið á flokknum auk þess sem
listráðið breska hefur látið fé af
hendi rakna við einstakar upp-
færslur. Stærstu tímamótin í þess-
um efnum urðu þó árið 1983 þeg-
ar Harold King tryggði sér opin-
beran stuðning Díönu prinsessu
Stephen Sheriff.
Prima Ballerína Marian St. Claire.
af Wales og hefur hún reynst
traustur bakhjarl og sinnt þessu
hlutverki sínu af áhuga og alúð.
Harold King er stjórnandi Lon-
don City Ballett og stofnandi
ásamt Marian St. Claire og Mic-
hael Beare. King er Suður-Afríku-
maður, fæddur í Durban, og hlaut
þjálfun sína við Ballettskóla Há-
skólans í Höfðaborg. Arið 1968
komst hann inn í CAPAB-ballett-
flokkinn í Höfðaborg og varð fljót-
lega einn af sólódönsurum flokks-
ins. Árið 1970 fluttist hann til
Englands og gekk til liðs við West-
em Theatre Ballett sem síðar fékk
fast aðsetur í Glasgow með viðeig-
andi nafnbreytingu og heitir síðan
Skoski ballettinn. Næstu árin
starfaði King jöfnum höndum sem
sólódansari og dansahöfundur
flokksins. Hann var um tíma dans-
ari við Óperuballettinn í Covent
Garden í London en hélt síðan til
Zimbabwe þar sem hann stjórnaði
Þjóðarballett Zimbabwe á fyrsta
starfsári hans en síðar hélt hann
aftur til Englands þar sem hann
tók þátt í stjórn og undirbúningi
hátíðarsýninga Victor Hochauser
við Royal Festival Hall í London
og einnig við sýningar Rudolf
Nureyev í London Coliseum. Árið
1978 stóð hann fyrir röð sýninga
í Arts Theatre við Leicester Squ-
are í London og mörkuðu þessar
sýningar upphaf þess ballettflokks
Steven Annegarn.