Morgunblaðið - 23.03.1989, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ FEMMTUDAGUR 23. MARZ 1989
17
Myllu Kobbi:
Brauðstrit og bar
átta á Siglufirði
Haförnimi:
Vinnsla hefst að
nýju eftir páska
Bæjaryfirvöld leggja fram hlutafé
Akranesi.
BÆJARRÁÐ Akranes hefur heimilað bæjarstjóra að semja við eig-
endur Hafarnarins um kaup á hlutafé í fyrirtækinu að því marki
sem nauðsynlegt er til að endurskipulagning á Qárhag þess geti
farið fram og starfsemi hafist að nýju. Fyrirtækið hefur átt við
verulega rekstrarerfiðleika að stríða á undanförnum mánuðum en
nú er gert ráð fyrir að vinnsla heQist á ný eftir páska.
FORLAGIÐ Myllu Kobbi, í sam-
vinnu við verkalýðsfélagið VSku
á Siglufirði, hefúr gefið út bókina
„Brauðstrit og barátta", eftir
Benedikt Sigurðsson, kennara á
Siglufirði. í bókinni er Qallað um
sögu byggðar og verkalýðs þar f
bæ. I forystu verkalýðshreyfing-
arinnar þar voru meðal annarra
þeir Einar Olgeirsson og Bryiyólf-
ur Bjarnason. Bókin er gefin út f
tilefni af 70 ára afinæli verkalýðs-
samtakanna á Siglufirði þann 29.
mars næstkomandi.
Gunnar Trausti Guðbjömsson,
annar aðstandenda Myllu Kobba,
sagði að þessi bók væri fyrra bindi
af tveimur og spannaði tímann frá
aldamótum fram til ára síðari heims-
styrjaldarinnar. „Aðaleftii bókarinn-
ar er verkalýðsbarátta á Siglufirði á
mesta umbrotatímanum í sögu
síldarbæjarins," sagði Gunnar
„ÞAÐ VAR mjög gott hjá okkur
á sunnudag en lokað á laugar-
dag,“ sagði Þorsteinn Hjaltason
fólkvangsvörður í Bláfjöllum.
Sagði hann að aðsókn hefði
verið ágæt þá daga, sem tekist
hefði að halda veginum opnum,
en það hefði gengið brösulega
það sem af væri vetri. Snjór
hefði aldrei verið jafii mikill í
Qöllunum. Að venju er búist við
fjölmenni um páskana enda'er
það aðal skíðahelgin. Má búast
við að hægt verði að skíða fram
á sumar ef vorið verður kalt.
„Það er kvartað yfir mörgu en
við ráðum ekki við snjóinn sem
Leitaði á
litla stúlku
MAÐUR leitaði á 10 ára gamla
stúlku í kirkjugarðinum við Suð-
urgötu um klukkan hálfátta að
kvöldi þriðjudags.
Stúlkuna sakaði ekki. ítarleg leit
lögreglu að manninum bar ekki
árangur.
Próflausir
unglingarí
árekstrum
FIMMTÁN ára piltur á númers-
lausri bifreið lenti f árekstri og
skemmdi tvo bíla á mótum Suð-
urlandsbrautar og Hallarmúla
laust fyrir klukkan níu í fyrra-
kvöld.
Lögregla varð var við ferðir
númerslauss bíls á Höfðatúni og
gaf ökumanninum merki um að
stöðva. Hann sinnti þvf ekki heldur
jók ferðina og reyndi að komast
undan austur Suðurlandsbraut.
Við Hallarmúla lenti hann í
árekstri við fólksbíl og þaðan kast-
aðist bíll hans á kyrrstæðan bíl.
Engan sakaði en bílamir skemmd-
ustnokkuð.
Á mánudag lenti 14 ára piltur
í minni háttar árekstri á Colt-bíl
á Grandagarði. Við hlið piltsins
sat eigandi bílsins.
Trausti. „Inn í þetta efni er ofíð
margvíslegum fróðleik úr almennri
sögu bæjarins, sögu þjóðarinnar og
sögu verkalýðshreyfíngarinnar al-
mennt á sama tímabili. Höfundurinn,
Benedikt Sigurðsson, hefur verið
búsettur á Siglufirði í 45 ár, tekið
þátt í margvíslegu félagsmálastarfi
og haft meiri eða minni persónuleg
kynni af flestu því fólki sem kemur
við sögu. Benedikt hefur unnið í sjö
ár að ritun þessarar sögu og safnað
ómetanlegum heimildum."
Gunnar Trausti sagði að mjög
væri vandað til útgáfu bókarinnar,
sem væri prýdd yfir 200 myndum.
„Siglufjörður var í brennidepli á þess-
um tíma og augu verkalýðs um allt
land beindust þangað. Verkalýðs-
hreyfingin þar þótti mjög illvíg og
tóku margir mið af henni. Þama fór
stefnumótun í verkalýðsmálum fram.
Siglufjörður var á þessum árum mið-
er óvenjulega mikill. Við þóttumst
góðir að geta verið búnir að opna
á sunnudag en við vorum allan
laugardaginn og fram á nótt að
moka og náðum ekki að moka til
Hafnarfjarðar, enda eru hér tak-
markað af tækjum, einn blásari
og tvær ýtur, sem ekki hafa und-
an. Hér fer enginn út með skóflu,"
sagði Þorsteinn. „Ég kalla gott
að við höfum geta opnað öðru
hvoru, vegna þess hvað snjórinn
er mikill í ár. Við erum ekki fyrr
komnir með allt í gang þegar
næsta ákast ríður yfír. Það tekur
ótrúlegan tíma að moka frá snjó-
troðurum og lyftunum, allt að
tveimur klukkustundum að ýta frá
sumum lyftunum og þá á eftir að
troða brekkumar. Þetta er algjört
met, ég man ekki eftir öðrum eins
snjó.“
stöð alþjóðlegra strauma í stjóm-
málum og bækistöð þeirra allra rót-
tækustu. Þama fóm mikil stéttaátök
fram,“ sagði Gunnar Trausti.
Bókin „Brauðstrit og barátta" er
444 blaðsíður og kemur í verslanir
eftir páskana.
Engin starfsemi hefur verið í
ffystihúsinu frá áramótum og verið
tvísýnt um ffamhaldið. Fyrirtækið
hefur að undanfömu leitað leiða til
að hefja starfsemi á ný og treysta
hag sinn. Nú er útlit fyrir að vinnsla
geti hafist á ný í kjölfar ákvörðunar
um allt að 100 m.kr. hlutafjáraukn-
ingu.
Fyrirtækið hefur séð 80 manns
fyrir atvinnu og með því að hefja
vinnslu að nýju léttir verulega á
atvinnuleysi á Akranesi. Eins og
áður sagði hefur bæjarráð heimilað
kaup á hlutafé til að stuðla að end-
urskipulagningunni og lögð hefur
verið fram beiðni Hafamarins hf.
og Akraneskaupstaðar til Byggða-
stofnunar um þátttöku Byggðasjóðs
í endurskipulagningunni. Jafnframt
er vænst eftir þátttöku fleiri aðila.
Endanleg niðurstaða hvað varðar
hlutafjárkaup einstakra aðila liggur
ekki fyrir en mun skýrast á næstu
dögum. í trausti þess að takist að
endurskipuleggja fjárhaginn mun
vinnsla heflast að nýju í frystihús-
inu_ strax eftir páska.
Á fundi bæjarráðs Akraness 16
mars. sl. vom málefni fyrirtækisins
til umræðu og var þá samþykkt að
leggja til við bæjarstjóm að stofn-
anir bæjarins, þ.e. bæjarsjóður,
hafnarsjóður, vatnsveita og rafveita
leggi kröfur sínar á hendur fyrir-
tækinu inn til Atvinnuþróunarsjóðs
Akraness þannig að meðferð hluta-
flárins verði á ábyrgð sjóðsins.
Að sögn Gísla Gíslasonar bæjar-
stjóra hafa bæjaryfirvöld lagt á það
veralega áherslu að koma rekstri
Hafamarins hf. af stað að nýju, auk
annarra fyrirtækja á Akranesi sem
hafa stöðvast. Væri vilyrði bæjar-
sjóðs um kaup hlutafé eitt skref í
þá átt að styðja við atvinnulífið í
bænum. Gísli sagði einnig að bæjar-
yfirvöld væntu þess jafhframt að
aðrir opinberir aðilar myndu hver
með sínum hætti gera það sem I
þeirra valdi stæði til að auðvelda
fyrirtækjum að endurskipuleggja
rekstur sinn og Qárhag.
m
Ábendingar frá
LÖGREGLUNNI:
Eigendaskipti ökutækja
Nú þarf fólk ekki lengur að umskrá þau notuð ökutæki sem
það festir kaup á. Skráningamúmer ökutækisins getur fylgt
því „ævilangt" ef svo ber undir. Með þessu er m.a. verið að
reyna að koma í veg fyrir það vandamál og óreiðu, sem hefur
fylgt vanrækslu á umskráningum.
Hins vegar er vert að vekja athygli á því að skylt er áfram
að tilkynna eigendaskipti á ökutækjum, sem skipta um eigend-
ur. Nauðsynlegt er að fólk geri sér grein fyrir þessu, því van-
ræksla á tilkynningu eigendaskipta getur haft vemleg óþægindi
í för með sér, sérstaklega fyrir seljandann. Ef eigendaskiptin
em ekki tilkynnt eins og ætlast er til koma gjaldseðlar, skatts-
eðlar, stöðugjaldseðlar, stöðumælagjaidseðlar o.fl. til innheimtu
á skráðan eiganda. Þess vegna er nauðsynlegt að seljandinn
búi svo um hnútana að gengið verði frá tilkynningu eigendaskip-
tanna í beinu framhaldi af sölunni, eins og ætlast er til varð-
andi tilkynningu til tryggingarfélags. Tilkynning um eigenda-
skipti til viðkomandi tryggingafélags er ekki síður nauðsynleg
og ætti enginn að láta ökutæki frá sér nema að hafa fullvissað
sig um áður að það hafi þegar verið tryggt á nýjan eiganda.
Þessi litla ráðstöfun í upphafí getur komið í veg fyrir ómæld
óþægindi síðar.
í reglugerð um skráningu ökutækja, sem öðlaðist gildi um
sfðustu áramót, segir að „verði eigendaskipti að ökutæki skal
bæði hinn fyrri eigandi og hinn nýji eigandi innan 7 daga senda
Bifreiðaskoðun íslands hf skriflega tilkynningu um eigendaskipt-
in, en hinn fyrri eigandi skal standa skil á tilkynningunni."
Nauðsynlegt er og að bílasalar búi svo um hnútana að tilkynn-
ing um eigendaskipti berist til Bifreiðaskoðunarinnar f hvert
sinn sem kaup og sala, eða bflaskipti, fara fram.
J.G.
Nú er rétti tíminn
.. .til aö fá sér myndbandstæki og auövitaö veröur Nordmende V-1405 fyrir valinu.
Þaö er með 14 daga/4 atriða upptökuminni, HQ-hágæða myndhausi, nífaldri
hraðspólun í báðar áttir, rafeindastýrðum myndstilli, kyrrmynd, ramma fyrir
ramma, sjálfvirkum upptökuleitara, barnalæsingu, ísl. leiðarvísi o. m. fl.
Og svo kostar það ekki nema 38.950,- kr. eða
Við töÍQim vd á móti þér!
36.980,
stgr.
Samkort
greiðslukjör til allt að 12 mán.
SKIPHOLT119
SIMI29800
Övenju mikill
snjór í Bláfjöllum