Morgunblaðið - 23.03.1989, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. MARZ 1989
21
ba5 fyrir opinbera
ad nota Macmtosh:
/ / /
RADIOBUÐIN: Ríkissamningurinn um magn-
kaup á Macintosh-tölvum hefur nú verið endur-
nýjaður. Samningurinn varð m.a. til þess að
salan þrefaldaðist og Macintosh varð mest selda
tölvan á Islandi í fyrra. Stofnun þín nýtti sér
þetta tilboð og nú eruð þið búin að nota Macin-
tosh í tæpt ár, Hafsteinn. Hvernig finnst þér hafa
til tekist? Ert þú ánægður?
Hafsteinn: Já, það er ég svo sannarlega. Það
sem hefur komið okkur mest á óvart er hve
mikið afköstin hafa aukist eftir að Macintosh-
tölvurnar voru teknar í notkun. Þessi aukning
nemur líklega 30 - 40% en það er ekki síður
athyglisvert að öll vinnubrögð hafa tekið
breytingum til hins betra og það er engu
líkara en Macintosh-tölvan beinlínis hvetji
menn til dáða. Fólk er mjög fljótt að ná tökum
á þessari tölvu. Löng og dýr námskeið sem oft
kostuðu jafnmikið og tölvan heyra nú sögunni
til. Við leggjum mikið upp úr því að losa
okkur við óþarfan kostnað.
RADÍÓBIJÐIN: Það er einmitt mikið um það
talað hve auðvelt sé að læra á og nota Macintosh-
tölvuna. Hver er ykkar reynsla?
Hafsteinn: Því er auðsvarað. Fólk er farið að
nota tölvuna strax á f}írsta degi og er yfirleitt
orðið fært í flestan sjó eftir viku. Þetta er
mikil breyting frá því sem áður var.
RADÍÓBÚÐIN: Kerfishugbúnaður Macintosh-
tölvunnar hefur verið íslenskaður. Finnst þér
það skipta máli?
Hafsteinn: Vissulega. Að mínu áliti ætti helst
allur hugbúnaður að vera til á íslensku og þess
vegna er ég mjög ánægður með það hversu vel
hefur til tekist við þýðingar á kerfishugbúnaði
Macintosh-tölvunnar, forritum og handbókum.
Islenskur hugbúnaður auðveldar líka nýjum
starfsmönnum að læra á tölvurnar.
RADÍÓBÚÐIN: Þið notið mörg forrit. Hver er
ástæðan?
Hafsteinn: Menn eru fljótir að læra á ný forrit
vegna þess að aðferðirnar eru alltaf þær sömu
og forritin hafa sama svipmót. Algengast er að
nýr notandi byrji á því að nota ritvinnsluforrit
en svo bætast töflureiknir og gagnagrunnsfor-
rit fljótlega við. Oft verður umbrotsforrit eins
og t.d. PageMaker næst fyrir valinu en slík
forrit gera mönnum kleift að setja upp texta
og myndir þannig að afraksturinn verði fag-
mannlegur. Þeir sem þurfa að styðjast við
myndræn gögn, t.d. glærur eða skjámyndir,
þegar þeir halda fyrirlestra nota svo nefnd
kynningarforrit með góðum árangri og svona
mætti lengi telja. Það hefur sýnt sig að menn
hafa að meðaltali 5-8 forrit á takteinum enda
er það auðvelt vegna þess að Macintosh-forrit
hafa þá sérstöðu að þau eru í grundvallar-
atriðum byggð upp á sama hátt og því er
auðvelt að yfirfæra kunnáttu sem menn hafa
aflað sér í einu forriti yfir á það næsta. Þetta
er í raun lykillinn að framförunum í
tölvunotkun starfsfólksins.
RADÍÓBÚÐIN: Hvernig hafið þið nýtt ykkur
samskiptamöguleika Macintosh við aðrar tölvur,
t.d. MS-DOS-vélar?
Hafsteinn: Við keyptum Macintosh-tölvurnar
til þess að leysa af hólmi eldri einmennings-
tölvur sem gátu ekki lengur fullnægt kröfum
okkar. Ein meginástæðan sem réði því að við
völdum einmitt þessar tölvur var sú að auðvelt
er að flytja gögn úr MS-DOS-kerfum yfir í
Macintosh-kerfi. Við fluttum mikið magn af
skrám úr ritvinnslukerfum, gagnagrunnum og
töflureiknum úr gamla kerfinu yfir í það nýja.
Samskipti við stórar tölvur ganga vel og
Radíóbúðin hefur tengt Macintosh-tölvurnar
við móðurtölvu okkar. Tenging við SKÝRR er
einnig fyrir hendi og nú er verið að setja upp
bankalínutengingar. Við stefnum ennfremur
að því að tengjast netinu hjá ÍSNETI í haust
og þá verður hægt að komast í samband við
nánast hvern sem er.
RADÍÓBÚÐIN: Að lokum, Hafsteinn, hvernig
líst þér á hið nýja tilboð Radíóbúðarinnar til
opinberra stofnana og starfsfólks þeirra um
kaup á Macintosh-tölvum á lægsta verði í Evrópu?
Hafsteinn: Reynsla okkar af Macintosh er svo
góð að það leikur ekki vafi á því að við
munum notfæra okkur þetta hagstæða tilboð
og bæta við tölvukost okkar.