Morgunblaðið - 23.03.1989, Page 23
MÖR1
JES.SI
01(1/
IMUÐHOM
23. MARZ 1989
23
Rannsóknarleiðangur
Árna Friðrikssonar:
Sjórinn
mjög kaldur
SJÓRINN á miðunum við landið
er mjög kaldur í vetur, líkt og í
fyrravetur. Þetta eru helstu nið-
urstöður leiðangurs sem rann-
sóknaskipið Árni Friðriksson fór
umhverfis landið 2. til 21. febrú-
ar siðastliðinn, segir í fréttatil-
kynningu frá Hafrannsókna-
stofhun.
Mælingar, sem gerðar voru í
leiðangrinum, sýndu að hlýsjórinn
fyrir Vesturlandi var í meðallagi
heitur, eða 4 til 6 gráður á Cels-
íus. Áhrifa hans gætti hins vegar
ekki fyrir Norðurlandi og þar ríkti
kaldur vetrarsjór, 1 til 2 gráða
heitur. Fýrir Austurlandi var einn-
ig 1 til 2 gráða heitur sjór. Hita-
stig grunnt með Suðurlandi var
fremur lágt og innst á Selvogs-
banka var það einungis 4 til 5
gráður á Celsíus.
Leiðangursstjórar voru Svend-
Aage Malmberg og Jón Ólafsson
en skipstjóri var Ingi Lárusson.
Fjórir
teknr við
innbrot
98 innbrot í
Reykjavík í mars
FJÓRIR piltar, 14-19 ára, voru
staðnir að innbrotum aðfaranótt
þríðjudags. Tveir þeirra voru
handteknir er þeir höfðu brotist
inn í söluturn við Hagamel. Hinir
tveir voru staðnir að innbroti i
skóverslun við Snorrabraut.
Óvenjumikið hefur verið um inn-
brot í Reykjavík undanfamar vikur
og mánuði, að sögn Friðriks Gunn-
arssonar aðstoðarjrfirlögregluþjóns.
Það sem af er marsmánuði hafa
98 innbrot verið kærð til lögregl-
unnar og að auki um 40 þjófnaðir.
Mælsku- og rök-
ræðukeppni ITC:
Stjarna
sigraði Fífu
ITC deildin Stjarnan úr Rangár-
þingi fór með sigur af hólmi í
mælsku- og rökræðukeppni
þriðja ráðs ITC á íslandi. Stjarna
sigraði ITC Fífu úr Kópavogi í
úrslitakeppninni sem fram fór
15. mars síðastliðinn.
Fífa mælti með þeirri tillögu að
Vestmannaeyjar yrðu gerðar að
sjálfstæðu ríki, en Stjama gegn og
var tillagan felld. Þetta er þriðja
árið sem þriðja ráð ITC (Intematio-
nal Training in Communication)
hefur mælsku- og rökræðukeppni á
milli deilda innan ráðsins. ITC
Björkin í Reykjavík sigraði í tveim
fyrstu keppnunum. Átta deildir eru
innan þriðja ráðs ITC á íslandi.
Lux fyrir aðeins kr.
14.670*
Við bjóðum öllum landsmönnum möguleika á ódýrum fargjöldum í sumar
til Kaupmannahaínar og Luxemborgar. Um er að ræða ákveðnar brottfarir
á tímabilinu 1. maí-30. september. Ofangreindar ferðir verða til sölu til
8. apríl á söluskrifstofum Flugleiða og ferðaskrifstofum. Lágmarksdvöl er
7 dagar, hámarksdvöl 21 dagur.
Leigja þarf bíl eða sumarhús samhliða.
Tökum undir hvatningarord forystumanna
verkalýðshreyfingarinnar og veljum íslenskt!
Allar nánari upplýsingar á söluskrifstofum okkar, í Lækjargötu 2,
Hótel Esju og Kringlunni, hjá umboðsmönnum
og ferðaskrifstofum.
* Fargjöld eru háð samþykki stjórnvalda.
FLUGLEIDIR
AUK/SlA k11M98-3«