Morgunblaðið - 23.03.1989, Page 26
26
MÓRÖUNBLADÍb ‘FIMMTÓfjAGUIÍ Í2fe. MÁRZ Í989
SVFÍ menn sækja nýjan bát til Bretlandseyja:
Var fagnað með
sekkjapípublæstri
í bænum KirkwaJl
SEX menn frá Slysavarnarfélagi íslands eru nú á siglingu á
nýjum björgunarbát SVFÍ frá Okmeyjum til Þórshafnar í Fær-
eyjum. Bátinn sóttu þeir til Buckie á norðanverðum Bretlandseyj-
um og sigldu honum fyrst til bæjarins Kirkwall á Orkneyjum
en þar hefur heimahöfn þessa báts verið f 20 ár. Við komuna
til Kirkwall var skipveijum fagnað með sekkjapípublæstri og
viðhöfii.
Hannes Hafstein framkvæmda-
stjóri SVFÍ er einn sexmenning-
ana. Er Morgunblaðið talaði við
hann í gærdag í Kirkwall sagði
hann að ferðin hefði gengið alveg
ljómandi vel. Á sunnudag hefði
verið athöfn um borð, í Buckie,
þar sem skipt var um þjóðfána
og félagsfána. Eftir það hefðu
íslendingamir síðan haldið, á
bátnum, á samæfíngu með systur-
félagi sínu í Buckie. í æfíngunni
tóku einnig þátt björgunarstöðin
McDuff á slöngubát í sinni eigu
og Sea-King þyrla frá Royal Air
Force í Lossiemouth.
Á þriðjudagsmorguninn var
síðan haldið af stað frá Buckie
með stefnuna á Krikwall. Við
komuna til Kirkwall var hinum
nýja björgunarbát þeirra eyja-
skeggja siglt út á móti sexmenn-
ingunum en síðan var athöfn á
hafnarbakkanum þar sem sam-
starfsmenn SVFI í Kirkwall tóku
á móti þeim.
Hannes Hafstein sagði að
slysavamafélagið í Krikwall þætti
vænt um, og væri ánægt með, að
þessi bátur skyldi fara til Islands
og þjóna áfram því hlutverki sem
hann var smíðaður til. Er Krik-
wall-búar létu hann frá sér um
mitt sumar í fyrra hafði hann
þjónað þeim í 20 ár og átti
skemmtilega sögu að baki. Á
þessu tímabili lenti báturinn, og
áhöfn hans, í 174 útköllum og
bjargaði 75 mönnum á land.
Báturinn er 70 tonn að stærð,
24 metrar á lengd og í áhöfn em
4-6 menn. Hann er sem fyrr grein-
ir sérsmíðaður sem björgunarbát-
ur og hét áður Grace Patterson
Richie. Hannes sagði að einn af
félögum þeirra í Krikwall myndi
sigla með þeim á bátnum til ís-
lands.
í fyrramálið er áformað að
koma til Þorshafnar í Færeyjum
en þar verður einnig farið til
Klakksvíkur. Frá Færeyjum verð-
ur síðan siglt til íslands og er
áætlað að koma til Reykjavíkur-
hafnar um kl. 16.00 á mánudag,
annan í páskum.
Hannes Hafstein sagði að sex-
menningamir biðu allir fyrir
kveðjur heim og óskuðu lands-
mönnum gleðilegra páska.
Keppendur ( Herra ísland gera stutt hlé frá æfingum í göngu og framkomu ( Dansstúdíói Sóleyj-
ar. Fremstir ( flokki eru, Þorsteinn Broddason og Hafsteinn Viðar Kristinsson, siðan Kristján Svan-
berg, Sölvi Fannar Viðarsson og Guðni Sigurðsson i miðjum hóp. Aftast eru Eli Þór Elísson, Hauk-
ur Gunnarsson, Gunnar Austmann og Eiður Eysteinsson. Á myndina vantar Sigurbjörn Hallgrims-
son og Gunnar Hilmarsson.
Ellefu keppendur valdir í Herra ísland
ELLEFU hafa verið valdir i
keppnina um Herra ísland, sem
fer fram á Hótel íslandi þann
6. aprfl nk. Átta keppendur eru
af höfuðborgarsvæðinu, en
einn keppandi kemur frá Vest-
mannaeyjum, annar frá
Keflavik og sá þriðji af lands-
byggðinni er frá Sauðárkróki.
Herramir sem taka þátt i
keppninni munu æfa um pá-
skana, bæði i likamsrækt og svo
þjálfa rétt göngulag og fram-
komu.
Hópurinn var valin, eftir að
farið hafði verið í gegnum mikinn
fjölda ábendinga, en keppnin er
skipulögð af Akureyringunum
Sveini Rafnssyni og Kristjáni
Kristjánssyni í samvinnu við tíma-
ritið Samúel.
Á lokakvöldinu á Hótel íslandi
munu þátttakendur koma fram í
íþróttafötum, sundskýlum og í
jakkafötum og mun fímm manna
dómnefnd velja Herra ísland, sem
tekur við nafnbótinni af Ámóri
Diego. Sá sem nafnbótina hlýtur
fær utanlandsferðarvinning frá
Útsýn, fataúttekt frá tískuversl-
uninni Valentlnó og allir keppend-
ur fá æfíngagalla og skó frá Adid-
as. Auk þess verður fjöldi annarra
verðlauna og valinn verður sá
keppandi, sem þykir besta ljós-
myndafyrirsætan.
Sigurður Helgason, stjórnarformaður Flugleiða:
Eignaraðild ríkis væri
afturhvarf til fortíðar
'O
SIGURÐUR Helgason, stjóraarformaður Flugleiða, er andvígur því
að rikið eignist á nýjan leik hlut i félaginu. „Ég teldi slíkt mikið
afturhvarf til fortiðar. Ég tel ekki að ríkið hafi neinu hlutverki
að gegna i rekstri eða stjóra þessa félags," sagði Sigurður i sam-
tali við Morgunblaðið. Ákveðnir hluthafar Flugleiða, eru þeirrar
skoðunar að það væri ákjósanlegt að rikið yrði á ný eignaraðili.
Heimildir Morgunblaðsins herma að meðal þeirra, sé stærsti hlut-
hafi Flugleiða, Eimskip, en Eimskip á 33,5% hlut i Fiugleiðum.
INNLENT
Sigurður sagði í ræðu sinni á aðal-
fundi Flugleiða í fyrradag að óæski-
legt væri að hlutabréf félagsins
væru á fárra höndum. „Kaup og
sala á þessum hlutabréfum er algjör-
lega frjáls, og því er ekki hægt að
Vestmannaeyjar:
Enginn nothæfur
fangaklefí í hálft ár
Stefnt að bráðabirgðalausn innan tveggja mánaða
ENGIR fangaklefar hafii verið
í Vestmannaeyjum frá því lög-
reglustöðin brann 6. október
síðastliðinn. í neyðartilvikum
hefur orðið að senda lögreglu
með menn til Reykjavíkur fiug-
leiðis, en oft er ófært milli lands
og Eyja. Samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins i Vestmanna-
eyjum hefur lögreglan, vegna
þessa aðstöðuleysis, orðið að
láta leika lausiun hala drakkna
menn sem hafii jaftivel verið
að reyna að kveikja f húsum.
Dómsmálaráðuneytið sendi i
haust gamlan lögreglubfl til
Vestmannaeyja sem ætlast var
til að yrði notaður sem fanga-
klefi, en lögreglan i Eyjum
hefur neitað að setja fanga í
bflinn, þvi þar yrði að hafa
handjáraaða menn við aðstæð-
ur sem lögreglan telur hættu-
legar. Dómsmálaráðuneytið
hefur tekið á leigu húsnæði i
Eyjum á meðan ný lögreglustöð
verður byggð þar sem gamla
stöðin stóð, en óljóst er hvenær
nothæf aðstaða verður komin
þar upp.
Þorleifur Pálsson í dómsmála-
ráðuneytinu sagði í samtali við
Morgunblaðið I gær að verið væri
að þrýsta á með bráðabirgðalausn
I málinu með því að leigja hús-
næði til bráðabirgða og koma þar
upp aðstöðu og fangageymslu
innan tveggja mánaða, en gert
er ráð fyrir að hlaða veggi fanga-
klefanna til þess að flýta verkinu.
Þá sagði Þorleifur að unnið væri
að framtíðarlausn með byggingu
nýrrar lögreglustöðvar á gamla
staðnum eða öðrum stöðum sem
til greina kæmu. Tryggingarbæt-
ur fengust fyrir gömlu stöðina
sem brann.
Samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins I Vestmannaeyjum er
mikill urgur í mönnum vegna að-
stöðuleysis lögreglunnar í jafn
stórum bæ. Lögreglan hefur ekki
getað sinnt neyðartilvikum nema
að takmörkuðu leyti síðan lög-
reglustöðin brann og enginn mað-
ur hefur verið settur í fangaklefa
í Eyjum í hálft ár þótt 150-200
menn hafí orðið að gista fanga-
klefaþar að jafnaði á ári um nokk-
urt árabil.
hafa neitt út á það að setja, að
menn kaupi og selji, en ég tel að
það sé æskilegra að hafa fleiri hlut-
hafa og dreifa hlutafénu," sagði Sig-
urður, er hann var spurður hvort
hann teldi að Eimskip væri orðinn
óhóflega stór hluthafí í Flugleiðum.
Sigurður kvaðst ekki telja það vera
af hinu góða að Eimskip væri orðinn
svona stór hluthafi.
Talsverður ágreiningur virðist
hafa verið í stjóm Flugleiða um það
hversu mikið bæri að auka hlutafé
fyrirtækisins. Ákveðnir stjómendur
fyrirtækisins munu hafa talið það
algjört lágmark að auka hlutaféð
um 200 milljónir króna, en hluthafar
eins og þeir sem em í Fjöleignar-
hópnum vildu alls ekki auka hlutaféð
um meira en 100 milljónir króna.
Sömu sögu er að segja um þá hlut-
hafa sem heyra til Orlofsdvöl hf. sem
upphaflega var stofnað í kring um
Starfsmannafélag Loftleiða.
Málamiðlun varð því niðurstaðan
og 150 milljón króna aukning var
ákveðin. Þessi ákvörðun var tekin
með stuðningi stjómarmanna Eim-
skips, en Sigurður Helgason, stjóm-
arformaður vildi ganga mun lengra
og stefna að 600 milljón króna hluta-
fjáraukningu á næstu þremur ámm,
sem líklega þýddi um 1200 milljónir
króna inn I reksturinn, þar sem talið
er að gangverð á slikum bréfum
yrði um tvöfalt nafnverð. Sigurður
varð undir í þessu máli.
Líklegast er talið að þeir hluthaf-
ar sem buðu ríkinu um 20% hlut til
kaups hafi þannig viljað tryggja sér
að þeir fái eins mikið fyrir hlutabréf
sín og mögulegt er, en að flestra
áliti munu hlutabréf eitthvað falla í
verði, nú eftir að hlutaijáraukningin
var ákveðin. Þeir sem Morgunblaðið
ræddi við í gær, telja að gangverðið
verði á næstunni um tvöfalt nafn-
verð, en ekki þrefalt, eins og það
er nú. Eigendumir sem vilja selja
ríkinu sinn hlut vilja fá fjórfalt nafti-
verð fyrir sinn hlut.
Það sem mun hafa vakað fyrir
þeim, með því að bjóða Ólafí Ragn-
ari Grímssyni, íjármálaráðherra sinn
hlut til kaups, er það að þeir leituðu
aðila sem væri í stakk búinn til þess
að kaupa svona stóran hlut, sem
gæti kostað um 280 milljónir króna,
fáist fjórfalt nafnverð.
Húsavík:
Þrír þekkt-
ir sjósókn-
arar látnir
Húsavík.
TVEIR þekktir og miklir athafha-
menn og sjósóknarar létust á
Húsavik í gær i hárri elli.
Héðinn Maríusson, tæpra 90 ára,
fæddur 18. desember 1899, stundaði
sjóinn í meira en 80 ár og var for-
maður og þekktur aflamaður. Hann
lætur eftir sig eiginkonu, Helgu Jóns-
dóttur, og varð þeim.9 bama auðið,
sem öll eru á lífi.
Bjami Ásmundsson, 86 ára, fædd-
ur 25. janúar 1903, stundaði ungur
sjóinn en síðustu starfsárín sá hann
um saltfískverkun fyrir útgerð sona
sinna. Hann var kvæntur Kristjönu
Helgadóttur, sem látin er fyrir
nokkrum árum. Þeim varð 6 sona
auðið og lifa 5 þeirra föður sinn.
Þriðji sjógarpurinn, Þorgrímur
Maríusson, bróðir Héðins, var jarð-
settur frá Húsavíkurkirkju, miðviku-
daginn 22. mars. Þorgrímur var 84
ára, fæddur 4. desember 1904. Hann
stundaði sjóinn alla sína ævi, var
hafnarvörður um tíma, en stundaði
sjóinn jafnframt á sinni trillu. Kona
hans sem látin er fyrir nokkrum
ámm var Matthea Sigurbjömsdóttir
frá Grímsey, en 8. böm þeirra lifa
foreldra sína. - Fréttaritari