Morgunblaðið - 23.03.1989, Page 27

Morgunblaðið - 23.03.1989, Page 27
nMORGUNBLAÐIÐt-FIMMTUÐAGUK.23. MARZ,1989 27 V etrarvertí ðin: Afli víðast hvar meiri en í fyrra ÞRATT fyrir ótíðina í vetur er afli báta á svæðinu frá Stykkis- hólmi tíl Hafiiar í Homafirði víðast hvar meiri frá áramótum en á sama tíma í fyrra. Netabát- ar frá Grindavík hafa fengið stóran þorsk, 5 til 10 kílóa þung- an, að undanförnu og bátar frá Akranesi hafa veitt þriggja til fjögurra kílóa þorsk uppi í land- steinum. Bátar frá Höfn í Horaafirði hafa hins vegar fengið mun minni afla frá ára- mótum en á sama tíma í fyrra og minni afla var landað f Sand- gerði í janúar og desember síðastliðnum en á sama tíma f fyrra. Afli báta frá Stykkis- hólmi og Vestmannaeyjum er svipaður og f fyrra. Stykkishólmur Bátar frá Stykkishólmi byrjuðu á netum fyrir hálfum mánuði og þeir hafa fengið svipaðan afla og á sama tíma í fyrra, að sögn Sól- rúnar Júlíusdóttir í Stykkishólmi. Hún sagði að í síðustu viku hefði aflahæsti netabáturinn, Þórsnes II, fengið um 63 tonn í 6 róðrum. „Meðalvigtin á fiskinum er um 6 kfló núna og hann er svipaður að stærð og í fyrra. Stærsti fískurinn í aflanum er 7 til 8 kfló en venjuleg- ur vertíðarfiskur er 5 til 6 kfló,“ sagði Sólrún Júlíusdóttir. Grundarfjörður Aflahæsti línubáturinn frá Grundarfirði, Haukaberg, landaði 192,4 tonnum eftir 29 sjóferðir í- janúar og febrúar síðastliðnum en 103,5 tonnum eftir 25 sjóferðir á sama tíma í fyrra. Aflahæsti neta- báturinn, Farsæll, landaði hins vegar 145,8 tonnum eftir 36 sjó- ferðir i janúar og febrúar síðast- liðnum en 98,3 tonnum eftir 36 sjóferðir á sama tíma í fyrra, að sögn Elísar Guðjónssonar hafnar- varðar á Grundarfírði. „Fiskiríið hefur verið lélegt eftir áramótin en þó skárra en í fyrra, enda var þá alger ördeyða," sagði Elís. „í mars hefur verið smávottur og netabátamir voru með um 60 tonn hver í síðustu viku. í alian vetur er búin að vera ótíð og það hafa verið stærri og harðari veður en maður hefur átt að venjast," sagði Elís Guðjónsson. Ólafsvík í Ólafsvík var 12. mars síðastlið- inn búið að landa 4.600 tonnum frá áramótum en 3.862 tonnum á sama tíma í fyrra, að sögn Jóhann- esar Ragnarssonar á hafnarvog- inni í Ólafsvík. „Vertíðin í fyrra var mjög léleg og það er varla hægt að segja að það hafí verið reytingsfískirí eftir áramótin í vet- ur. Hér eru búnir að vera nær samfelldir umhleypingar, rok og læti frá desemberbyijun," sagði Jóhannes Ragnarsson. Rif Aflahæstu bátar frá Rifí og Hellissandi höfðu um síðustu helgi fengið meiri afla frá áramótum en á sama tíma í fyrra, að sögn Leifs Jónssonar á hafnarvoginni á Rifi. Aflahæsti báturinn, Rifsnes, hafði um síðustu helgi fengið 530 tonn frá áramótum en 440 tonn á sama tíma í fyrra og næst aflahæsti báturinn, Ijaldur, tæp 500 tonn en 370 tonn í fyrra. „Það kom ioðna fyrir rúmri viku, þorskurinn hefur verið í henni og fiskiríið var ágætt í síðustu viku,“ sagði Leif- ur. „Ég hef búið á Snæfellsnesi í 30 ár en man þó ekki eftir að hér hafi komið eins langvarandi ótíð og í vetur. Tíðarfarið hefur verið fyrir neðan allar hellur," sagði Leifur Jónsson. Akranes Á Akranesi höfðu 19. mars síðastliðinn um 30 litlir bátar land- að 1.130 tonnum frá áramótum. Þetta er meiri afli hjá þeim en á sama tíma í fyrra, að sögn Ársæls Valdimarssonar á hafnarvoginni á Akranesi. Hann sagði að bátamir hefðu fengið helminginn af þessum afla síðasta hálfa mánuðinn. „Það er fískur hér uppi í landsteinum, mest þriggja til fjögurra kílóa þorskur," sagði Ársæll Valdimars- son. Keflavík í Keflavík lönduðu bátar 2.773 tonnum í janúar og febrúar síðast- liðnum en 2.552 tonnum á sama tíma í fyrra, að sögn Þórhalls Helgasonar á hafnarvoginni í Keflavík. Hann sagði að netabátur- inn Stafnnes væri aflahæstur frá áramótum og hann hefði verið kominn með 541 tonn á laugardag- Breyting á lögum um Seðlabanka samþykkt NEÐRI deild samþykkti í gær frumvarp til breytinga á lögum um Seðlabanka íslands og frumvarpið þvi orðið að lögum. Páll Pétursson, formaður Qár- hags- og viðskiptanefndar neðri deildar, mælti fyrir áliti meirihluta nefndarinnar. Lagði meirihlutinn til að frumvarpið yrði samþykkt eins og það hefði komið frá efri deild og skrifuðu auk Páls, þau Ámi Gunnarsson (A/Ne), Guð- mundur G. Þórarinsson (F/Rvk), Ragnar Amalds (Abl/Nv) og Kristín Einarsdóttir (Kvl/Rvk) (með fyrirvara) undir frumvarpið. Matthías Bjamason (S/Vf) mælti fyrir áliti minnihluta nefnd- arinnar, sem hann myndaði ásamt Hreggviði Jónssyni (B/Rn). í nefndaráliti þeirra segir að þær breytingar sem efri deiid gerði á „tæknilegum" atriðum í Seðla- bankalögunum ættu að vera til bóta en hins vegar væm þeir andvígir þeim ákvæðum sem sett hefðu verið inn í frumvarpið um bindiskyldu og takmörkun á vaxtahámarki. Að undanskildum þessum síðastnefndu breytingum teldu þeir að frumvarpið fæli í reynd ekki í sér mikilvægar breyt- ingar á Seðlabankalögunum. Kristín Einarsdóttir sagðist geta fallist á að sumar greinar frumvarpsins væm til bóta en hafði ekki mikla trú á að þessar breytingar á lögunum yrðu að nokkm gagni. Hún hefði valið að standa með þessu frumvarpi þó hún teldi það ekki skipta máli hvort það yrði samþykkt eða ekki. Spurði hún viðskiptaráðherra hvað átt væri við með því orða- lagi frumvarpsins að vextir ættu að vera „hóflegir". Jón Sigurðsson, viðskiptaráð- herra, sagði að þurft hefði að skerpa á nokkmm ákvæðum lag- anna án þess að breyta heildarfyr- irkomulagi vaxtamála. Varðandi spumingu Kristínar sagði ráð- herra að Seðlabankinn ætti að leggja huglægt mat á það hvað væm hóflegir vextir. Lánsfjárlög samþykkt LánsQárlög fyrir áríð 1989 voru samþykkt á Alþingi í gær. Umræða um frumvarpið stóð lengi fram eftir í neðri deild á þriðjudag og voru þar gerðar breytingar á frumvarpinu af stjórn- arliðum. Stjórnarandstæðingar fluttu Qölda breytingartillagna á þriðjudag en þær voru allar felldar. Þar sem neðri deild hafði gert breytingar á frumvarpinu þurfti það að fara til einnar umræðu í efri deild í gærmorgun. Nokkrar umræður urðu í efri óvíst að 100 m.kr. myndu duga. deild um þá breytingu sem neðri deild gerði á fmmvarpinu að heimila allt að 100 m.kr. erlenda lántöku vegna „skuldbreytinga sveitarfélaga og fyrirtækja þeirra". Jóhann Einvarðsson (F/Rn) sagðist ekki vera viss um að þetta væri rétta leiðin til að hjálpa sveitarfélögunum og taldi Halldór Blöndal (S/Ne) sagði að i öllum landshlutum ættu sveitar- félög í erfíðleikum þar sem þau hefðu tekið á sig þungar byrðar til að halda uppi atvinnu. Karl Steinar Guðnason (A/Rn) sagðist hafa miklar áhyggjur af þessari stefnu sem verið væri að taka upp og spurði hvort tilefnið væri að á næsta ári væra kosningar til bæj- arstjóma. Ætti að nota þetta láns- fé til framkvæmda sem hægt væri að flagga í kosningum? Jú- líus Sólnes (B/Rn) sagði þessa tillögu vera gjörsamlega fráleita og gæfí heimild til mikilla fram- kvæmda fyrir kosningar. Framvarpið var loks samþykkt með átta atkvæðum gegn tveim- ur. Fjórir þingmenn sátu hjá og sjö vora íjarstaddir. Samkvæmt frumvarpinu er fjármálaráðherra fyrir hönd ríkissjóðs heimilt að taka lán á þessu ári fyrir allt að 5.135 milljarða í eriendri mynt og fyrir 5,3 milljarða innaniands. Morgunblaðið/Kristinn Benediktsson Höfrungur II GK er afiahæstur Grindavíkurbáta og 15. mars slðast- liðinn var hann búinn að fá 553 tonn frá áramótum. inn. „Enda þótt veðrið hafí skánað er rólegt yfír þessu og frekar léleg veiði á gmnnslóð. Það er þokka- legt hjá línubátunum en frekar dapurt í netin," sagði Þórhallur Helgason. Sandgerði í Sandgerði lönduðu bátar 3.262 tonnum eftir 673 sjóferðir í janúar og febrúar síðastliðnum en 3.485 tonnum eftir 778 sjóferðir á sama tíma í fyrra, að sögn Sigurðar Bjamasonar hafnarstjóra í Sand- gerði. „Veðrið hefur gert okkur mikinn óleik í vetur og smærri bátamir hafa lítið getað róið. Það hefur hins vegar verið nokkuð sæmilegt fískirí þegar á sjó hefur gefíð oggott á línuna. Veðrið skán- aði í byijun mars og það hefur verið þokkalegasta fískirí í þessum mánuði," sagði Sigurður Bjama- son. Grindavík Fjórir aflahæstu bátamir frá Grindavík vom 15. mars síðastlið- inn komnir með samtals 2.057 tonn frá áramótum en á sama tíma í fyrra vom þeir búnir að fá sam- tals 1.529 tonn. Aflahæstur 15. mars síðastliðinn var Höfmngur II með 553 tonn en Skarfur var aflahæstur 15. mars í fyrra með 413 tonn, að sögn Sverris Vilbergs- sonar á hafnarvoginni í Grindavík. „Netabátamir hafa fengið stóran þorsk, 5 til 10 kílóa þungan, að undanfömu og þetta em miklu betri aflabrögð en í fyrra. Þetta skánaði um miðjan febrúar þegar tíðin lagaðist," sagði Sverrir Vil- bergsson. Þorlákshöfli Fimm aflahæstu bátamir frá Þorlákshöfn vom 12. mars síðast- liðinn búnir að veiða samtals 2.487 tonn frá áramótum en 1.666 tonn á sama tíma í fyrra. Jóhann Gísla- son var aflahæstur 12. mars síðast- liðinn með 749,087 tonn en 12. mars í fyrra var hann kominn með 501,490 tonn, að sögn Sævars Sig- ursteinssonar á hafnarvigtinni í Þorlákshöfn. „Tíðin var ægileg hér í vetur frá desemberbyijun og fram í miðjan febrúar. Það var alltaf vitlaust veður á þessu tímabili," sagði Sævar. Hann sagði að í afla stóm bátanna væri ívið meiri ufsi en í fyrra en litlu bátamir veiddu nær eingöngu þorsk upp við landið. Vestmannaeyjar „Ég held að stóru bátamir séu búnir að fá svipaðan afla og á sama tíma í fyrra,“ sagði Torfí Haraldsson í vigtarhúsi Vinnslu- stöðvarinnar í Vestmannaeyjum. Hann sagði að netabáturinn Krist- björg hefði um síðustu helgi veitt 605 tonn frá áramótum. „í janúar og febrúar í vetur var snarvitlaust veður en það hafa ekki verið mikl- ar frátafír vegna veðurs í mars. í netin er búið að vera ágætlega skarpt að undanfömu og Krist- björg var með 130 tonn í síðustu viku,“ sagði Torfí Haraldsson. Höfin í Hornafirði Hjá Kaupfélagi Austur-Skaft- fellinga á Höfn í Homafirði var landað 3.087 tonnum frá áramót- um til 18. mars síðastliðins en 4.349 tonnum á sama tíma í fyrra, að sögn Eiríks Marteinssonar á löndunarvoginni hjá KASK. „Hér var fádæma gæftaleysi í vetur frá desemberbyijun og fram í mars en tíðin er þolanleg núna. Fiskiríið er þó frekar tregt og það hefur verið lélegt hjá handfærabátunum. Fiskurinn hefur ekki tekið færi vegna loðnunnar héma,“ sagði Eiríkur Marteinsson. Holiday-Inn: Gjaldþrot tak- ist sala ekki fyrir helgina Greiðslustöðvunartímabil félagsins, sem rekið hefur Holiday- Inn hótelið við Sigt- ún, rennur út á laugardag. Hafi þá ekki tekist að selja hótelið mun verða beðið um gjaldþrotaskipti, strax á þriðjudag, samkvæmt heim- ildum Morgunblaðsins. Danskir og breskir menn em nú staddir hérlendis til að kanna kaup á hótelinu. Tilboð frá þeim hefur ekki borist enn. Bakslag er komið í viðræður við islenskan aðila um kaup á hótelinu. Tilraunir stjómenda hlutafé- lagsins til að fá hækkað um það bil 350 milljón króna tilboð bresku hótelkeðjunnar Tmstho- use-Forte hafa ekki borið árang- ur, samkvæmt heimiidum Morg- unblaðsins. Fáist ekki hagstæð- ara tilboð verður skiptarétti falið að taka endanlega afstöðu til tilboðsins. Félag íslenskra kjötiðnaðarmanna: Vinnubrögð fordæmd FÉLAG íslenskra kjötiðnaðar- manna álítur að Neytenda- samtökin hafi unnið illa að sýnatöku á kjötfarsi og nauta- hakki, þegar samtökin könn- uðu gerlafjölda í þessum vöru- tegundum. Þetta kemur firam í fréttatílkynningu frá félag- inu. „Til þess að hægt sé að fínna orsök á mengunarvaldi í fyrr- nefndum tegundum sem og öll- um kjötvömm verður að taka sýni á allri meðferð hráefnis frá sláturhúsi til neytendaumbúða,“ segir í tilkynningunni.þ Þar segir ennfremur að ekki verði komið auga á annan til- gang með sýnatökunni en þann, að gera þær stéttir sem vinna við matvæli tortryggilegar. Sagt er að Neytendasamtökin séu á rangri braut og „þau geri sér ekki grein fyrir tilgangi rann- sókna í matvælaiðn." segir í fréttatilkynningunni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.