Morgunblaðið - 23.03.1989, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. MARZ 1989
29
Bretland:
Kj ar norkuúr gangur til
Sellafield eða Doxmreay
St. Andrews. Frá Guðmundi Heiðari Frímannssyni, Créttaritara Morgunblaðsins.
NICHOLAS Ridley, umhverfismálaráðherra Breta, tilkynnti á þriðju-
dag að hann hefði veitt Nirex, opinberri stofhun sem sér um losun
kjarnorkuúrgangs, leyfi til að rannsaka Sellafield og Donreay. Ætl-
unin er að annar hvor staðurinn taki við öllum kjarnorkuúrgangi
fram á miðja næstu öld.
Það hefur lengi verið veikasti
hlekkurinn í stefnu yfirvalda um
almenningsnot af kjamorku að
vantað hefur stefnu um losun kjam-
orkuúrgangs. Nirex hefur verið að
athuga um nokkurt skeið, hvaða
staðir væru fysilegastir til að taka
við kjamorkuúrgangi. Nú er honum
komið fyrir í gamalli námu, Drigg,
sem er nálægt Sellafíeld. Hún verð-
ur notuð þar til nýr staður verður
tilbúinn.
Leyfið nær einungis til rann-
sókna, en ráðherrann hefur vald til
að veita stofnuninni leyfí til að hefja
framkvæmdir, sem þýðir að fram-
kvæmdimar yrðu ekki háðar leyfi
sveitarstjóma á hvomm stað. Til
að hefja rannsóknarboranir í
Dounreay verður að fá leyfi hjá
sveitarstjóminni þar. Neiti hún því,
gengur málið til Skotlandsmálaráð-
herrrans, Maocolms Rifkinds, og
talið er næsta víst að hann muni
veita leyfíð.
Nicholas Ridley sagði að á báðum
þessum stöðum væri nokkur stuðn-
ingur fólks við almenningsnot af
kjamorku. Talið er að staðarval
hafí ráðist af því að ekki er búizt
við miklum mótmælum á þessum
stöðum.
Rannsóknir beinast að því, hvort
bergi er heppilegt fyrir byggingu
geymslu kjamorkuúrgangs.
Geymslan á að vera steypt 500
metra undir yfírborði jarðar og ná
yfír 1.400 ferkílómetra svæði. Talið
er að hún muni kosta um 3 millj-
arða punda eða 270 milljarða
íslenzkra króna.
Nú em 5.000 fyrirtæki í Bret-
landi sem þurfa að losa sig við
geislavirkan úrgang. Hann fer allur
í þessa geymslu, þegar hún verður
fullbyggð. Talið er að á næstu 30
ámm falli til 4 milljónir tonna af
geislavirkum úrgangi í Bretlandi.
Búizt er við að niðurstaða úr
þessum rannsóknum liggi fyrir á
næsta ári. Þá verður ákveðið á hvor-
um staðnum geymslan verður
byggð og farið fram á byggingar-
leyfí árið 1991. Opinber rannsókn
mun að líkindum fara fram og varla
verða lokið fyrr en 1993. Bygging
gæti varla hafízt fyrr en 1995 eða
’96 og geymslan yrði tilbúin árið
2005.
Tíbet:
Kínverjar
gagnrýna
Dalai Lama
Peking. Reuter.
KÍNVERSK stjómvöld hafa
gagnrýnt Dalai Lama, trúar-
leiðtoga Tíbeta, harðlega og
sakað hann um að hafa verið
viðriðinn óeirðir í Tíbet, sem
kostuðu 16 manns lífið.
Fréttastofan Nýja Kína sakaði
Dalai Lama um að hafa sent út-
sendara, sem þjálfaðir hefðu verið
í Japan, til Tíbets til að skipu-
leggja mótmæli gegn kínverskum
stjómvöldum. „Stuttu eftir að við
komumst að þessu sendum við
skilaboð til Dalai Lama og kröfð-
umst þess að hann hætti þessu
hefði hann hug á að bæta sam-
skiptin við okkur,“ sagði Yan
Mingfu, háttsettur embættismaður
kínverska kommúnistaflokksins.
Stjómarerindrekar sögðu að
kínversk stjórnvöld hefðu hingað
til forðast að tengja Dalai Lama
við óeirðimar í Tíbet í von um að
viðræður gæti hafist um framtíð
Tíbets.
Dalai Lama hefur búið í útlegð
á Indlandi síðan hann flúði þangað
ásamt þúsundum fylgismanna
sinna eftir misheppnaða uppreisn
Tíbeta gegn Kínverjum árið 1959.
Reuter
Fjórir suður-afrískir blökkumenn yfirgefa vestur-þýska sendiráð-
ið í Pretoríu en þeir höfðu leitað þar skjóls til að kreQast þess
að fangar, sem eru i haldi án þess að réttað hafi verið i málum
þeirra, yrðu látnir lausir.
Suður-Afríka:
Fangar látnir lausir
Pretoríu. Reuter.
FJÓRIR suður-afriskir blökkumenn leituðu shjóls i vestur-þýska
sendiráðinu i Pretoríu á mánudag til að mótmæla handtökum án
réttarhalda, en þeir yfirgáfú sendiráðið í gær eftir að sljómvöld
höfðu lofað að láta ekki handtaka þá á ný.
Fjórmenningamir stmku af menningunum sagði að Adriaan
sjúkrahúsi, þar sem þeir vora í
meðferð eftir hungurverkfall. Þeir
höfðu lagt ffarn ýmsar kröfur,
meðal annars að allir suður-afrí-
skir fangar, sem fangelsaðir hafa
verið án réttarhalda, yrðu látnir
lausir. Þeir yfírgáfu fangelsið án
þess að hafa fengið öllum kröfum
sínum framgengt, en einn af fjór-
Vlok dómsmálaráðherra hefði
gefíð viss fyrirheit um að gengið
yrði að kröfum þeirra. Suður-
afrísk stjómvöld hafa látið 500
af 1000 föngum, sem handteknir
hafa verið án réttarhalda, lausa
eftir að nokkur hundrað fanga
hófu hungurverkföil 23. janúar.
BOSCH
ER BÍLLINN ÞINN
MEÐ BOSCH RAFKERFI?
.. BRÆÐURNIR
(W} ORMSSON HF
Lágmúla 9, sfmi: 38820
Kvennadeild Reykjavíkurdeildar
Rauða kross íslands
AÐALFUNDUR
deildarinnar verður ó Hótel Lind mánudaginn
3. apríl kl. 19.30.
Dagskrá:
1. Aðalfundarstörf.
2. Kvöldverður. c .,
btjornin.
Rauði Kross íslands
OPIMUIMARTÍMI
UM
PÁSKAIMA
SKÍRDAGUR 11.30 - 23.00
FÖSTUDAGURIMN LANGI LOKAÐ
LAUGARDAGUR 11.30-23.00
PÁSKADAGUR LOKAÐ
ANNAR í PÁSKUM 15.30 - 23.00
VIRKA, Kringlunni, flytur í stórt og glæsilegt husnæði í FAXAFEN112
laugardaginn 25. mars.
Sími 687477. Næg bílastæði.
Opnunartími frá kl. 9-18 og kl. 10-13 laugardaga.
Verið velkomin.
GLEÐILEGA
PÁSKA!
HÓTEL ESJU
SUÐURLANDSBRAUT 2
SÍMI 68 08 09
vispnso