Morgunblaðið - 23.03.1989, Side 58
-58
MORGUNBLAÐŒ) IÞROTTIR FTMMTUDAGUR 23. MARZ 1989
HANDKNATTLEIKUR / LANDSLIÐ
„Geram allt til
aðhalda
hópnum saman“
- sagði Helga Magnúsdóttirformað-
ur stúlknalandsliðsnefndar
STÚLKNALANDSLIÐIÐ íhand-
knattleik hefur að undanförnu
undirbúið sig af kappi fyrir
keppnisferð til Luxemborgar
og Hollands um páskana þar
sem liðið leikur fimm leiki.
Stúikurnar hafa œft stíft að
undanförnu undir stjórn dr.
Slavko Bambir landsliðsþjálf-
ara og Guðríðar Guðjónsdóttur
aðstoðarlandsliðsþjálfara og
að sögn Helgu Magnúsdóttur
formanns landsliðsnefndar
verður allt gert til að halda
hópnum saman og byggja
framtíðarlandsliðið í kringum
hann.
Stúlkumar munu leika tvo leiki
við félagslið í Luxemborg, en
síðan halda þær til Hollands þar
sem þær taka þátt í Beneluxis-
mótinu og leika þá
gegn landsliðum
Hollands og Belgíu
og hollensku félags-
liði. Stúlkumar hafa
staðið í fláröflun sjálfar til að standa
Bjöm
Blöndal
skrifar
straum af ferðakostnaðinum og eru
þær þessa dagana að selja bflrúðu-
merki og veifur sem eru sérstaklega
gerðar fyrir þær.
A fundi með foreldrum stúlkn-
anna í síðustu viku kom fram að
dr. Slavko Bambir landsliðsþjálfari
telur að liðið eigi mikla framtíð
fyrir sér og hefur hann mikinn
áhuga á að halda hópnum saman
og vera helst með æfingar á hveij-
um degi. Súlkumar hafa heldur
ekki látið sitt eftir liggja og hafa
þær að undanfömu mætt á 20 æf-
ingar á 27 dögum auk þess að
stunda fjáröflun.
Hópurinn samanstendur af 24
stúlkum, en fjórtán hafa verið vald-
ar í landsliðið sem keppir í Benelux-
is-mótinu. Að mótinu loknu heldur
hópurinn áfram að æfa, en liðið
mun taka þátt í Atlantic-keppninni
sem fram fer í Englandi í sumar.
A næsta ári em svo enn stærri
verkefni og er þar fyrst að nefna
Norðurlandamótið sem haldið verð-
ur hér á landi.
Morgunblaöið/Björn Blöndal
Stúlkurnar í stúlknalandsliðinu gáfu sér tíma til að skreppa í sund og slaka
örlítið í Sundlauginni í Njarðvík um síðustu helgi eftir erfiða æfíngarlotur. Á
myndinni eru einnig dr. Slavko Bambir landsliðsþjálfari, Guðríður Guðjóns-
dóttir aðstoðarlandsliðsþjálfari og Helga Magnúsdóttir formaður landsliðsnefnd-
Eftirtaldar stúlkur taka þátt I páska-
ferðinnl:
Markverðir:
Vigdís Finnsdóttir ICR
Aðrir leikmenn:
UMFN
UMFN
UMFN
Auður Hermannsdóttir UMFS UMFS
Gunnhildur Ólafsdóttir Gróttu
UMFÁ
KR
Þórunn Garðarsdóttir
Laugardaginn 25« mars I Háskólabíói.
ÍSLANDSMEISTARAMÓTIÐ
í VAXTARRÆKT 1989.
A - DEILDARKEPPNIN
MR. UNIVERSE
STEVE BRISBOIS
Verður " guestposer"
íslandsmeistaramótslns.
ATHUGIÐ
Forkeppni : 10.00 -12.00
Úrslitakeppni : 14.00 -16.30
CHúsið opnar kl 13.00)
Miðinn á úrsiitakeppnina
glldir sem happdrættismiði.
Veitt verða verðlaun
£yrir bestu stöður CpósurD
karla og kvenna.
Drengjaliðið:
Fimm leikir
um páskana
Steindór Gunnarsson, þjálf-
ari drengjalandsliðsins í
handknattleik, hefur valið hóp-
inn, sem leikur við Lúxemborg
á laugardag og sunnudag og
tekur síðan þátt í BENELUX-
IS-keppninni í Hollandi, þar sem
leikið verður gegn Belgíu, Lúx-
emborg og Hollandi. Leikmenn-
irnir eru:
Ingvar Ragnarsson, Stjömunni,
Sigurður Þorvaldsson, FVam,
Jóhann Ásgeir Baldursson,
UBK, Halldór Eyjólfsson, KR,
Óskar Óskarsson, Val, Jason
Ólafsson, Fram, Dagur Sigurðs-
son, Val, Karl Karlsson, KA,
Gunnar Kvaran, UMFA, Ragnar
L Kristjánsson, Fram, Ríkharð-
ur Daðason, UMFA, Patrekur
Jóhannesson, Stjömunni, Páll
Þórólfsson, Þrótti, Andri Sig-
urðsson, Fram, og Leó Hauks-
son, Fram.
Mm
FOLK
H WEST Ham keypti í gær-
kvöldi skoska framheijann Frank
McAvennie frá Celtic. Leikmaður-
inn var áður hjá West Ham, en var
seldur til Celtic fyrir 17 mánuðum
fyrir 725.000 pund. Lundúnaliðið
varð hins vegar að greiða 1.250.000
pund fyrir McAvennie nú. Hann
er 29 ára að aldri.
■ ARSENAL, efsta lið ensku
1. deildarinnar, hafði einnig áhuga
á að kaupa McAvennie. Leikmað-
urinn ræddi við George Graham,
stjóra Arsenal, í fyrrakvöld og
gærmorgun, en ákvað síðan að fara
aftur til West Ham, sem berst nú
hatrammri baráttu fyrir sæti sínu
í 1. deild. Þess má geta að McA-
vennie hefur skorað 17 mörk fyrir
Celtic í vetur þrátt fyrir að hafa
misst fímm vikur úr vegna vegna
handleggsbrots.
I HOWARD Wilkinson, stjóri
Leeds United, dró einnig upp tékk-
heftið í gær og keypti annan skosk-
an landsliðsmann, miðvallarleik-
manninn Gordon Strachan frá
Manchester United fyrir 300.000
pund. Strachan gerði þriggja ára
samning við Leeds. Hann er 32 ára.
I VESTUR-Þjóðvetjar sigmðu
Búlgari 2:1 í vináttulandsleik í
knattspymu í gærkvöldi. Leikið var
í Sofíu, höfuðborg Búlgaríu. Mörk
gestanna gerðu Rudi Völler (72.)
og Pierre Littbarski (87.) eftir að
Nikolai Iliev hafði náð forystu fyr-
ir Búlgari (46. mín.) Áhorfendur
vom 30.000.
■ A USTUR-Þjóðveijar og
Finnar gerðu jafntefli, 1:1, í vin-
áttulandsleik í knattspymu í Aust-
ur-Berlin í gærkvöldi. Mika Lipp-
onen náði forystu fyrir Finna á
29. mín. en Andreas Trautmann
jafnaði á 54. mín.
■ HOLLAND vann Sovétríkin,
2:1, í vináttulandsleik í gærkvöldi.
24 þús. áhorfendur sáu leikinn, sem
fór fram í Eindhoven. Marco van
Basten (sjöttu mín.) og Ronald
Koeman, úr vítaspymu á 85 mín.,
skomðu mörkin.
FRJALSAR IÞROTTIR
Tíu fara til Kýpur
NÍU frjálsíþróttamenn hafa
verið valdir til þátttöku í Smá-
þjóðaleikunum, sem haldnir
verða á Kýpur 17-20. maí nk.,
og tíundi keppandinn verður
valinn eftir úrtökuhlaup í nœstu
viku.
Þeir sem valdir hafa verið em
Jón Amar Magnússon HSK og
Súsanna Helgadóttir FH, sem
keppa í langstökki og spretthlaup-
um, Gunnar Guðmundsson UÍA og
Oddný Ámadóttir ÍR í spretthlaup,
Gunnlaugur Grettisson ÍR í há-
stökk, Martha Emstdóttir ÍR og
Már Hermannsson UMFK í lang-
hlaupum, Pétur Guðmundsson HSK
í kúluvarp og íris Gröntfeldt UMSB
í spjótkast.
Tíundi keppandinn verður milli-
lengdahlaupari, sem valinn verður
að loknu úrtökuhlaupi, sem fram
fer í næstu viku. Keppa því tíu
fijálsíþróttamenn á Smáþjóðaleik-
unum og nær allir keppa þeir á
alþjóðlegu fijálsíþróttamóti í Ni-
kósíu viku eftir að leikunum lýkur,
eða 28. maí. Aðstoðarmenn íþrótta-
mannanna verða Guðmundur Karls-
son, landsþjálfari FRÍ, og Ágúst
Ásgeirsson, formaður FRÍ.
Fimm æfa í London
FIMM tugþrautarmenn halda í
dag til London þar sem þeir
munu dveljast við œfingar á
Crystal Palace-frjálsíþrótta-
vellinum næstu tvær vikurnar.
Er það liður í sérstöku átaks-
verkefni Frjálsíþróttasam-
bandsins í fjölþrautarmálum.
Sexmenningamir eru Jón Amar
Magnússon HSK, Auðunn
Guðjónsson HSK, Gísli og Gunnar
Sigurðssynir UMSS og Unnar Vil-
hjálmsson UÍA. Þeim til aðstoðar í
æfíngaferðinni verður Þráinn Haf-
steinsson þjálfari, sem veitir tug-
þrautarverkefninu forystu ásamt
Emi Eiðssyni, heiðursformanni FRÍ
og Sigurði Bjömssyni, heiðursfé-
laga FRÍ.
Þá hélt sjötti tugþrautarmaður-
inn, Stefán Þór Stefánsson ÍR, einn-
ig nýlega utan til æfínga, en hann
dvelst þeirra erinda í Bandaríkjun-
um næstu sex vikumar.
Firmakeppni
Knattspyrnudeild Breiðabliks heldur sína árlegu firma-
keppni í innanhússknattspyrnu dagana 7., 8. og 9. apríl
í íþróttahúsi Digraness. Leikið samkvæmt nýjum reglum
K.S.Í. um innanhússknattspyrnu.
Þátttaka tilkynnist eigi síðar en 3. apríl til Ara s. 687600
og Björn Þór s. 691175. Þátttökugjald kr. 6500.
Mótsstjórn.