Morgunblaðið - 23.03.1989, Page 59
MORGUNBLAÐH) IÞROTTHR FIMMTUDAGUR 23. MARZ 1989
59
KORFUKNATTLEIKUR / ISLANDSMOTIÐ
Frábær liðsheild skóp
fyrsta Íslandstítil ÍBK
Jón Kr. Glslason þjálfari og
leikmaður Keflvikinga faer hér
flugferð að leikslokum. Strax og
flautað var til leiksloka gripu leik-
menn ÍBK þjálfara sinn og „toller-
uðu“ hann af miklum krafti. Jón
hefur leikið t meistaraflokki félags-
ins síðastliðin tíu ár — þetta er
fyrsti titillinn sem hann vinnur,
og má þvi með sanni segja að sig-
urinn hafi veri langþráður.
Morgunblaðiö/Einar Falur
KEFLVÍKINGAR tryggðu sér ís-
landsmeistaratitilinn í körfu-
knattleik í Keflavík í gærkvöldi
þegar þeir sigruðu KR 89:72 í
æsispennandi úrslitaleik. Þetta
var þriðji leikur liðanna og
hreinn úrslitaleikur þar sem
staðan var jöfn eftirtvo leiki.
Þetta erfyrsti íslandsmeistara-
titill Keflvíkinga í meistara-
flokki, en þeir hafa nú tekið
þátt í mótinu í 18 ár. Mikil
stemming var meðal áhorfenda
í íþróttahúsinu í gærkvöldi og
áttu þeir ekki hvað síst þátt í
sigri sinna manna.
ikil barátta var hjá báðum
liðunum og leikmenn þeirra
tóku á öllu sem þeir áttu. Liðin
skiptust á að leika pressuvöm og
^^■■■i svæðisvöm og vom
Björn KR-ingar sterkari
Blöndal fyrstu mínútumar,
skrífarfrá en Keflvíkingar
náðu síðan yfír-
hendinni og í hálfleik höfðu þeir
náð 15 stiga forskoti 45:30.
En þrátt fyrir að útlitið væri
ekki giæsilegt þá gáfust KR-ingar
ekki upp, þeir léku síðari hálfleikinn
af mikilli baráttu og áður en síðari
hálfleikur var hálfnaður hafði þeim
tekist að minnka muninn niður í
eitt stig, 65:64. En þá settu Keflvík-
ingar á fulla ferð aftur og undir
lokinn var sigur þeirra aldrei í
hættu. Tveir leikmenn urðu að fara
af leikvelli með 5 villur í síðari hálf-
leik, Sigurður Ingimundarsson ÍBK
og Matthías Einarsson KR.
Sigur Keflvíkinga var sanngjam
þeir iéku betur og áttu betri ein-
staklinga. Axel Nikulásson, Jón Kr.
Gíslason, Guðijón Skúlason, Nökkva
M. Jónsson, Albert Óskarsson, Sig-
urð Ingimundarson, Fal Harðarson
og Magnús Guðfínnsson — allt leik-'
menn sem geta skorað. Axel Niku-
lásson og Nökkvi M. Jónsson áttu
stórleik í liði ÍBK í gærvköldi; Axel
aldursforsetinn og Nökkvi yngsti
leikmaðurinn í liðinu. Þá voru þeir
Guðjón og Jón Kr. einnig mjög
góðir. En það sem skipti fyrst og
fremst sköpum var liðsheildin sem
tryggði liðinu íslandsmeistaratitil-
inn í fyrsta sinn í sögu félagsins.
Breiddin hjá KR er ekki eins
góð, sóknarleikurinn byggðist á
færri einstaklingum og þegar illa
gengur hjá þeim eru ekki margir
til að taka við. ívar Webster var
besti leikmaður KR í gærkvöldi
ásamt Guðna Guðnasyni, en aðrir
náðu sér ekki á strik. Keflvíkingar
lögðu mikla áherslu á að stöðva
Birgi Mikaelsson, fyrirliða KR og
þeirra skæðasta sóknarmann, og
það tók Birgi 13 mínútur að skora
sín fyrstu stig í leiknum.
íHémR
FOLK
■ ÞORSTEINN Bjamason,
fyrrum landsliðsmaður í knatt-
spymu og körfuknattleik, og nú
liðsstjóri IBK fékk góða afmælis-
gjöf s gær, þar sem íslandsmeist-
aratitillinn var. Þorsteinn hélt í
gær upp á 32 ára afmæli sitt.
■ LASZLO Nemeth þjálfari KR
vildi ekki ræða við blaðamenn eftir
•eikinn. Var mjög svekktur. Hann
þarf þó ekki að skammast sín — lið
KR hefur komið geysilega á óvart
úndir hans stjóm.
Hvað sögðu þeir eftir leikinn í Keflavík?
„Fórum einfaldlega í leik-
inn til að sækja bikarinn"
- sagði Sigurður Ingimundarson, fyrirliði nýbökuðu íslandsmeistaranna
Jón Kr. Gíslason, leikmaöur og
þjátfari ÍBK:
Þetta var ólýsanlegt og nokkuð
sem við höfum beðið lengi eftir.
Við lékum vel en áttum einn slæm-
an kafla, í síðari hálfleik, og þá var
ég í fyrsta sinn í vafa um að við
yrðum íslandsmeistarar. Annars
hef ég allan tímann, frá því að úr-
slitakeppnin hófst, verið sannfærð-
ur um að við yrðum íslandsmeistar-
ar. Það sem reið þó baggamuninn
var liðsheildin og það var alveg
sama hver var inni á. Allir léku
vel. Og það sem við höfðum kannski
fram yfír KR-inga var að við ætluð-
um að verða meistarar, sama hvað
það kostaði.
Nökkví Mðr Jónsson, ÍBK:
‘ Það hefur verið mjög gott að
koma inn í liðið og strákamir hafa
tekið einstaklega vel á móti mér.
Ég fann ekki fyrir pressu í leiknum
og færi mín voru það auðveld að
ég vissi að ég gæti skorað. Ég neita
því ekki að þeir voru nálægt okkur
um tíma en ég var ekki hræddur,
svo staðráðnir vorum við í því að
Sigurður Engimundarson, fyrir-
llði ÍBK:
Það sem skóp þennan sigur okk-
ar var sterk liðsheild. Við vorum
betri og okkar hópur var sterkari,
og það skipti engu máli hveijir voru
inni á. Við höfðum trú á okkur og
fórum einfaldlega í leikinn til að
sækja bikarinn.
Guðjón Skúlason, ÍBK:
Ég neita því ekki að þegar KR-
ingar höfðu minnkað muninn í eitt
stig var ég orðinn virkilega hrædd-
ur. En baráttan kom okkur áfram.
Við breyttum um vöm — spiluðum
svæðisvöm um allan völlinn — og
KR-ingar áttu ekki svar við því.
Þessi sigur var líka mikilvægur fyr-
ir okkur, því að þannig sýndum við
að við gerðum rétt í þjálfaramálum
okkar fyrr í vetur.
Axel Amar Nlkulásson, IBK:
Ég er ekki búinn að átta mig á
þessu ennþá. Þetta var ótrúlegur
sigur, en það sem skipti mestu var
að við höfðum meiri sigurvilja en
KR-ingar. Við áttum að vísu slæm-
an kafla enda erfítt að halda ein-
beitingunni svo lengi, en þá braut
Nökkvi ísinn og kom okkur aftur
af stað. Við höfðum mikla trú á
okkur, en það hefur vantað, og nú
fyrst eram við komnir á bragðið.
Matthías Elnarsson, KR:
Ég hélt að þetta væri að koma,
er við unnum upp fimmtán stiga
mun. En við eyddum of mikilli orku
í það og áttum ekki nógu mikið
eftir. Við hefðum líklega átt að róa
leikinn þegar munurinn var bara
eitt stig, en þó held ég að við höfum
fyrst og fremst tapað þessum leik
í fyrri hálfleik.
Guðni Guðnason, KR:
Við voram að vinna í seinni hálf-
leik, þegar munurinn var bara eitt
stig. Þá dæmdu þeir tvígrip á ívar
sem okkur fannst mjög vafasamur
dómur. Annars er ekki hægt að
kenna dómuranum um tapið og við
töpuðum leiknum sjálfur í fyrri
hálfleik. Ég held að við höfum átt
meiri möguleika á sigri f fyrsta
leiknum í Keflavik en núna. Annars
era Keflvíkingar vel að sigrinum
komnir og ég óska þeim til ham-
ingju.
—
IBK-KR 89 72
íþróttahúsið i Kcflavik, úrslitakeppni fslandsmótsins i körfuknattleik - 3. leikur - miðviku-
daginn 22. mars 1989.
Gangur leiksins: 0:6, 11:9, 18:18, 24:18, 29:22, 35:26, 41:26, 45:30, 52:34, 62:44,
64:44 54:61, 59:53, 65:56, 65:64, 71:64, 71:66, 78:66, 80:68, 87:70, 89:72.
Stig ÍBK: Guðjón Skúlason 21, Axel Nikulásson 17, N5kkvi Már Jónsson 16, J6n Kr.
Gisiason 12, Magnús Guðfinnsson 8, Sigurður Ingimundarson 6, Albert Óskarsson 5,
Falur Harðarson 4.
Stig KR: ívar Webster 18, Guðni Guðnason 17, Birgir Mikaelsson 14, Ólafur Guðmunds-
son 8, Jóhannes Kristbjömsson 6, Lárus Ámason 5, Matthias Einarsson 4.
Dómarar: Bergur Steingrímsson og Leifur Garðarsson, og komu þeir vel frá erfiðum leik.
Áhorfendur: 1.100.