Morgunblaðið - 04.04.1989, Side 1

Morgunblaðið - 04.04.1989, Side 1
56 SIÐUR B STOFNAÐ 1913 75.tbl. 77. árg. ÞRIÐJUDAGUR 4. APRIL 1989 Prentsmiðja Morgunblaðsins Styijaldarástand í Namibíu: S-AíWkumeim senda liðsauka Windhoek, Sameinuðu þjódunum. Reuter. EKKERT lát varð á bardögum í gær í Namibíu milli suður-afrísks herliðs og skæruliða úr Alþýðufylkingunni í Suðvestur-Afríku, SWAPO, sem í 23 ár hafa barist gegn yfirráðum Suður-Afríku- manna i Namibíu. Þá voru aðeins tæpir tveir sólarhringar liðnir frá því að ályktun Sameinuðu þjóðanna um vopnahlé gekk í gildi og SÞ tók við stjómartaumum. Suður-Afríkumenn hafa flutt mik- inn liðsafla til norðurhluta landsins þar sem barist er í návigi og með eldflaugum. Fjöldi Namibíumanna hafa flúið heimili sin á ófriðarsvæðinu og sjónarvottar sögðu að heilu þorpin stæðu í ljós- um logum. Alls hafa 140 manns fallið frá því á laugardag, þar af 122 skæru- liðar og 18 suður-afrískir hermenn. Suður-afríska lögreglan sagði að allt að 1.000 liðsmenn SWAPO hefðu gripið til vopna skömmu eft- ir að vopnahléð gekk í gildi á laug- ardag. Sam Nujoma, leiðtogi SWAPO, sagði á hinn bóginn að suður-afrískt herlið hefði ögrað uppreisnarmönnum í því augna- miði að hindra að ályktun SÞ nr. 435, um sjálfstæði Namibíu í kjöl- far kosninga í nóvember á þessu ári, næði fram að ganga. Nojoma skellti skuldinni á sér- legan sendifulltrúa SÞ í Namibíu, Martti Ahtisaari. „Fulltrúi SÞ ber ábyrgð á því að til átaka hefur komið. Hann hefur ekki séð til þess að eftirlitssveitir SÞ séu nægi- lega §ölmennar,“ sagði hann. Perez de Cuellar, aðalritari SÞ, sagði að hann hefði farið þess á leit við forseta Öryggisráðs SÞ., Sovétmanninn Aleksandr Belo- nogov, að hann kallaði saman fund í Öryggisráðinu. Pik Botha, utanríkisráðherra Suður-Afríku, sagði á laugardag að ef Perez de Cuellar veittist að Suður-Afríkustjóm og sakaði hana um upptökin að átökunum yrði friðargæslusveitum SÞ vísað frá Namibíu. Reuter Namibískir lögreglumenn taka íjöldagröf þar sem 40 skæruliðar úr SWAPO-aðskilnaðarsamtökunum voru jarðaðir. Þeir féllu í átökum við suður-afríska hermenn á laugardag skömmu eftir að vopnahlé gekk í gildi. Alls hafa 140 manns týnt lífi í átökunum. Kosovo: Hreinsanir vegna óeirða Belgrað. Reuter. Kommúnistaflokkurinn í Kosovo í Júgóslavíu hefur fyrir- skipað miklar hreinsanir í hérað- inu í kjölfar óeirða meðal Albana, sem kostuðu að minnsta kosti 24 menn lífið. Júgóslavneskur stjóm- málaskýrandi sagði að þetta væra einhveijar mestu hreinsanir í landinu eftir heimsstyrjöldina síðari. Fyrrum leiðtogi kommúnista- flokksins í Kosovo, Azem Vlasi, sem var handtekinn fyrir mánuði og sak- aður um gagnbyltingartilraun, var vikið úr flokknum. Ennfremur var þremur mönnum vikið úr stjóm- málaráði héraðsins og tveimur at- kvæðamiklum stjómmálamönnum var vikið úr flokknum. Embættis- menn sögðu að hundmðum mennta- manna yrði vikið frá á næstu vikum. Sjá „Slobodan, þú ert okkar hinsta von“ á bls. 23. Iðnríkin sjö: Einhugur um dollaragengið en ekki um skuldakreppuna Þróunarríkin styðja bandarísku tillöguna en Evrópumenn eru tvístígandi Washington. Reuter. Fjármálaráðherrar helstu iðn- ríkjanna eru sammála um hvernig koma eigi í veg fyrir of mikla gengishækkun dollarans en hins Gorbatsjov á Kúbu Reuter Míkhaíl Gorbatsjov Sovétleiðtoga var vel tekið þegar hann kom í sína fyrstu heimsókn til Kúbu síðastliðinn sunnudag. í gær áttu Gorbatsjov og Fidel Castro Kúbuleiðtogi, t.h., viðræður. Skömmu eftir komuna sagði Gorbatsjov á fundi með sovéskum og kúb- verskum fréttamönnum að heillavænleg þróun hefði hafist í ríkjum rómönsku Ameríku. „Gefum okkur örlítið meiri tíma og þá er ég viss um að sú lýðræðisþróun sem hafist hefur í þessum heimshluta muni eflast,“ sagði Sovétleiðtoginn. Heimsókn hans til Kúbu stendur í þijá daga. vegar virðast þeir ekki vera jafn einhuga um hvernig létta skuli skuldabyrðar þriðjaheimsríkj- anna. Er þetta meginniðurstaðan af fundum þeirra í Washington um helgina en þar er nú haldinn vorfúndur Alþjóðabankans og Al- þjóðagjaldeyrissjóðsins. I fréttatilkynningu frá íjármála- ráðherrum iðnríkjanna sjö, Bret- lands, Kanada, Frakklands, Ítalíu, Japans, Vestur-Þýskalands og Bandaríkjanna, segir, að til að halda dollaragenginu í skefjum verði seðla- bankar ríkjanna að auka dollara- framboðið. Brást japanski seðlabank- inn strax við með mikilli sölu og var sérstaklega til þess tekið þar sem hann hefur ekki selt dollara í mörg ár. Fyrir hálfu fjórða ári urðu leið- togar iðnríkjanna sammála um að halda dollaragenginu innan ákveð- inna marka til að unnt reyndist að koma á auknum jöfnuði í heimsvið- skiptunum. Nicholas Br'ady, fjármálaráðherra Bandaríkjanna, sagði á sunnudag, að fulltrúar hinna ríkjanna hefðu fallist á áætlun hans um aðstoð við skuldum vafin þriðjaheimsríki en evrópskir starfsbræður tóku illa und- ir það. Lagði Gerhard Stoltenberg, fjármálaráðherra Vestur-Þýska- lands, áherslu á, að kanna yrði áætl- unina nánar áður en hafist yrði handa. Bandaríkjastjóm hefur áhyggjur af, að skuldakreppan geti grafið undan lýðræðislega kjörnum stjórn- völdum í Suður-Ameríku og bendir á óeirðimar í Venezúela á dögunum sem víti til vamaðar. Áætlun Bradys er í aðalatriðum, að fé frá Alþjóða- bankanum og Alþjóðagjaldeyris- sjóðnum verði notað til að grynnka á skuldunum en Evrópumenn líta hins vegar þannig á, að hér sé um að ræða lítt dulbúna tilraun til að koma einkabönkunum til bjargar. Em það aðeins Japanir, sem hafa fallist á áætlunina, og Frakkar með hálfum huga. Fulltrúar þróunarríkjanna virðast hins vegar einhuga í stuðningi sínum við bandarísku tillöguna og er búist við, að Evrópumennimir fái orð í eyra reyni þeir að gera hana að engu. í skýrslu Alþjóðagjaldeyrissjóðs- ins, sem birt var í gær, segir, að það efnahagslega góðæri, sem ríkt hafi í rúm sex ár, sé í hættu verði verð- bólguþróunin ekki tekin föstum tök- um og meira jafnvægi komið á í heimsversluninni. Er bent á, að vaxtahækkanir og aukið aðhald í peningamálum hafi gert sitt gagn á síðasta ári en viðbúið sé, að grípa þurfi til harðari aðgerða. Hætt að skipa upp fiski í Aberdeen? St. Andrews. Frá Guðmundi H. Frimannssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. LÍKUR benda til þess að í Aberdeen í Skotlandi, sem íslenzk skip sigldu mikið til á árum áður, verði hætt að skipa upp og selja fisk á markaði eftir þessa viku. Sérréttindi hafiiarverkamanna standa í veginum. Hafnarverkamenn í 64 höfnum í landinu njóta þeirra sérréttinda, að það er ekki hægt að segja þeim upp störfum. Samkvæmt lögum frá 1947, sem ætluð voru til að tiyggja hafnarverkamönnum fasta vinnu, njóta hafnarverkamenn, sem eru sérstaklega skráðir, þeirra réttinda að sitja einir að allri vinnu í höfnun- um. Það er ekki hægt að segja þeim upp störfum nema með sam- þykki Sambands flutningaverka- manna, sem fer með samningsrétt allra hafnarverkamanna. í reynd hefur þetta þýtt að engum er hægt að segja upp. Aberdeen var mjög umsvifamikil fiskihöfn við Norðursjóinn. Um 1970 var 100 þúsund tonnum skip- að þar á land af fiski árlega. Áð líkindum verður fiskmarkaðnum lokað í næstu viku og 300 ára gamalli fisksöluhefð þar með lokið. Á síðasta ári var tap á fyrirtæk- inu, sem sér um uppskipun á öllum fiski í höfninni. Öllum hafnarverka- mönnum hefur verið sagt upp og segja forráðamenn fyrirtækisins að það geti ekki borið sig nema starfs- mönnum verði fækkað í 45, en nú starfa 78 hafnarverkamenn þar. Samband flutningaverkamanna, sem hafnarverkamenn eru félagar í, hefur ekki ljáð máls á uppsögnum nema gegn háum sektum og jafn- vel fangelsisvist. Samningar munu standa út þessa viku, en litlar líkur eru tald- ar á samkomulagi og allar horfur á að fiskmarkaðurinn loki.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.