Morgunblaðið - 04.04.1989, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. APRÍL 1989
3
ERT ÞÚ AÐ TAPA
RÉTTINDUM?
LÍFEYRISSJÓÐUR Dagsbrúnar og Framsóknar hefur nú sent öllum félögum
sínum yfirlit yfir lífeyrissjóðsiðgjöld á árinu 1988. Allt verkafólk, sem vann á
félagssvæði Dagsbrúnar og Framsóknar á síðasta ári, á að hafa fengið slíkt yfirlit.
HAFIR ÞÚ EKKI fengið yfirlitið eða ef því ber ekki saman við launaseðla og/eða
launamiða vegna skattframtals 1989, kunna iðgjöld þín að vera í vanskilum.
Þá skaltu hafa samband við skrifstofu sjóðsins eða skrifstofur Dagsbrúnar eða
Framsóknar.
VIÐ VANSKIL á greiðslum iðgjalda til lífeyrissjóðsins og sjóða Dagsbrúnar og
Framsóknar geta menn átt á hættu að tapa dýrmætum réttindum.
Þar á meðal má nefna:
Ellilífeyri
Örorkulífeyri
Makalífeyri
Barnalífeyri
Slysabætur
Líftryggingu
Rétt til húsnæðisláns
GÆTTU RÉTTAR ÞÍNS!
í lögum um starfskjör launafólks og skyldutryggingu lífeyrisréttinda
nr. 55/1980 segir meðal annars:
„Öllum launamönnum og þeim, sem stunda atvinnurekstur eða sjálf-
stæða starfsemi, er rétt og skylt að eiga aðild að lífeyrissjóði viðkom-
andi starfsstéttar eða starfshóps...Atvinnurekendum er skylt að halda
eftir af launum starfsfólks síns iðgjaldshluta þess og standa viðkomandi
lífeyrissjóði skil á honum ásamt mótframlagi sínu...“
Fylgstu með greiðslu iðgjalda þinna!
Líteyrissjóður Dagsbrúnar og Framsóknar, dSx Verkamannafélagið Dagsbrún, Verkakvennafélagiö Framsókn,
Suðurlandsbraut 30, Reykjavík Lindargötu 9, Reykjavík vjjjrají Skipholti 50A, Reykjavík
sími 84399 sími 25633 sími 688930
l