Morgunblaðið - 04.04.1989, Síða 18

Morgunblaðið - 04.04.1989, Síða 18
 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. APRÍL 1989 Tugir bfla lokaðir af fyr- ir mistök V egager ðar - segir fsak Ólafsson, bæjarstjóri á Siglufirði „UM TÍU bílar, sem voru á leið samtali við Morgnnblaðið. Hann gert,“ sagði ísak Ólafsson. sagði að bæjarráð SigluQarðar Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson. Gjafar var aflahæstur trollbátanna í Eyjum. til SigluQarðar á miðvikudag fyrir páska, voru lokaðir inni á Ketilási yfir páskana vegna mistaka Vegagerðarinnar á Sauðárkróki," sagði ísak Ólafs- son, bæjarsljóri á Siglufirði, í V estmannaeyjar: Þokkalegnr afli trollbáta VAotmanndAinnm V estmannaeyj um AFLI trollbáta sem gerðir eru út frá Vestmannaeyjum hefur verið þokkalegur í vetur þrátt fyrir erfitt tíðarfar. Lítið gekk framan af vertíðinni, vegna stöðugrar brælu, en mokafli fyr- ir páskastopp lyfti aflatölum vel upp. Flestir bátanna flytja afla sinn, eða hluta af honum, út í gámum og landa því sem heima er hjá fleiri en einum fiskverkanda þannig að erfítt er að fá nákvæmar tölur af aflamagni þeirra. Eftir því sem næst verður komist þá var Gjafar aflahæstur trollbát- anna í Eyjum um mánaðamótin með 370 tonn. Næst kemur Smáey með 335 tonn og síðan Álsey með 300 tonn. - Grímur Borgarfjörður: Vatnsflóð og 10 kindur drápust Grund. Skorradal. ^ Grund, Skorradal. EFTIR allt fannfergið sem verið hefiir hér síðan á áramótum, gekk hér mikið vatnsveður yfir að- faranótt föstudags með 5—7 stiga hita. Óhenyu vatnavextir urðu, allir skurðir og lækjarfarvegir fiillir af snjó. Á Indriðastöðum í Skorradal var aðkoman að útihúsum hrikaleg, því lækur og leysingavatn hafði brotið sér leið að húsunum og runnið inn í þau. í fjárhúsum flutu grindur upp og einar 20 kindur féllu niður I kjall- arann, 10 tókst að bjarga en 10 dráp- ust. í fjósinu stóðu kýmar í vatni upp fyrir lágklaufir, en haughúsið, sem er undir fiósinu fylltist. í hlöðunni varð einnig mikið tjón, því 30 sm djúpt vatn var á hlöðugólfinu en vatnið komst þar inn um súgþurrkun- arstokk. Súgþurrkunarblásari ásamt rafmótor í blásarahúsi, sem áfast er hlöðu, voru í kafi, 50 sm undir vatns- yfirborði. í fóðurbætisstíu var rúm- lega 1 tonn af lausu fóðri umflotið vatni. Kallað var á aðstoð frá Björgunar- hefði samþykkt ályktun vegna þessa máls þar sem áréttað væri að stjórnun snjómoksturs á Sigluíjarðarvegi yrði færð aftur til Siglufjarðar. Að sögn Jónasar Snæbjömssonar um- dæmisverkfræðings vegagerð- arinnar á Sauðárkróki, var slæmt veður þennan dag og ákváðu vegagerðarmenn að bíða eftir bifreiðum á leið til SigluQarðar frá Hofsósi en þeg- ar til átti að taka seinna um daginn var veðrið orðið það siæmt að ekki var hægt að koma við mokstri. Ekki tókst að ryðja veginn fyrr en á þriðjudegi eft- ir páska. „Bílalest, sem komin var til Ketiláss á miðvikudag, var bannað að leggja af stað til Siglufjarðar og skipað að bíða eftir annarri frá Hofsósi..Henni seinkaði hins vegar og bílamir lokuðust því inni á Ketilási,“ sagði ísak. Hann sagði að snjómoksturstæki frá Siglufirði hefði verið komið nærri því að Ketilási á skírdag en Vegagerðin á Sauðárkróki hefði bannað því að fara lengra. „Vegagerðin sagði einnig að mokað yrði á laugardag- inn fyrir páska en það var ekki „Svona eftirá séð má segja að bílamir, sem biðu í Ketilási hefðu komist leiðar sinnar til SigluQ'arð- ar, ef vegagerðin hefði fylgt þeim þangað strax,“ sagði Jónas Snæ- bjömsson. „Það má því segja að þetta hefi verið hálfgert slys að svona fór. En það er stefna vega- gerðarinnar að vera ekki að þvæl- ast mjög mikið fram og til baka þegar veðrið er slæmt, því snjórinn hleðst alltaf meira og meira upp við hveija ferð og veldur erfiðleik- um við moksturinn. “ Brotístinn í tvo skóla BROTIST var inn í Valhúsa- skóla og Mýrarhúsaskóla á Selfjarnamesi um helgina. í Valhúsaskóla var pening- um stolið og skemmdarverk unnin. í Mýrahúsaskóla vom skemmdarverk unnin. Þá var brotist inn í verslun í Árbæjarhverfi, en öryggis- vörður frá Vara, sem var á vakt í nærliggjandi bamaheim- ili, sá til þjófanna og hljóp ann- an þeirra uppi. • • Foreldrafélagf Olduselsskóla: Asökunum um pólitísk- ar ofeóknir vísað á bug Vatn flæddi inn í fjárhús og í Skorradal. Morgunblaðið/Davíð Pétursson 10 kindur drápust að Indriðastöðum sveitinni Oki og Slökkviliði Borgar- fjarðardala, sem brugðust fljótt og vel við, komu með vatnsdælur og traktorsgröfur, ræstu frá húsunum og dældu vatni út. Á Indriðastöðum búa Sveinn Sigurðsson og Inger Helgadóttir. - DP Morgunblaðinu hefur borist eftirfarandi athugasemd frá Foreldrafélagi Ölduselsskóla: Vegna fréttaflutnings undan- fama daga varðandi deilur í Öldu- selsskóla og yfirlýsingar skólastjóra Ölduselsskóla, Sjafnar Sigurbjöms- dóttur, og formanns fræðsluráðs, Ragnars Júlíussonar, sér stjóm Foreldrafélags skólans ástæðu til þess að koma á framfæri eftirfar- andi upplýsingum: Landssöfiiun Lionshreyfingarinnar: Brýn þörf á að létta undir með aðstandendum Qölfatlaðra - segir Guðmundur Þorsteinsson, formaður framkvæmdanefhdar Rauðu flaðrarinnar 1989 DAGANA 7. 8. og 9. apríl næskomandi munu um 3.400 Lions- menn um land allt ganga í hús og selja rauða Qöður, en ágóða af sölunni verður að þessu sinni varið til byggingar vistheimilis að Reykjalundi fyrir fjölfatlaða einstaklinga. Er þetta í fimmta skipti sem íslenskir Lionsmenn standa fyrir landssöfiiun með sölu rauðu Qaðrarinnar. Að sögn Guðmundar Þorsteins- sonar, formanns framkvæmda- nefndar Rauðu fjaðrarinnar 1989, var fyrsta landssöfnun Lions- hreyfingarinnar árið 1972, en þá var safnað fyrir augnlækninga- tækjum sem notuð eru á Landa- kotssptala. Árið 1976 var safnað fyrir sérstökum tannlækninga- búnaði fyrir þroskahefta, sem komið var fyrir á tannæknastof- um víðsvegar á landinu. Þriðja söfnunin var árið 1980, en þá var safnað fyrir skurðtækjum til eymalækninga við Borgarspítal- ann, og í fjórðu söfnuninni árið 1985 var safnað fyrir línuhraðli, sem var formlega afhentur í K- álmu Landspítalans um síðustu helgi. „Á landsþingi Lionshreyfingar- innar á Húsavík síðastliðið vor var ákveðið að safna fyrir byggingu vistheimilis fyrir fjölfatlaða ein- staklinga, sem ákveðið hefur verið að reyst verði á Reykjalundi. Sá staður varð fyrir valinu meðal annars vegna þess hve öll aðstaða þar sem hægt er að nota meðfram vistheimilinu er góð bæði. Má þar nefna þjálfunaraðstöðu, eftirlits- aðstöðu og alla aðra aðstöðu, sem er á margan hátt til fyrirmyndar í hvívetna," sagði Guðmundur. Að sögn Guðmundar munu um 3.400 Lionsmenn í 101 Lions- klúbb á landinu taka þátt í starfí við söfnurtina, en auk rauðu fjað- ranna, sem eru 130 þúsund tals- ins, verða einnig seldar borðmiða- öskjur og bréfapressur í formi glerhúss, sem er tákn fyrir vist- heimilið. Sölunni verður þannig háttað að Lionsmenn, sem auð- Guðmundur Þorsteinsson, formaður framkvæmdanefhd- ar Rauðu Qaðrarinnar 1989. kenndir verða með borða og rauðri flöður, munu ganga í hús og selja, en hver Lionsklúbbur hefur sitt ákveðna svæði til að selja á. Þá verður opið hús í skrifstofu Lions- hreyfíngarinnar í Sigtúni 9, og þangað getur fólk komið og keypt Qaðrir, ef þannig hittir á að við- komandi verður ekki heima þegar Lionsmenn koma í heimsókn. „Þátttaka í þessum söfnunum hefur almennt verið mjög góð hingað til, og við væntum þess sama að þessu sinni. Fólk hefur verið velviljað gagnvart þeim málefnum, sem safnað hefur verið fyrir, og má segja að þetta sé ánægjuleg vinna fyrir Lionse- menn að standa að þessu með þjóðinni. Ég vil þakka landsmönn- um fyrir góðar móttökur undan- farin ár og vonast til að margt smátt geri eitt stórt í þessu efni. Það er vissulega brýn þörf á að létta undir með aðstandendum fjölfatlaðra, og teljum við að þetta sé ákaflega þarft verk, sem við erum að leggja til að gert verði að þessu sinni með okkar fram- lagi,“ sagði Guðmundur Þor- steinsson. Fræðslustjórinn í Reykjavík og Fræðsluráð Reykjavíkur tóku þátt í að leysa deilur milli skólastjóra og kennara í september síðastliðn- um. Urðu þær deilur m.a. til þess að nýtt kennararáð var kosið við Ölduselsskóla. 19. október sl., þegar núverandi foreldraráð skipað 35 fulltrúum tók til starfa, voru áberandi samstarfs- örðugleikar enn fyrir hendi innan skólans. 14. desember sl., að undan- gengnum viðræðum stjómar for- eldrafélagsins við kennara og skóla- stjóra, var einróma samþykkt á fiindi foreldraráðs að óska eftir því við menntamálaráðuneytið að taka málið til athugunar til þess að firra frekari vandræðum. í byijun janúar fól fræðsluráð formanni ráðsins, Ragnari Júlíus- syni, að kynna sér ástand mála í Ölduselsskóla. í tengslum við þá könnun var stjóm foreldrafélagsins kölluð á fundi með Ragnari Júlíus- syni, annars vegar með kennararáði og hins vegar með skólastjóra og yfirkennara. Þar kom m.a. fram hjá Ragnari að þetta mál væri í höndum menntamálaráðuneytisins, sem mundi taka á því. Hans þáttur á þessu stigi væri að reyna að koma á sáttum milli skólastjóra og kenn- ara. Ragnar fól stjóm foreldrafé- lagsins að fylgjast með því að sam- komulag yrði haldið um frið á með- an rannsókn ráðuneytisins stæði yfir og jafnframt að þessum mál- um yrði haldið utan Qölmiðla. í lok janúar skrifaði stjórn for- eldrafélagsins Ragnari Júlíussyni bréf vegna blaðaskrifa af hálfu skólastjóra Ölduselsskóla. í ljósi þessara staðreynda þykir stjóm foreldrafélagsins yfirlýsingar Ragnars Júlíussonar og Sjafnar Sigurbjörnsdóttur undanfama daga í meira lagi kyndugar. Stjórn foreldrafélags Öldusels- skóla vísar einnig ásökunum um pólitfskar ofsóknir algjörlega til föð- urhúsanna, enda ber hún fullt traust til faglegrar meðferðar þessa viðkvæma máls í menntamálaráðu- neytinu. F.h. stjórnar, Leifur Benediktsson, ritari.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.