Morgunblaðið - 04.04.1989, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 04.04.1989, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. APRÍL 1989 29 Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra: Æfingin formlega til- kynnt í tíð forvera míns Enn einn ágreiningurinn á stjórnarheimilinu sagði Þorsteinn Pálsson Meiri hluti ríkisstjórnar andvígur æfingunni sagði Hjörleifur Guttormsson Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, sagði á Al- þingi í gær að uppákomur á stjórnarkeimilinu yrðu æ harð- ari. Hér hafi formaður þing- flokks Framsóknarfiokksins, forystuflokks ríkisstjórnarinnar, kvatt sér hljóðs utan dagskrár til að mæla gegn utanríkisráð- herra þessarar sömu ríkissljórn- ar. Tilefhið var krafa Páls Péturs- sonar, þess efhis, að utanríkis- ráðherra hafnaði beiðni um fyr- irhugaða heræfingu varnarliðs- ins hér á landi í sumar. Hjörleifur Guttormsson, Al- þýðubandalagi, sagði báða sam- starfsflokka utanríkisráðherra í ríkissfjórn — meirihluta ríkis- stjómarinnar — hafa Iýst sig andviga æfingunni. Jón Baldvin Hannibalsson, ut- anrikisráðherra, sagði að þessi hefðbundna æfing hafi verið formlega tilkynnt í tíð fyrri ríkis- sfjómar, 30. ágúst 1988, án sér- stakra mótmæla eins eða neins. Fyrstu upplýsingum um æfing- una hafi hinsvegar verið komið á framfeeri í október 1986. Hafna ber heræfingnnni Páll Pétursson, formaður þing- flokks framsóknarmanna, kvaddi sér hljóðs utan dagskrár á Alþingi í gær í tilefni af fyrirhugaðri vam- arliðsæfingu hér á landi komandi sumar. Páll kvaðst sammála • Steingrími Hermannsssyni, forsæt- isráðherra og formanni Framsókn- arflokksins, sem kallað hafi þessa ráðgerðu æfingu „tímaskekkju". Sagði þingmaðurinn það skoðun sína að utanríkisráðherra beri að hafna beiðni um æfinguna. Síðan lagði Páll fram fyrirspum- ir til utanríkisráðherra, efnislega á þessa lund: 1) Hvenær barst vamar- málanefnd ósk um heræfingu þessa? 2) Hvenær var beiðnin lögð fyrir utanríkisráðherra? 3) Hvar fer æfingin fram? 4) Hve fjölmenn verður hún? 5) Hvaða búnaður verð- ur notaður? 6) Hvaða dag verður liðið boðað til æfingarinnar? 7) Hve marga daga stendur hún? 8) Hvers lags lið verður til hennar kallað? 9) Hvaða tilgangi þjónar hún? 10) Hvaða tök em á því að koma í veg fyrir hana? 11) Hvaða umfjöllum hefur málið fengið í ríkisstjórn? Páll sagði að þessi fyrirhugaða heræfing hefði takmarkað gildi fyr- ir íslendinga. Sama máli gegndi um herstöðina. í gildi er varnarsamningur Jón Baldvin Hannibalsson, ut- anríkisráðherra, gerði stuttlega grein fyrir tilgangi aðildar íslands að Atlantshafsbandalaginu og varn- arsamningsins við Bandaríkin. Samkvæmt þessum samningi hafi Bandaríkin skuldbundið sig til að annast vamir íslands. Utanríkisráðherra sagði að varn- arlið, sem hér væri staðsett, hefði fyrst og fremst eftirlitshlutverk með ferðum herskipa, herflugvéla og kafbáta í grennd við landið. Þar að auki væri gert ráð fyrir sérstök- um liðsauka, ef hættu bæri að hönd- um. Þar kæmi m.a. við sögu sér- stakt varalið, skipað sjálfboðaliðum, sem hlyti sérstaka þjálfun til sfns mikilvæga hlutverks. Skammtíma æfingar þess hér á landi lytu hefð- bundnum reglum. Vamarliðsæfing- ar hafi farið reglubundið fram um langt árabil. Þorsteinn Pálsson Páll Pétursson Æfingin boðuð í október1986 Síðan svaraði ráðherra fyrir- spumum Páls Péturssonar. Efnisat- riði úr svömm hans fara hér á eftir: * Formleg tilkynning um þessa æfingu var bókuð á fundi varnar- liðsnefndar í tíð fyrri ríkissljórnar, 30. ágúst 1988, * Fyrstu upplýsingar um hana em þó eldri. Þær vóm lagðar fram á viðræðufundi í október 1986. * Formlegar upplýsingar um ein- stök atriði, sem utanríkisráðherra spurði sérstaklega um varðandi æfinguna, bámst í gær. * Æfingin fer fram á afmörkuðu svæði varnarliðsins. Aðeins sam- hæfing fjarskiptakerfis vamarliðs- ins og hins íslenzka almannavarna- kerfis nær út fyrir þau mörk. * Þátttaka í æfingunni er þrískipt: 1) Um 250 manna sveit úr stór- herfylki, 2) 800 manna varaliðs- sveit, 3) Hópur eftirlits- og yfir- manna, sem leggur mat á æfinguna og vinnur skýrslur um hana. * Búnaður: 45 ökutæki á hjólum (engin á beltum), nýtízku heijeppar og 5-tonna flutningabílar. Vopn: herrifflar og vélbyssur (engin þungavopn). Engu skoti verður þó hleypt úr byssu, aðeins notuð púð- urskot. * Lið sem þetta er boðað til æfinga með löngum fyrirvara, „einu og hálfu ári er mér nær að halda“. Ráðgert er að liðið leggi upp frá Bandaríkjunum aðfaranótt 18. júni nk. Jón Baldvin Hannibalsson Krístin Einarsdóttir * Æfíngartími: 15 dagar, aðalæf- ingin þó aðeins 3 dagar. * Æfingin þjónar fyrst og fremst þjálfun venjubundinna flutninga á liðsafla til landsins, sem og sam- hæfíngu liðs, sem fyrir er, og liðs, sem kemur sérstaklega til æfingar- innar. Æfingin nær m.a. til sam- hæfingar sjúkra- og hjúkrunarliðs og almannavarna, ef hættuástand skapast, og staðprófunar ijar- skiptakerfis vamarliðsins og heima- aðila. * Það er algjörlega á valdi íslenzks utanríkisráðherra að heimila æfing- una, innan ramma vamarsamnings- ins, eða hafna henni. Annað mál er að höfnun verður að byggja á mjög haldbærum rökum, svo lengi sem æfingin hefur verið undirbúin, með vitneskju íslendinga, og miklu til hennar kostað. * Málið var m.a. rætt í ríkisstjóm fyrir rúmri viku. Svör við fyrir- spurnum utanríkisráðherra, sem bámst eftir þann fund, verða kunn- gerð í ríkisstjóm, áður en formleg afstaða til æfingarinnar verður tek- in. Utanríkisráðherra gagnrýndi harðlega rangan fréttaflutning Q'öl- miðla af fyrirhugaðri, hefðbundinni æfingu, sem mörg fordæmi væm fyrir. Hann sagði að öll aðalatriði í frétt RÚV af æfíngunni, fluttri í tengslum við 31. marz, hafi verið ósönn. Allur vamarviðbúnaðar væri byggður á því að „búa sig undir það versta, um leið og menn vonuðu það bezta“. Hjörleifur Guttormsson Steingrímur Hermannsson Tíðar uppákomur í ríkisstjórninni Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, sagði uppá- komur á stjómarheimilinu tíðar og færast í aukana. Nú færi fundur þingmanna forystuflokks ríkis- stjómarinnar fram utan dagskrár í herför gegn utanríkisráðherra þess- arar sömu stjómar. Og tilefnið er að ráðherra fylgir fram hefðbund- inni stefnu í öryggis- og vamarmál- um þjóðarinnar; stefnu sem m.a. utanríkisráðherrar úr Framsóknar- flokki hafa fylgt. Þorsteinn minnti á að tekizt hafi verið á um það í þingflokki fram- sóknarmanna, hver vera ætti full- trúi þeirra í utanríkisnefnd Alþing- is. Þar hafi Páll Pétursson, foringi vinstri arms flokksins, lotið í lægra haldi. Hann spurði í hvers nafni Páll talaði hér og nú. Hefur hann umboð þingflokks Framsóknar- flokksins til málflutnings síns? Þorsteinn sagði það lengi hafa legið fyrir að til þessarar æfingar yrði efnt. Meðal annars hafi ítarlega verið sagt l'rá henni í Morgunblað- inu í nóvembermánuði sl. Þá hafi þingflokksformaður forystuflokks ríkisstjórnarinnar ekki séð ástæðu til úlfaþyts hennar vegna. Hvers vegna nú? Er hér um samleik vinstra arms Framsóknarflokksins og nýrrar forystu Alþýðubandalags, með rætur í Framsóknarflokki, að ræða? Em þessir aðilar að láta á það reyna, hve langt þeir komast með utanríkisráðherra Alþýðu- flokksins? í þessu sambandi las Þorsteinn upp frétt í Þjóðviljanum, þess efnis, að fyrirætlunum utanríkisráðherra um varaflugvöll hafi verið hnekkt. (Hér kallar utanríkisráðherra fram í: Það er óvarlegt að treysta heim- ildinni.) Tímaskekkja Steingrimur Hermannsson, forsætisráðherra, kvaðst fyrst hafa heyrt talað um það varalið, sem hér ætti að æfa, í ágústmánuði 1987. Því hafi verið komið á fót 1984 að höfðu samráði við utanríkisráðherra Islands. Ekkert sé athugavert við _ tilveru þess. Heræfíngar hafi og farið fram hérlendis bæði árið 1985 og 1987, enda ráðgerðar á tveggja ára fresti. Ráðagerðir um slíka æfingu 1989, þ.e. æfing af svipaðri stærðargráðu og hinar fyrri, hefðu ekki komið á óvart. Forsætisráðherra sagðist ætíð hafa lagt áherzlu á það að slíkar æfingar fæm fram með samþykki og í nánu samráði við íslenzk sýórn- völd. Hann hafi hinsvegar ekki heyrt meira um þessa æfingu fyrr en greint var frá henni í frétt RUV. Af hálfu varnarliðsins hafí verið haldið undarlega á þessu máli. Full- búnar upplýsingar hafi ekki borizt utanríkisráðherra fyrr en í gær. Þetta er ámælisvert. Forsætisráðherra vitnaði síðan til fyrri eigin ummæla þess efnis að heræfing af þessari stærðar- gráðu væri tímaskekkja. Móti hvers konar hermennsku Krístín Einarsdóttir, Kvenna- lista, sagði Samtökin hafa mót- mælt fyrirhuguðum, umfangsmikl- um heræfingum hér á landi sem hreinni óhæfu. Samtökin væra andvíg hverskonar hermennsku og vopnaskaki. Kristín sagði að stærsta hættan sem sneri að íslendingum nú væri vopnabúnaður á höfunum. Fréttir stæðu til þess að Sovétríkin hefðu dregið saman herflota sinn á N- Atlantshafi. Rangt væri að svara þeim viðbrögðum, sem og gagn- kvæmri afvopnun í álfunni, með auknu vopnaskaki hér á landi. Kristín vakti athygli á tvenns- konar afstöðu í Framsóknarflokki, annarsvegar formanns þingflokks- ins, hinsvegar formanns utanríkis- málanefndar, sem lýst hafi ánægju með fyrirhugað hernaðarbrölt í fjöl- miðlum. Þingmaðurinn lauk máli sínu með því að skora á utanríkisráðherra að leyfa ekki þessa fyrirhuguðu heræfingu, sem hér væri rædd. „ísland úr Nató — herinn burt“! H(jörleifur Guttormsson, Al- þýðubandalagi, tók undir mótmæli Páls Péturssonar gegn fyrirhugaðri heræfingu hér á landi í sumar. Ljóst væri að forsætisráðherra og for- maður Framsóknarflokksins, sem kallaði æfinguna „tímaskekkju", og formaður þingflokks framsóknar- manna mæltu gegn henni. Ekki færi heldur á milli mála að þingflokkur Alþýðubandalagsins væri henni eindregið andvígur. Ekki væri hægt að draga aðra ályktun en þá af þessum ummælum að meirihluti ríkisstjórnar landsins væri því andvígur, að ráðgerð her- æfíng Bandaríkjamanna fari fram. Þessvegna beri utanríkisráðherra að hafna beiðni um æfinguna. Heræfingin sjálf er þó ekki merg- urinn málsins, sagði Hjörleifur efn- islega, heldur aðild íslands að Atl- antshafsbandalaginu og vamar- samningurinn við Bandaríkin. Vitnaði þingmaðurinn til fundar herstöðvaandstæðinga, sem lýst hefði sig andvígan æfíngunni - og vildi „friðlýst Island“. Það er krafa samstarfsflokkanna til utanríkisráðherra, sagði þing- maðurinn, að hann komi í veg fyrir að heræfingin fari fram. Þegar hér var komið sögu gerði Hjörleifur hlé á ræðu sinni, en þing- fundi var frestað vegna þingflokka- funda. Ráðgert var að halda um- ræðunni áfram síðar í gærkveldi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.