Morgunblaðið - 04.04.1989, Side 30

Morgunblaðið - 04.04.1989, Side 30
30 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKQ’TI/ftlVINNUIÍF ÞRÍÐJUDAGUR 4. AÍ>RÍL 1989 Fyrirtæki Framtíðarlóð á Kleppsvíkursvæði á skipulagsstigi REKSTUR Tollvörugeymslunnar hf. var hagstæður á árinu 1988, að því er fram kom á aðalfundi félagsins sem haldinn var 16. mars sl. Rekstrartekjur jukust um 15,5% og námu tæpl. 93,5 milljónum króna á meðan rekstrargjöld jukust aðeins um 12,2% og námu um 84,7 milljónum. Hagnaður ársins varð liðlega 10,2 milljónir eða 35,3% hærri en árið á undan. Síðasta ár var ár mikilla breyt- inga í rekstri Tollvörugeymslunnar þar sem í gildi gekk um áramótin 1987/88 ný tollskrá sem olli veru- legum breytingum á þeim vöru- flokkum sem Tollvörugeymslunni hafði verið falin varðveisla á. Nokkrir vöruflokkar hurfu nánast alveg en vægi annarra jókst að sama skapi og nýting á húsakosti var eftir sem áður mjög góð, segir í skýrslu forstjóra, Helga Hjálms- sonar. Samdrátturinn sem varð á árinu kom fram í verulegri fækkun gáma. í fýrsta sinn í mörg ár varð samdráttur á úttektum og innlögn- um miðað við árið á undan en út- tektir á árinu urðu 82,506 en inn- Iðnaður Komatsu vökva- gröfurfram- leiddar á Italíu KOMATSU í Japan, sem er næst- stærsti framleiðandi vinnuvéla í heiminum sýndi meiri rekstrar- hagnað árið 1988 en áætlað hafði verið og spáð er að árið 1989 muni verða metár í sögu fyrir- tækisins, að sögn forráðamanna Bílaborgar, sem eru umboðs- menn fyrirtækisins á íslandi. Nýlega var undirritaður samn- ingur milli Komatsu og ítalska fyrir- tækisins FAI S.P.A. um að ítalimir hæfu framleiðslu í vor á litlum Komatsu vökvagröfum, sem hingað til hafa eingöngu verið framleiddar í Japan. Ennfremur var samið um að Komatsu seldi hluta framleiðsl- unnar undir sínu nafni í gegnum umboðsmannakerfí sitt. lögð skjöl alls 5,602. Verðmæti þeirrar vöru sem afgreidd var út úr Tollvörugeymslu nam 3,1 millj- arði króna. Fjárfestingar Tollvörugeymslu á síðasta ári námu alls um 16 milljón- um króna en þær vom að miklum hluta fólgnar í tölvukerfí fyrirtækis- ins og fjarvinnslu um gagnanet Pósts og síma sem gerir viðskipta- mönnum kleift að tengjast tölvu Tollvörugeymslunnar til að gera úttektarbeiðnir, fletta upp birgða- stöðu, tollskrá og gengistöflum. Nú er unnið að framtíðarskipu- lagi Tollvömgeymslunnar og þróun hennar. Framtíðarlóð undir starf- semina verður væntanlega á svo- kölluðu Kleppsvíkursvæði, sem af- markast af Skútuvogi, Brúarvogi og Holtavogi. Helgi Hjálmsson getur þess í skýrslu sinni að hlutabréf Tollvöm- geymslunnar hafí verið skráð hjá hlutabréfasölum og að undir lok síðasta árs hafí Verðbréfamarkaður VIB gert hlutabréfum hennar sér- stök skil í fréttabréfi sínu. Þar hafí komið fram að raungildi hlutabréfa Tollvömgeymslunnar væri van- metið, og þetta orðið til þess að eftirspum eftir hlutabréfum félags- ins jókst þegar í stað, svo að öll laus hlutabréf seldust upp. Á aðal- fundinum nú 16. mars var sam- þykkt að greiða hluthöfum 10% arð og gefa út jöfnunarhlutabréf fyrir 20% af núverandi hlutafé. Hlutafé Tollvömgeymslunnar í árslok var alls tæplega 88,5 milljón- ir króna á móti um 70,3 árið á undan. Eigið fé nam samtals 124,3 milljónum á móti um 105,1 milljón árið áður og heildareignir á efna- hagsreikningi vom 165,1 milljón á móti 146,8 milljónum árið 1987. VORUÞROUIM — Frá tveimur fyrirtækjanna sem þátt taka í vömþróunarátakinu og kynna nú nýja vöm, annars vegar Haraldur Friðriksson hjá Bakaríi Friðriks Haraldssonar og á hinni myndinni sjást tveir starfsmenn Tre§a hf. við vinnu. Iðnaður * Atta fyrirtæki kynna ár- angur vöruþróunarátaks VÖRUÞRÓNARÁTAK Iðntækni- stofnunar íslands verður nk. miðvikudag með kynningu á nýj- um vörum sem eru að koma á markað frá átta íslenskum fyrir- tækjum er þátt hafa tekið í þessu átaki. Fyrirtækin eru Treflar hf., Árblik hf., íslensk matvæli, Ópal, Drífa hf., Marska hf., Tex- still hf. og Bakarí Friðriks Har- aldssonar. Kynningin stendur yfir í 9 daga og fer fram á ann- arri hæð Kringlunnar. Vömþróunarátakið hófst fyrir rúmu ári og taka alls 24 fyrirtæki þátt í því. Markmið áttaksins er að aðstoða fyrirtæki við að þróa og markaðssetja vömr sem em sam- keppnisfærar á heimamarkaði og hæfar til útflutnings. Fyrstu vör- urnar í þessu átaki vom kynntar í maí í fyrra, en það vom álklæddir trégluggar frá Gluggasmiðjunni hf. og dýptar-, seltu- og hitamælar frá Hugrúnu hf. Á þessari sýningu kynnti einnig Bakarí Friðriks Har- aldssonar sína fyrstu vöm úr átak- inu sem vom flatkökur og fyrirtæk- A markaði Verðlagseftirtít ekkisama og gæðaeftirtít ið Tex-stíll sýndi þar nýja fatalínu. Stjórnendum fyrirtækjanna 24ra sem þátt tóku í vömþróunarátakinu var í byijun gefin kostur á náms- skeiði í vömþróun sem haldið var í Borgamesi. Á námskeiðunum var fjallað um gmndvallaratriði vöm- þróunar og mikilvægi stöðugrar nýsköpunar fyrir afkomu fyrir- tækja. Þetta námskeið var gmnnur að virku vömþróunarstarfi sem Karl Friðriksson, forstöðumaður átaks þessa af hálfu Iðntæknistofn- unar, segir hafa verið unnið af kost- gæfni í fyrirtækjunum. Auk þess hafí starfsmönnum þátttökufyrir- tækjanna verið boðið upp á kynn- ingu á mikilvægi vömþróunar og áhrifum hennar á rekstur og af- komu fyrirtækja. Hagnaður Totívöru- geymslu 10,2 m.kr. eftir Bjarna Sigtryggsson Hlutverk Verðlagsstofnunar er að gæta hagsmuna neytenda. Það gerir hún fyrst og fremst með því að hafa eftirlit með álagningu heild- sala og smásala og þróun útsölu- verðs. Birting verðkannana er ein- mitt talin mikilvægt verkfæri til að örva verðskyn hins almenna neyt- anda, sem ekki hefur tíma né tök á að valsa milli margra búða til þess eins að kanna hvar hið vara- sama Iqötfars er ódýrast hveiju sinni. Þessar aðferðir Verðlagsstofnun- ar vom góðar og gildar eftir stríð og allt þar til fríverslun hafði tekið gildi á fyrri ámm viðreisnaráratug- arins. En þá -skildu leiðir með að- ferðum Verðlagsstofnunar og þörf- um neytenda. Breyttir tímar — breyttarþarfír Þegar skömmtunarseðlar hurfu og höftum var aflétt og vömr urðu fáanlegar að vild hófst nýtt skeið í verslun landsmanna, þar sem sam- keppni hætti að verða einungis um verð, heldur tóku við nýir sam- keppnisþættir svo sem úrval, gæði og þjónusta. Þetta á að sjálfsögðu við um flesta þætti viðskipta nema verslun með búvömr. En úrvinnslu búvöm og þjónusta þar að lútandi varð hins vegar að sinna kalli tímans og taka þátt í samkeppninni um hylli neytenda, sem stöðugt nutu meiri velmegunaroggátu leyft sér að velja úr fjölbreyttu úrvali vamings og frístundaþjónustu. Hið leiðbeinandi hlutverk Verð- lagsstofnunar var kannski aldrei skilgreint í lögum um stofnunina né endurskoðað eftir að verslun varð frjáls. Á því væri hins vegar full þörf, og það sést best þegar stofnunin reynir nú að sinna hlut- verki sínu með því að bera saman framboð þjónustu eins og til dæmis á veitingahúsum. Þá koma í ljós annmarkar opinberra stofnana sem eiga að starfa í anda Max Webers og leggja einungis hlutlægt mat og gera samanburð á veittri þjónustu. Þá er ekkert hægt að nota til sam- anburðar nema veðrið. Munur á Pex og Saga Class En að gera samanburð á verði á tilteknum réttum á veitingastöðum og birta samanburðamiðurstöður í fjölmiðum eins og um væri að ræða sams konar þjónustu er álíka rétt- látt eins og að bera saman verð flugfarmiða á sömu flugleið, annars vegar pex-miða, hins vegar farmiða á viðskiptafarrými. Hið sameigin- lega er, að báðir miðar gilda til sama áfangastaðar. Að því leyti geta þeir talist sambærilegir. En að nánast öllu öðm leyti er um óskyldan vaming að ræða. Pex- miðinn bindur farþegann til að vera burtu um helgi, að ferðast einungis á fyrirfram fastákveðnum dögum og útilokar allar breytingar á ferðaáætlun, hversu brýn sem þörf á slíku kann að verða. Viðskiptafarrýmisfarþeginn ræð- ur sjálfur að fullu hvenær hann kemur og fer, hversu lengi hann verður og hann getur hvenær sem er á ferðalaginu breytt áætlun og farið til annarra staða. Hann borg- ar meira fyrir þetta en hann nýtur alls hagræðis. Og er þá ekki með- talinn sá þjónustumunur sem er um borð meðan á flugi stendur eða í biðstöðvum flughafna. Þess vegna er verðsamanburður óréttlátur og eins er ósanngjamt að auglýsa mikinn verðsamanburð á forréttum tveggja mjög ólíkra veitingastaða. Hægt væri með sama rétti að auglýsa nokkur þúsund prósenta verðmun á kjötrétti á matseðli tveggja veitingastaða í Frakklandi. Annars vegar á þriggja stjömu veitingahúsi Troisgros bræðranna, hins vegar hjá McDon- alds. Maður getur orðið saddur hjá báðum. En þar lýkur samanburðin- um. Stjömugjöf hug'lægt mat Það hefur reynst mjög erfítt að koma á hlutlægum samanburði á gæðum þjónustu. Hvers kyns stjömugjafakerfi hafa verið reynd á hótelum (allt að finmm stjömur) og á veitingahúsum (Michelin: Ein stjama táknar frábæran mat og þjónustu. Þijár stjörnur em eins konar nóbelsverðlaun). Stjömugjaf- ir verða samt alltaf nokkuð hlut- lægt mat, því þótt búnaður sé fyrir hendi og lágmarksskilyrðum full- nægt, þá getur verið himinhrópandi munur á gæðum tveggja hótela. Hið eina raunhæfa mat sem hægt er að leggja til grundvallar samanburði á þjónustu er kerfis- bundið mat fagmanna og síðan við- brögð neytenda. Víðast hvar eru gefnar út árlegar handbækur þar sem sérfróðir menn leggja mat sitt á gæði veitingahúsaþjónustu eða meta hina ólíku árganga allra helstu víntegunda, neytendum til leiðbein- ingar. Þegar slíkir fagmenn hafa áunnið sér traust sinna þeir þessu hlutverki betur en nokkur opinber verðlags- eða neytendastofnun get- ur. í Vestur-Þýskalandi og á Norð- urlöndunum annarsstaðar en hér á landi láta neytendasamtök gera hlutlægan samanburð á gæðum og endingu alls kyns iðnvarnings og sérrit á ýmsum sviðum gera það sama, svo sem lesendur tölvurita þekkja. Neytandinn leiddur í björg Þrátt fyrir ýmsa fyrirvara sem Verðlagsstofnun birtir um kannanir sínar, þá fer ekki hjá því að í ein- földunartilhneigingu rafeindafjöl- miðlanna og fyrirsagnaþörf lausa- sölublaða verða þeir aukaatriði. Verðsamanburðurinn einn og hrár verður fréttin.. Afleiðingin verður sú að neytand- anum er villt sýn, og hann ríður eins og Ólafur liljurós í björg, þar sem álfameyjar selja ódýra kjötrétti úr kólímettuðu farsi. Höfundur er markaðsfræðingur og skrifarjafhaðarlega um mark- aðsmál i Morgunblaðið. Karl segir að hvað varði frekari fræðslu í fyrirtækjunum þá verði boðið upp á eins dags rtámskeið 17. apríl nk. þar sem fjallað verður um hvernig fyriitæki geta sinnt vöru- þróun á kerfísbundinn hátt og gert hana að sjálfsögðum hluta af stjóm- skipulaginu. Karl segir að nýsköpun og stöðug leit að nýjum rekstrar- tækifæmm kalli á að vöruþróun sé eðlilegur hluti daglegrar starfsemi fyrirtækjanna, en þetta gerist ekki fyrr en vömþróun hafi fengið eigin sess í stjómskipuriti fyrirtækjanna. Að sögn Karls hefíir verið leitað víða eftir hæfum leiðbeinanda á þessu sviði. Fyrir valinu varð Lars Hein sem vinnur við Instituttet for Produktudvikling í Lyngby í Dan- mörku. Lars Hein hefur ásamt M. Mymp Andreasen gefið út bókina Integreret Produktudvikling sem Karl segir viðurkennt kennslurit á sviði vömþróunar þar sem lögð er áhersla á að aðlaga vömþróunar- starf að annarri starfsemi lítilla og meðalstórra fyrirtækja. Þeim fyrir- tækjum sem áhuga hafa á að fá Lars Hein til að leggja mat á þau vinnubrögð sem viðhöfð em í dag, gefst síðan kostur á slíkri ráðgjöf síðar á árinu. Námskeiðið verður einnig boðið fyrirtækjum utan átaksins 18. apríl nk. og kvað Karl það von skipuleggjenda að sem flest fyrirtæki nýttu sér þetta einstaka tækifælri til að huga að starfssviði sem alltof oft sitji á hakanum í rekstri íslenskra fyrirtækja — vöm- þróun og framkvæmd hennar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.