Morgunblaðið - 04.05.1989, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR:4. MAÍ 11989
B 3
HVAÐ
ER AÐO
GERAST (
Söfn
Árbæjarsafn
Árbæjarsafn er opiö eftir samkomulagi.
Hægt er að panta tíma í síma 84412.
Árnagarður
í Árnagarði er handritasýning þar sem
má meðal annars sjá Eddukvæði, Flateyj-
arbókog eitt af elstu handritum Njálu.
Ásmundarsafn
í Ásmundarsafni er sýningin Abstraktlist
Ásmundar Sveinssonar. Þar gefur að líta
26 höggmyndirog 10 vatnslitamyndir
og teikningar. Sýningin spannar 30 ára
tímabil af ferli Ásmundar, þann tíma sem
listamaðurinn vann að óhlutlægri mynd-
gerð: í Ásmundarsafni er ennfremur til
sýnis myndband sem fjallar um konuna
í list Ásmundar Sveinssonar. Þá eru til
sölu bækur, kort, litskyggnur, myndbönd
og afsteypuraf verkum listamannsins.
Safnið er opiö daglega frá kl. 10 til 16.
Hópargeta fengið að skoða safnið eftir
umtali.
Listasafn Einars
Jónssonar
Listasafn Einars Jónssonar er opið alla
laugardaga og sunnudaga kl. 13.30—16.
Höggmyndagarðurinn er opinn daglega
frákl. 11.00-17.00.
Listasafn íslands
í Listasafni (slands (sölum 3 og 4) stend-
ur nú yfir sýning á verkum sænsku lista-
konunnar Hilmu af Klint (1862—1944). Á
sýningunni eru m.a. abstraktverk, olíu-
málverk og vatnslitamyndir, sem Hilma
vann í miöilsástandi frá árinu 1906. Al-
menn leiðsögn um sýninguna ferfram í
fylgd sérfræðings á sunnudögum kl. 15.
í sal 1 og 2 eru sýnd málverk eftir íslenska
myndlistarmenn. Listasafn Islands er
opið alla daga, nema mánudaga, kl.
11—17. Aðgangur og auglýstar leiðsagn-
ir er ókeypis. Veitingastofa safnsins er
opinásamatíma.
Safn Ásgrfms
Jónssonar
Safn Ásgríms Jónssonarvið Bergstaða-
stræti er opið frá 1. maí alla daga nema
mánudaga kl. 13.30—16.00. Nú stendur
yfir sýning á vatnslitamyndum eftir
Ásgrím.
Listasafn Háskóla
íslands
I Listasafni Háskóla fslands í Odda eru
til sýnis 90 verk í eigu safnsins. Lista-
safnið er opiö daglega kl. 13.30—17 og
er aögangur ókeypis.
Minjasafnið Akureyri
Minjasafnið á Akureyri ertil húsa við
Aðalstræti 58. Safniö er opið á sunnu-
dögumfrákl. 14—16. Á Minjasafninu
má sjá ýmis konar verkfæri og áhöld sem
tengjast daglegu lífi fólks áðurfyrrtil sjáv-
ar og sveita. Einnig er margt muna sem
sýna vel menningu og listiönað íslenska
sveitasamfélagsins s.s. tréútskurður, silf-
urmunir, vefnaöur og útsaumur. Einnig
er á safninu úrsmíða-, skósmiða- og
trésmíðaverkstæði frá fyrri tíð. Þá má
nefna gamla kirkjumuni s.s. bænhús-
klukku frá því um 1200. Á minjasafninu
ereinnig hægt að skoða gamlar Ijós-
myndir og á lóð safnsins stendur gömul
timburkirkjafráárinu 1876.
Listasafn Sigurjóns
Ólafssonar
Yfirlitssýning á 50 verkum Sigurjóns, þar
á meðal eru myndir sem hafa aldrei áður
verið sýndar á Islandi. Safnið og kaffistof-
an eru oþin laugardaga og sunnudaga
kl. 14—17. Tekið erá móti hópum eftir
samkomulagi.
Myntsafnið
Myntsafn Seðlabanka/Þjóðminjasafns er
í Einholti 4. Þarer kynnt saga íslenskrar
peningaútgáfu. Vöruseðlar og brauð-
peningar frá síðustu öld eru sýndir þar
svo og oröurog heiðurspeningar. Lika
erþarýmisforn mynt, bæði grísk og
rómversk. Safnið er opiö á sunnudögum
milli kl. 14og 16.
Póst- og
símaminjasafnið
(gömlu símstöðinni í Hafnarfirði er núna
póst- og símaminjasafn. Þar má sjá fjöl-
breytilega muni úr gömlum póst- og
símstöðvum og gömul símtæki úreinka-
eign. Aðgangur er ókeypis en safnið er
opið á sunnudögum og þriðjudögum
milli klukkan 15 og 18. Hægt er að skoða
safnið á öðrum tímum en þá þarf að
hafa samband við safnvörð í síma 54321.
Þjóðminjasafnið
Þjóðminjasafnið er opið alla daga nema
mánudaga kl. 11.00—16.00. Aðgangur
erókeypis.
Myndiist
Art-Hún
Art-hún, sýningarsalurog vinnustofa, að
Stangarholti 7 hefur til sýnis og sölu olíu-
málverk, pastelmyndir, grafík og ýmsa
leirmuni eftir myndlistarmennina Erlu B.
Axelsdóttur, HelguÁrmann, Elínborgu
Guðmundsdóttur, Margréti Salóme
Gunnarsdótturog Sigríði Gunnarsdóttur.
Opiðerallavirkadagakl. 13—18.
FÍM-salurinn,
Garðastræti 6
Nú stenduryfir málverkasýning Daða
Guðbjörnssonar í FÍM-salnum, Garða-
stræti 6. Sýningin er opin virka daga kl.
13—18 og kl. 14—18 um helgarog
stendurtil 16. maí.
Sölugallerí FÍM er í kjallaranum.
Gallerí Borg
Kjallarinn í Pósthússtræti 9 er ávallt opinn
á sýningartíma en þarerað finna mörg
verk eldri meistaranna, m.a. eru nú 6
olíuverk eftir Kjarval hangandi uppi og
stór Þingvallamynd eftir Gunnlaug Blön-
dal. Einnig er að finna minni vatnslita-
myndir, pastelmyndir, teikningarog olíu-
verk eftir núlifandi listamenn.
Grafíkmyndir og stærri olíuverk eftir núlif-
andi höfunda er að finna í Grafík-Galleríi
Borg, Austurstræti 10 (uppi á lofti í Penn-
anum). Einnig eru þar myndir eftir u.þ.b.
45 grafík-listamenn, mikið af keramik-
munum og úrval olíuverka.
Gallerí Gangskör
Gallerí Gangsköreropið þriðjudaga til
föstudaga kl. 12—18. Verk Gangskör-
unga eru til sölu og sýnis í galleríinu.
Gallerí Grjót
Ófeigur Björnsson, gullsmiöur og mynd-
listarmaður heldur sýningu á skúlptúr-
verkum í Gallerí Grjóti við Skólavörðustíg
4. Sýningin fjallar um ímyndaðar hug-
skotssjónir listamannsins af hlutveruleik-
anum og kallar hann hana ímyndun.
Þetta erfjórða einkasýning Ófeigs, sú
þriðja í Reykjavík, en einnig hefur hann
sýnt í Helsinki í Finnlandi. Þá hefur hann
tekið þátt í fjölda samsýninga hér heima
og erlendis. Sýningin er opin frá kl.
12— 18 virka daga og kl. 14—18um
helgar, en henni lýkur mánudaginn 15.
maí.
Gallerí Kirkjumunir
Gallerí Kirkjumunum, Kirkjustræti 10, er
opið kl. 9 til 18 alla virka daga. Þar sýn-
ir Sigrún Jónsdóttir listaverk sín.
GalleríList
I Galleríi List sýnir Arthúr Ragnarsson
13 vatnslitamyndir og 3 olíukrít. Sýningin
er opin alla daga kl. 13— 18. Ókeypis
aðgangur.
Gallerí Sævars Karls
í Galleríi Sævars Karls, Bankastræti 9,
stendur yfir málverkasýning Tuma Magn-
ússonar. Sýningin er opin á verslunartíma
og stenduryfírtil 8. maí.
Gullni haninn
Á veitingahúsinu Gullna hananum eru
myndir Sólveigar Eggerz til sýnis.
Katel-gallerí
(Katel-galleríi, Laugavegi 20b, (Klapp-
arstígsmegin) eru til sölu verk eftir inn-
lenda og erlenda listamenn, málverk,
grafík og leirmunir.
Kjarvalsstaðir
Laugardaginn 6. maí kl. 16 verður opnuð
að Kjarvalsstöðum sýning á nýjum verk-
um eftir Helga Þorgils Friöjónsson í boði
MenningarmálanefndarReykjavikurborg-
ar. Þetta erönnurboösýning Listasafns
Reykjavikur á þessu ári og stendur hún
fram til 21. maí. Helgi Þorgils hefur hald-
ið einkasýninngar hér heima og erlendis,
ennfremursem hann hefurtekið þátt í
fjölda samsýninga. Sýningin verður opin
I daglega kl. 11—18.
Krókur
í Krók sýnirSólveig Aðalsteinsdóttir
myndverk. Krókurerað Laugavegi 37
og er opinn á verslunartíma.
Mokka
Laugardaginn 29. apríl opnar Árni Rúnar
Sverrisson sína fyrstu einkasýningu í
Mokkakaffi við Skólavörðustíg. Hann sýn-
ir þar málverk, klippimyndir og teikning-
ar. Sýningin stendur út maímánuð.
Norræna húsið
Laugardaginn 6. maí kl. 15 verður opnuð
sýning í anddyri Norræna hússins á
myndum eftirsænsku listakonuna Siri
Derkert, sem hún gerði við sögu Hall-
dórs Laxness Úngfrúna góðu og húsið.
Auk þess eru á sýningunni tíu litlar mynd-
ir í lit, sem teiknaðar voru á íslandi 1949.
SonurSiri, Carlo Derkert listfræðingur,
heldur fyrirlestur í fundarsal Norræna
hússins á laugardag kl. 16 og nefnir:
Siri Derkert og ísland. Siri Derkert fædd-
ist 1888 íSvíþjóð og lést 1973. Hún hóf
listnám við málaraskóla Althins og síðar
nam hún við Listaháskólann í Stokk-
hólmi. Sýningin stendurtil 4. júní og er
opin kl. 9—19 nema sunnudaga kl.
12— 19. Aðgangurerókeypis.
Nýhöfn
Jón Axel heldur sýningu í listsalnum Ný-
höfn, Hafnarstræti 18. Á sýningunni eru
um 10 nýjar, stórar kolateikningar á
pappír sem eru settar á striga. Jón Axel
erfædduríReykjavík 1956. Hann stund-
aöi nám við Myndlista- og handíðaskóla
íslands 1975—79. Þetta er8. einkasýn-
ing Jóns Axels en hann hefur einnig tek-
ið þátt í fjölda samsýninga hér heima
og erlendis. Sýningin, sem ersölusýning,
eropin virka dagafrá kl. 10—18ogum
helgarfrá kl. 14—18. Henni lýkur 17. maí.
(innri sal Nýhafnareru til sýnis og sölu
verk eftir núlifandi listamenn svo og látna
meistara eins og Jóhannes S. Kjarval,
Ásgrím Jónsson, Nfnu Tryggvadóttur, Jón
Stefánsson, Kristínu Jónsdóttur, Barböru
Árnason, Þorvald Skúlason og Jón Þor-
leifsson.
Sparisjóður Reykjavíkur
(Sparisjóð Reykjavíkur og nágrennis að
Álfabakka 14 í Breiöholti eru sýnd verk
eftir Benedikt Gunnarsson listmálara.
Benedikt er fæddur 1929, hann nam
myndlistarnám 1945—1953 við Mynd-
lista-og handíðaskóla íslands, Listahá-
skólann í Kaupmannahöfn og Teikniskóla
R.P. Böyesens í Ríkislistasafninu í Kaup-
mannahöfn. Einnig lagði hann stund á
myndlistarnám IParísog Madrid. Bene-
dikt kenndi í mörg ár við MHÍ en er nú
lektor í myndlist við Kennaraháskóla ís-
lands þar sem hann hefur kennt síðan
1965. Hann hefur haldið 17 einkasýning-
ar, þar af eina í París og tekið þátt í rúm-
lega 20 samsýningum víðsvegarum Evr-
ópu, Bandaríkjunum og Ástralíu. Sýning-
in stendur til 26. maí nk. og verður opin
frá mánudegi til fimmtudags kl. 9.15—16
og á föstudögum kl. 9.15—18. Sýningin
er sölusýning.
Vinnustofa og
sýningarsalur
(vinnustofu og sýningarsal Ríkeyjar Ingi-
mundardóttir að Hverfisgötu 59 eru til
sölu verk hennar; málverk, postulínslág-
myndir, styttur og minni hlutir úr leir og
postulíni. Ríkey málarog mótarverkeft-
ir óskum hvers og eins. Opið er á verslun-
artíma.
Bókasafn Kópavogs
í Listastofu Bókasafns Kópavogs stendur
yfirsýning Edvins Kaaber.
Hafnarborg f Hafnarfirði
í Hafnarborg, menningar- og listastofnun
Hafnarfjarðar, stendur yfir málverkasýn-
ing Jóns Gunnarssonar. Á sýningunni eru
bæði olíumálverk og vatnslitamyndir.
Sýningin er opin frá kl. 14—19 alla daga
nema þriðjudaga og stendur hún til 7.
maí.
Gallerí Allrahanda
Akureyri
Gallerí Allrahanda er til húsa að Brekku-
götu 5 á Akureyri. Opnunartími er
fimmtudaga kl. 16—19, föstudaga kl.
13— 18og laugardaga kl. 10—12. Aðrir
timar eftir samkomulagi. Galleríið er á
efri hæð og eru þartil sýnis og sölu leir-
munir, grafík, textfl-verk, silfurmunir,
myndvefnaður og fleira.
Safnahúsið Sauðárkróki
Myndlistarhópurinn Áfram veginn heldur
sýningu í Safnahúsiinu á Sauðárkróki.
Myndlistarhópinn skipa: Áslaug Sigur-
björnsdóttir, Dagrún Magnúsdóttir, Gréta
Ósk Sigurðardóttir, Guðrún Nanna Guð-
mundsdóttir, íris Ingvarsdóttir, Tryggvi
Þórhallsson og Þórdís Elin Jóelsdóttir.
Sýningin eropin alla dagafrá kl. 15—18
oglýkur7. maí.
Slunkaríki
ísafirði
Laugardaginn 29. apríl opnaði Guðbjörg
Lind Jónsdóttir sýningu á oliumálverkum
í Slunkaríki, Aðalstræti 22, ísafirði. Guð-
björg Lind er ísfirðingur. Hún lauk námi
fráMHÍ l985ogsýndiþaösamaárfyrst
í Slunkaríki. Sýningin er opin fimmtudaga
til sunnudaga kl. 16—18 fram til sunnu--
dagsins 14. maí.
Leikiist
Leikfélag Reykjavíkur
Leikfélag Reykjavíkur sýnir barna- og fjöl-
skylduleikritið Ferðin á heimsenda eftir
Olgu Guðrúnu Árnadóttur á laugardag
og sunnudag kl. 14. Þetta eru síðustu
sýningar. Ferðin á heimsenda segirfrá
galdrakarlinum Hrappi, Skottu vinkonu
hans og óprúttnum aðferðum þeirra við
að stela verndargripnum Geislaglóð úr
höndum prinsessu Ljósalands. Leikstjóri
erÁsdísSkúladóttir.
Leikritið Sjang-Eng eftir Göran Tunström
verður sýnt á fimmtudag og sunnudag
kl. 20.00. Síðustu sýningar. Leikstjóri er
LárusÝmirÓskarsson og aðstoðarleik-
stjóri Jón T ryggvason.
Sveitasinfónía eftir Ragnar Arnalds verð-
ur sýnd á föstudag og laugardag kl.
20.30. Fáarsýningareftir.
Miðasalan í Iðnó er opin daglega frá kl.
14— 19 og fram að sýningu þá daga sem
leikið er. Símapantanir virka daga frá kl.
10.00. Sími 16620.
Norræna húsið
Dagana 8. og 9. maí sýnir Flaminiatea-
tret frá Sandefjord í Noregi leikritið Det
var ikke min skyld í Norræna húsinu..
Sýningar hefjast kl. 16 báða dagana.
Aðgangurerókeypis. Leikstjóri er Jorunn
Vesterlid og leikararnir heita Cecil Fros-
haug og Vera Rostin Wexelsen. Tækni-
maðurerTorill Bentzen og tónlist ereft-
ir Björn Olaf Olsen. Leikritið er byggt á
samnefndri skáldsögu eftir norska rithöf-
undinn Aase Foss Abrahamsen. Þaðfjall-
ar um litla stúlku sem sérvinkonu sína
deyja í umferðarslysi. Hún fyllist sektar-
kennd og veitist erfítt að vinna úr áhrifum
þessa voveiflega atburöar. Fullorðnna
fólkið vill henni vel en viðbrögð þess eru
þó á þann hátt að hún einangrast meö
vandamálið.
Frú Emilía
Næstkomandi sunnudag kl. 20.30 frum-
sýnir leikhúsið Frú Emilía leikverkið Greg-
or eða Sérð þú það sem er? Verk þetta
er byggt á skáldsögunni Hamskipti eftir
Franz Kafka. Franz Kafka fæddist í Prag
1883 og lést 1924 í þorpinu Kierling við
Vínarborg. Hann var ekki mjög þekktur
er hann lést en undanfarna áratugi eru
rit hans þekkt um allan heim. Aðstand-
endursýningarinnareru: Ellert A. Ingi-
mundarson.Árni PéturGuðjónsson,
Margrét Árnadóttir, Bryndís Petra Braga-
dóttir, Einar Jón Briem og Erla B. Skúla-
dóttir. Leikstjóri erGuðjón Pedersen.
Leikmynd og búninga gerirGuðjón Ketils-
son og Hans Gústafsson aðstoðarmaður
hans. Næstu sýningarverða miðvikudag,
fimmtudag og föstudag kl. 20.30.
Þjóðleikhúsið
Síðasta frumsýning leikársins á stóra
sviði Þjóðleikhússins verður á laugar-
dagskvöld. Þá frumsýnir íslenski dans-
flokkurinn fjóra balletta eftir Hlíf Svavars-
dóttur við undirleik hljómsveitar undir
stjórn Hjálmars H. Ragnarssonar. Hlíf
Svavarsdóttirsviðsetti alla ballettana en
aðstoðarmaður hénnarvið þjálfun dans-
OfviðriðeftirWilliam Shakespeare í þýð-
ingu Helga Hálfdanarsonarverðursýnt
á föstudag og þriðjudag kl. 20.
Haustbrúður eftir Þórunni Siguröardóttur
verðursýntáfimmtudaginn4. maíog
fimmtudaginn 11. maí kl. 20.00. Haust-
brúður byggir á sögulegum heimildum
frá öndverðri 18. öld og segirfrá örlaga-
ríku ástarsambandi Appolóníu Schwarz-
kopf og Níelsar Fuhrmanns amtmanns á
Bessastöðum. Leikarareru um tuttugu.
Barnaleikritið Óvitar eftir Guðrúnu Helga-
dóttur verður sýnt á fimmtudag, laugar-
dag.sunnudag kl. 14, aukasýning kl. 17.
Níu fullorönir leikarar og tuttugu börn
leika í sýningunni.
Miðasala Þjóðleikhússins er opin alla
daga nema mánudaga frá kl. 13.00—
20.00. Símapantanir einnig virka daga
kl. 10.00-12.00. Sími 11200.
Alþýðuleikhúsið
Síðustu sýningar Alþýðuleikhússins á
Hvað gerðist í gær?verða í Hlaðvarpan-
um, Vesturgötu 3 (gengið inn frá bíla-
stæði milli Fischersunds og Vesturgötu)
ikvöld, fimmtudag, og þriöjudaginn 9.
maí kl. 20.30. Verkið er byggt á endur-
minningarbók Isabellu Leitner, en hún
varungverskurgyðingur, sem lifði af
dvöl í Auschwitz. Guðlaug María Bjarna-
dóttir fer með hlutverk Isabellu sem jafn-
framt ereina hlutverkið í sýningunni.
Miðasala eropinvirka daga kl. 16—18
á skrifstofu Alþýðuleikhússins, Vestur-
götu 3, og sýningardaga við innganginnn
frákl. 19—20.30. Miðapantanirallan
sólarhringinnfsíma 15185.
EGG-leikhúsið
Aukasýningar á Sál mín er hirðfífl í kvöld
verða á föstudag, mánudag og miðviku-
dag kl. 20. Sýningineríþremurþáttum.
Hún hefst í Hlaðvarpanum, Vesturgötu
3, þar sem sýnt er verkið Escurial eftir
Ghelderode í þýðingu Sigurðar Pálsson-
ar. Að þeim þætti loknum halda áhorf-
endur (Listasalinn Nýhöfn við Hafnar-
stræti og sjá þar nýtt verk Árna Ibsens
Afsakið hlé sem hann byggirá Escurial,
en staðsetur í Reykjavík nútímans. Að
lokum sjá áhorfendur Escurial aftur í
Hlaðvarpanum og þá í breyttri uppsetn-
ingu og hafa leikararnirskipt um hlut-
verk. Leikstjóri erSveinn Einarsson. Leik-
mynd og búninga gerði Steinunn Þórar-
insdóttir. Leikendureru Ingrid Jónsdóttir,
Kristján Franklín Magnús, Viðar Eggerts-
son og Þór Tulinius og leika þau í öllum
þáttunum. Miðapantanirallan sólarhring-
inn (síma 19560. Miöasalan í Hlaðvarp-
anum eropinfrá kl. 18 sýningardagana.
Einnig er tekið á móti pöntunum í lista-
salnum Nýhöfn, sími 12230.
íslenska óperan
(slenska óperan sýnir Brúðkaup Fígarós
eftirW.A. Mozart. Hljómsveitarstjóri er
Anthony Hose. Leikstjóri: ÞórhildurÞor-
leifsdóttir. Næstu sýningarverða á
fimmtudag og föstudag kl. 20. Miðasala
eropin alla daga kl. 16—19. Lokað mánu-
daga og sunnudaga ef ekki er sýnt þá
daga. Miðapantanir í síma 11475 kl.
10-12 og 14-16.
Grfniðjan hf.
Gríniðjan hf. sýnir í (slensku óperunni
Brávallagatan —Arnarnesið. Miðnætur-
Hvörf - ballettar
islenski dansflokkurinn sýnir á laugardagskvöld fjóra
balletta eftir Hlíf Svavarsdóttur. Ballettarnir eru Rauður
þráður, Innsýn I, Innsýn II og Af mönnum. Á myndinni
sést atriöi úr ballettnum Af mönnum, en sá ballett hlaut
t. verðlaun í samkeppni dansskálda á Norðurlöndum í
Ósló 1988.
aranna og sýninguna er Auður Bjarna-
dóttir. Sveinn Benediktsson lýsiralla sýn-
inguna og sýningarstjóri er Kristín Hauks-
dóttir. Önnur sýning verður á miðvikudag
kl. 20.00.
Leikrit Ólafs Hauks Símonarsonar, Bíla-
verkstæði Badda, veröursýnt á Litla sviði
Þjóðleikhússins á laugardag kl. 20.30,
sunnudag kl. 16.30, miðvikudag og
föstudag kl. 20.30. Bílaverkstæði Badda
er spennu- og átakaverk sem gerist i
afskekktri sveit. Sögusviðið er lítið bíla-
verkstæði þarsem Baddi bifvélavirki
ræður rikjum. Verkstæðið hafði lent utan
þjóðbrautar þegar nýr vegur var lagður
í gegnum sveitina. Verkefnin eru orðin
stopul hjá Badda og lífið i sveitinni hefur
einnig breytt um svip, ábúendum fækkað
og skólahald að leggjast niður. Leikritið
er ekki við hæfi barna.
frumsýning erlaugardaginn 6. maíkl.
23.30.'Næstu sýningarverða á sunnu-
dag og mánudag ki. 20.30 og miðnætur-
sýning föstudaginn 12. maí kl. 23.30.
Miðasala í Gamla bíóifrá kl. 16—19, sími
11475. Sýningardaga eropiðfram a
sýningu. Miðapantanirog Euro- ogVisa-
þjónusta allan sólarhringinn í sima
11123.
Þíbilja
Leikhópurinn Þibilja frumsýnir í kvöld,
fimmtudag, Að byggja sérveldi, eða
Smúrtsinn, eftir Boris Vian í þýðingu Frið-
riks Rafnssonar. Sýningareru í Gamla
stýrimannaskólanum, Öldugötu 23.
Næstu sýningar verða á sunnudag og
þriðjudag kl. 20.30. Miðasala opnar kl.
18.30 sýningardagana. Sýningarfjöldi er
takmarkaður og sýningin er alls ekki við