Morgunblaðið - 04.05.1989, Side 5
e8ClMQR'GI3NBLíA.ÐIÐ'FfMMTOÐAGUR''4l.íIfWl''1989
a 5
HVAÐ
ER AÐ
GERAST?
hæfi barna. Leikstjóri er Asa Hlín Svav-
arsdóttir, leikmyndateiknari Guðrún
Sigríður Haraldsdóttir og leikarar eru
Barði Guðmundsson, Erla Ruth Harðar-
dóttir, Ingrid Jónsdóttir, Ólafía Jónsdóttir,
Rósa G. Þórsdóttirog ÞórTuliníus.
Leikfélag Akureyrar
Leikfélag Akureyrar sýnir leikritið Sólar-
ferð eftir Guömund Steinsson. Þetta er
lokaverkefni leikársins. Leikarareru Anna
Sigríður Einarsdóttir, Theódór Júlísson,
Kristbjörg Kjeld, Þráinn Karlsson, Sigur-
veig Jónsdóttir, Marinó Þorsteinsson,
Ingólfur Björn Sigurðsson, Margrét Pét-
ursdóttir, Hrafnhildur Hafberg og Þórður
Rist. Leikstjóri er Hlín Agnarsdóttir.
Næstu sýningarverðaföstudaginn 5.
maí, laugardaginn 6. maí og föstudaginn
12. maí kl. 20.30. Aðgöngumiðasala er
í Leikfélaginu kl. 14—18 alla daga.
Símsvari erallan sólarhringinn, sími
96-24073.
Tónlist
íslenska óperan
Tónmenntaskóli Reykjavíkurernú að
Ijúka 36. starfsári sínu. Síðustu vortón-
leikar skólans verða haldnir í íslensku
óperunni nk. laugardag, 6. maí, kl. 14.
Á þessum tónleikum koma einkum fram
eldri nemendur skólans. Á efnisskránni
verður einleikur og samleikur á ýmiss
konar hlóðfæri. Aðgangur er ókeypis og
öllum heimill.
Hafnarborg
Árnesingakórinn i Reykjavík heldurtón-
leika í Hafnarborg sunnudagin 7. maí kl.
20.30. Stjórnandi kórsins er Sigurður
Bragason.
Háskólabíó
Sinfóníuhljómsveit íslands heldurtón-
leika í samvinnu við Mótettukór Hall-
grímskirkju í Háskólabíói á laugardag kl.
15.00. Stjórnandi er HöröurÁskelsson,
einsöngvararWriteSountag, Ursula
Kung, Heilmann, Andreas Schmidt.
Sinfóníuhljómsveit islands undir stjórn
Páls P. Pálssonar heldur tónleika í Há-
skólabíói fimmtudaginn 11. maí kl. 20.30.
Einlekari er Halldór Haraldsson.
Hallgrfmskirkja
Hátíðarmessa verður í Hallgrímskirkju á
sunnudagkl. 11.00. Kór Akureyrarkirkju
og hlóðfæraleikarar. Einsöngvari er
Margrét Bóasdóttir. Einleikari Björn
SteinarSólbergsson.
Orgelnámskeið Hans-Dieter Möllerverð-
ur í Hallgrímskirkju 8.—12. maí kl. 9.30. ,
Leikin frönsk og spönsk orgeltónlist.
Orgeltónleikarverða daglega í Hallgríms-
kirkju dagana 8.—12. maí kl. 12.30.
Vesper. Guðfræðinemarogfél. úrísleifs-
reglunni flytja tiðargjörð með kirkjugest-
um í Hallgrímskirkju 8,—12. maí kl.
18.00.
Gerðuberg
(slenska hljómsveitin heldurtónleika í
Gerðubergi kl. 16 á sunnudag. Einsöng-
ur: Viðar Gunnarsson, Hrafnhildur Guð-
mundsdóttir, Elísabet F. Eiríksdóttir, Jú-
líus V. Ingvarsson. Einleikarar: Ásgeir
Hermann Steingrímsson, Þorkell Jóels-
son, Oddur Björnsson. Stjórnandi: Guð-
mundurEmilsson.
Ferðalög
Upplýsingamiðstöð
Upplýsingamiðstöð ferðamála er með
aðsetursitt að Ingólfsstræti 5. Þareru
veittar allar almennar upplýsingar um
ferðaþjónustu á íslandi. Opið mánudaga
til föstudaga kl. 10—16, laugardaga kl.
10—14 og sunnudaga kl. 11 — 14. Síminn
er 623045.
Félagslíf
Flóamarkaður
Kvenfélag Karlakórs Reykjavíkur heldur
sinn árlega flóamarkað í félagsheimili
karlakórsins að Freyjugötuu 14 laugar-
daginn 6. maí kl. 14—17.
Félagsvist
SGT heldur á hverju föstudagskvöldi fé-
lagsvistíTemplarahöllinni, Eiríksgötu 5.
Hljómsveitin Tíglar spila fyrir dansi til kl.
1.30.
Húnvetningafélagið
Félagsvist á laugardögum kl. 14 í Húna-
búð, Skeifunni 17.
Laugardagskaffi
Kvennalistans
Á hverjum laugardegi er opið hús á skrif-
stofu Kvennalistans, Laugavegi 17.
Þangað mæta konur og fá sér kaffi og
með’í og hlusta á frásagnir eða fyrir-
lestra og taka síðan þátt í umræðum.
Byrjað er um ellefu-leytið og opið fram
eftir degi. Dagskrá laugardaginn 6. maí
kl. 11: Kvennahreyfingin í Rómönsku
Ameríku. Hólmfríður Garðarsdóttir flytur
fréttir af kvennahreyfingunn í Rómönsku
Ameríku.
Útivera
Ferðafélag íslands
Fimmtudaginn 4. maí kl. 13.00 verður
farin gönguferð um Selvogsheiðina. Ekið
verður um Þrengslaveg og þjóðveginn í
átt að Selvogi. Gengið um Selvogsheiði
að Svörtubjörgum og Eiríksvörðu. Komið
niður hjá Hlíðarvatni. Þetta er létt göngu-
ferð. Laugardaginn 6. maíverðurlagt
upp í gönguferð é Skarðsheiði (1.051
m) og erbrottför kl. 9 frá Umferðarmið-
stöðinni. Ekiðverðurinn Svínadal og
gengið þaðan. Nauðsynlegt er að koma
vel búinn í þessa ferð og á þægilegum
gönguskóm. Sunnudaginn 7. maí erhin
árlega fuglaskoðunarferð Ferðafélags-
ins. Ekið verður um Suðurnes og komiö
víða viötil þess að huga að fuglum,
KVIKMYNDIR
______ FORBOÐIIM ÁST
STÖÐ 2 — Forboðin ást (Love on the Run). Frumsýn-
Q-| 45 ing-- Diana Rockland er lögfræðingur. Hún á erfitt með
“ -t að sætta sig við lífið og tilveruna þar til hún kynnist skjól-
stæðingi sínum, Sean Carpenter, sem fær hana til að líta á björtu
hliðarnar á tilverunni. Sean veit hins vegar að samfangar hans hafa
harma að hefna og munu brátt gera út af við hann flýi hann ekki
innan skamms. Þegar Diana uppgötvar þetta kastar hún frá sér
starfsframanum og aðstoðar hann við flóttann. Þau breyta útliti sínu
og taka að sér hvaða starf sem er til að sjá sér farborða. En hvert
sem þau fara er lögreglan ávallt á hælum þeirra. Aðalhlutverk:
Stephanie Zimbalist, Alec Baldwin, Constance McCashin og Howard
Duff. Leikstjóri: Guo Trikonis.
ÆTTARMOTIÐ
mmmm sjónvarpið
QO 45 — Ættarmótið
(Family Reun-
ion). Benjie hefur ákveðið
að fara heim í helgarfrí í
tilefni af sjötíu og fimm ára
afmælis afa síns. Hann er
nýbúinn að slíta trúlofun
sinni en kemur með aðra
stúlku í afmælið og veldur
það miklum misskilningi hjá
foreldrum hans og ættingj-
um. Aðalhlutverk: David
Eisner, Rebecca Jenkins,
Henry Backman og Linda Sorensen._ Leikstjóri: Vic Sarin.
Úr kanadísku myndinni Ættarmótið.
FURÐUSOGUR I
■■ STÖÐ 2 — Furðusögur I (Amazing Stories I — 1987).
015 Þijár sögur í einni mynd; spenna, grín og hryllingur. Aðal-
hlutverk: Kevin Costner, Kiefer Sutherland, Tom Harrison,
Christopher Lloyd o.fl. Leikstjórar: Steven Spielberg, William Dear
og Bob Zemeckis.
m.a. Alftanesi, Hafnarfirði, Garði, Sand-
gerði, Hafnarbergi, Reykjanesi ogvíðar.
Brottför í ferðina er frá Umferðarmiðstöð-
inni kl. 10. f.h. Æskilegt er að taka með
sjónauka og fuglabók.
Hana nú
Vikuleg laugardagsganga Frístunda-
hópsins Hana-nú í Kópavogi verður laug-
ardaginn 6. maí. Lagtverðurafstaðfrá
Digranesvegi 12 kl. 10.00. Nú byrjum
við 5. sumarið í bæjarrölti Hana nú, en
frá 27. júlí 1985 hefurganga aldrei fallið
niður. Samvera, súrefni, hreyfing er kjör-
orðið.
Náttúruverndarfélag
Suðvesturlands
Náttúruverndarfélagið heldur áfram að
kynna vorkomuna í og á sjónum um
helgina. Á laugardag og sunnudag verða
skoðunarferðir á sjó sem hér segir: Kl.
10.00 verður siglt víðsvegar um Kolla-
fjörðinn og sérstaklega hugað að lífríkinu
í sjónum á sundunum og við eyjarnar.
Kl. 13.30 verðurfarið upp í Hvalfjörð og
siglt inn fyrir Geirshólma og komið í land
á Hvítanesi ef skilyrði eru fyrir hendi.
Þessi ferð tekur um 4 klst. og er náttúru-
skoðunar-og söguferð. Kl. 16.00verður
farin sigling um Viðeyjarsund og norður
fyrirViðeyog Engeyog inn Engeyjar-
sund. Á föstudag kl. 19 verður farið út
ÍÞerneyog gengið um eyjuna. Farið
verður í allar ferðirnar frá Grófarbryggju
neðanvið Hafnarhúsið. Björgunarsveitin
Ingólfur sér um flutning á fólki milli Haf-
rúnarog lands. Þetta ersíðasta helgin
sem þessarferðirerufarnar. .
Viðeyjarferðir
Hafsteinn Sveinsson er með daglegar
ferðir út ÍViðey. Fyrstaferð erfarin kl.
13.00 og er farið á heila tímanum frá
Reykjavík og á hálfa tímanum frá Viðey.
Mánudaga, þriðjudaga og miðvikudaga
fer síðasta ferð frá Viðey kl. 18.30en -
aðra daga kl. 23.30. Aukaferðir eru farn-
ar með hópa sem panta sérstaklega.
Kirkjan i Viðey er opin og veitingarfást
í Viðeyjarnausti. Bátsferðin kostar300
krónurfyrirfullorðna, 100 krónurfyrir
börn að 14 ára aldri en frítt er fyrir börn
5 ára og yngri.
Hreyfing
Keila
(Keilusalnum í Öskjuhlíð eru 18 brautir
undir keilu, á sama stað er hægt að
spila billjarð og pínu-golf. Einnig er hægt
að spila golf í svokölluðum golfhermi.
Sund
I Reykjavík eru útisundlaugar í Laugar-
dal, við Hofsvallagötu og við Fjölbrauta-
skólann í Breiðholti. Einnig eru útisund- -
laugar á Seltjarnarnesi, á Varmá og við
Borgarholtsbraut í Kópavogi. Innisund-
laugar á höfuðborgarsvæðinu eru við
Barónsstíg og við Herjólfsgötu í Hafnar-
firði. Opnunartíma þeirra má sjá í dag-
bókinni.
MYNDBÖIMD
Sæbjörn Valdimarsson
Engill eða
óbótamaður?
drama
Þögult vitni — A Prayer for the
Dying ★★
Leiksljóri Mike Hodges. Handrit
Edmund Ward og Martin Lynch.
Aðalleikendur Mickey Rourke,
Bob Hoskins, Alan Bates. Bresk.
Samuel Goldwyn 1987. JB 1989.
105 mín.
Bönnuð yngri en 16 ára.
Ekki ólíklegt að myndin af Ro-
urke, vígreifum með haglabyssu um
öxl og sígarettuna lafandi, framaná
hlífðarkápunni, hafi komið Þöglu
vitni á metsölulistann frekar en
innihaldið. Það er tæpast af því
sauðahúsi sem höfðar til almenn-
*
Ognarnótt
hrollvekja
Night of Terror ★lé
Leikstjóri Jean Szwarc. Handrit
Cliff Gould. Aðalleikendur Mart-
in Balsam, Catherine Burns,
Chuck Connors. Bandarisk. Par-
amount 1972. Háskólabíó 1989.
73 mín.
Bönnuð yngri en 16 ára.
Kennslukonur verða vitni að
morði og kemur fljótlega í ljós að
drápsmennirnir teja að þær lúri á
geymslumiða sem er þeim mikils
virði. Lögreglan reynir að vernda
þær en ekki tekst betur til en svo
að önnur kennslukonan ferst og hin
stórslasast í bílsysi af völdum
glæpamannanna. Einkaspæjarinn
Balsam kemur þeirri sem eftir lifir
á óhultan (?) stað og reyna allir
aðilar að hafa upp á miðanum ban-
væna.
Kunnuglegur söguþráður fær
meðalúrvinnslu og í rauninni höfum
við séð þetta allt saman oft áður.
Szwarc, sem nú er orðinn nokkuð
kunnur leikstjóri, tekst þó að halda
bærilegri spennu í myndinni, en
aðalleikkonurnar eru ömurlegar og
heldur mikill móðursýkistónn
skemmir fyrir.
ings. Umhverfí, persónur og efni
er grátt, kalt og þunglamalegt.
Rourke leikur norður-írskan leigu-
morðingja sem er neyddur til að
fremja eitt til viðbótar. Það mis-
lukkast að því leyti að presturinn,
Bob Hoskins, verður vitni að því.
Hefst nú margsnúið spennuástand
milli Rourkes, klerksins, lögregl-
unnar, gamalla félaga Rourkes úr
írska frelsishernum og þeirra sem
réðu hann til verknaðsins.
Það er ekki við góðan leikhóp
að sákast — reyndar er Hoskins
ekki í sínu besta formi — að útkom-
an er hálf-mislukkuð, heldur upp-
skrúfuðu handriti og leikstjórn.
Samræðurnar eru lengst af yfir-
borðskenndar og óeðlilegar og per-
sónurnar eiga lítið skylt við raun-
veruleikann. Vel mönnuð, dulítið
forvitnileg og „öðruvísi" mistök.
Góðan daaginn,
Vietnaaam!
drama
Góðan daginn, Víetnam — Good
Morning, Vietnam ★ ★ ★ ★
Leikstjóri og handrit Barry Le-
vinson. Aðalleikendur Robin
Williams, Tung Thanh Tran,
Bruno Kirby. Bandarísk. Touch-
stone 1987. Bergvík 1988. 120
mín. Öllum leyfð.
Sérstæð mynd, borin uppi af ein-
stökum leik æringjans Robins Will-
iams, sem fer á kostum í löngum
einræðum sem hann spinnur jafnóð-
um. Williams leikur plötusnúð hjá
bandaríska flughernum, árið er
1965 og umhverfið er Víetnam.
Snúðurinn álítur að hann eigi að
púrra mannskapinn upp í starfi sínu
og lætur allt flakka. A hann löngum
í andstöðu við yfirmenn sína sem
vilja meina að hann taki starfíð
ekki alvarlega. Á meðal þeirra á
hann fáa aðdáendur en verður þjóð-
sagnapersóna meðal hermannanna
á vígvellinum. Inn í myndina bland-
ast raunaleg alvara þessa and-
styggilega stríðs.
I þeim fjölmörgu myndum sem
gerðar hafa verið um þennan fárán-
lega stríðsrekstur hafa kaldhæðnis-
legar aðstæðurnar verið i brenni-
depli í nokkrum þeirra — þeim bestu
— Apocalypse Now, Full Metal
Jacket, Go, Tell The Spartans, Góð-
an daginn, Víetnam.
Árekstrar Williams við yfirboð-
ara sína eru þrungnir einstæðum
gálgahúmor, fánýti og markleysa
stríðsins fá eftirminnilega útreið hjá
vélbyssukjafti snúðsins. Og mann-
lega hliðin fær mjúka umfjöllun hjá
leikstjóranum snjalla, Levinson,
(Regnmaðurinn).
Beambolt á
búgarðinum
hrollvekja
Incident at Raven’s Gate ★ 'h
Leikstjóri Rold De Heer, Marc
Rosenberg. Handrit James Mic-
hael Vernon. Aðalleikendur Ste-
ven Vidler, Celine Griffin, Ritc-
hie Singer. Áströlsk. Hemdale
1988. Skífan 1989. 94 mín. Bönn-
uð yngri en 16 ára.
Gruggug, áströlsk vísindahroll-
vekja, laus í reipunum hvað efnis-
þráð og framvindu snertir. Vidler
leikur afbrotamann sem hefur verið
leystur úr haldi til reynslu og starf-
ar á búgarði bróður síns. Þar fara
að gerast undarlegir atburðir sem
eru tilkomnir vegna fljúgandi furðu-
hlutar.
Þrátt fýrir nokkur óþægileg og
laglega gerð hrollatriði nær myndin
aldrei tökum á áhorfandanum, fjar-
stæðukennt efnið í órafjarlægð frá
lítt áhugaverðum persónunum.
Hliðarþættir sögunnar renna út í
sandinn. Dæmigerð fyrir þá lægð
sem áströlsk kvikmyndagerð er í
um þessar mundir.
Flótti í fjötrum
drama
The Defiant Ones ★ ★Z
Leikstjóri David Lowell Rich.
Handrit James Lee Barrett. Að-
alleikendur Robert Urich, Carl
Weathers, Barry Corbin, Ed
Lauter. Bandarísk sjónvarps-
mynd. MGM/UA 1986. 96 mín.
Bönnuð yngri en 16 ára.
Endurgerð myndar sem vakti
mikla athygli á sínum tíma, (’58),
ekki síst vestur í gamla Trípólí-bíó,
ef ég man rétt. Þá fóru þeir Tony
Curtis og Sidney Poitier með hlut-
verk fanganna sem reyna strok nið-
ur í fenjalöndum Suðurríkjanna. Sá
hvíti er kynþáttahatari og borgar-
búi sem í upphafi fyrirlítur sinn
svarta þjáningabróðir en sameigin-
legt strok þeirra stafar af því að
þeir eru járnaðir saman.
Nú eru það Robert Urich og
Carl Weathers sem fara með aðal-
hlutverkin og komast þokkalega frá
þeim. Sögunni hefur verið lítillega
breytt, m.a. er atriðið, þegar átti
að taka félagana af lífí án dóms
og laga, úr sögunni. Endurgerðin
stendur frummyndinni nokkuð að
baki, en fýrir þá sem sáu hana er
hún ágæt upprifjun og öðrum ætti
hún að vera virkilega forvitnileg.
Táknmál fjötranna er jafn sterkt
og fyrr, bæði á meðan þeir tengja
einstaklingana saman og á eftir.
Allir synir mínir
drama
After the Promise ★‘%
Leikstjóri David Greene. Handrit
Robert W. Lenski. Aðalleikendur
Mark Harmon, Diana Scarwid.
Bandarísk. New World Int. 1987.
Myndbox 1989. 89 mín. Bönnuð
yngri en 12 ára.
Oft átakanleg mynd sem endar
vel, byggð á sönnum atburðum og
hefst í miðri kreppunni í Kaliforníu.
Harmon missir konu sína frá fjórum
ungum sonum og vegna erfiðra
heimilisaðstæðna og sálariausra
ákvarðana yfirvalda missir hann
fljótlega forræði þeirra. Næstu átta
árin eru þeir á flækingi á milli ríkis-
stofnana fyrir munaðarlausa, elsti
sonurinn dæmdur vanviti og settur
á hæli. Samtímis berst Harmon,
sem má ekki umgangast drengina
sína, fyrir því að uppfylla öll þau
skilyrði sem yfirvöld setja ef hann
á að heimta þá aftur, sem honum
tekst að lokum.
Þeir sem eru að væla um kreppu
í dag ættu að sjá þessa mynd, sem
kemur við mann, þó ekki sé neitt
meistaraverk á ferðinni. Hún slær
óbangin og oft á ódýran hátt á við-
kvæma strengi, en hún gefur fróð-
lega og minnisstæða innsýn í hörm-
ungar kreppunnar. Manni er sér-
staklega hugstætt er Harmon smal-
ar saman drengjunum sínum, mis-
munandi mikið örkumluðum á sál
og líkama, af stofnunum í myndar-
lok. Vel gerð og vel leikin, athyglis-
verð mynd, sem vissulega er óhætt
að benda sérstaklega á.