Morgunblaðið - 02.07.1989, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 02.07.1989, Blaðsíða 16
16 MORGU.NiBLAÐrtr ;S(>NXODAGUR a .JÚLÍ 119891/ LÝÐRÆÐISKONUNGURINN PRINSINN SEM FRANCO GERÐIAÐ EFTIRMANNI EN VARÐ KONUNGUR ALLRA SPÁNVERJA eftir Guðm. Halldórsson ÞEGAR JÓHANN KARL tók við konungdómi á Spáni eftir fráfall Francisco Francos einræðisherra, fyrir 14 árum, bjuggust fáir við að hann yrði lengi við völd. Flestir spáðu því að hann mundi fljótlega stökkva úr landi eins og Konstantín, fyrrum Grikkjakonungur, sem er mágur hans. En hinn nýi konungur sýndi frá upphafi að hann hafði pólitísk hyggindi til að bera og þeir sem gerðu lítið úr honum höfðu rangt fyrir sér. ótt Jóhann Karl hefði verið- skjólstæðingur Francos beitti hann sér fyrir því að lýðræði yrði komið á hið fyrsta þrátt fyrir andstöðu harðra stuðnings- manna hins látna einræðisherra. Hann valdi tiltölulega lítt kunnan en farsælan stjórnmálamann, Adolfo Suarez, í embætti forsætis- ráðherra og ný stjómarskrá var samþykkt. Lýðræði komst á og þegar uppreisnarmenn í heraflanum reyndu að kollvarpa því braut kon- ungurinn byltingartilraun þeirra á bak'aftur nánast einn síns iiðs. Þannig hefur Jóhann Karl, sem er væntanlegur til íslands á mið- vikudaginn, leitt Spánverja frá ein- ræði til lýðræðis, endurreist kon- ungdæmið, sem þjóðin hafði fengið sig fullsadda á, og gert sig að vemd- ara hinnar nýju stjórnskipunar á Spáni. Sumum finnst nóg um hve háð hið nýja lýðræði er konunginum og hvemig lýðveldissinnar hafa snúizt síðan í borgarastríðinu 1936-1939, en aðrir telja að hann hafi unnið eitt mesta stjórnmálaaf- rek í sögu Evrópu eftir heimsstyij- öldina. „Við emm allir konungs- sinnar núna,“ sagði áhrifamikill lögfræðingur í Madrid fyrir nokkr- um ámm. „Enginn er lýðveldissinni lengur.“ Vinsæll Um leið hefur konungurinn feng- ið orð fyrir að vera vingjamlegur, glaðlegur, einlægur og alþýðlegur þjóðhöfðingi. Hann nýtur hylli með- al allra þjóðfélagshópa og í flestum héruðum Spánar og er ólíkur fyrri konungum Búrbon-ættarinnar, sem vom alvömgefnir og sorgmæddir eftir myndum að dæma, þótt ættin hafi yfirleitt verið vinsæl. Almenn- ingur virðist telja að núverandi kon- ungur veiti honum vemd gegn erf- iðum tímum. Skoðanakannanir hafa lengi sýnt að konungurinn er vinsælasti maður Spánar og kona hans, Soffía drottn- ing, er ugglaust vinsælasta konart. Hún er systir Konstantíns fyrmm Grikklandskonungs og hæglátari og innhverfari en maður hennar. Elzta barn konungshjónanna, Elena, hefur kennaramenntun og það næstelzta, Cristina, lærði stjómvísindi í háskólanum í Madrid. Ríkisarfinn, Filippus (Felipe) prins, sem er 21 árs, hefur herskóla- menntun. Sagt er hann sé skynsam- ur og taki framtiðárhlutverk stt alvarlega. Jóhann Karl konungur er 51 árs gamall en lítur út fyrir að vera yngri. Hann er góður íþróttamaður. Hann siglir oft á snekkju sinni í

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.