Morgunblaðið - 02.07.1989, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 02.07.1989, Blaðsíða 36
MORGUNBLAÐIÐ, AÐALSTRÆTl 6. 101 REYKJA VÍK TELEX 2127, PÓSTFAX 681811, PÓSTHÓLF 1555 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85 SUNNUDAGUR 2. JÚLÍ 1989 VERÐ í LAUSASÖLU 80 KR. Samvinnuferðir — Landsýn hfc: Fyrstu fímm mánuðir ársins: Heimilt að hefja loðnuveiðar í gær: í LISTASAFNIÍSLANDS Morgunblaðið/Einar Falur Morgunblaðið/Einar Faiur NETINBÆTTÍ GÓÐA VEÐRINU Leiguflug hafið á þotu ríkisins skipulagsbreytingar og tækninýj- ungar svipt hóp fólks vinnu, auk þess sem langskólagengnir eiga erf- iðara en áður með að fá störf. Sam- drátturinn er einna mest áberandi í alrriennum skrifstofu- og þjónustu- störfum. Deilt er um hvort atvinnuleysi nú telst alvarlegt. „Ég tel ástandið nú ekki mjög alvarlegt. Það má reikna með því að á bak við 1 - 1,5% at- vinnuleysi standi þeir sem eru að leita sér að atvinnu og þeir sem eru frá vinnu vegna slysa eða fötlunar," segir Lilja Mósesdóttir, hagfræðing- ur ASÍ. Að sögn Vilhjálms Egilssonar hag- fræðings hefði atvinnuleysið átt að dragast verulega saman miðað við „eðlilegt" ástand. Hann spáir enn frekara atvinnuleysi í haust vegna minnkandi kvóta. Sjá grein og viðtöl bls. 10-11. Sjávarútvegsráðuneytið: Þorskanetin bönnuð í sumar FRÁ OG MEÐ 1. júlí til og með 15. ágúst næstkomandi eru allar veiðar í þorskanet bannaðar inn- an íslenskrar fiskveiðilögsögu, segir í fréttatilkynningu firá sjáv- arútvegsráðuneytinu. Þessar veiðar hafa verið bannað- ar á sumrin í nokkuð mörg ár, sagði Jón B. Jónasson, skrifstofu- stjóri í sjávarútvegsráðuneytinu, í samtali við Morgunblaðið. Verð loðnuafiirða 1 lágmarki Ekki kunnugt um að nein skip hefli veiðar á næstunni SAMKVÆMT samkomulagi íslendinga, Norðmanna og Grænlendinga var heimilt að hefja loðnuveiðar í gær. Að sögn Kristjáns Ragnarsson- ar, framkvæmdastjóra LÍÚ, er honum ekki kunnugt um að nein íslensk loðnuskip ætli að helja veiðar á næstunni, en mörg þeirra eru nú við rækjuveiðar. Verð á loðnuafurðum hefúr fallið verulega frá því á sama tíma í fyrra, og að sögn Jóns Ólafssonar, framkvæmdastjóra Félags íslenskra fiskmjölsframleiðenda, hefúr verð á Iýsi lækkað um rúmlega hclming og fer ennþá lækkandi. ámarksverð u ---- fékkst bæði fyrir loðnumjöl og lýsi síðastliðið sum- ar að sögn Jóns, en þá var verð á prót- íneiningu mjöls tæplega 10 dollarar, en tæplega 7 dollarar fást nú fyrir prótíneininguna. Hámarksverð á lýsi í fyrra var tæplega 500 dollarar tonn- ið, en það er nú komið niður í tæp- lega 240 dollara og fer sífellt lækk- andi. Að undanskildu lágu afurðaverði sagði Kristján Ragnarsson að helstu ástæður fyrir því að íslensk loðnu- skip hefja ekki veiðar á næstunni, væru að loðnuveiðarnar væru ótryggar á þessum árstíma, og larigt væri að sækja loðnuna, en hún héldi sig venjulega við Jan Mayen á þess- um tíma árs. Þá væri kvótinn ekki það stór að menn hefðu ekki áhyggj- ur af að ná honum ekki. Kvótinn á loðnuvertíðinni að þessu sinni er 900 þúsund tonn, og sam- kvæmt samkomulagi Islendinga, Norðmanna og Grænlendinga koma 78% í hlut íslendinga, og sín hvor 11% í hlut Norðmanna og Grænlend- inga. Norðmenn eiga inni 40 þúsund tonna bætur frá síðustu vertíð, þann- ig að í hlut íslendinga koma 662 þúsund tonn. ATVINNUASTAND fyrstu pjnm mánuði þessa árs gefúr til ký'nna mesta samfellda atvinnuleysið síðastliðna tvo áratugi. I maí var meira atvinnuleysi en verið hefur í þeim mánuði í aldaríjórðung. Ekki aðeins hefur skólafólk átt í erfiðleikum með að fá vinnu, held- ur töldust 1,4% atvinnufærra vera án vinnu í maí og sömu sögu er að segja í apríl. Venjan hefúr ver- ið sú að er líður á vorið, hefúr dregið mjög úr atvinnuleysi, m.a. vegna sumarleyfa. Sú helúr þó ekki verið raunin í ár, meðal ann- ars vegna aðhaldsaðgerða fyrir- tækja, sem mörg hver ráða ekki fólk til sumarafleysinga. Samanborið við árin 1968-1969, er síldin brást, og 1983 er gæfta- leysi á vertíð olli töluverðu atvinnu- leysi, hefur dregið mun minna úr atvinnuleysinu í ár en áður. Sam- kvæmt upplýsingum ráðningarskrif- stofanna hafa samruni fyrirtækja, Samvinnuferðir-Landsýn hófú í gær leiguflug sitt á Bo- eing 737-þotu þeirri, sem Arn- arflug hafði á kaupleigu, en ríkið leysti til sín í vetur. Geng- ið hefúr verið frá leigusamningi á þá leið að Samvinnuferðir- Landsýn nýti vélina í leiguflug sitt til sólarlanda fram til haustsins. Að sögn Helga Jó- hannssonar hjá Samvinnuferð- um-Landsýn eru í samningnum 'uppsagnarákvæði á þá Ieið, að hvor aðilinn um sig geti slitið honum með tiltölulega stuttum fyrirvara. Helgi sagði, að samningurinn væri tvíhliða, milli ríkisins og Arnarflugs annars vegar, og ríkis- ins og Samvinnuferða-Landsýnar hins vegar. Starfsmenn Arnar- flugs munu fljúga vélinni á samn- ingstímanum, en Samvinnuferðir- *Landsýn ábyrgjast alla notkun á henni. „Við tókum þá ákvörðun á sínum tíma að fljúga allt leiguflug þessa sumars á daginn, en ekki að næturlagi eins og venjulega tíðkast í leiguflugi. Við sáum hins vegar fram á það í vor að vegna þessa kæmumst við ekki hjá því að leigja vél til flugsins, til að forð- ast raskanir á fyrirhuguðum brott- farartímum. Reyndar buðust okk- ur hagstæðir leigusamningar er- lendis frá, en gengum til samninga við ríkið urn þessa þotu þar sem engum var til bóta að hún stæði ónotuð og lægi jafnvel undir skemmdum," sagði Helgi enn- ►fremur. Mesta atviimuleysi í 20 ár

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.