Morgunblaðið - 26.09.1989, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. SEPTEMBER 1989
Morgunblaðið/BB
Bifreiðin á vegabrúninni á þjóðvegunum í Norðurárdalnum eftir
óhappið.
N orðurárdalur:
Bíll valt vegna hálku
FÖLKSBÍLL valt snemma í
gærmorgun í Norðurárdal,
neðan við Hreðavatnsskála.
Tveir menn voru í bílnum og
sluppu þeir ómeiddir.
Ohappið varð um klukkan 7 um
morguninn. Að sögn lögreglunnar
í Borgarnesi fraus í fyrrinótt, allt
niður í Borgarnes. Töluverð ísing
var því á veginum, en erfitt að
sjá hana á malbikin'u.
Fólksbíllinn skemmdist mikið
við veltuna og varð að flytja hann
á brott með kranabíl.
Sjávarútvegsráðherra
heimsækir Sovétríkin
--- ■ ■ -
110 milljónir í sjúkra-
kostnað erlendis í fyrra
HALLDÓR Ásgrímsson, sjávar-
útvegsráðherra, fer í opinbera
heimsókn til Sovétríkjanna 1.
október næstkomandi í boði
Níkolaj Kotlar sjávarútvegsráð-
herra Sovétríkjanna. Ráðherr-
arnir munu eiga viðræður í
Moskvu um viðskipti landanna
og skoðuð verða fiskvinnslufyr-
irtæki í Múrmansk. Einnig
munu íslenskir og sovéskir
vísindamenn ræða um hafrann-
sóknir í Norðurhöfum. Heim-
sókninni lýkur 5. eða 6. október.
í fylgdarliði Halldórs Ásgríms-
sonar verða Jón B. Jónasson skrif-
stofustjóri í sjávarútvegsráðuneyt-
inu, Átli Freyr Guðmundsson
deildarstjóri í viðskiptaráðuneyt-
inu, Grímur Valdimarsson forstjóri
Rannsóknastofnunar fiskiðnaðar-
ins og Halldór Árnason fiskmats-
stjóri, að sögn Hermanns Svein-
bjömssonar aðstoðarmanns sjáv-
arútvegsráðherra.
Eftir heimsóknina til Sovétríkj-
anna.skoðar Halldór Ásgrímsson
sjávarútvegssýningar í Cuxhaven
og Köln í Vestur-Þýskalandi.
TRYGGINGASTOFNUN greiddi
110,1 milljónir kr. í sjúkrakostnað
á síðasta ári vegna Islendinga, sem
þurftu þá á sjúkrahúsvist að halda
erlendis. Þar af vó kostnaður
vegna kransæðasjúklinga þyngst,
35,2 millj. kr. Kostnaður vegna
annarra hjartasjúkdóma nam 25
millj. kr. og annar kostnaður
skiptist á milli ýmissa annarra
sjúklinga, m.a. augn-, krabba-
meins-, bæklunar-, nýrna- og lyfja-
sjúklinga. Þá greiddi Trygginga-
stofnun 10,5 millj. kr. á síðasta ári
vegna glasafrjóvgana Islendinga
erlendis.
Stofnunin greiddi 12,7 millj. kr. í
fargjöld fyrir sjúklinga, sem þurftu á
læknishjálp að halda erlendis. Kostn-
aður vegna uppihalds fyrir þá fylgd-
armenn, sem samþykktir voru í sigl-
inganefnd, nam 9,5 milljónum kr.,
en nefndin samþykkir aðeins fylgdar-
menn fyrir börn, blinda og líkamlega
ósjálfbjarga einstaklinga.
Siglinganefnd Tryggingastofnunar
samþykkti 335 ferðir á síðasta ári.
Þar af voru 103 kransæðasjúklingar,
32 aðrir hjartasjúklingar, 5 augn-
sjúklingar, 19 krabbameinssjúkling-
ar, 17 bæklunarsjúklingar, 28 nýrna-
sjúklingar, 5 sjúklingar vegna slysa,
1 sjúklingur vegna lyfja- og áfengis-
misnotkunar, 92 glasafijóvganir og
23 sjúklingar vegna ýmissa annarra
sjúkdóma. Þáttur sjúkrasamlagana á
síðasta ári nam 27 millj. kr.
Kristján Guðjónsson, deildarstjóri
sjúkratryggingadeildar og ritari í
siglinganefnd, sagði að líffæraflutn-
ingar væru langdýrustu aðgerðirnar
svo sem hjarta-, lungna-, nýrna- og
lifraflutningar. Kostnaður vegna dýr-
ustu aðgerða gætu numið allt að sex
milljónum króna. „Það er ekki nóg
að sjúklingur óski þess að fara utan
til aðgerðar. Til þess að siglinganefnd
samþykki greiðslu til sjúklings, sem
fer í aðgerð erlendis, þarf það að
liggja fyrir að ekki sé unnt að gera
aðgerðina hér heima. Svokölluð sigl-
inganefnd Tryggingastofnunar fjallar
um hvert tilvik fyrir sig samkvæmt
vottorði frá lækni. Formaður sigl-
inganefndar er tryggingayfirlæknir,
en auk hans sitja í nefndinni fjórir
læknar, hver á sínu sviði.
Fram hefur komið að um 500 ein-
staklingar biðu eftir gerviliðaaðgerð-
um hér á landi og gæti biðin numið
allt að tveimur til þremur árum.
Kristján sagði að það væri ekki nóg
að sýna fram á biðröð hér heima tii
að fá greiddan sjúkrakostnað erlend-
is. Hann sagði að siglinganefnd hefði
fyrir skömmu fengið tilvik inn á borð
til sín þar sem viðkomandi sjúklingur
var orðin sárþjáður af biðinni og hefði
nefndin þar með ákveðið að greiða
sjúklingnum sem svarar til daggjaldi
á íslensku sjúkrahúsi. Viðmiðunar-
daggjald nefndarinnar væri nálægt
17.000 krónum. Hinsvegar hefði allur
umframsjúkra- og ferðakostnaður
verið á ábyrgð sjúklingsins.
T-beinastcik með fersku salati, maísstöngli
og bernaise sósu
Kr. 1850,-
ARNARHÓLL
ÓPERUKJALLARINN
símar 18833 Gt 14133
Lifandi léttur og litríkur
BILDSHOFÐA 10
Opnunartími:
VESTURLANDSVEGUR
straumur
Föstudaga....kl. 13-19
Laugardaga...kl. 10-16
Aðra daga....kl. 13-18
öldi fyrirtækja - gífurlegt vöru-
rval - ÓTRÚLEGT VERÐ
STEINAR Hljómplötur - kassettur • •
KARNABÆR - BOGART - GARBÓ Tiskufatnaó-
ur • • HUMMEL Sportvörur alls konar
• SAMBANDIÐ Fatnaóur á alla fjölskyld-
una »»80 MBEY Barnafatnaóur •
HERRAHÚSIÐ ADAM Herrafatnaóur •
SKÆDI KRINGLUNNI Skófatnaóur • EFRAIM
Skófatnaóur • BLÓMALIST Blóm og
gjafavörur • NAFNLAUSA BÚÐIN Efni alls-
konar • THEÓDÓRA Kventiskufatnaóur •
MÆRA Snyrtivörur - skartgripir . PARTY
Tískuvörur • KÁRI Sængurfatnaóur
o.fl.. VINNUFATABÚÐIN Fatnaóur .
SPARTA íþróttavörur •
NU FER HVER AD VERÐA SIÐASTUR!