Morgunblaðið - 26.09.1989, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. SEPTEMBER 1989
19
Tveir fórust í eldi í
N or ðursj ávarferj u
Kaupmannahöfn. Frá N.J.Bruun, fréttaritara Morgunblaðsins.
TVEIR menn létust og um tíu slösuðust eða urðu fyrir reykeitrun
þegar eldur kom upp í dönsku Norðursjávarferjunni Tor Scandina-
via í fyrrinótt. 540 farþegar og 120 manna áhöfn voru á skipinu en
það var á leið frá Gautaborg til Harwich á Englandi og var statt
vestur af Esbjerg á Jótlandi þegar slysið varð.
Hefilbekkir
Reuter
Stjórnklefi og fyrsta farrými breiðþotu franska flugfélagsins UTA
sem sprengd var í loft upp yfir Sahara-eyðimörkinni sl. þriðjudag.
Aðkoma á slysstað þykir minna á þegar breiðþotu bandaríska flugfé-
lagsins Pan American var grandað á flugi yfir bænum Lockerbie í
Skotlandi skömmu fyrir síðustu jól.
Eldsins varð vart um klukkan
fimm í fyrrinótt og virðist hann
hafa komið upp í klefa framarlega
í skipinu þar sem línið var pressað.
Var reykjarkófið svo mikið, að skip-
veijar komust ekki inn í loftskeyta-
klefann en þeir gátu þó haft sam-
band við land og önnur skip með
Breiðþota franska flugfélagsins UTA:
Sprengjuleifar fimdust
við rannsókn á flakinu
París. Reuter.
YFIRMAÐUR rannsóknarneftidar flugslysa í Frakklandi, Robert
Paillasse, sagði í gær að sprengjuleifar hefðu fundist við rannsókn
á flaki breiðþotu franska flugfélagsins UTA sem fórst sl. þriðjudag
skömmu eftir brottfor frá N’Djamena í Chad.
Paillasse sagði að leifar af ur vegna skyndilegs þrýstingsfalls.
sprengjuefni hefðu fundist í fremstu
lest þotunnar, undir fyrsta farrými.
Hann sagði að sprengjan sjálf þyrfti
ekki að hafa verið stór, því eftir
að hún spryngi tættist þotan í sund-
Um borð í þotunni, sem var af
gerðinni Boeing 747, voru 170
manns, farþegar og áhöfn og biðu
allir bana. Sprakk sprengjan um
40 mínútum eftir flugtak og dreyfð-
Danmörk:
Náðu samkomulagi í
Stórabeltisdeilunni
Kaupmaunahöfn. Frá N. J. Bruun, fréttaritara Morgunblaðsins.
DONSK stjórnvöld og framkvæmdastjórn Evrópubandalagsins hafa
komist að samkomulagi í deilunni um Stórabeltisbrúna. Snerist hún
um ásakanir þess efriis að danska stjórnin hefði látið dönsk fyrir-
tæki sifja fyrir flestum verkum við brúarsmíðina og ekki farið eftir
þeim reglum, sem gilda um útboð innan EB.
Martin Bangemann, varaforseti til erlendra fyrirtækja, sem lagt
framkvæmdastjórnarinnar, sagði hefðu í mikinn kostnað vegna út-
boðsins en síðan verið útilokuð
vegna ákvæða um forgang danskra
fyrirtækja. .
Danir viðurkenna, að þeir hafi
brotið í bága við lög um jafnan
rétt allra fyrirtækja innan EB og
sagði H. P. Clausen, dómsmálaráð-
herra Danmerkur, á blaðamanna-
fundi þar sem samkomulagið var
kynnt, að búist væri við skaðabóta-
greiðslum til fjögurra fyrirtækja.
Er heildarupphæðin talin verða á
bilinu 350-700 milljónir ísl. kr.
ist brak úr henni á 50 ferkílómetra
eyðimerkursvæði í Níger.
Atta farþegar sem yfirgáfu þot-
una í N’Djamena hafa verið yfir-
heyrðir af lögreglu í Chad. Tals-
maður UTA sagði í gær að þeir
hefðu verið hreinsaðir af grun um
að hafa grandað þotunni.
Rannsókn á flugrita flugvélar-
innar hefur leitt í ljós að skyndileg
sprenging hefði grandað henni.
Ekki er vitað hverjir voru að verki
en talsmaður franska dómsmála-
ráðuneytisins sagði að ekki léki
lengur vafi á því hvernig þotan
hefði farist. Hefði henni verið
grandað af ásetttu ráði og með
köldu blóði. Yrði gefin út ákæra
fyrir morð og skemmdarverk á flug-
vél á hendur „óþekktum mönnum“.
síðastliðinn föstudag, að Danir
hefðu fallist á að greiða skaðabætur
Vetrartími á
meginlandinu
Aðfaranótt sunnudagsins
24. september tók vetrartími
gildi á ný á meginlandi Evr-
ópu. Frá og með sunnudegin-
um er því eins tíma munur á
íslandi og Vestur-Þýskalandi
svo dæmi sé tekið í stað
tveggja. Bretar hverfa hins
vegar ekki aftur til vetr-
artíma fyrr en 29. október
og er því einnar stundar
munur á okkar tíma og Breta
enn um sinn.
Reuter
Galileo hafði
réttfyrirsér
Kaþólska kirkjan hafði rangt fyr-
ir sér þegar rannsóknarrétturinn
bannfærði ítalska stjarnfræðing-
inn Galileo Galilei árið 1663 fyrir
að taka undir með starfsbróður
sínum, Nicolas Copernicus, og
halda því fram, að reikistjörnum-
ar snerust um sólu. Kom þetta
fram bjá Jóhannesi Páli páfa II
þegar hann ávarpaði prófessora
við háskólann í Pisa sl. sunnu-
dag. Ekki er saint búist við, að
bannfæringunni verði aflétt enda
á hún sér ekki lengur neina stoð
í lögum, ólíktþví, sem áður var.
LETTU ÞER ROÐURINN
HJÁ MÁLASKÓLANUM
GRE
Fyrsta námskeiöið hefst 27. september
GMAT
Fyrsta námskeiðið hefst 27. september
TOEFL
Fyrsta námskeiðið hefst 4. oktööer
Hvert námskeið stendur yfir í þrjár vikur. Kennt verður
þrisvar í viku , þrjá tíma í senn. Innritun stendur yfir.
EMS
Málaskólinn
BORGARTÚNI 24, SÍMI 62 66 55
lausri talstöð. Nálæg skip komu
strax til hjálpar og björgunarþyrlur
úr landi en ekki reyndist nauðsyn-
legt að flytja farþegana frá borði
ef undan eru skildir fjórir, sem
fengu reykeitrun.
Meðal skipanna, sem komu á
vettvang, var vestur-þýski tundur-
spillirinn Hamburg og það voru sjó-
liðar af honum, sem fundu þá tvo,
sem létust í eldsvoðanum. í gær
hafði ekki verið skýrt frá nöfnum
þeirra. Um klukkan 11 í gærmorg-
un hafði tekist að slökkva eldinn
um borð og var skipinu þá siglt á
hægri ferð til Esbjergs.
Tor Scandinavia er ein af stærstu
feijum á Norðurlöndum og getur
flutt 1.500 farþega. Er hún ávallt
í förum á milli Svíþjóðar, Bretlands
og Danmerkur. Að þessu sinni voru
farþegarnir aðallega Bretar en
einnig nokkuð um Svía.
VERZLUNIN
X' í % frr^ )
|A(»\NNINUM
§YRI[#ERKINU|
Eftirtaldar blikksmiðjur eru aðilar að Félagi blikksmiðju-
eigenda og þótttakendur i sérstöku ótaki sem miðar að pví
að bæta og uppfylla hæstu faalegu kröfu. Þessar smiðjur
hafa leyfi til að bera fagmerki félagsins og munu því óvallt
leggia sig fram um að skila traustu og faglegu verki.
Oskir þú eftir vandaðri vinnu, hafðu þó samband við ein-
hverja eftirtalinna blikksmiðja, sem allar bera fagmerki
FBE:
AKUREYRI:
BLIKKRAS HF. Hjalteyrargötu 6, s. 96-27770/96-26524
BLIKKVIRKI HF. Kaldbaksgötu 2, s. 96-24017
BORGARNES:
VIRNET HF: Borgarbraut, s 93-71296
FÁSKRÚÐSFJÖRÐUR:
BLIKK OG BILAR Túngötu 7, s. 97-51108
GARÐAB&R: .vBpi-;!
BLIKKIÐJAN SF. Iðnbúð 3, s. 46711
HAFNARFJÖR0UR: v v
BLIKKTÆKNI HF. Kaplahrauni 2-4, s. 54244
RÁSVERK HF. Kaplahrauni 17, s. 52760
KEFLAVÍK:
BLIKKSMIÐJA
ÁGÚSTAR GUÐJÓNSSONAR Vesturbraut 14, s. 92-12430
KÖPAVOGUR:
AUÐÁS HF. Kórsnesbraut 102 a, s. 641280
BLIKKÁS HF. Skeljabrekku 4, s. 44040
BLIKKSMIÐJA EINARS SF. Smiðjuvegi 4 b, s. 71100
BLIKKSMIÐJAN FUNI SF. Smiðjuvegi 28, s. 78733
BLIKKSMIÐJAN VfK HF. Smiðjuvegi 18, s. 71580
K.K. BLIKK HF. Auðbrekku 23, s. 45575
REYKJAVÍK:
BLIKK OG STÁL HF. Bftdshöfða 12, s. 686666
BLIKKSMIÐJA AUSTURBÆJAR HF. Borgartúni 25, s. 14933
BLIKKSMIÐJA GYLFA HF. Vagnhöfða 7, s. 674222
BLIKKSMIÐJA REYKJAVÍKUR Súðarvogi 7, s. 686940
BLIKKSMIÐJAN tæknideild Ó.J. & K. Smiðshöfða 9, s. 685699
BLIKKSMIÐJAN GLÓFAXI Ármúla 42, s. 34236
BLIKKSMIÐJAN GRETTIR HF. Ármúla 19, s. 681996
BLIKKSMIÐURINN HF. Vagnhöfða 10, s. 672170
BREIÐFJÖRÐS BLIKKSMIÐJA HF. Sigtúni 7, s. 29022
HAGBLIKK HF. Eirhöfða 17. s. 673222
SELFOSS:
BLIKK HF. Gagnheiði 23, s. 98-22040
FÉLAG BUKKSPUÐJUEIGENDA
Hverfisgötu 105, 101 Reykjavík
s: 91-621755