Morgunblaðið - 26.09.1989, Blaðsíða 32
32
MQKGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. SEPTEMBER 1989
fclk í
frétfum
SKALLAPOPP
Krókur syngiir
ekki með fætinum
Gerður var góður rómur að
hljómleikum Króks og Lyfjasýn-
ingarinnar
Gamli popparinn dr.Hook og
hljómsveit hans The Medicin
Show, eða lyfjasýningin var hér á
ferð fyrir skömmu og lék m. a. við
góðar undirtektir á Hótel íslandi
og víðar. Gamli popparinn gerði
talsverða lukku eins og merkja má
af annarri myndinni sem hér fylgir
og sýndi af sér mikla liörku þar eð
hann er fótbrotinn þessa dagana
og staulaðist um allt svið með mik-
inn búnað á fætinum. Sagt er að
einhver hafi gaukað því að Krók
gamla að réttast væri að hann tæki
sér hvíld meðan að brotið greri, en
svarið hafi komið um hæl, að hann
fengi engar tekjur fyrir að liggja
heima í bæli og auk þess syngi
hann ekki með fætinum, sem betur
fer.
Krókur gamli sýnir umbúðirnar.
Morgunblaðið/Benedikt Guðmundsson
NÝ- OG BREYTT NN
Kristín Stefánsdóttir
snyrti- og
förðunarfræðingur
Kristín Friðriksdóttir
förðunarfræðingur
Ágústa Kristjánsdóttir
fótaaðgerða- og
snyrtifræðingur
Kristín Guðmundsdóttir
fótaaðgerða- og
snyrtifræðingur
Okkur er áncegja ad tilkynna að vió opnum aftur í dag,
eftir breytingar hér á N.N., og í leiðinni viljum við
bjóða Kristínu Guðmundsdóttur velkomna til starfa.
Við bjóðum ykkur eftirfarandi þjónustu:
— Andlitsböð og einnig 3 tíma kúra (ampúlur) — Húðhreinsun 20%
skólaafsláttur — Litanir — Fótaaðgerðir — Spangarmeðferð fyrir inn-
grónar neglur — Gervineglurnar sívinsælu — Vaxmeðferð — Handsn-
yrtingu
— Förðun, brúðar-, samkvæmis- og „fantasíu“förðun
— SYLVIA LEWIS varanleg háreyðing
Breyttur og lengri opnunartími:
fimmtudaga 10-20 laugardaga 10-16
föstudaga 10-20 Pöntunarsími 19660.
Snyrtistofan NN
Laugavegi 27
Með dóttur sinni Melanie Griffith og vini sinum i rúminu
DÝRAHALD
Sannur dýravinur
Leikkonan Tippy Hedren, sem er
þekktust fyrir leik sinn í kvik-
mynd Alfreds Hitchcocks Fuglunum,
hefur undurfurðulegt tómstunda-
gaman. Hún safnar sprelllifandi ljón-
um, tígrum, blettatígrum og hlébörð-
um! Þeir ganga meira og minna laus-
ir á landareign leikkonunnar í
Soledad-gljúfri fyrir norðan Los
Angeles. Um er að ræða 82 stór-
ketti af framangreindum tegundum.
Það vill meira að segja koma fyrir
að þeim er boðið inn í stofu og al-
gengt er að risavaxinn tígur reki
höfuðið inn um elduhúsgluggann er
Tippy vaskar upp og heimtar að
sleikja matarafganga af diskunum.
Oft er talað um að börn iendi í
skugga foreldra sinna ef þeir feta
sömu spor í lífinu. Dóttir Tippy er
ieikkonan Melanie Griffith sem hefur
brotist út úr skugganum með
frammistöðu sinni í ýmsum vel
heppnuðum kvikmyndum. Pyrir hlut-
verk sitt í myndinni Working Girl
hreppti hún Oskarsverðlaun og er
hætt við að minna hefði ekki dugað
til að næði sviðsljósinu frá móður
sinni.
Áhuga Tippy á dýrum má rekja
til þess, að fyrir mörgum árum var
hún í Afríku við upptökur á kvik-
mynd sem heitir Uppskera Satans.
Þar heillaðist hún af ljónum. Ákvað
hún þá í samráði við þáverandi eigin-
mann sinn, leikstjórann Noel Mars-
hall, að gera heimiidakvikmynd um
sambúð ljóna og manna. Síðan eru
liðin 18 ár og „gæludýrin" eru nú
82 talsins eins og fyrr sagði á 13
afmörkuðum svæðum á landareign-
inni. Tippy hefur flokk manna og
kvenna um sig til að nostra við vini
sína og segir hlýhug dýranna í sinn
garð réttlæta sérvisku sína. Áberandi
sé þó hversu lítið tígrarnir gefi af
sér,.en heimti þeim mun meira. Og
svo eru það matarreikningarnir!
Tippy í
notalegum
félagsskap
heima í stofú.
Ringó ásamt eigin-
konu sinni leikkon-
unni Barböru
Bach.
ÁFENGISBÖL
Ringóívanda
Gamli Bítlatrymbillinn Ringo Starr hefur glímt lengi og djarflega
við Bakkus og hafa þeir skipst á að hafa betur. Nú hefur Ringó
yfirhöndina og segist ekki ætla að láta undan síga, áfengi sé böl og
ógerningur að vita hvað snúi upp og hvað niður á hiutunum með Bakk-
us sér við hlið. Ringó er aftur á móti í klípu, því honum skilst að út sé
að koma hljómplata með sér, plata sem hann man heldur óljóst eftir.
Vottar hafa staðfest að hann hafi verið dauðadrukkinn meðan á upptök-
um stóð og nú vill Bítillinn koma í veg fyrir að þessi nýjasta afurð sín
líti dagsins ljós.
„Það er alveg ljóst að ég var drukkinn þegar ég gerði plötuna. Það
sannast best á því að ég man varla eftir því að hafa gert hana, rámar þó
í ýmis atriði. Ringó Starr ódrukkinn er hinn rétti Ringó Starr, þessi plata
á því engan rétt á sér,“ hefur verið haft eftir Ringó. Utgáfufyrirtækið er
á öðru máli. Ringó hefur boðið því skaðabætur en ekki hefur verið geng-
ið að því og nú stefnir málið hraðbyri fyrir dómsstóla.