Morgunblaðið - 26.09.1989, Qupperneq 36
36
MORGUNBLA'ÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. SEPTEMBER 1989
Ást er...
:c?l- :<p[’
... að kasta minnisbók-
inni með símanúmerum
gömlu kærastanna.
TM Reg. U.S. Pat Off.—all rigbts reserved
® 1989 Los Angeles Times Syndicate
Barnið vex auðvitað, en
rúmið ekki, frú mín!
Með
morgunkaffinu
Landafræði er erfiðust. Ég
veit ekki einu sinni hvað
stærsti bærinn í Breið-
holtinu heitir ...
HÖGNI HREKKVÍSI
Óviðeigandi ummæli
Vegna ummæla Marteins Geirs-
sonar þjálfara Fylkis í sjónvarpi
sl. laugardag, Dagblaðinu á mánu-
daginn og í Morgunblaðinu á
þriðjudag vil ég aðeins segja þetta:
Það er ekki stórmannlegt að
kenna öðrum um slakt gengi síns
liðs og ummæli þín sjónvarpi og
dagblöðum undanfarið segja meira
um sárindi þín vegna frammistöðu
þinna manna í hinni hörðu keppni
sem fyrsta deildin er, en getu
Akureyrarliðsins Þórs.
Sífelldar fullyrðingar þínar um
að Þór hafi lakasta liðið í fyrstu
deild eru þér sjálfum til minnkunar
og væri þér nær að líta í eigin
barm hvað þetta varðar.
Ekki ætla ég að krefja þig um
afsökunarbeiðni fyrir hönd Skaga-
manna en ef að þú sérð ekki sjálf-
ur ástæðu til þess að biðja þá af-
sökunar á ummælum þínum í sjón-
varpinu sl. laugardag er þér vor-
kunn.
Ef þú hefur ekki séð stöðuna í
deildinni í sumar þá vil ég gjarnan
benda þér á að þitt annars ágæta
félag vermdi botnsætið af 17 um-
ferðir 18 og ennfremur að Fylkir
tapaði 11 af þessum 18 leikjum
meðan Þór tapaði 8 leikjum af 18,
aðeins tveimur fleiri en liðið sem
varð í þriðja sæti í deildinni.
Þótt Fylkir hafi tekið öll 6 stig-
in af Þór þá segir það miklu meira
um hversu jöfn deildin var í heild,
heldur en hitt sem þú sífellt klifar
á.
Til gamans get ég nefnt það hér
að ef þeim 18 stigum sem við
Þórsarar fengum tókum við 12
stig af liðunum sem skipa 6 efstu
sæti deildarinnar.
Við gerðum okkur alla tíð grein
fyrir að það yrði erfið barátta hjá
okkur í deildinni þetta árið, þar
sem ekkert lið varð fyrir annarri
eins blóðtöku eins og við fyrir þetta
íslandsmót.
Það var því markmið okkar fyrst
og fremst að halda okkur í deild-
inni og allt umfram það væri bón-
us fyrir okkur. Eins og þú veist
Marteinn, þá eru botnliðin aldrei
heppin, þau aðeins uppskera eins
og þau sá. Það er alltaf hlutskipti
tveggja liða að falla úr fyrstu deild
og það eru einfaldlega þau lið sem
tapa flestum stigum sem falla.
Það skyldi þó aldrei vera að leik-
skipulagið hafi eitthvað klikkað hjá
þér í sumar?
Ég vil engu liði það að falla
milli deilda og ég tel að bæði ÍBK
og Fylkir séu Iið sem verðskuldi
að vera í fyrstu deild og koma
eflaust bæði til með að heimta sín
sæti í fyrstu deild að ári.
En framkoma á við þá sem þú
hefur sýnt undanfarna daga vona
ég að sé eingöngu þín persónulega
skoðun og vonandi taka lærisvein-
ar þínir örlögum sínum með meiri
karimennsku en þú hefur sýnt að
undanförnu.
Það litla sem ég þekkti þig frá
fyrri tíð var af öðru en óíþrótta-
mannslegri framkomu og lágkúru-
legum fullyrðingum um andstæð-
ing þinn í keppni, því meiri er
undrun mín, þar sem þú ekki að-
eins móðgar margan ungan piltinn
sem er að stíga sín fyrstu spor í
fyrstu deild, heldur og rýrir það
álit sem þú hefur unnið þér í gegn-
um árin bæði sem leikmaður og
þjálfari.
Benedikt Guðmundsson,
Akureyri.
Víkverji skrifar
Jón Sigurðsson, iðnaðarráðhen-a,
stóð sig vel í sjónvarpsþætti á
laugardagskvöldið var, þar sem tveir
fréttamenn spurðu um stefnu hans
í stóriðjumálum. Ráðherrann er ber-
sýnilega mjög vel að sér í þessum
málum og svaraði vel fyrir sig. Svo
er nú komið, að menn taka sérstak-
lega eftir því, ef ráðherrar sýna, að
þeir hafa þekkingu á því, sem þeir
eru að tala um!
Athyglisvert var að heyra ráð-
hen-ann lýsa því, að við fáum jafn
mikið fyrir tonn af bræddu áli eins
og fyrir tonn af þorski upp úr sjó. Á
þennan einfalda hátt er hægt að út-
skýra fyrir þjóðinni, hversu mikið er
í húfi á þann veg að allir skilja.
xxx
að er eins konar Erró-æði að
grípa um sig í borginni - og
kannski landinu öllu. Hvar sem kom-
ið er heyrist fólk tala um það, hvort
viðmælandinn sé búinn að sjá sýn-
ingu Eitós á Kjarvalsstöðum.
Víkveiji man eftir fyrstu sýningum
Enós í Listamannaskálanum gamla.
Þá keyptu nokkir framsýnir einstakl-
ingar myndir af Iistamanninum, sem
sennilega eru orðnir býsna verðmæt-
ar nú.
xxx
Annars fer menningarlíf höfuð-
borgarinnar vel af stað á þessu
hausti. Auk sýningar Errós á Kjarv-
alsstöðum opnaði Listasafn íslands
yfirlitssýningu á verkum Jóns Stef-
ánssonar á laugardaginn. Búast má
við, að mikil aðsókn verði einnig að
þeirri sýningu.
Þá er íslenzka óperan að hefja
sýningar á ný á Brúðkaupi Fígarós
og í kjölfarið kemur svo gestasýning
frá óperunni í Osló á Toscu, sem
sýnd var hér í Þjóðleikhúsinu fyrir
nokkrum ámm. Það verður gaman
að bera þær tvær sýningar saman
og sjá hvar við stöndum. Kristján
Jóhannsson var eftirminnilegur í
þeirri sýningu, en hann syngur í
Toscu þessa dagana í Chicago
Svo verður Borgarleikhúsið opnað
í október. Þá verða tímamót í leiklist-
arlífí þjóðarinnar.
XXX
Víkveiji verður þess var, að
Steingrímur Hermannsson hef-
ur ekki riðið l'eitum hesti frá viðræð-
um við tvo fréttamenn á Stöð 2 um
daginn. Forsætisráðheira þykir hafa
átt í vök að veijast og gagnsókn
hans, sem byggðist á því, að frétta-
menn Stöðvar 2 væru ekkert betri
en hann sjálfur hefur ekki þótt sann-
færandi.