Morgunblaðið - 26.09.1989, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. SEPTEMBER 1989
39
Karl Þorsteins
skákmeistari
íslands 1989
SKÁKÞING ISLANOS 1989
Skák
eftir Braga Kristjánsson
Skákþingi íslands lauk á sunnu-
dagskvöld með sigri alþjóðlega
meistarans, Karls Þorsteins. Karl
hlaut 9 vinninga í ellefu skákum,
tapaði ekki skák. Hann tefldi mjög
vel á mótinu og var krafturinn
slíkur, að hann gat leyft sér að
gerajafntefli íþremur síðustu skák-
unum. Karl vakti ungur athygli sem
mikið skákmannsefni. Hann komst
fyrir tæpum tíu árum í röð fremstu
skákmanna landsins, og vinnur nú
Islandsmeistaratitilinn í annað sinn,
áður vann hann 1985. Karl er 25
ára nemþ í viðskiptafræðum við
Háskóla íslands og hyggst ljúka
námi um næstu áramót. Verður
gaman að fylgjast með honum, þeg-
ar hann snýr sér að skákinni af
fullum krafti að lokinni skólagöngu.
Jón L. Árnason, stórmeistari,
varð að láta sér lynda annað sætið
með 8 14 vinning. Hann byijaði illa
og hafði eftir það aldrei möguleika
á að ná Karli, þótt ekki munaði
nema hálfum vinningi í lokin. Tafl-
mennska Jóns hefur verið með
daufara móti að undanförnu, en á
því verður örugglega fljótt breyting.
Alþjóðlegi meistarinn, Þröstur
Þórhallsson, varð þriðji með 7 vinn-
inga. Hann tefldi vel að vanda og
verðskuldar sætið. Björgvin Jóns-
son varð fjórði, hlaut 6 A vinning.
Hann tefldi vel, tapaði aðeins einni
skák. Björgvin er orðinn geysisterk-
ur skákmaður eins og frammistaða
hans á helgarskákmótinu á Flateyri
sýndi ljóslega. í þessu móti skorti
hann herslumuninn til að komast í
efstu sætin og ná þar með alþjóðleg-
um meistaratitli. Titillinn er örugg-
lega ekki langt undan, ef Björgvin
heldur sínu striki. Hannes Hlífar
var óvenjumistækur í mótinu og var
uppskeran í samræmi við það.
Ungur og efnilegur Akureyring-
ur, Rúnar Sigurpálsson, fékk sína
eldskírn í þessu móti. Hann komst
ekki á blað fyrr en í 4. umferð, og
þá með jafntefli við Karl! Rúnar
endaði í næstneðsta sæti með 3 'k
vinning, en það verður að teljast
þokkaleg útkoma, sérstaklega þeg-
ar haft er í huga, að hann kom inn
í mótið sem varamaður nokkrum
dögum áður en það hófst.
Um önnur úrslit vísast til með-
fylgjandi töflu.
7. umferð:
Hvítt: Karl Þorsteins
Svart: Guðmundur Gíslason
Grunnfelds-vörn
1. d4 - Rf6, 2. c4 - g6, 3. Rc3
— d5, 4. cxd5 — Rxd5, 5. e4 —
Rxc3, 6. bxc3 — Bg7, 7. Bc4 —
Þessi gamla uppbygging í upp-
skriftaafbrigði Grunfelds-yarnar-
innar er aftur komin í tísku. Á árun-
um eftir 1980 varð leikurinn 7. Rf3
erfiður í höndum Kasparovs, núver-
andi heimsmeistari, og margra ann-
arra sterkra meistara, en nú hafa
fundist góðar vamarleiðir fyrir
svart.
7. - c5, 8. Re2 - 0-0, 9. 0-0 -
1 2 3 A 5 6 7 8 9 10 11 12 Vlnn S.B. Röð
1. Rúnar' Slgurpálsson 0 0 fk o h / 'h / o 0 yiz XI.
2. Þröstun Annason 1 0 o 0 h / O o 0 / H ft.lS X.
3. Agúst Kanlsson 1 / 0 0 h 'k 0 o / 5 3L.
4. Kanl Þonstelns 'h / / / ‘k 'k / / / / 1 1.
5. Hannes H. Stefánsson / / / 0 - 1 O 'h 0 h / 4 I.
6. BJöngvln Júnsson 'h •h 'h h 0 1 'h 1 A 'h a H.
7. J6n G. Vlöansson O 0 'h 0 'h 'h O / / H »4 TE.
0. Tómas ÐJönnsson h / 'h / íz 'h 0 0 0 •h f/ 2£0 3Zl.
9. Slgunöun D. Slgfússon 0 7 0 •h 0 'h 1 'h 0 0 H/z 2úi.
10. Þnöstun Þónhallsson 1 1 0 1 / / 1 h« 0 k 7 TL.
11. Jón L. Annason / 1 0 íz z / / 1 a TL.
12. GuBmundun Glslason / O O 0 0 O 'h / 'A _ 3 ffi.
Rc6, 10. Be3 - Dc7.
í 5. skák Karovs og Kasparovs
í Sevilla 1987 varð eftirfarandi af-
brigði, sem lengi var talið óteflandi
fyrir hvít, vinsælt: 10. — Bg4, 11.
f3 - Ra5, 12. Bxf7 +?! o.s.frv.
Guðmundur teflir hins vegar eins
og meistarinn mikli, Robert Fisc-
her, tefldi í þá gömlu góðu daga.
11. Hcl - Hd8, 12. Dd2 -
Aðrir þekktir leikir í þessari stöðu
eru 12. h3, 12. del og 12. f4!7.
12. - b6
Guðmundur tekur lífinu með ró
og sleppir þekktri leið til að létta á
svörtu stöðunni. 12. - Da5 (líka
sm svar við 12. Del) 13. Hfdl -
cxd4 (13. - Re5!? 14. Bd5 - Rg4,
15. Bg5 - Rf6, 16. Bxf6 - Bxf6,
17. Df4 — Hf8 kemur til greina)
14. cxd4 - Dxd2, 15. Hxd2 -
Bd7, 16. d5 - Ra5, 17. Bd3 - b6,
18. Rd4 - Hac8,19. Hdc2 - Hxc2,
20. Hxc2 - Hc8, 21. Hxc8 - Bxc8,
22. f4 - Bxd4!?, 23. Bxd4 - f5,
24. Kf2 — fxe4, 25. Bxe4 — Rc4
o.s.frv.
13. Hfdl - Ra5, 14. Bd3 - Bd7,
15. Bh6 - Ba4,16. Hel - Bh8?!
Svartur hefur ekki 'tíma fyrir
þessi fínheit. Hann hefði betur ráð-
ist strax á miðborð hvíts með 16.
— cxd4, 17. cxd4 — Dd7 o.s.fi’v.
17. e5 — cxd4, 18. cxd4 — Dd7,
19. Df4 - Bc6
Betra hefði verið að létta á stöð-
unni með hrókauppskiptum á c-
línunni: 19. — Hac8. Máthótunin
með 19. — Bc6 og 20. — Dd5 reyn-
ist aðeins tímasóun.
20. h4! - Dd5, 21. Dg5 - 16.
Svartur grípur til örvæntingarað-
gerða, því yfir honum vofir hótunin
22. h5 ásamt hxg6 og Bxg6.
22. Dg3 - fxe5
Ekki 22. - Kf7?, 23. Rf4 -
Dxd4, 24. Bxg6+ hxg6, 25. Dxg6
mát.
23. h5 -
Ekki 23. Bxg6? — Dxg2+!, 24.
Dxg2 — Bxg2 og svartur sleppur
ríieð skrekkinn.
23. — Hd6, 24. hxg6 — e4
Eða 24. - hxg6, 25. Rc3 - Df7,
26. dxe5 með yfirburðastöðu fyrir
hvít.
25. Rf4 - Df5, 26. Hxc6!
Helgarskákmótið
á Egilsstöðum:
Helgi vann
Larsen á
stigum
HELGI Ólafsson, stórmeistari, og
Daninn Bent Larsen urðu efstir
og jafnir á helgarskákmótinu á
Egilsstöðum með 6 vinninga, en
Helga var dæmdur sigurinn á
stigum. I 3.-4. sæti urðu Ásgeir
Þ. Árnason og Guðmundur Hall-
dórsson með 5,5 vinninga og fékk
Guðmundur 3. sætið vegna hærri
stigatölu. Egill Þorsteins varð í
5. sæti með 5 vinninga.
Helgi vann allar skákir sínar,
nema skákina gegn Larsen, sem
hann tapaði, en Larsen vann fimm
skákir og gerði tvö jafntefli við
Guðmund Halldórsson og Braga
Halldórsson. Sverrir Gestsson stóð
sig best heimamanna og fékk 4,5
vinninga. Unglingaverðlaunin fékk
Sigfús Víkingsson, sem fékk 3,5
vinninga og Oli Valdimarsson stóð
sig best öldunga og fékk 4 vinninga.
Þáttakendur voru 28 og var teflt
í Fellaskóla. Mótinu lauk á sunnu-
dag með sameiginlegu borðhaldi í
boði bæjarstjórna Egilstaða og
Fellabæjár. Gert er ráð fyrir að
næsta helgarskákmót verði haldið
í Keflavík.
Karl Þorsteins nýkrýndur íslands-
meistari í skák:
Mikil skákiðk-
un að skila sér
„Ég átti ekki beint von á þesum
árangri og þó. Það var vitað
fyrirfram að við myndum berj-
ast þrír eða Qórir um titilinn
og eftir góða byrjun var þetta
nokkuð þægilegt,“ sagði Karl
Þorsteins, sem á sunnudag varð
íslandsmeistari í skák í annað
sinn, en hann vann einnig titil-
inn 1985.
Karl fékk 9 vinninga af 11
mögulegum og Jón L. Árnason,
stórmeistari, var í öðru sæti með
8,5 vinninga, en hann vann skák-
ir sínar í síðustu fimm umferðun-
um. Kari sagði að eftir að hann
vann Jón L. í 3. umferð og Jón
gerði jafntefli í þeirri 4. hefði eftir-
leikurinn verið fremur auðveldur.
Hann hefði fyrst og fremst þurft
að passa sig á því að missa ekki
niður forskotið.
„Ég er búin að tefla mjög stíft
síðasta hálfa árið og ég held að
það hafi verið að skila sér núna,“
sagði Karl ennfremur. Hann snýr
sér nú aftur að viðskiptafræðin-
ámi í Háskólanum og stefnir að
Karl Þorsteins.
því að ljúka því um áramótin.
Hann segir óráðið með frekari
skákiðkun og engin önnur skák-
mót séu í sjónmáli, hvað sem síðar
verði.
og Guðmundur gafst upp, því
hann er varnarlaus, t.d. 26. —
Rxc6, 27. Bxe4 — Da5, 28.
gxh7+-i— Kf7, 29. Bg6n— Kf6,
30. Dh4+ og mátar eða 26. —
exd3, 27. Hxd6 - exd6 (27. -
d2, 28. Hxe7! - dlD+, 29. Kh2)
28. He7 — hxg6,29. Rxg6 o.s.frv.
Interpolis skákmótið:
Jóhann tap-
aði fyrir Piket
JÓHANN Hjartarson tapaði fyrir
Hollendingnum Piket í 9. umferð
Interpolis skákmótsins i Hollandi
og er í 4. sæti á mótinu með 4
vinninga. Kasparov vann
Ljubojevic og er með 8 vinninga
og afgerandi forystu á mótinu.
Agdestein og Sax gerðu jafntefli
og Kortsnoj vann Ivanchuk.
Jóhann gerði jafntefli við
Kortsnoj í 8. umferðinni, sem tefld
var á sunnudag. Önnur úrslit urðu
þau að Sax vann Ivanchuk,
Ljubojevic og Agdestein gerðu jafn-
tefli og Piket tapaði fyrir Kasparov.
Þáttakendur í mótinu er átta og
tefla þeir tvöfalda umferð.
Margeir með 6 vinninga
MARGEIR Pétursson, stórmeist-
ari, fékk sex vinninga á opna
alþjóðlega skákmótinu í San
Bernardino í Sviss og varð vinn-
ingi á eftir Búlgaranum Georgi-
ev, Englendingnum Hodgson, og
Júgóslavanum Sokolov, sem urðu.
eftsir og jaftiir með 7 vinninga.
Margeir vann Svisslendinginn
Muller í 7. umferðinni, sem tefld
var á laugardag, tapaði fyrir Zum-
TENTE
VACNHJOL OC
HÚSGAGNAHJÓL
Urvals vestur-þýsk hjól frá
fíngerðustu húsgagnahjólum og
til burðarmestu iðnaðarhjóla.
Það borgar sig að
nota það besta.
Þekking Reynsla Þjónusta
FALKINN
SUÐURLANDSBRAUT 8 SÍMI84670
mermatter, sem er einnig frá Sviss,
í 8. umferð á sunnudag og sigraði
síðan Hollendinginn Schneiders í
gær í síðustu umferðinni.
Margeir sagði í samtali við Morg-
unblaðið að hann hefði orðið að
vinna Zummermatter til þess að
komast í efsta sætið og fórnað
manni, en teygt sig of langt og
tapað skákinni. Fjórir skákmenn
fengu 6,5 vinninga, Cebalo, Ne-
meth, Zummermatter og Costa.
Margeir heldur nú til Danmerk-
ur, þar sem hann teflir við Larsen
og Finnann Yijola um sæti á milli-
svæðamóti á næsta ári. Teflt verður
í Holsterbro og hefst keppnin á
laugardaginn kemur.
Royal