Morgunblaðið - 04.10.1989, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. OKTÓBER 1989
5
Hofsós fær
fjárráð á ný
HOFSÓS fékk á ný flárráð um
síðustu mánaðamót og var lögð
fram fjárhagsáætlun fyrir sveitar-
félagið til þriggja ára, ársins í ár
og tveggja næstu ára. Þar er gert
ráð fyrir að mikils aðhalds verði
gætt í rekstri og framkvæmdum
á vegum sveitarfélagsins.
Fjárráð Hofsóss hafa verið í hönd-
um fjárhaldsstjórnar frá því í desern-
ber á síðasta ári. Henni var falið að
endurskipuleggja Ijármál sveitarfé-
lagsins og ganga frá fjárhagsáætlun
til næstu ára. Að sögn Húnboga
Þorsteinssonar, skrifstofustjóra í fé-
lagsmálaráðuneyti, telur flárhalds-
stjómin sig hafa lokið þessu verkefni
og því voru Hofsósi aftur fengin tjár-
ráðin frá og með 1. september.
Björn ívarsson, sveitarstjóri á
Hofsósi, vildi ekki tjá sig um málið
þar sem formleg tilkynning um að
Hofsós hafi aftur fengið íjárráð hafði
ekki borist sveitarstjórninni í gær.
Reykjavík:
Dagvistargj öld
hækka um 18%
GJÖLD á dagheimilum Reykjavík-
urborgar hækka um tæp 18% frá
og með 1. nóvember. Hækkunin
var samþykkt á fundi borgarráðs
í gær.
Dagvistargjöld voru síðast ákveðin
í apríl. Gjald fyrir fulla.vistun bams
á dagheimili var áður krónur 6.700
fyrir forgangshópa, en hækkar um
næstu mánaðamót í 7.900 krónur.
Hækkunin nemur 17,91%. Fólk utan
forgangshópa hefur greitt 11.200
krónur á mánuði, en gjaldið hækkar
í 13.200 krónur, eða um 17,86%.
Fulltrúar minnihlutans í borgar-
ráði, Kristín Á. Ólafsdóttir og Sigrún
Magnúsdóttir, lögðu til að hækkunin
yrði 9%, þár sem framfærsluvísitalan
hefði hækkað um 9,3% frá apríl til
septembelr og launavísitalan um 6,4%
frá apríl til október. Tillaga þeirra
var felld.
Flug
eiðir:
Harkaleg lend-
ing á Fornebu
EYDÍS, önnur af Boeing 737-
þotum Flugleiða, rak niður stélið
í lendingu á Fornebu-flugvelli við
Osló í gær. Enginn slasaðist við
þessa harkalegu lendingu, að sögn
Einars Sigurðssonar blaðafulltrúa
Flugleiða. Einar sagði að svipti-
vindur virtist hafi valdið því að
þotan rak niður stélið.
Einar Sigurðsson sagði að demp-
ari á stéli þotunnar hefði gengið upp
við lendinguna og gert væri ráð fyr-
ir að einhveijar skemmdir hefðu orð-
ið á festingum við demparann. Hins
vegar væri sérfræðingur frá Boeing
að kanna hvort einhveijar skemmdir
hefðu orðið á þotunni.
Vegna þessa atviks seinkaði flugi
Flugleiða frá Osló, Glasgow og Lúx-
emborg í gær en ekki er gert ráð
fyrir að flugi félagsins seinki í dag
vegna þessa, að sögn Einars.
6,5% hækkun
á rækjuverði
VERÐLAGSRÁÐ sjávarútvegsins
hefúr náð samkomulagi um 6,5%
meðaltalshækkun á verði á rækju
upp úr sjó. Verðið gildir til 31.
janúar á næsta ári.
Nýja verðið tók gildi þann fyrsta
október síðastliðinn. Samkvæmt því
verður greidd 81 króna fyrir kíló af
stærstu rækjunni, 73 krónur fyrir
annan stærðarflokk, 68 fyrir þann
þriðja og 30 krónur fyrir undirmáls-
rækju.
Verðákvörðunin byggist á því, að
afurðaverð erlendis hefur farið lækk-
andi, en gengi pundsins gagnvart
krónunni hefur hækkað um 10% frá
síðustu verðákvörðun í byijun júní-
mánaðar síðastliðins.
AS/400
HUGBÚNAÐAR
—sýning—
4.-6. október
IBM á íslandi og sjö samstarfsaðilar kynna fjölbreyttan hugbúnað,
sérstaklega þróaöan fyrir hina tæknilega fullkomnu AS/400 tölvu frá IBM.
Sýnendur eru:
ALMENNA SINNA OG STRENGUR
KERFISFRÆÐISTOFAN HF. Bústjóri
Hönnunarbúnaöur fyrir AS/400.
Sýnishorn af AS/400 „Native" hugbúnaði.
Ný útgáfa af AS/400 stýrikerfi (útg. 2).
AS/400 Skrifstofusýn
AS/400 PC-tengill fyrir DOS og OS/2
AS/400 Svari og SQL
AS/400 Forritunarumhverfi
AS/400 Sjálfsnám
ÍSLENSKT HUGVIT
Veröbréfakerfið Arður
KERFI HF.
Alvís notendahugbúnaður sem nú þegar er kominn í
notkun á AS/400, m.a.:
Aðalbókhald
Uppgjör og áætlanir
Viðskiptabókhald
Innkaupakerfi
Verkbókhald
PEGASUS
Telex
Telefax
RT ■ TÖLVUTÆKNI HF.
Upplýsingakerfi fyrir framleiðslufyrirtæki í fiskvinnslu,
kjötvinnslu og öðrum iðnaði
Undirstaða undir ný:
úrvinnslukerfi
eftirlitskerfi
áætlanakerfi, ákvarðanakerfi, hermilíkön, og
tölvusamskipti við aðra
Fjárhagsbókhald
Viðskiptamannabókhald
Birgjabókhald
Birgðabókhald
íslenskur viðskiptahugbúnaður viðbót við Bústjóra
Áætlanagerð
Uppgjörskerfi
Heimildakerfi
Skráningareining
ÞRÓUN ■ TÖLVU- OG
REKSTRARRÁÐGJÖF
Birki-S/2
Birgðakerfi
Sölukerfi
Tímaskráningarkerfi
Informatikk
Þjónustukerfi
Fjárhagsbókhald
Fjárhagsáætlanir og yfirlit
Viðskiptamannabókhald
Birgjabókhald
Skýrslugerðarkerfi
Birgðakerfi
Sölukerfi
Frátektarkerfi
Pantanakerfi
Synon/2 hönnunarhugbúnaður
Hér er kjörið tækifæri fyrir núverandi notendur
AS/400 tölvanna og væntanlega kaupendur að fá
heildarsýn yfir þau hugbúnaðarkerfi sem nú eru í
boði og nýta sér tæknilega yfirburði AS/400
tölvanna.
Sýningarstaður: Skaftahlíð 24
Opnunartími:
miðvikudagur
fimmtudagur
föstudagur
4. október kl. 13.00-18.00
5. október kl. 10.00-18.00
6. október kl. 10.00-18.00
FYRST OG FREMST
SKAFTAHLlÐ 24 105 REYKJAVlK SlMI 697700